Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 23
• Rússneska stúlkan, Irina Podyalovskaya, sem keppti sem gestur á mótinú, kemur hér fyrst í mark í 800 m
hlaupinu á tímanum 2:04,99. Randi L. Björn frá Noregi kemur önnur i mark og varð hún sigurvegari á 2:05,56, og
Hrönn Guðmundsdóttir er þriðja á 2:06,27. Er sá tími rétt við íslandsmetið og verður að teljast frábær árangur við
hinar erfiðu aðstæður.
• Finnbjörn Þorvaldsson, frjáls-
íþróttakappinn kunni hér á árum áð-
ur, var ræsir á mótinu, en margir
gamlir frjálsíþróttamenn störfuðu
einmitt við mótið. Leysti Finnbjörn
starf sitt mjög vel af hendi og náði
enginn keppendanna að þjófstarta
hjá honum.
Oddný Árnadóttir:
„Kuldinn
setur
strik
í mótið“
— ÉG ER nokkuð ánægð með
árangur minn á leikunum. Eg hafði
stílað uppá að vera í góðri æfingu um
þessar mundir og er nokkuð sterk
núna. Maður verður að hafa það
hugfast að stúlkurnar á Norðurlönd-
unum eru mjög sterkar, og þar er
mikil breidd. Kuldinn hefur sett
strik i reikninginn á mótinu og það
er erfitt að hlaupa í svona veðri. En
það eru framundan góð mót. Kalott-
keppnin í Svíþjóð og mót í Dan-
mörku. Þar nær maður vonandi að
bæta árangur sinn. Ég hef æft mjög
vel að undanförnu sagði hlaupa-
drottningin Oddný Árnadóttir, sem
náði góðum árangri í Norðurlanda-
bikarkeppni kvcnna um síðustu
helgi.
- ÞR.
pÁtti ekki von á
Islandsmeti í
svona veðráttu"
— sagöi Sigurborg Guömundsdóttir
— ÉG ÁTTI alls ekki von á því að
setja met í svona veðráttu, og er því
mnn
>iÍpfc|S
■;
Wm
mjög ánægð með árangur minn í 400
m grind. Ég veit að ég get gert betur
við betri aðstæður. Ég er í góðri æf-
ingu og bæti vonandi metið aftur
síðar í sumar. Keppnin hér hefur
verið skemmtileg, þrátt fyrir að veðr-
áttan hafi ekki verið eins og best
hefði verið á kosið. Hér eru allar
fremstu frjálsíþróttakonur Norður-
landa og það er gaman að keppa við
þær. Ég held að við getum verið
nokkuð ánægðar með okkar hlut í
keppninni þegar á heildina er litið,
sagði Sigurborg Guðmundsdóttir,
sem setti glæsilegt íslandsmet í 400
metra grindahlaupi við slæmar að-
stæður. Hljóp á 60,86 sek.
— ÞR.
3000 metra hindrunarhlaup er geysilega erfið grein. Sigfús Jónsson, hlaup-
stjóri mótsins, tók að sér á síðustu stundu að hlaupa fyrir ísland, þar sem
keppendur vantaði. Hér má sjá Sigfús að niðurlotum kominn í vatnsgryfj-
unni, og standa gusurnar í allar áttir.
Örn Eiösson:
„Þaö sem er ánægjulegast
er keppnisgleði frjáls-
íþróttafólksins á mótinu“
„Þetta er mjög ánægjulegt frjáls-
íþróttamót. Að visu heföum við mátt
vera heppnari með veöur. En í heild-
ina kom þetta afskaplega vel út. Og
það sem mér finnst ánægjulegast í
sambandi við mótið er keppnisgleði
frjálsíþróttafólksins," sagði Örn
Eiðsson formaður FRÍ, er Mbl.
spjallaði við hann um Reykjavíkur-
leikana.
— Sérílagi finnst mér að ís-
lenska kvenfólkið hafi staðið sig
vel í Norðurlandabikarkeppninni.
Þær eru í mikilli framför og er
það ánægjulegt. Stórgott afrek
hjá Sigurborgu í 400 m grind,
Oddný er mjög sterk svo og kom
Hrönn á óvart í 800 m. Það afrek
sem ber nú einna hæst hjá ís-
lenska frjálsíþróttafólkinu í heild
er kúluvarpið hjá Óskari.
— Hvernig skýrir þú það áhuga-
leysi almcnnings sem virðist vera á
þessu móti. Áhorfendur eru sárafáir
þrátt fyrir margar stórar stjörnur?
„Ég kann enga skýringu á þessu
áhugaleysi. Það er sorglegt að
fleiri áhorfendur skuli ekki mæta
hér til að sjá þessa bráðskemmti-
legu keppni. Veðrið spilar sjálf-
sagt eitthvað inn í þetta, svo og að
það er helgi og margir eru út úr
bænum," sagði formaður FRÍ, Örn
Eiðsson.
— ÞR.
• Hermann Gúnnarsson, íþróttafréttamaður útvarps, ræðir hér við Sigur-
borgu Guðmundsdóttur eftir íslandsmet hennar í 400 m grindahlaupi. Hljóp
hún á 60,86 sem er frábær árangur þar sem hlaupió var við erfiðar aðstæður,
rok og rigningu.
Reykjavíkurleikarnir:
Aðeins 629
áhorfendur mættu
báða dagana
ÞAÐ VAR sorglegt til þess að vita
hversu fáir lögðu leið sína um helg-
ina inn á Laugardalsvöll til þess að
fylgjast með stærsta frjálsíþrótta-
móti sumarsins, Reykjavikurleikun-
um. Sem að þessu sinni voru jafn-
framt landskeppni á milli íslands og
Wales. Þá fór fram Norðurlandabik-
arkeppni í frjálsum íþróttum með
þátttöku allra fremstu frjálsíþrótta-
kvenna á Norðurlöndum.
Fyrri keppnisdaginn voru
áhorfendur 342, en síðari daginn
287, eða samtals 629. Oft hefur því
verið haldið fram að framkvæmd
frjálsíþróttamóta fæli áhorfendur
frá, þar sem alit gangi svo hægt
fyrir sig. Svo var alls ekki í þessu
tilviki. Mótið gekk mjög vel fyrir
sig og tímaseðlinum var svo til al-
veg fylgt.
I heildina var framkvæmd
mótsins FRI til sóma. Á mótinu
voru unnin mörg ágæt afrek, og á
meðal keppenda var afreksfólk
sem stendur framarlega í heimin-
um í sínum greinum. Það var því
leitt til þess að vita að ekki skildu
fleiri mæta sjálfum sér til ánægju,
íþróttafólkinu til hvatningar og
um leið að styrkja starfsemi FRI
hér á landi. — ÞR
Einn spáði nákvæmlega
rétt um lokastöðu úr-
slitaleiks HM á Spáni
VESTIJR-ÞÝSKUR „galdrakarl**
spáði nákvæmlega rétt um það,
hvernig HM-keppnin myndi enda.
Hann sagði, að Italía ynni V-Þýska-
land í úrslitum með þremur mörkum
gegn einu og að I’aul Breitner gerði
mark þýskra.
Spádómum átti að skila fyrir
keppnina til þýsks tímarits og síð-
an voru þeir skoðaðir að henni
lokinni. Kom þá í ljós, að einn spá-
dómurinn var réttur.
„Galdrakarl" þessi, Júrgen
Wolfgramm, segir þetta ekki í
fyrsta skipti sem hann sé svo
getspakur, því hann hafi einnig
spáð fyrir úrslitum lokaleiks HM
1966, er England sigraði V-Þýska-
land, 4—2.