Morgunblaðið - 20.07.1982, Side 26
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
Helga Kristjáns-
dóttir - In Memoriam
Fædd 19. mars 1903
Dáin 22. júní 1982
Þegar ég frétti lát Helgu Krist-
jánsdóttur varð mér á að hugsa:
Nú hefði faðir minn skrifað grein
ef hann hefði verið enn á meðal
okkar — grein um einn af eftir-
lætisnemenduin sínum frá Flat-
eyrarárunum og vin meðan bæði
lifðu.
Helga sýndi gamla kennaranum
sínum alveg óvenju mikla rækt-
arsemi og tryggð og væntumþykj-
an, sem geislaði frá því sambandi,
skein að nokkru á mig óverðskuld-
að. Frá því ég fyrst man eftir
Helgu Kristjánsdóttur 'fagnaði
hún mér eins og gömlum og góðum
vini og þó þekktumst við í raun
réttri ekki mjög náið. Fjölskyldur
okkar þekktust vel á Flateyri, en
Helga var orðin gjafvaxta fyrir
minni mitt og farin burt úr þorp-
inu meðan ég var enn smátelpa.
Rn á mínum yngri árum hitti ég
hana stundum heima hjá vinum
okkar beggja, þeim Áslaugu
Sveinsdóttur, einnig frá Flateyri
og Sigurði Þórðarsyni tónskáldi,
en þar var ég heimagangur, er ég
var gestkomandi í borginni. Mikil
vinátta tengdi þessar fjölskyldur,
eins og raunar fleiri Flateyringa,
sem fluttir voru til höfuðborgar-
innar, en auk þess eru þær vensl-
aðar þar sem Magnús bróðir
Helgu er kvæntur Svövu, systur
Áslaugar. Boðin hjá Áslaugu og
Sigurði verða með öllu ógleyman-
leg og þar var Helga kátust meðal
kátra. Elínborgu, systur Helgu,
kynntist ég betur og síðustu tvo
áratugina eða svo hittumst við oft
á tónleikum, en Ella og Edwin
Árnason eiginmaður hennar voru
tíðir gestir í tónleikasölum. Ella
var yndisleg kona og ég saknaði
brosins hennar, þegar hún var
horfin úr þessum reglubundna
mætingarstað. Öll eru systkin
Helgu myndarlegt ágætisfólk
enda eiga þau til merkra ætta að
telja vestan af fjörðum. Faðir
minn talaði oft um „fallega barna-
hópinn úr faktorshúsinu" en for-
eldrar Helgu voru Kristján Ás-
geirsson verslunarstjóri Ásgeirs-
verslunar á Flateyri og Þorbjörg
Guðmundsdóttir, en um hana seg-
ir faðir minn í minningum sínum,
að hún hafi verið glæsileg kona,
greind og hjartahlý. Þar stendur
einnig: „Hún var hin mikla hús-
móðir, hin milda og trausta móðir,
hinn sívakandi og siglaði aflvaki
heimilisanda og heimilisbrags,
sem er dýrmætur gróðrarreitur
uppvaxandi æsku.“
Helga Kristjánsdóttir bar með
sér að hún hafði hlotið gott upp-
eldi og mikla ástúð og mér er nær
að halda, að það sem hér er vitnað
í um móður hennar, hafi orðið
hennar arfur og hamingja. Eitt er
víst að frá heimili Helgu og eig-
inmanns hennar Guðmundar Sig-
urðssonar (dáinn 1974) kom hópur
fallegra og greindra barna, sem
voru augasteinar foreldranna.
Helga elskaði þennan gjörvilega
hóp sinn skilyrðislaust, fylgdist
með þroska og námi af einstökum
áhuga og gladdist hjartanlega
þegar lífsförunautar og barnabörn
bættust í hópinn. Börnin voru um-
ræðuefnið, þegar fundum bar
saman og marga myndina sendi
hún foreldrum mínum í annan
landsfjórðung til þess að lofa þeim
að fylgjast með.
Það varð öllum sem til þekktu
mikið sorgarefni, að Helga skyldi
ekki fá að njóta fleiri ára með af-
komendum sínum, en hún missti
heilsuna fyrir allmörgum árum.
En allt hefir sinn tíma og engu
verður breytt. Helga skilaði þjóð
sinni löngum starfsdegi og mörg-
um dugandi afkomendum og öllum
sem hún kynntist verður hún
minnisstæð fyrir mikla gleði og
óvenjulega vinfesti og tryggð. Hún
giaddi aldraðan föður minn oft og
mörgum sinnum og fyrir það er
þakkað.
