Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
HöIðustöAvar bresku leyniþjónustunnar í Cheltenham. Ottast er að nýtt njósnahneyksli kunni áð koma upp á yfirborðið í kjölfar handtöku manns, sem
grunaður er um alvarlegar njósnir.
Orðrómur um nýtt njósnahneyksli magnast:
Thatcher skýrir frá stað-
reyndum í þinginu í dag
l.ondon, 1». júlí. Al*.
Á sama tíma og sterkur orðrómur
var á kreiki þess efnis í Lundúnum
að eitt mesta njósnamál Breta væri
í uppsiglinu lýsti Margaret Thatoh-
er þvi yfir, að hún myndi gefa út
yfirlýsingu í Neðri málstofu breska
þingsins á morgun, þriðjudag.
Ottinn við nýtt njósnamál á
rætur að rekja til handtöku
manns að nafni Geoffrey Arthur
í Hereford á fimmtudag. Strax
við handtöku hans var því lýst
yfir, að hér væri um grafalvar-
legt mál að ræða. Dagblað lýsti
honum sem rússneskumælandi
og fyrrum starfsmanni fjar-
skiptastöðvar.
Þrýstingur á Thatcher hefur
mjög aukist frá því fréttist að
e.t.v. væri stórmál í uppsiglingu,
en hún hefur nú fallist á að
skýra frá staðreyndum í málinu
í Neðri málstofunni. Líklegt er
þó talið að hún muni gefa heild-
aryfirlýsingu um málið og ekki
fara út í smáatriði.
Mörg njósnahneyksli hafa
komið upp í Bretlandi frá lokum
síðari heimsstyrjaldarinnar og
það síðasta var þegar Roger
Hollis, yfirmaður bresku leyni-
þjónustunnar um 11 ára skeið,
var grunaður um njósnir í þágu
Sovétmanna.
Staða Begins sterkari
en nokkru sinni fyrr
Tel Aviv. 19. júlí. Al>.
ÞRÁTT fyrir innrásina i Líbanon og
óróleikann innanlands, sem henni
fylgdi, hefur staða Menachim Begin,
forsætisráðherra, styrkst mjög und-
anfarið. Kom þetta glögglega fram í
skoðanakönnun, sem gerð var ný-
lega. Eru vinsældir hans nú slíkar í
landinu, að aðeins Golda Meir er
talin hafa notið meiri stuðnings á
meðal almennings á meðan hún var
á hátindi stjórnmálaferils síns. Nýt-
ur Begin nú stuðnings 80—90% allra
í landinu.
Vinsældir Begin komu vel í ljós
á laugardagskvöld er efnt var til
fjöldagöngu tii stuðnings stríðs-
rekstrar Israelsmanna í Líbanon.
Alls tóku um 200.000 manns þátt í
göngunni eða 5% þjóðarinnar. Var
þetta fjölmennasta ganga sem um
getur í landinu, sem telur 4 millj-
ónir íbúa. Hrópaði fólkið „Begin
konungur ísraels" og margir báru
spjöld þar sem á var letrað „Guð
blessi þig Menachem Begin".
Í ræðu, sem Begin hélt við þetta
tækifæri minnti hann andstæð-
inga sína á ummæli þeirra, er þeir
sögðu hann aðeins hafa notað inn-
rás í Líbanon sem kosningabrellu.
„Mér var alltaf alvara í að tryggja
öryggi þeirra íbúa landsins, sem
búa við landamærin við Líbanon.
Það öryggi varð ekki tryggt nema
með róttækum aðgerðum, sem
hafa borið ríkulegan ávöxt," sagði
Begin.
Bretland:
Járnbrautarverkfalli
brautirnar fram sigur. Féllust breytilegan vinntuíma, þ.e. mis-
lestarstjórarnir á að vinna jafnlega langar vaktir, en
Þrír háttsettir end-
urráðnir af Reagan
Waxhint'ton, 19. iúlí. AP.
liondon, 19. júlí. AP.
FERÐIR bresku járnbrautanna
voru með nær eðlilegum hætti í
dag, eftir að lestarstjórar hættu
verkfalli sínu, sem staðið hafði í
tvær vikur samfleytt. Litið er á
uppgjöf lestarstjóranna sem sigur
fyrir stefnu stjórnar Maragret
Thatcher, forsætisráðherra, sem
sýnt hefur harða afstöðu og haft á
prjónunum að takmarka umsvif
verkalýðsfélaga.
talsmaður lestarstjóra, Ray
Buckton, sagðist ekki hafa átt
annarra kosta völ en aflýsa
verkfalli vegna slakra undir-
tekta verkalýðshreyfingarinnar
brezku við aðgerðirnar.
Deilan snerist um vinnutíma-
fyrirkomulag og höfðu járn-
GEORGE P. Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hóf störf í emb-
ætti sínu í dag. IJm leið endurréði
Ronald Reagan, forseti landsins, þrjá
æðstu menn ráðuneytisins, sem starf-
að höfðu undir stjóra Alexander
Haigs.
Sterkur en óstaðfestur orðrómur
var á kreiki þess efnis að uppstokk-
un væri fyrirhuguð í röðum ann-
arra háttsettra embættismanna
innan ráðuneytisins, sem mynduðu
kjarnann í ráðuneyti Haigs.
