Morgunblaðið - 20.07.1982, Síða 48
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
Sumarhátíð UÍA:
2500 manns á Eiðum
Kgilsstöðum, 18. júlí.
Að sögn Sigurjóns Bjarnasonar,
framkvæmdastjóra UÍA, sóttu um
2.000—2.500 manns sumarhátíð
UÍA, sem haldin var á Kiðum um
helgina. Keppnisveður var gott
nema hvað nokkuð rigndi á föstu-
dagskvöld og í dag tók að hvessa,
— en hátíðinni lauk nú klukkan
sautján.
Sumarhátíðin var formlega
sett á föstudag klukkan átján
með ræðu formanns UIA, Dóru
Gunnarsdóttur. Síðan hófst
meistaramót Austurland 14 ára
og yngri og meistaramót 15 til 18
ára. Úrslit urðu þau í meistara-
móti 14 ára og yngri að flest stig
hlaut íþróttafélagið Súlan,
Stöðvarfirði, 230,5 stig; í öðru
sæti varð Höttur, Egilsstöðum,
með 202,5 stig; í þriðja sæti varð
Þróttur, Neskaupstað, með 181,5
stig og í fjórða sæti Leiknir, Fá-
skrúðsfirði, með 129,5 stig.
í meistaramóti 15—18 ára urðu
úrslit þau að Höttur hlaut 242,5
stig, Þróttur 194 stig og Súlan 99
stig.
A sumarhátíðinni voru sett tvö
Austurlandsmet og eitt jöfnun-
armet. Helga Magnúsdóttir,
íþróttafélaginu Hetti, Egilsstöð-
um, setti Austurlandsmet í 60
metra hlaupi telpna, sem hún
hljóp á 8,1 sek. Þá setti Garðar
Vilhjálmsson, einnig Hetti, Aust-
urlandsmet í kúluvarpi drengja,
en hann varpaði kúlunni 12,51 m.
Garðar kastaði fullorðinskúlu
(7,25 kg að þyngd). Grímlaugur
Björnsson, Stangarási, Ung-
mennafélagi Skriðdælinga, jafn-
aði Austurlandsmet pilta í 60 m
hlaupi á 7,8 sek.
Volvo-umboðið í Reykjavík hef-
ur undanfarin ár gefið veglegan
bikar fyrir besta íþróttaafrek á
sumarhátíð. Að þessu sinni hlaut
Sigurður Gunnar Einarsson, 14
ára, íþróttafélaginu Leikni á Fá-
skrúðsfirði, Volvo-bikarinn, Sig-
urður stökk 1,70 m í hástökki.
Sigurður Gunnar hlaut 1.091 stig
— en stigagjöf fer eftir alþjóð-
legri stigatöflu.
Að sögn Magnúsar Stefánsson-
ar, skráningarstjóra mótsins,
voru keppendur alls 550 og skrán-
ingar alls 1.331.
Ekki var annað að heyra á for-
ráðamönnum sumarhátíðarinnar,
en að hún hefði farið vel fram.
— Ólafur.