Morgunblaðið - 20.07.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLl 1982
11
Mreinn Hákonarson
Einn sækir um
Söðulsholt
Á sunnudaginn er leið rann út um-
sóknartrestur um Söðulsholts-
prestakall. Einn umsækjandi var um
prestakallið samkvæmt upplýsingum
Biskupsstofu. Var það Hreinn Há-
konarson guðfræðingur. Útskrifaðist
Hreinn úr guðfræðideild Háskóla ís-
lands vorið 1981.
Var hann í náms- og starfsdvöl
úti í Sigtuna í Svíþjóð hjá Nord-
iska Ekumeniska Institutet
(Kirknasambandi Norðurlanda)
frá síðustu áramótum. Jafnframt
guðfræðiprófi hefur Hreinn kenn-
arapróf, og hefur fengist við
kennslu á Selfossi og víðar.
Hreinn Hákonarson er fæddur í
Reykjavík 18. ágúst 1952, sonur
hjónanna Hákons Guðmundsson-
ar verkamanns og Hönnu Skag-
fjörð húsfreyju. Hreinn er
ókvæntur.
Söðulsholtsprestakall er í Snæ-
fells- og Dalaprófastsdæmi. Sókn-
arkirkjur eru Fáskrúðarbakki,
Kolbeinsstaðir, Syðri-Rauðamelur
og Staðarhraun ásamt kapellu í
Miklaholti. Sóknirnar telja á 4.
hundrað sóknarbörn.
Kvartanir
vegna æfinga
varnarliðsmanna
Kl. 21.15 á laugardagskvöldið var,
17. júlí, bárust kvartanir til löggæzl-
unnar á Keflavíkurflugvelli frá
Njarðvík. Fólk í Njarðvík heyrði
byssuhvelli og kvartaði undan
hávaða.
Að sögn Kjartans Finnbogason-
ar, hjá lögreglustjóranum á Kefla-
víkurflugvelli, fóru menn á vett-
vang og stöðvuðu þetta. Sögðust
varnarliðsmennirnir hafa fengið
fyrirmæli um það, að æfa sig á
svokölluðu „tankasvæði", en hættu
þegar farið var fram á það við þá.
Taldi Kjartan Finnbogason þetta
stafa af ókunnugleika varnarlið9-
mannanna, eða af misskilningi
þeirra á einhvern hátt. Annars
væri ekkert ljóst í þessu enn, þó
skýrsla hefði verið gerð um málið,
en óljóst væri hvað út úr þeirri
rannsókn kæmi.
Norræn ráðstefna
málarameistara
haldin hér á landi
RÁÐSTEFNA sambands norrænna
málarameistara verður haldin í
Reykjavik, dagana 25.-29. júlí nk. að
Hótel Loftleiðum.
Málarameistarafélag Reykjavíkur
hefur verið meðlimur sambandsins
síðan 1950.
Ráðstefnur eru haldnar annað
hvert ár, til skiptis í hverju landi. Er
þetta í fjórða sinn sem ráðstefnan er
haldin hér á landi og mun hún verða
sú fjölmennasta hingað til því þegar
hafa um hundrað þátttakendur frá
Norðurlöndunum tilkynnt komu
sína.
Á ráðstefnunni verða flutt erindi,
kvikmyndir sýndar og umræður
verða um hina margvíslegu þætti
málaraiðninnar.
Stjórn sambandsins er þannig
skipuð: Forseti er Ólafur Jónsson og
aðrir í 9tjórn eru Einar G. Gunn-
arsson og Sæmundur Sigurðsson.
JAPANSKUR BÍLL FYRIR
ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
Tveggja drifa bíii:
Með óvenjulega mikla veghæð (fjarlægð frá vegi
að lægsta punkti undirvagns), stöðugleika, lipurö
og afl..
Kjörgripur til ferðalaga á slæmum vegum og
vegleysum, pó með pægindi og hraöa í fyrir-
rúmi.
