Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982
15
stjóri. Engin greinargerð fyrir
þessu vali fylgdi tillögunni. Full-
trúar minnihlutans, Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, fluttu þá breytingar-
tillögu þar sem lagt var til að Þor-
steinn Máni Arnason yrði ráðinn.
Rökstuðningur fyrir vali okkar
fylgdi tillögunni. Niðurstaðan
varð svo auðvitað sú, að Stefán
Jón Bjarnason var ráðinn bæjar-
stjóri með 4 atkv. Aðrir sátu hjá.
Ekki þætti mér nú ólíklegt, að
Dalvíkingum fyndist fróðlegt að
sjá, hvað þessir tveir menn hafa
til síns ágætis:
Stefán Jón Bjarnason er fæddur
árið 1948 á Húsavík. Að loknu
miðskóla- og gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Húsavík
fór hann í Samvinnuskólann á
Bifröst. Að loknu prófi þaðan
gerðist hann starfsmaður lífeyris-
sjóðs og verkalýðsfélags árin
1971-1974. Árin 1974-1977 var
hann deildarstjóri hjá Kaupfélagi
Þingeyinga og skrifstofumaður
hjá sama fyrirtæki frá 1977.
Þorsteinn Máni Árnason er
fæddur á Dalvík 1949. Hann lauk
prófi frá Samvinnuskólanum á
Bifröst og fór síðan í eins árs
framhaldsnám á vegum Sjávaraf-
urðadeildar SIS og Samvinnuskól-
ans. 1971—1972 stundaði hann
nám við London School of Foreign
Trade. 1972 réðst hann til starfa
hjá skipamiðlun í Kaupmanna-
höfn og starfaði við hana næstu 4
ár. Jafnframt stundaði hann nám
við Köbenhavns Handels Hojskole
og lauk þaðan HD-prófi (sam-
kvæmt upplýsingum danska
sendiráðsins er þetta 4—5 ára
nám að loknu stúdentsprófi og því
hliðstætt viðskiptafræðiprófi frá
Háskóla íslands). Síðustu ár hefur
hann starfrækt ferðaskrifstofu í
Kaupmannahöfn og hafa margir
Islendingar notið fyrirgreiðslu
hans. Þá hefur hann tekið mikinn
þátt í starfsemi námsmannafélaga
og íslendingafélaganna í London
og Kaupmannahöfn.
Þetta eru þær staðreyndir, sem
bæjarfulltrúar hafa til að grunda
val sitt. Síðan bætist auðvitað við
persónuleg kynni, umsagnir ann-
arra og auk þess slúður og sleggju-
dómar héðan og þaðan.
Svona í lokin má svo bæta því
við, að ég var rétt kominn heim að
fundi loknum, þegar ég heyrði
sagt frá því í fréttum útvarpsins,
að á bæjarstjórnarfundi á Dalvík
hefði verið „tilkynnt" hver yrði
ráðinn bæjarstjóri. Rétt á eftir
gaukaði nágranni minn að mér
nýjasta Degi, sem kom út um
morguninn þennan sama dag. Þar
var á forsíðu sagt frá hver væri
ráðinn bæjarstjóri og auk þess
nafngreindur nýráðinn bæjarrit-
ari, en sú ráðning hefur ekki enn
verið á dagskrá bæjarstjórnar.
Það hvarflaði svona rétt að mér
hvað væri eiginlega verið að gera
með bæjarstjórn á Dalvík fyrst
ákvarðanir væru teknar úti í bæ
og síðan tilkynntar fyrirfram í
Degi á Akureyri og lái mér hver
sem vill.
Helgi Þorsteinsson,
bæjarfulltrúi á Dalvík.
HRAUN
utanhússmálning
meiraen
15ára
ending
eru bestu
meðmælin
málninghlf
Davíð Oddsson
ræði sem allra flestra mála. Trúin
á það að frumkvæði einstakl-
inganna til orðs og æðis leiði til
hagfelldastrar niðurstöðu og skili
mestu til þjóðfélagsins þegar til
lengdar lætur er megininntakið."
Davíð segir um þau vandræði, sem
sjálfstæðismenn hafa ratað í og
rætt var um í upphafi þessa rit-
dóms: „Nú bendir allt til þess að
óróleikinn í flokknum verði brátt
úr sögunni og mun því ekki verða
neitt framtíðarmein í Sjálfstæðis-
flokknum og ég þykist vita að
þessi þrekraun eigi eftir að verða
Sjálfstæðisflokknum til góðs,
fyrst hann hefur staðist hana.“
Árni Sigfússon ritstýrði þessu
hefti Stefnis, sem er mjög mynd-
arlegt eins og nokkur síðustu hefti
tímaritsins. Tvær athyglisverðar
greinar eru í því eftir útlendinga.
Ónnur er eftir Jeane Kirckpatrick,
sendiherra Bandaríkjanna við
Sameinuðu þjóðirnar. Hún gerir
greinarmun á einræði (dictator-
ship) og alræði (totalitarianism)
og bendir á, að miklu meiri líkur
eru á lýðræðisþróun í einræðis-
ríkjum en alræðisríkjum. (Portú-
gal, Spánn og Grikkland eru góð
dæmi um einræðisríki, sem hafa
orðið lýðræðisríki, en Ráðstjórn-
arríkin og Kína um alræðisríki.)
Kirckpatrick telur því, að
Bandarikjamenn eigi fremur að
styðja einræðisstjórnir en alræð-
Árni Sigfússon
ishreyfingar, þegar ekki séu fleiri
kostir tiltækir, eins og í ýmsum
löndum Vesturheims, þar sem ein-
ræðisstjórnir berjast við skæru-
liðahreyfingar marxsinna. Ég get
ekki sagt annað en að ég sé sam-
mála henni.
Hin greinin er eftir rússneska
andófsmanninn Vladimír Bú-
kofskí, sem varar við hinni
svonefndu friðarhreyfingu á Vest-
urlöndum. Grein hans birtist í The
Times í Lundúnum og vakti mikla
athygli, enda er litið svo á í Bret-
landi, að „friðarhreyfingin" sé
ekkert annað en nýtt nafn á hinni
gömlu róttæklingahreyfingu, sem
lifir og nærist á Bandaríkjahatri.
Við grein Búkofskís getur og að
líta annál „friðarhreyfinga"
þeirra, sem Kremlverjar hafa
hleypt af stað reglulega, en Steinn
Steinarr sagði háðslega, eins og
frægt er orðið, að Rússar væru
ekki amalegir — þeir hefðu fundið
upp friðinn!
Margt fleira er í þessu hefti
Stefnis, yfirlit yfir framboð
Sjálfstæðisflokksins í byggða-
kosningunum, kafli úr væntan-
legri bók Milton Friedmans, Nó-
belsverðlaunahafa í hagfræði, og
fréttir af starfsemi ungra sjálf-
stæðismanna, sem er mjög blóm-
leg. Heftið er eins og tvö næstu
hefti á undan því til marks um það
mikla líf, sem færst hefur í unga
sjálfstæðismenn.
VILTU
losna við
HALDIÐ
Marley FLOWLINE þakrennur eru úr frostþolnu, sterku,
gegnlituðu plasti sem ekki þarfnast viðhalds.
Marley Extrusions hafa hlotið
meðmæli rannsóknarstofnana í
Englandi, - enda með yfir 20 ára
reynslu í UPVC þakrennukerfum
Fjárfesting í Marley þakrennum gefur arð ævilangt.
PAKRENNUE SEM ERU EINFALDAR í UFPSETNINGU
heildverslun
Marinó Pétursson
Sundaborg 7. 124 Reykjavik simi: 81044