Morgunblaðið - 20.07.1982, Page 38
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
• Austurríski kappakstursmaðurinn Niki Lauda er sagður aka betur en
nokkru sinni lyrr i „Formula l“-kappakstrinum. Á litlu innfelldu myndinni
má sjá andlitslýti þau er hann hlaut er hann varð fyrir miklu slysi í kapp-
akstri fyrir nokkrum árum.
Lauda sigraði í
breska Grand Prix-
kappakstrinum
NIKI Lauda frá Austurríki sigraði
um helgina i breska Grand Prix-
kappakstrinum, og varð hann rúm-
lega 25 sek. á undan Frakkanum
Didier Peroni, sem varð annar.
Lauda ók vegalengdina á 1 klst. 35
mín. og 33,812 sek. Meðalhraði hans
var 200,68 kílómetrar á klst. Lauda
ekur á MrLaren-bíl. Pironi er á
Ferrari Turbo, og þriðji maður einn-
ig, Patrirk Tambay, Frakklandi.
Næstu menn voru Elio de Ang-
elis, Italíu, Irinn Derek Daly,
Frakkinn Alan Prost, Bruno Giac-
omelli, Italiu, Brian Henton,
Bretlandi, Mauro Baldi, Italíu og
Þjóðverjinn Jochen Mass. Eftir 10
kappakstra í keppninni um heims-
meistaratitilinn er staða efstu
manna þessi:
1. Didier Pironi, Frakkl. 35 stig.
2. John Watson, Bretland 30 stig.
3. Niki Lauda, Austurríki 24 stig.
4. Keke Rosberg, Finnl. 21 stig.
5. Riccardo Patresse.ít. 19 stig.
6. Alan Prost, Frakkland 19 stig.
7. Nelson Piquet, Brasilia 17 stig.
8. Elio de Angelis, Ítalía 13 stig.
9. Michele Alboreto, ítalialO stig.
10. Eddie Cheever, Bandar. 10 stig.
Pór tapaði í Njarðvík
Njarðvíkingar sigruðu Þór frá Ak-
ureyri í 2. deildinni á heimavelli sín-
um um heigina. Skoruðu þeir eina
mark leiksins í scinni hálfleik. Leik-
urinn fór fram í miklu roki og voru
gæði knattspyrnunnar heldur af
skornum skammti.
Þórsarar sóttu mun meira framan
af og áttu mjög gott færi á 18.
mín. er Sævar markvörður Njarð-
víkinga varði vel. Var leikurinn
þófkenndur og lítið um færi og var
ekkert skorað fyrir hlé.
Heimamenn sóttu öllu meira í
síðari hálfleiknum og skoruðu þá
eina mark leiksins. Var Jón Hall-
dórsson þar að verki. Guðmundur
Sighvatsson gaf boltann á Jon sem
braust í gegnum vörnina og
skoraði. — Vigdís.
Þróttur R missti stig í
BARÁTTDGLEÐI Skallagríms virt-
ist koma leikmönnum Þróttar,
Reykjavík, í opna skjöldu þegar liðin
mættust um helgina á Borgarnes-
velli, í 2. deild íslandsmótsins í
knatLspyrnu. Liðin skildu jöfn, hvor-
ugu liðinu tókst að skora mark. Eftir
hrakfarir Nkallagríms, sem er neðst
í deildinni, að undanfornu þótti lík-
legt að Þróttur, sem leiðir deildina,
færi létt með Skallagrím en svo var
alls ekki, Einar Friðþjófsson, þjálf-
ari Skallagrims, gerði nokkrar breyt-
ingar á liði sínu, fór meðal annars
inná sjálfur, og virtust þessar breyt-
ingar gerbreyta liðinu og var allt
annað að sjá leik þess i þessum leik
en að undanförnu.
Þróttur sótti undan golu í fyrri
hálfleik en leikmönnum Þróttar
tókst ekki að skapa sér opin
marktækifæri, þess í stað reyndu
þeir langskot, en Halldór í
Skallagrímsmarkinu var í essinu
sínu og varði allt sem að marki
kom. Skallagrímsmenn áttu tvö
umtalsverð marktækifæri í hálf-
leiknum. I byrjun leiksins komst
Ómar Sigurðsson í gott færi en
skaut yfir og undir lok hálfleiks-
ins átti Bergþór Magnússon skot á
markið sem fyrst fór í varnar-
mann, síðan í markstöngina og
þaðan í fangið á markmanninum.
í seinni hálfleiknum léku
Skallagrímsmenn undan golunni,
og sóttu oft á tíðum stíft að marki
Þróttar. Þróttarar urðu fyrir því
óhappi í byrjun halfleiksins að
Bjarna Harðarsyni var vísað af
leikvelli fyrir gróft brot og síðan
munnsöfnuð við dómarann, og
léku þeir því einum leikmanni
færri í hálfleiknum. Þrátt fyrir að
oft skapaðist hætta við mark
Þróttar stóðst vörnin öll áföll og
reyndu Þróttarar alltaf að byggja
upp sóknir en þær strönduðu á
baráttuglöðum heimamönnum.
