Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 42
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI1982
Landskeppnin í frjálsum
íþróttum gegn Wales
tapaðist með 11 stigum
— góður árangur hjá íslensku stúlkunum
í Noröurlandabikarkeppninni
UM HELGINA fór fram stærsta frjálsíþróttamót sumarsins hér á landi.
Keykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum. Leikarnir voru að þessu sinni
jafnframt landskeppni á milli íslands og Wales í karlaflokki og á sama tíma
fór fram Norðurlandabikarkeppni kvenna í frjálsum íþróttum. Á Reykjavík-
urleikunum sjálfum kepptu svo ýmsir mjög góðir afreksmenn frá Kússlandi,
Bandaríkjunum, Svíþjóð og Noregi. Mörg ágæt afrek voru unnin á mótinu,
sem fór fram við frekar óhagstæð veðurskilyrði. Sér i lagi var erfitt að hlaupa
hringhlaup vegna kulda og töluverðs vindstrekkings báða dagana. Því varð
árangur í hringhlaupunum ekki eins góður og við hefði mátt búast. Af
árangri íslensku keppendanna á mótinu bar hæst stórgóður árangur Óskars
Jakobssonar í kúlvarpi, 20,06 m. Óskar sigraði keppinauta sína örugglega en
þeir voru sko ekki af lakara taginu. Þá var mjög athyglisvert hversu vel
íslensku stúlkurnar stóðu sig í Norðurlandabikarkeppninni. Þrátt fyrir að
þær hafi rekið lestina í stigakeppninni náðu þær góðum árangri í mörgum
greinum. Sigurborg setti íslandsmet i 400 m grindahlaupi. Oddný stóð sig
með afbrigðum vel í spretthlaupunum og Hrönn Guðmundsdóttir kom veru-
lega á óvart með góðu hlaupi í 800 metrunum. íslensku karlarnir máttu sætta
sig við að tapa fyrir Wales í landskeppninni með II stiga mun, 108 gegn 97.
Var það mun stærri munur en gert hafði verið ráð fyrir. En eins og svo oft
áður í landskeppnum í frjálsum þá fór ýmislegt úrskeiðis. Gert var ógilt i
4x100 m boðhlaupi, og í sumum greinum vantaði herslumuninn uppá að ná
fyrsta sætinu. En hvað um það, á heildina iitið var árangur allgóður miðað
við þær aðstæður sem keppt var við.
Hörð keppni milli
sænsku og norsku
stúlknanna
Mjög hörð keppni var á milli
sænsku og norsku stúlknanna í
Norðurlandabikarkeppninni. Þeg-
ar upp var staðið voru liðin jöfn að
stigum, höfðu hlotið 43 stig hvor
þjóð. Finnsku stúlkurnar hlutu 35
stig en þær íslensku 28 og gátu
þær all vel við unað. Oddný Árna-
dóttir vrð þriðja í 100 metra
hlaupinu á 11,72 sekúndum en
meðvindur var of mikill. Sigurveg-
arinn Mon Evjen Noregi hljóp á
11,52 sekúndum. Bryndís Hólm
náði þriðja sæti í langstökkinu,
stökk 5,94 metra. Stökk aðeins 4
sentimetrum skemur en norska
stúlkan Mette Karin, sem náði
öðru sæti. Þá náðu íslensku stúlk-
urnar öðru sæti í 4x100 metra
boðhlaupinu, hlupu vegalengdina
á 47,2 sekúndum.
I fyrstu keppnisgrein kvenn-
anna síðari daginn setti Sigurborg
Guðmundsdóttir glæsilegt ís-
landsmet í 400 m grindahlaupinu,
hljóp á 60,86 sekúndum. Var þetta
mjög vel gert hjá Sigurborgu. Veð-
ur var slæmt til keppni, kuldi og
töluvert rok. Sigurborg náði öðru
sæti í hlaupinu sýndi mikið
keppnisskap og vilja og hljóp allan
tímann mjög vel yfir grindurnar.
Mikil keppni var í hlaupinu. Ann
Skoglund frá Svíþjóð sigraði ör-
ugglega enda ein sú besta í heim-
inum í dag í þessari grein. Sigur-
borg varð önnur en finnska stúlk-
an Helender þriðja á 60,91 sekúnd-
um.
Oddny Árnadóttir stóð sig vel í
200 m hlaupinu, varð þriðja á
24,23 sekúndum. Er einsýnt að
Oddný er í góðri æfingu og getur
án efa gert mun betur en þetta. Og
ekki er ólíklegt að hún nái að setja
jafnvel íslandsmet í greininni síð-
ar í sumar. Hrönn Guðmundsdótt-
ir kom mjög á óvart í 800 m hlaup-
inu. Hrönn sýndi af sér mikla
hörku og náði öðru sætinu í hlaup-
inu, skaut finnsku og sænsku
stúlkunum aftur fyrir sig. Tíminn
hjá Hrönn var 2:06,27 mínútur
mjög góður tími við þessar slæmu
aðstæður. Þess verður ekki langt
að bíða að Hrönn bæti sig veru-
lega í greininni. Sveit íslands í
4x400 metra boðhlaupi náði þriðja
sæti og munaði þar mestu um góð-
an lokasprett hjá Oddný Árna-
dóttur. Mikið af góðum frjáls-
íþróttakonum kepptu á mótinu.
