Morgunblaðið - 20.07.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRlÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
Dodge
Aries ’82
Eigum til aðeins fáein eintök eftir af þessum frábæra
framhjóladrifs lúxusbil frá Chrysler. Dodge Aries er
nú eftirsóttasti framhjóladrifsbíllinn í Bandaríkjunum.
Helsti búnaður í bílnum er m.a.: Sjálfskipting, vökva-
stýri, aflhemlar, 4 cyl. 98 ha. vél., digitalklukka, tölvu-
stýrður kveikjutími og lúxus frágangur í hólf og gólf.
Verð á Aries 4dr er ca. kr. 246.000 m. viö gengi pr.
1.7. ’82 — Aries station kr. 254.800 m.
Mundu að Dodge Aries er leiðtogi á tækniöld.
& Wíökull hf.
Armula 36. Simar 84366 - 84491
Hrein hús — fögur borg
Háþrýstiþvottur
Tökum að okkur þvott með háþrýsti-
tækjum. Mjög góður árangur.
Hreinsum einnig gamla málningu af
húsum. Einnig leigðir út stál- og ál-
vinnupallar og stigar.
Pantið tímanlega. Uppl. í síma
42322 og á kvöldin í síma 78462 og
15926.
Ath.:
Eigendur húsa
með kvarts og
hrafntinnu
(skeljasandi).
HEL0 SAUNA
Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu veröi.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945
Um ráðningu bæjar-
stjóra á Dalvík
Eftir Helga Þorsteins-
son bæjarfulltrúa
Svo sem kunnugt er af fréttum
unnu framsóknarmenn eftir-
minnilegan kosningasigur á Dal-
vík í síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum, fengu 4 fulltrúa af 7 og þar
með hreinan meirihluta. Fyrir
kosningar var ljóst, að Valdimar
Bragason, sem gegnt hefur emb-
ætti bæjarstjóra sl. 8 ár með mikl-
um ágætum, mundi ekki starfa út
kjörtímabilið. Ekki munu menn þó
almennt hafa búist við afsögn
hans svo fljótt sem raun varð á.
Fyrsta meiriháttar málið sem
kom til kasta nýkjörinnar bæjar-
stjórnar varð því ráðning bæjar-
stjóra og bjuggust bæjarbúar við
að samhentur meirihluti mundi
standa að málinu með þeirri reisn,
sem starfinu sæmdi, og reyna að
skapa einingu í bæjarstjórn og
meðal bæjarbúa um ráðningu
bæjarstjóra. En málin tóku aðra
stefnu.
Hinn 25. júní sl. rann út um-
sóknarfrestur um starfið og höfðu
Helgi Þorsteinsson
þá 10 umsóknir borist, þar af 7
með nafnleynd. Á fundi í bæjar-
ráði 28. júní voru umsóknir af-
hentar bæjarfulltrúum sem trún-
aðarmál. Nú leið og beið. Umsókn-
irnar 10 voru hvorki teknar til
umræðu og athugunar í bæjar-
stjórn né bæjarráði. Þaðan af síð-
ur að fulltrúar Framsóknar leit-
uðu óformlega eftir samráði við
minnihlutann í bæjarstjórn. Hins
vegar tóku bæjarbúar eftir því að
tveir af þingmönnum kjördæmis-
ins, þeir Stefán Valgeirsson og
Guðmundur Bjarnason, virtust
eiga nokkuð brýn erindi við bæjar-
stjórnarmeirihlutann næstu daga.
Þegar sýnilegt var, að ekki mundi
leitað álits okkar sem í minnihluta
erum, þ.e. Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandlags,
fórum við að bera saman bækur
okkar og í ljós kom, að öll höfðum
við valið sömu umsóknina frá
Þorsteini Mána Árnasyni. Loks
kom þó að því hinn 15. júlí kl.
17.00, að bæjarstjórn kom saman
til fundar og með ráðningu bæjar-
stjóra á dagskrá. Áheyrendur
voru allmargir, sem heyrir til tíð-
inda á Dalvík. Afgreiðsla málsins
gekk þannig:
Forseti bæjarstjórnar kynnti
dagskrárliðinn og lagði því næst
fram tillögu undirritaða af 4 full-
trúum framsóknarmanna, þar
sem lagt var til, að Stefán Jón
Bjarnason yrði ráðinn bæjar-
Þeir reyndust sannspáir
Bókmenntír
Hannes H. Gissurarson
Árni Sigfússon (ritstj.):
Stefnir
1. hefti '1982.
Útg. Samband ungra
sjálfstæðismanna.