Þegar Asgeir Elíasson kom inná
hjá Þrótti 15 mín. fyrir leikslok,
færðist aftur líf í liðið en það var
samt Gunnar Jónsson i liði Skalla-
gríms sem rétt fyrir leikslok
komst einn innfyrir vörn Þróttar
og vippaði boltanum yfir mark-
vörðinn en yfir markið fór boltinn
einnig. 0—0 urðu því úrslit leiks-
ins. I liði Skallagríms voru Hall-
dór markvörður, Jón Ragnarsson
og Gunnar Jónsson einna bestir,
en baráttugleði einkenndi leik alls
liðsins.
Hjá Þrótti var vörnin besti hluti
ÍBV fylgir Víkingum
fast á eftir í topp-
baráttu 1. deijdar
Sigurlás skoraöi öll mörk ÍBV
VESTMANNAEYINGAR fylgja Víkingum fast eftir í toppbarátt-
unni í 1. deild eftir góöan sigur ÍBV á ÍBÍ í Eyjum á laugardag-
inn. ÍBV sigraði í leiknum 3—1 og það var Sigurlás Þorleifsson
sem var hetja Eyjaliösins, skoraði öll þrjú mörk liðs síns.
Einstök óheppni við markaskorun hefur elt og þjakað þennan
mikla markaskorara í allt sumar og fyrir þennan leik hafði
Sigurlás aöeins skorað eitt mark í 9 leikjum ÍBV-liösins, en nú
small allt vel og lukkulega saman hjá Lása. ísfiröingar urðu hér
að láta í minni pokann fyrir betra liði og liöiö aö vestan er nú
að færast í ólgandi yöu fallbaráttunnar eftir Ijómandi góða
byrjun í mótinu. En liöiö á e.t.v. stig til góða frá Valsmönnum
og þau gætu orðið liðinu veruleg búbót ef enn harðnar á
dalnum hjá liöinu.
ísfirðingar fengu á laugardag-
inn sannkallaöa óskabyrjun, því
þeir skoruðu mark strax á 3. mín-
útu, mark sem Páll markvörður
IBV mun ekki gleyma á næstunni.
Gunnar Pétursson framkvæmdi
þá hornspyrnu sem hafnaði í ör-
uggum höndum Páls, en gallinn
fyrir Eyjaliðið var sá, að Páll stóð
vel fyrir innan línu með boltann í
fanginu og vel staðsettur dómari
leiksins, Gísli Guðmundsson,
dæmdi réttilega mark. Þetta var
að sjálfsögðu mikið áfall fyrir
Eyjamenn en þeir létu ekki mót-
læti þetta brjóta sig niður og sóttu
þeir af miklum krafti að marki
Isfirðinga mest allan hálfleikinn.
Sókn ÍBV var þung og beitt og Sig-
urlás mikill ógnvaldur við mark
ÍBÍ. Á 6. mínútu skallar Sigurlás
rétt yfir úr góðu færi og á 9. mín-
útu Ieikur Sigurlás á fjölda varn-
armanna en gott skot hans hafn-
aði rétt utan stangar. Aðeins mín-
útu síðar ver Hreiðar markvörður
vel skot frá Sigurlási eftir góða
fyrirgjöf Þórðar Hallgrímssonar.
Og enn á 29. mínútu er Sigurlás á
ferðinni, kominn einn í gegnum
vörnina í dauðafæri, sendir bolt-
ann laglega framhjá úthlaupandi
markverði en boltinn smellur
framan á stöngina og aftur út í
teiginn þar sem ísfirðingar ná að
bjarga málunum. Sem sagt stór-
í Knattspyrna)
Borgarnesi
liðsins, sókninni tókst ekki að
skapa sér nein umtalsverð tæki-
færi og voru þeir Ottó Hreinsson
og Ásgeir Elíasson einna bestir.
HBj.
sóknir ÍBV og Sigurlás á endanum
í þeim öllum. Þó svo sókn Eyja-
manna hafi verið þung var hún
ekki stöðug. ísfirðingar börðust
mjög vel og þeir skutust oft
eldfljótir í skyndisóknir en þeim
gekk bölvanlega að skapa sér færi
við mark ÍBV.
Og svo á 38. mínútu jafna Eyja-
menn metin. Hornspyrna og Ómar
Jóhannsson gefur vel fyrir mark-
ið, Sigurlás skallar að marki en
Hreiðar nær að slá boltann frá.
Sigurlás er þegar kominn aftur í
boltann og hann skorar eftir mik-
inn barning við varnarmenn IBI.
Rétt mínútu síðar átti Sigurlás
heljarinnar mikið þrumuskot á
markið en Hreiðar varði glæsi-
lega. En á 44. mínútu kom Hreiðar
ekki neinum vörnum við í viður-
eign sinni við hinn atkvæðamikla
sóknarmann IBV.
Góð fyrirgjöf kom fyrir mark
ÍBÍ frá Ómari Jóhannssyni, Sigur-
lás stökk upp og skallaði glæsilega
í markið. 2—1 fyrir ÍBV í hálfleik.