Og var til dæmis með ólíkindum
að sjá rússnesku konurnar hlaupa.
Belowa frá Rússlandi sigraði 400
m á 52,86 sekúndum, en hún hljóp
sem gestur. Hlaupadrottningin
Grete Waitz fór létt með að sigra í
sínum greinum. Sér í lagi fór hún
létt með 1.500 m hlaupið. Þar varð
Ragnheiður Ólafsdóttir í fjórða
sæti, en náði engu að síður sínum
besta tíma 4:24,5 mínútum.
Eitt stig skildi
þjóðirnar að eftir
fyrri daginn
Aðeins eitt stig skildi Island og
Wales að eftir fyrri daginn í
landskeppni þjóðanna. Wales
hafði 50 stig en Island 49. Það var
nokkur óheppni með landanum
fyrri dagin. Þorvaldi Þórssyni
tókst ekki að ljúka 110 m grinda-
hlaupinu. Keyrði of grimmt undan
rokinu og felldi aðra grind og datt
er hann rak fótinn í hana. Og í
síðustu grein dagsins gerði sveit
íslands ógilt í 4x100 m boðhlaup-
inu. Á síðustu skiptingu fór Þor-
valdur Þórsson allt of fljótt af
stað og Sigurður Sigurðsson náði
ekki til hans með keflið. Munaði
sannarlega miklu um þessi stig.
Þennan fyrri dag landskeppninnar
fékk ísland sigurvegara í nokkrum
greinum. í kúlu sigraði Óskar og
Vésteinn varð annar. I kringlunni
sigraði Vésteinn og Óskar varð í
öðru sæti. Og Kristján Harðarson
sigraði í langstökkinu, stökk 7,43
m, en mikill meðvindur var. Ein
skemmtilegasta keppnisgreinin
fyrri daginn var 400 m hlaup. Þar
sigraði Oddur Sigurðsson glæsi-
lega og Egill Eiðsson náði öðru
sæti. Egill er mikili keppnismaður
og var þessi tvöfaldi sigur þeirra
félaga kærkominn í hlaupagrein.
En það sem réði úrslitum í lands-
keppninni var hversu landslið
• Oskar Jakobsson vann glæsilegan sigur í kúluvarpinu. kastaöi 20,06 metra. Var á undan
mörgum þekktum köppum. Mikill afreksmaöur í frjálsum íþróttum Óskar. Hér má sjá hvar hann
gengur í hringinn áður en sigurkastið kom. Á svipnum má sjá að hann er ákveðinn í því að kasta
langt aö þessu sinni og það tókst honum. Ljósm. kok
mmmmmmammmmmmmmmmmamaaammmmmmmmmmmamammmmmmmmmmmm,
• Frá skemmtilegustu keppnisgrein mótsins 4x400 m boöhlaupi karl
örþreyttur inn á lokasprettinum inn í síöustu skiptinguna. Oddur er till
• Skiptingin hjá Agli og Oddi tekst vel, en sá er hljóp sföasta sprettim
Wales hafði betri hlaupurum á að
skipa, sérstaklega í lengri vega-
lengdunum.
Síðari dagur ekki eins
góður.
Síðari keppnisdaginn náðu lands-
liðsmenn Wales öruggri forystu í
landskeppninni og þegar yfir lauk
höfðu þeir 11 stiga forskot. Það
var Þorvaldur Þórsson sem gaf
tóninn í fyrstu keppnisgrein dags-
ins með góðum sigri í 400 m
grindahlaupi. En í næstu grein 200
m hlaupi olli það nokkrum von-
brigðum að Oddur Sigurðsson
varð í öðru sæti. Oddur sat illilega
eftir í startinu og var einu sek-
úndubroti á eftir Mark Owen sem
fékk tímann 21,25 sek.
Einar Vilhjálmsson sigraði ör-
ugglega í spjótkastinu kastaði
73,662 m. Þrístökkið olli vonbrigð-
um. Okkar menn náðu sér ekki á
strik og annar maður stökk aðeins
14,22 sem hefði einhvern tímann
þótt slakt. Mikill meðvindur var
þegar á keppninni stóð og hefði
það átt að hjálpa stökkvurunum
verulega. Sigurður T. Sigurðsson
sigraði • í stangarstökkinu og
Kristján Gissurarson varð annar.
Mjög erfitt var að stökkva í rok-
inu.
• Meö broa á vör kemur Oddur í ir
Sveit íslands aigrar. Oddur bókstafleg
ustu 100 metrana svo langt fór hann f