Börnum hennar og ástvinum
þeirra sendi ég hiýjar kveðjur.
Blessunaróskir fylgja Helgu
Kristjánsdóttur yfir landamærin
miklu.
Anna Snorradóttir
Sigurður Ingvar
Gunnarsson - Minning
Fæddur 18. september 1918
Dáinn 13. júlí 1982
í dag, þriðjudaginn 20. júlí verð-
ur jarðsettur frá Akraneskirkju
Sigurður I. Gunnarsson, Kirkju-
braut 60, þar í bæ. Sigurður var
sonur hjónanna Laufeyjar Gunn-
laugsdóttur og Gunnars Sigurðs-
sonar sem ávalt voru kennd við
Hraungerði. Var hann næstelstur
6 systkina.
Hann fæddist 18. september
1918 að Baldurshaga á Ákranesi
og var því hreinræktaður Skaga-
maður, ólst þar upp og bjó allan
sinn aldur. Ég átti því láni að
fagna að tengjast þessum hugljúfa
manni, er ég kvæntist systur hans,
Vilhelmínu, fyrir 40 árum og alla
tíð síðan hafa verið naín tengsl
milli okkar, þó kona mín sé látin
fyrir 20 árum.
Sigurður var óhemju duglegur
og kappsamur maður. Sama hvað
hann tók að sér, bæði til sjós og
lands, enda alltaf í topp skipsrúm-
um meðan hann var til sjós. Árið
1955 setti hann upp fiskbúð á
Akranesi ásamt Gunnari bróður
sínum og má segja að þeir hafi
verið brautryðjendur á því sviði.
Árið 1964 réðst hann í byggingu
fiskverkunarhúss og keypti og
verkaði fisk um árabil með Hauki
Ármannssyni sem kvæntur er Sig-
rúnu systurdóttur hans.
Sigurður kvæntist 1944 Krist-
jönu Jónsdóttur, Gíslasonar frá
Stórufellsöxl og Guðríðar Stef-
ánsdóttur konu hans, yndislegri
konu sem alltaf stóð við hlið hans,
þó oft syrti í álinn, því hann átti í
mörg ár vð vanheiisu að stríða.
Eignuðust þau 4 börn sem öll eru
bæjarfélagi sínu til sóma. Þau eru
Jón, kvæntur Emilíu Ólafsdóttur,
Laufey, gift Þorvaldi Ólafssyni,
Þóra, gift Hjalta Kristóferssyni
og Hlín, gift Guðna Tryggvasyni.
Sigurður var einn af þeim
mönnum, sem ekki lét mikið á sér
bera, þó var hann manna glaðast-
ur í vina hópi. Prúðmennska og
beiðarleiki voru hans aðalsmerki.
Drottinn gat og Drottinn tók, en
minningin lifir um elskulegan eig-
inmann, föður, tengdaföður og afa
og hjartfólginn vin.
Kristjönu, börnum og öðrum
vandamönnum sendi ég og fjöl-
skylda mín okkar dýpstu samúð-
arkveðjur og bið ég þann sem öllu
ræður að styrkja þau um alla
framtíð. Hafi Sigurður þökk fyrir
allt.
Ingimundur Leifsson
t
ANNA MARÍA ANDRÉSDÓTTIR,
Framnesvegi 46, Reykjavík,
éður aö Vallargötu 5, Keflavík,
lést í Landakotsspítala 7. þ.m.
Jaröarförin hefur fariö fram.
Fyrir hönd vandamanna,
Marís H. Gíslason.
t Móöir okkar og tengdamóðir.
ELÍN BJARNADÓTTIR,
andaöist í Landspitalanum þ. 18. júlí.
Kristín Jóhannsdóttir, Rafn Hafnfjörö,
Pétur Jóhannsson, Kristín Guömundsdóttir,
Oddbjörg Jóhannsdóttir, Jón Norömann,
Elín Jóhannsdóttir, Kristinn Ragnarsson.
t
Hjartkær móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
KATRÍN HELGADÓTTIR,
Víðimel 19,
lést föstudaginn 16. júlí.
Dætur, tengdasynir,
barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Bróöir okkar,
BJARTMAR MAGNUSSON,
lést þann 10. þ.m.
Útförin hefur fariö fram.