Síðari hálfleikur var tilþrifa-
minni og ekki eins mikið um að
vera. Eyjamenn drógu sig heldur
til baka, vildu greinilega ekki taka
neina áhættu. ísfirðingar komu
því meira inní leikinn og áfram
var mjög góð barátta í báðum lið-
um en heldur lítið var um laglegan
samleik. Og nú var komið að Is-
firðingum að koma sér í færi.
Strax á 46. mínútu var allt í hers-
höndum í vítateig IBV og Jón
Oddsson komst í gott færi en
varnarmenn IBV náðu að bjarga á
síðustu stundu. Á 9. mínútu varði
Hreiðar vel fast skot frá Sveini
Sveinssyni og á 11. mínútu var
Haraldur Leifsson í algjöru
dauðafæri við mark ÍBV en skot
hans hafnaði j stönginni. ÍBV gaf
enn eftir og ísfirðingar gáfu nú
allt í sóknina, Páll varði vel góðan
skalla frá Jóni Oddssyni á 31. mín-
útu. En þegar hér var komið sögu
skiptu Eyjamenn um gir.
Eftir að hafa iengst af í síðari
hálfleiknum gefið eftir á miðjunni
og tekið vel á móti ísfirðingum
fyrir framan vítateig sinn, settu
nú Eyjamenn aftur á fulla ferð og
hvað eftir annað á síðasta stund-
arfjórðungnum splundruðu þeir
vörn ÍBÍ sem hafði hætt sér of
framarlega í ákafa liðsins til þess
að jafna metin. Á 39. mínútu varð
Hreiðar markvörður að taka á
honum stóra sínum til að verja
hörkuskot Ómars eftir að hann
hafði fengið boltann á tærnar eft-
ir stórgóða sendingu Hlyns Stef-
ánssonar. Hlynur hafði komið
inná um miðjan hálfleikinn fyrir
Svein Sveinsson sem meiddist. Og
það var stórkostleg sending frá
Hlyni sem færði ÍBV þriðja arkið
á 40. mínútu. Góð stungusending
Hlyns rann fram með fótum Sig-
urlásar sem renndi sér inn í víta-
teiginn framhjá tveimur aðvífandi
varnarmönnum og gott skot Sig-
urlásar small í netamöskvunum
að baki Hreiðars Sigtryggssonar.
Þannig fór um sjóferð þá. Ör-
uggur sigur IBV, 3—1, og liðið er
enn með í baráttunni á toppnum.
IBV lék þennan leik mun betur en
tapleikina gegn Fram, góð barátta
og mikil keyrsla allan tímann.
Spilið var ekki eins og liðið hefur
best sýnt áður en leikaðferð þeirra
bar árangur. Sigurlás átti stórleik
og náði nú að brjóta ísinn svo um
munaði. Ómar Jóhannsson átti
mjög góðan leik og líka Valþór
Sigþórsson og Jóhann Georgsson.
Mikil og góð barátta var í liði
ísfirðinga og leikgleðin var mikil.
Sóknarleikur liðsins var lítt
markviss, mest um langar og háar
sendingar fram völlinn. Baráttan
og viljafestan getur fært liðinu
dýrmæt stig. Hreiðar Sigtryggs-
son varði vel í leiknum og ásamt
honum voru þeir Gústaf Bald-
vinsson og Jóhann Torfason bestu
menn liðsins.
í stuttu máli:
1. deild, Hásteinsvöllur, 17. júlí.
ÍBV — ÍBÍ 3-1 (2-1)
Mörk ÍBV: Sigurlás Þorleifsson
(3).
Mark ÍBÍ: Gunnar Pétursson.
Áminning: Gunnar Guðmundsson
ÍBÍ, gult spjald.
Dómari: Gísli Guðmundsson.
— hkj.
Þróttur R
enn efstur
10 umferðir eru búnar í 2. dei.’d og
þessir leikir eru þeir síðustu sem
leiknir voru í 2. deild.
Skallagrímur — Þrótcur R. 0—0
Völsungur — Reynir S 0—1
Þróttur N — Einherji 1—0
Njarðvík — Þór A. 1—0
Fylkir — FH 1—1
Staðan í deildinni er nú þessi:
Þróttur R 10 6 4 0 15—4 16
Reynir S 10 5 2 3 15-8 12
FH 10 4 4 2 13-12 12
Þór Ak. 10 3 5 2 16-11 11
Njarðvík 10 4 3 3 17-17 11
Fylkir 10 1 8 1 10-11 10
Völsungur 10 3 3 4 10-11 9
Einherji 10 3 2 5 14-17 8
Þróttur N. 10 2 3 5 5-11 7
Skallagrímur 10 1 2 7 8—21 4
Sigurlás Þorleifsson (t.h.) fann loksins leiðina í netið í leiknum við ísfirðinga
i Eyjum á laugardaginn. Skoraði hann þá öll mörk ÍBV, þrjú talsins, en hafði
aðeins skorað eitt í sumar fyrir leikinn.