Morgunblaðið - 20.07.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982
21
• Marteinn Geirsson fyrirliði Fram. Hann er vanur að meðhöndla bikarana Hér er hann að taka á móti bikar þeim er fylgdi nafnbótinni íþróttamaður Reykjavíkur fyrir síðasta ár.
Marteinn Geirsson:
Leggjum áherslu á nu aðal-
bikarinn
— ÞAÐ ER nú ekki mikið um þetta að segja. Við erum komnir aftur í strögglið og verðum aö fara að gera betur. Þessi leikur skipti mestu máli fyrir okkur upp á stöðuna í deildinni. Eg held að nú eigum við ekki lengur möguleika á að verða á toppnum, sagði Marteinn Geirsson, fyrirliði Fram, eftir leikinn. — Við byrjuðum mjög vel í sumar, og ég hef trú á að við verð- um með gott lið á næsta ári. Við erum með mjög góðan þjálfara en það tekur alltaf nokkurn tíma að kynnast. Ég hef trú á að við end- um um miðja deild, en nú leggjum við aðaláherslu á bikarinn, það þýðir ekkert annað.
Elnkunn lagiðtln
BREIÐABLIK: ÍBV:
Guðmundur Ásgeirsson 6
Sigurjón Kristjánsson 7
Helgi Helgason 4
Þórarinn Þórhallsson 6
Ólafur Björnsson 6
Vignir Baldursson 5
Hákon Gunnarssonqb.7
Jóhann Grétarsson 7
Siguröur Grétarsson 5
Helgi Bentsson 5
Þorsteinn Hilmarsson 7
Valdimar Valdimarsson (vm.) lék
of stutt
Birgir Teitsson (vm.) lék of stutt
FRAM:
Guómundur Baldursson 6
Þorsteinn ÞorsteinssonS
Trausti Haraldsson 6
Sverrir Einarsson 7
Marteinn Geirsson 6
Halldór Arason 5
Gísli Hjálmtýsson 4
Viöar Þorkelsson 4
Ólafur Hafsteinsson 6
Guömundur Torfason 5
Steinn Guðjónsson 5
Valdimar Stefánsson (vm.) 5
Albert Jónsson (vm.) lók of stutt
Páll Pálmason 6
Snorri Rútsson 6
Viöar Elíasson 6
Valþór Sigþórsson 7
Örn Óskarsson 6
Ómar Jóhannsson 7
Jóhann Georgsson 7
Sveinn Sveinsson 6
Þórður Hallgrímsson 6
Sigurlás Þorleifsson 8
Kári Þorleifsson 6
Hlynur Stefánsson (vni.) 6
ÍBÍ:
Hreiöar Sigtryggsson 7
Einar Jónsson 5
Jón Björnsson 5
Guömundur Jóhannsson 6
Jóhann Torfason 7
Gunnar Guðmundsson 6
Gústaf Baldvinsson 7
Ámundi Sigmundsson 5
Gunnar Pétursson 6
Haraldur Leifsson 6
Jón Oddsson 6
Rúnar Guðmundsson (vm.) 5
Guömundur Þorkels (vm.) lék of
stutt
Sigurinn hefði getað
lent báðum megin
— en UBK skoraöi og tók bæði stigin
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ áttust lið Breiðabliks og Fram við í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu t Kópavogi. Þrátt fyrir óvenjulegan leiktíma
mættu tæplega 1000 manns á völlinn og verður að telja það góða aðsókn.
Flestir fengu þeir ágæta skemmtun fyrir aurana sína, ekki allir þó, þar sem
eitthvað var um að menn yfirgáfu svæðið tiltölulega snemma. V’ar það í fylgd
lögreglu, en Bakkus gamli mun hafa mætt á völlinn með nokkrum áhorfend-
anna. Leikurinn var mjög líflegur á köflum og fengu bæði lið stórgóð
marktækifæri. Aðeins eitt mark var þó skorað, og var Hákon Gunnarsson
þar að verki fyrir Blikana í síðari hálfleik.
Blikarnir léku undan
strekkingsvindi í fyrri hálfleikn-
um og sóttu mjög stíft. Þeir náðu
öllum tökum á miðjunni og spil-
uðu mjög vel úti á vellinum. Þeir
Þorsteinn Hilmarsson og Jóhann
Grétarsson léku báðir prýðilega,
dreifðu boltanum vel út á kantana
og byggðu upp fyrir meðspilara
sína.
Fyrstu mínúturnar fengu þeir
tvö sæmileg færi, en léleg skot
Helga Helgasonar og Þorsteins
Hilmarssonar rötuðu ekki rétta
leið. Breiðabliksmenn voru reynd-
ar óragir við að skjóta á Fram-
markið af löngu færi undan vind-
inum, en fallbyssur þeirra voru
verulega vanstilltar.
Sigurjón Kristjánsson lék sem
vinstri bakvörður í liði UBK í
leiknum. Ekki er hægt að segja
annað en hann hafi verið sókn-
djarfur, og skapaði hann oft mik-
inn usla er hann komst upp kant-
inn. Það var einmitt eftir eina
slíka rispu sem Blikarnir fengu
dauðafæri á 11. mínútu. Sigurjón
komst upp að endamörkum og gaf
vel fyrir. Helgi Bentsson skallaði
af stuttu færi á markið en Guð-
mundur Baldursson varði mjög
vel.
