Morgunblaðið - 20.07.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982
3
Fundiir Alþjóðahvalveiðiráðsins:
Tillaga samþykkt í tækninefnd-
inni um bann við hvalveiðum
— en ekki meö nægum atkvæðafjölda
GENGIÐ var til atkvæða í tækni-
nefnd Alþjódahvalveiðiráðsins í gær
um tillögu frá Seychell-eyjum um
bann við hvalveiðum í atvinnuskyni.
Tillagan var samþykkt í tækninefnd-
inni, en ekki með nægilega miklum
atkvæðafjölda til þess að hún nái
fram að ganga á hinum almenna
fundi ráðsins, en atkvæði um tillög-
una verða greidd þar síðar í vikunni,
að því er Kjartan Júlíusson, fulltrúi
íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu,
sagði í samtali við Morgunblaðið i
gærkvöldi, en fundur ráðsins stend-
ur nú yfir í Brighton í Englandi. Eftir
að atkvæði höfðu verið greidd í
tækninefndinni, var ákveðið að
fresta umræðum um þessa tillögu á
aðalfundinum sjálfum um skeið, en
þess í stað hófust umræður um
stjórnunarmál, sem snerta ráðið
beint
Tillagan, sem samþykkt var í
tækninefnd Alþjóðahafrannsókn-
arráðsins gerir ráð fyrir að hval-
veiðar verði ekki leyfðar eftir 1984.
Fulltrúar 19 þjóða greiddu atkvæði
með banni, fulltrúar 6 þjóða sátu
hjá og 9 þjóðir greiddu atkvæði á
móti banni. Það vakti athygli er-
lendis í gær, að fulltrúi íslands í
Alþjóðahvalveiðiráðinu sat hjá við
atkvæðagreiðsluna, en fram til
þessa hafa íslendingar ávallt greitt
atkvæði gegn banni. A aðalfundin-
um sjálfum þarf % hluta atkvæða
til þess að þessi samþykkt nái fram
að ganga og er talið ósennilegt að
hún hljóti það mikið atkvæðamagn.
Þá vakti það athygli á fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins að fulltrúi
Matvælastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna mælti með því að hvalveiðar
verði stundaðar áfram undir vís-
indalegu eftirliti.
„Það voru lagaðar fram fimm til-
lögur frá ýmsum ríkjum og sem all-
ar beindust að því að banna hval-
veiðar, en nú hafa fjórar þessara
tillagna verið dregnar til baka. Full-
trúar Seyehell-eyja lögðu fram til-
lögu, sem miðar að því að hvalveiðar
í atvinnuskyni verði lagðar niður, en
í þessari tillögu eru einnig nokkrir
fyrirvarar," sagði Kjartan Júlíus-
son. Enn er ekki vitað hvenær geng-
ið verður til atkvæðna um tillögu
Seychell-eyja , en það getur ekki
orðið síðar en á laugardagskvöld,“
sagði Kjartan.
Kjartan sagði að fundur Alþjóða-
hvalveiðiráðsins gengi mjög hægt
fyrir sig og menn færu almennt
mjög hægt í sakirnar. Stuðningsfólk
Greenpeace-samtakanna hefur tek-
ið sér stöðu fyrir utan Metropol-
hótelið, þar sem fundurinn er hald-
inn. Er fólkið þar með upphiásin lík-
ön af hvölum og ennfremur með
mótmælaspjöld.
Fyrir Islands hönd sitja fund Al-
þjóðahvalveiðiráðsins, auk Kjartans
Júlíussonar, Jón Jónsson forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar,
Kristján Loftsson forstjóri Hvals
h.f. og Arni Einarsson frá Náttúru-
verndarráði.
09 snjóinn næsta vetur
SAAB99
Verð frá kr. 160.600
SAAB900
Verð frá kr. 187.600
Nú er einmitt rétti tíminn til þess aðfá sér
framhjóladrifinn bíl fyrir sumarferðalögin.
Framhjóladrifið eykur stórlega öryggi í
akstri á vegum úti - og svo koma kostir þess
enn betur í Ijós í snjónum næsta vetur
- bíddu bara.
Komdu og kynntu þér SAAB
- þú getur verið komin á einn eftir viku
TOGGURHR
SAAB
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530