Glöggt er gestsaugað, segir í
orðskviðum. Gestir taka stundum
eftir því, sem fer framhjá heima-
mönnum. Ég bý í Bretlandi mest-
an hluta ársins, kem því til Is-
lands eins og gestur og kann að
taka eftir ýmsum breytingum,
sem hefðu farið framhjá mér, ef
ég hefði búið á íslandi. Ein mesta
breytingin, sem ég tek eftir í
stjórnmálunum, er sú, sem hefur
orðið á Sjálfstæðisflokknum. Svo
virðist sem flokkurinn ætli að
komast heill út úr þeirri kreppu,
sem hann hefur verið í síðustu
fimm árin. Andstæðingum hans
virðist hafa mistekist að kljúfa
hann, eins og byggðakosningarnar
í maí sl. sýna.
Hvað veldur? Ég er ekki í nein-
um vafa um, að eitt svarið við
þessari spurningu liggur í fjöl-
mennum hópi ungra sjálfstæð-
ismanna, sem hefur stigið inn á
vettvang stjórnmálanna. Hann
hefur gefið flokknum nýjan og
bjartari svip. Þau Kjartan Gunn-
arsson lögfræðingur og Inga Jóna
Þórðardóttir viðskiptafræðingur
hafa tekið við framkvæmdastjóra-
störfum hjá flokknum, Árni Sig-
fússon kennari var kjörinn for-
maður Heimdallar vorið 1981 með
meiri yfirburðum en dæmi voru
um, og Geir H. Haarde hagfræð-
ingur formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna haustið 1981 án
mótframboðs, Friðrik Sophusson
lpgfræðingur var kjörinn varafor-
maður flokksins á landsfundi í
nóvember 1981, og síðast ekki síst,
tók Davíð Oddsson, lögfræðingur
og leikskáld, forystu í borgarmál-
um og er nú orðinn borgarstjóri í
Reykjavík.
Sumarið 1978 hélt Heimdallur í
Reykjavík sögulegan fund eftir
hina miklu kosningaósigra
Sjálfstæðisflokksins þá um vorið.
Þar voru ýmsir kunnustu forystu-
menn flokksins ræðumenn, Geir
Hallgrímsson, Gunnar Thorodd-
sen, Birgir ísl. Gunnarsson,
Ragnhildur Helgadóttir, Albert
Guðmundsson og Friðrik Sophus-
son. Sjálfstæðismenn voru að von-
um áhyggjufullir, fundurinn var
fjölmennur, og umræður voru
heitar. En sá, sem flutti að öðrum
ólöstuðum bestu ræðuna, var Dav-
íð Oddsson. Hann þorði að segja
forystumönnum flokksins til
syndanna, en gerði það af fullkom-
inni kurteisi og án nokkurs nöld-
urs. Ræða hans, sem birtist í Upp-
reisn frjálshyggjunnar ári síðar, var
ekki aðeins ádeila, heldur líka
hvatning — hann leit ekki síður til
framtíðarinnar en fortíðarinnar.
Hún var flutt af miklum þrótti,
hann hitti beint I hjartastað fund-
armanna. Ymsir rosknir sjálf-
stæðismenn höfðu við orð eftir
þennan fund, að nýr stjórnmála-
leiðtogi væri kominn til sögunnar.
Þeir reyndust sannspáir, kjósend-
ur í Reykjavík tóku undir með
þeim í kosningunum 1982 með eft-
irminnilegum hætti.
í fyrsta hefti Stefnis, tímarits
ungra sjálfstæðismanna, á þessu
ári er aðalviðtalið við Davíð. Heft-
ið var gefið út fyrir byggðakosn-
ingarnar og helgað þeim. Davíð
segir m.a. í viðtalinu: „Ég eins og
margir aðrir hafa dregist að
Sjálfstæðisflokknum vegna stefnu
flokksins. Ég held að þessi stefna
eigi best við íslendinga enda mið-
ar stefna Sjálfstæðisflokksins að
því að fela einstaklingnum for-
Tilboö óskast í eftirtalda lyftara:
Gerö: Árgerö: Lyftigeta:
Hyster D 1966 3000 kg.
Clark D 1966 3000 kg.
Clark D 1966 3000 kg.
Steinbock D 1966 2500 kg.
Esslingen R 1957 2500 kg.
Esslingen R 1963 3100 kg.
Lyftararnir veröa til sýnis á bílastæöi viö Hliðvarðarskúr í Sundahöfn mánudaginn
19. júlí og þriöjudaginn 20. júlí kl. 9—16, og öörum tíma eftir samkomulagi. Tilboð-
um skal skilaö til Innkaupadeildar, Hf. Eimskipafélags íslands, Pósthússtræti 2,
Reykjavík, fyrir kl. 16.30, 31. júlí 1982.
Hf. Eimskipafélag íslands.