Lawrence S. Eagleburger, stjórn-
málalegur aðstoöarutanríkisráð-
herra, var beðinn um að starfa
áfram í embætti og kom nokkuð á
óvart að hann skyldi verða við
þeirri ósk.
Sú útnefning, sem kom hins veg-
ar mest á óvart, var, að Kenneth
W. Dam, yfirmaður Chicago-há-
skóla og samstarfsmaður Schultz
um langt skeið, skyldi vera út-
nefndur aðstoðarutanrikisráð-
herra. Tekur Dam við af Walther J.
Stössel, sem mun verða Schultz
innan handar sem ráðgjafi, óski
hann þess.
Begin
aflýst
vaktafyrirkomulagið hafði verið
óbreytt frá 1919.
Af hálfu járnbrautanna hafði
því verið hótað, að ef lestar-
stjórarnir aflýstu ekki aðgerð-
um sínum fyrir daginn í dag,
yrði járnbrautunum lokað frá
og með miðnætti á þriðjudags-
kvöld og lestarstjórunum sagt
upp. Járnbrautafarir hófust á
Bretlandi á síðustu öld, og dag-
lega ferðast milljónir Breta til
vinnu með lestum.
Á sama tíma og lestarverk-
fallinu lauk, hófst verkfall
næstum einnar milljónar hjúkr-
unarkvénna og starfsfólks á
sjúkrahúsum, sem krefst launa-
hækkana, er því aðeins um
neyðara þjónustu á sjúkrahús-
um að ræða.
Tukmakov
efstur
Las Palnas. 19. júlí. AP.
SOVÉZKI stórmeistarinn Vladimir
Tukmakov hefur tekið forystu eftir
fimm umferðir á millisvæðamótinu,
sem haldið er á Kanaríeyjum.
Tukmakov hefur hlotið 3,5 vinninga
og á óteflda biðskák, en með 3 vinn-
inga eru Kússinn Vasily Smislov, Bent
Larsen, Uanmörku, Tigran Petrosian,
Sovétríkjunum, Jan Timman, Hollandi
' og Zoltan Ribli, llngverjalandi.
Tukmakov vann í dag biðskák sína
við Smislov og Ribli og Timman
sömdu um jafntefli í sinni biðskák
frá því á fimmtudag. Hins vegar
knúði Bandarikjamaðurinn Walter
Brown fram vinning í biðskák sinni
við Michael Suba frá Rúmeníu.
Alls taka 14 skákmenn þátt í mót-
inu á Kanaríeyjum, sem er eitt
þriggja millisvæðamóta. Efstu tveir
á hverju móti tefla síðan um réttinn
til að skora á Karpov heimsmeist-
ara, ásamt þeim Viktor Korchnoi og
Robert Hiibner, V-Þýzkalandi. Hin
mótin tvö verða haldin í Mexíkó og
Moskvu.
Veður
Akureyn Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUssel Chicago Dyflinni Feneyjar Frankfurt Genl Helsínkí Hong Kong Jerúsalem 12 skýjeð 23 heiöskírt 34 heiðskfrt 23 mistur 25 skýjað 25 heiötklrt 31 rígning 21 heiðskirt vantar vantar 26 heióakfrt 14 heiðakirt 31 heiðakírt 30 heiðakfrt
Kairó IV IISIUBRH1 34 heiðakirt
Kaupmannahöfn 22 heiðakírt
Laa Palmas 26 skýjað
Lissabon 23 heiðskírt
London 23 heiðskirt
Los Angeles 27 heiðskirt
Madrid 35 heiðskirt
Malaga 27 heiðskirt
Mallorca 29 súld
Mexíkóborg 25 skýjað
Miami 31 skýjað
Moskva 26 heiðskfrt
Nýja Delhi 39 skýjað
New York 37 rigníng
Osló 24 heiðskfrt
Paris 26 ský’að
Perth 17 skýjað
Reykjavík 9 alakýjað
Rio de Janeiro 28 rigning
Rómaborg 34 haiðakirt
San Francisco 17 akýjað
Stokkhótmur 27 haiðakfrt
Sydney 13 rignlng
Fylgst með
sovézku
njósnaskipi
Viktoriu, 19. júli. AP.
KANADÍSKIJR tundurspillir
fylgir sovéska njósnaskipinu
Gavril Sarychev eftir, þar sem
það reynir að fylgjast með ferð-
um bandaríska kjarnorkukaf-
bátsins USS Ohio, sem er af Tri-
dent-gerð.
Njósnaskipið heldur sig
skammt frá Juan de Fuca-
sundinu, þar sem búist er við
að Ohio sigli síðar í mánuðin-
um, en kafbáturinn er væntan-
legur til heimahafnar í Bangor
í Washington-ríki síðar í mán-
uðinum og þarf að sigla Juan
de Fuca-sundið á leið sinni
þangað.
Kanadískur aðmíráll spáði
því að njósnaskipið rússneska
myndi halda sig í námunda við
sundið a.m.k. sex vikur ef með
þyrfti. Skipið, sem er 2.600
smálestir að stærð, er hlaðið
rafeindabúnaði til hluatunar
og njósna.
Bandaríski sjóherinn fylgd-
ist með ferðum sovéska
njósnaskipsins yfir Kyrrahaf-
ið, en Kanadamenn tóku svo
við er Gavril Sarychev nálgað-
ist strendur Kanada.