Framarar ógnuðu Blikamarkinu
fyrst á 24. mínútu. Hornspyrnua
var tekin inn í teiginn og barst
boltinn út að vítateigslínu þar sem
Sverrir Einarsson sendi hann
rakleiðis til baka. Lenti hann í
varnarmanni og aftur fyrir. Hin
hornspyrnan rann síðan út í sand-
Blikarnir voru mun meira með
knöttinn í fyrri hálfleiknum, og
voru frískir. Færi voru þó af
skornum skammti, dauðafæri
Helga raunar það eina sem veru-
lega hættulegt gat talist. Framar-
arnir náðu sér ekki á strik. Miðju-
mennirnir urðu að lúta í lægra
haldi fyrir kollegum sínum frá
Kópavogi og framlínan var bit-
laus. Vörnin var aftur á móti góð,
og hleypti ekki miklu í gegn.
Framarar hressast
Síðari hálfleikurinn var mun
jafnari en sá fyrri. Framarar áttu
reyndar hættulegri færi og voru
miklir klaufar að skora ekki. En
það var Hákon Gunnarsson sem
skoraði eina mark leiksins eins og
áður sagði. Var það á 72. mínútu.
Jóhann Grétarsson sendi knöttinn
til Hákons inn á vítateigshornið
hægra megin, og hann var ekkert
að tvínóna við hlutina, heldur
sendi knöttinn rakleiðis í nærhorn
marksins. Skotið var ekki fast, en
mjög lúmskt. Var hann aðþrengd-
ur varnarmönnum og hefur Guð-
mundur markvörður sennilega
ekki séð boltann fyrir sínum eigin
mönnum.
Fyrir markið höfðu Framarar
átt tvö dauðafæri. Guðmundur
Torfason fór illa að ráði sínu er
hann var einn með boltann úti í
teignum en skot hans fór vel
framhjá. Guðmundur fékk hitt
færið reyndar líka. Nafni hans
Baldursson í markinu henti fram
að miðju þar sem Ólafur Haf-
steinsson skallaði áfram. Guð-
mundur Torfa og Ólafur Björns-
son eltu knöttinn báðir og hafði
Guðmundur betur. Átti hann að-
• Hákon Gunnarsson skoraði sig-
urmark UBK.
eins markvörðinn eftir og ætlaði
að vippa yfir hann.
En hann varði. Hélt þó ekki
knettinum sem barst til hliðar þar
sem Ólafur Hafsteinsson náði
honum og gaf fyrir, en Guðmund-
ur markvörður náði honum á und-
an andstæðingunum.
Um miðjan hálfleikinn lægði
vindinn. Framararnir séttu heldur
meira og síðustu 10 mínúturnar.
pressuðu þeir stanslaust á marki
Blikanna, en allt kom fyrir ekki.
Guðmundur Torfason átti tvö góð
skot, en nafni hans í markinu
varði annað og hitt fór naumlega
framhjá. Ekki hefði verið ósann-
gjarnt að Framarar hefðu náð
öðru stiginu, en þeir voru miklir
klaufar uppi við markið og því fór
sem fór.
Liðin
Blikarnir spiluðu ágætlega og
hafa greinilega náð sér á strik aft-
ur. Sérstaklega voru þeir góðir í
fyrri hálfleik og var aðallega
hugsað um að láta boltann ganga
og leika skemmtilega knatt-
spyrnu. Það er því miður allt of
sjaldgæft hér á landi að það sé
reyrit en er þó til sem betur fer.
Miðjumennirnir áttu góðan dag en
framherjarnir hafa oft verið
sprækari, nema Hákon Gunnars-
son sem átti góðan leik.
Miðjan hjá Fram var slök í fyrri
hálfleik eins og fyrr kom fram en
hresstist nokkuð í þeim síðari.
Vörnin var traust og besti hluti
liðsins. Miðverðirnir Marteinn og
Sverrir eru öruggir og bakverðirn-
ir einnig. Þorsteinn Þorsteinson,
hægri bakvörður, stóð sig vel, og
er mikið efni, en hann var óþarf-
lega grófur í leiknum.
í stuttu máli
Kópavogsvöllur 1. deild.
Breiðablik — Fram 1—0(0—0)
MARK.UBK: Hákon Gunnars-
son á 72. mínútu.
SPJÖLD: Engin
DÓMARI: Kjartan Jóhannsson
AHORFENDUR: 917
— SH.
Fritz Kizzing:
„Segi ekki alveg
strax hvort
við getum
orðið meistarar
• Fritz Kizzing hefur nið góðum
árangri með lið Breiðabliks
— ÞETTA var góður leikur af
beggja hálfu, en mér fannst eins
marks sigur okkar verðskuldaður.
Bæði lið hefðu hins vegar átt að geta
skorað fleiri mörk. Við spiluðum
ágætlega en nokkur sálræn pressa
er komin á leikmenn mína vegna
þess hve illa hefur gengið aö skora,
sagði Fritz Kizzing, þjálfari UBK,
eftir leikinn við Fram á laugar-
dagskvöldið.
Hvað með framhaldið?
— Það er erfitt að segja um það.
Ég var bjartsýnn í upphafi móts-
ins og við ætluðum okkur stóra
hluti. Við höfum menn til að skora
og ef við næðum að skora 3—4
mörk í einhverjum leikjanna er ég
viss um að vélin færi í gang.
Meistarar? Ég vil engu spá um
það núna. Við skulum bíða þar til
eftir bikarleikinn við ÍA og tvo
næstu leiki í deildinni og þá skal
ég segja þér hvort við verðum
meistarar.
.— SH.