Systkini hins létna.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JON JÓNSSON,
listmélari, Njélsgötu 8B,
sem lést í Landspítalanum þann 14. þ.m., veröur jarösunglnn frá
Fossvogskapellu fimmtudaginn 22. júlí kl. 13.30.
Jón Friörik Jónsson, Þórey Eiríksdóttir,
Guölaugur Jónsson, Katrín Siguröardóttir
og barnabörn.
Magnús Guðmunds-
son - Minningarorð
Fæddur 22. mars 1964
Dáinn 11. júlí 1982
í dag verður til moldar borinn
Magnús Guðmundsson, er fórst í
hörmulegu slysi við lundaveiðar í
Vestmannaeyjum 11. júlí sl.
Magnús var fæddur í Vest-
mannaeyjum 22. mars 1964. For-
eldrar hans voru Ásta Magnús-
dóttir (Magnússonar frá Vestur-
húsum í Vestmannaeyjum) og
Guðmundur Loftsson (Guð-
mundssonar rithöfundar).
Magnús lauk námi á iðnbraut
frá framhaldsskólanum í Vest-
mannaeyjum á liðnu vori og
stundaði síðan verklegt nám í
húsasmíði hjá Helga Magnússyni
frænda sínum.
Fyrir réttum mánuði var haldið
veglegt ættarmót hér í Vest-
mannaeyjum, voru þar saman
komin um 150 manns, afkomendur
Guðmundar Þórarinssonar frá
Vesturhúsum. Það hefur sjálfsagt
engan órað fyrir því þá, að sá
næsti sem félli í valinn af þeim
hópi, fjórum vikum síðar, yrði
einn af yngri afkomendum Guð-
mundar aðeins 18 ára ungmenni.
Það sannast enn „að gott er að
vita ekki ævi sína fyrr en öll er“.
Þegar ég fletti fjölskyldumynda-
albúminu sjé ég Magnús hér og
t
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
ÞÓRU HARALDSDÓTTUR,
Hagamel 44.
Guómundur Jónsson, Ástríöur Einarsdóttir,
Ástríöur Guömundsdóttir,
Halldóra Guömundsdóttir, Helgi Mér Pálsson,
Þorvarður Jón Guðmundsson, Áslaug Guömundsdóttir,
Pétur Axel Jónsson, Rósa Olafsdóttir,
Kristín Haraldsdóttir,
Eyjólfur Haraldsson, Edda Eggertsdóttir
og barnabörn hinnar létnu.
þar, fyrst í vöggu og er mér það
minnisstætt, að hann var fremur
erfitt ungbarn, sem grét mikið, en
drengur óx, við sjáum myndir af
honum eldri og þá ekki ósjaldan í
fanginu á Magnúsi afa sínum, en
hjá honum var hann augasteinn
bæði vegna nafnsins og einnig var
hann elsta barnabarnið, sem
gamli maðurinn naut lengst. Nýj-
ustu myndirnar sýna okkur föngu-
legan, ungan mann, en Magnús
var orðinn með hærri mönnum.
Hann lagði mikla stund á íþróttir
og líkamsrækt, aðallega sjálfum
sér til þroska og ánægju, frekar en
með keppni í huga.
Það fór yfirleitt ekki mikið fyrir
Magnúsi dags daglega. Hann var
þó skapmaður, ef honum þótti á
rétt sinn gengið og brá þá fljótt
skapi, en jafnan rann Magnúsi
reiðin skjótt aftur og maður fann
glöggt, að undir sló gott hjarta og
þar var góður drengur á ferð.
Það hvarflar að manni, þegar
svo ungur samferðamaður hverfur
af sjónarsviðinu, að ekki hafi gef-
ist tími sem skyldi til að kynnast
honum nógu vel. Þessi tilfinning
kemur sjálfsagt vegna þess, að
Magnús var frekar fámáll maður
og eins hitt að við erum aldrei
viðbúin, þegar dauðinn er annars
vegar. Magnús er mikill harm-
dauði fjölskyldu sinni, ætt-
mennum og vinum öllum. Það er
líka sárt okkar fámennu þjóð að
sjá á eftir efnilegum ungmennum
í hverju voðaslysinu á fætur öðru.
Það er einlæg ósk mín og von að
Ása og Guðmundur, systkini og
allir vandamenn sigrist á hinum
sára harmi, en björt minning um
Magnús mun geymast í hugum
okkar. Guð blessi ykkur öll.
Unnur Tómasdóttir
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í siðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.