Við hönnun pessa bíls hefur víðtæk revnsla
M.M.C. verksm. af smfðí fjölhæfra tveggja drifa
bíla verið nýtt til fullnustu og hefur sérstök
áhersla veriö lögð á frábæra ökuhæfni og mikla
endingu. Milligirkassi er drifinn af tannhjóla-
keðju, sem er mun hljóðlátari en hið hefðbundna
__________________ tannhjóladrif.
Þessi búnaður hefur pá kosti að færri slitfletir eru á aflrásinni, snúningsviðnám minnkar
og ekkert „slag" myndast við átaksbreytingar.
Afturhjól eru knúin beint frá úttaksöxli í aðalgírkassa, sem er sterkari búnaður en venju-
leg útfærsla, auk þess að vera hljóölátari og orsaka minni titring.
Skásettir höggdeyfar aö aftan, ásamt breiðum blaðfjöðrum með mikiö fjöðrunarsvið,
pó án bess aö afturásinn vindist til, pegar spyrnt er eða hemlað eins og pekkt er á bílum
með heilum afturás.
Æsklleg þungadreyfing með og án hleöslu, sem stuðlar að fullu örvggi í akstri á veg-
leysum.
Hægt er að velja um bensín eöa dieselvél báöar meö titringsdeyfum, sem gera ganginn
afburoa hljóðan og þýðann.
Snerilfjöðrun að framan með tvöföldum
spyrnum, strokk-höggdeyfum og jafnvægis-
stöng.
snekkjustýrisvél með æskilega undirstýringu í
beygjum.
Aflhemlar með diskum að framan.
Hrevfillinn framleiðir mikiö snúningsvægi útá
hjólbarðana, sem gefa afar gott grip á hvers-
konar vfirborði vegar.
Allt þetta leiðir af sér undirvagn í sérflokki, sem
er þýður, þægilegur, auöveldur í akstri og frá-
bær til snúninga í torfærum.
INNIFALINN BÚNAÐUR:
□ Framdrlfsvísir - □ 7,60-15 hjólbarðar
□ Dráttarkrókur aö aftan
□ Olíuþrýstlngsmællr - □ Hallamællr
□ Snúnlngshraðamællr - □ spennumællr
□ Tölvuklukka (Ouarts) - □ Framdrlfslokur
□ Halogen ökuljós - □ Mlðstöð afturí
□ Aflstýrl - □ varnarhorn á vatnskassahlíf
□ Hlífðarplötur undlr framenda, vél,
gírkassa og eldsneytisgeyml
□ Hægindastólar framí meö fjaörandi
undlrstöðu
□ Útlspeglar á báðum hurðum
□ upphltuð afturrúöa - □ Lltaö gler
□ Þurrka og sprauta á afturrúöu
HELSTU KOSTIR:
□ Mikli veghæð
□ Hátt hlutfali orku: þunga
□ Mjög sparneytln 2.6 I. bensínvél,
eða 2,3 l. dieselvél
□ Sjálfstæö fjöðrun framhjóla
□ skásettlr höggdeyfar aö aftan
□ Fagurt og nýtískulegt útllt
□ innréttlng, sem veltlr þæglndl og
gleðuraugað
HELSTU MAL PAJERO LAND ROVER FORD BRONCO SUZUKI
HJÓLAHAF 23SO 2230 2337 2030
HEILDARLENCC 3920 3620 3863 3420
BREIDD 1680 1690 1755 1460
VEGHÆÐ 235 178 206 240
HÆÐ 1880 1970 1900 1700
EGIN ÞYNCD 1395 1451 1615 855
hIhekiahf
J Laugavegi 170-172 Sími 21240
Athygll skal vakln á því aö þau mál af Mltsubishl pajero
sem blrtst hafa í auglýslngum véladelidar sís aö undan-
förnu eru röng.
PRISMA