Morgunblaðið - 20.07.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
41
fólk í
fréttum
Af Julian Lennon
Julian Lennon, sonur John
Lennons og fyrri konu hans,
langar til að verða tónlistarmað-
ur eins og faðir sinn. Hann leik-
ur á trommur og píanó og hefur
í hyggju að gefa út plötu bráð-
lega. Hann er nú 18 ára og nú
fyrst hefur hann sagt frá sam-
bandi sínu og föður síns sem
virðist hafa verið fjarri því að
vera náið.
Julian segist hafa þráð mjög
heitt ást og viðurkenningu föður
síns en aldrei fengið hana. Eftir
að foreldrar hans skildu sá hann
föður sinn aðeins um helgar. Síð-
an flutti faðir hans til Banda-
ríkjanna með Yoko Ono og þá
liðu fimm ár það til að Julian
hevrði aftur í föður sínum. Þeg-
ar hann var 12 ára fór hann í
heimsókn til föður síns í New
York og þá bauð John Lennon
syni sínum upp á hass. „Hann
vildi sjá hver viðbrögð mín yrðu
eða kannski hélt hann að ef mér
væri ekki bannað að neyta eit-
urlyfja þá myndi mér ekki finn-
ast þau eins spennadi," segir
Julian um þetta atvik.
„Þegar að hann dó fann ég til
einskis, ég varð altekinn tilfinn-
ingalegum dofa. Ég trúði því
ekki að hann væri dáinn. Það
leið langur tími þangað til að ég
gat grátið. Það sem mig langar
meira til enn nokkurs annars er
að fá einhverja sönnun fyrir því
að faðir minn hafi elskað mig.“
Julian Lennon aé fara í samkvæmi
Með bleyju og snuð á
sjóskíðum
Tamaryn Fry er 18 mánaða
gamalt ungabarn í Suður-Afríku.
Hún er líka yngsta manneskja
sem nokkurn tíma hefir lært á sjó-
skíði. Wally Fry, faðir hennar,
segir: „Tamaryn hefur verið í
sundtímum síðan hún var fimm
mánaða gömul og henni er eins
eðlilegt að vera á sjóskíðum eins
og öðrum börnum að ganga."
Tamaryn kunni á sjóskíði áður
enn hún tók fyrstu sporin. Faðir
hennar smíðaði handa henni
fyrstu sjóskíðin og það er sjón að
sjá hana bruna áfram á sjóskíðum
í glampandi sól með snuðið sitt í
munninum og með plastbleyju.
Tuuryn Fry
Tamaryn með pabba sínum á sjóskiðum
COSPER
Keisara-
sonurmn
r
af Iran
Elsti sonur Farah Dibu og
keisarans af íran, Shah Reza
II, er nú orðinn 21 árs gamall
og hann er ennþá óráðinn
hvað framtíðina snertir. Hann
dvelur nú í Marrokkó í sumar-
leyfi og eyðir tíma sínum mik-
ið á ströndinni. Hann þráir að
snúa aftur til íran og endur-
reisa keisaraveldið þó í nýrri
og betri mynd. „Ég mun fórna
lífi mínu til síðasta blóðdropa
fyrir þetta takmark," segir
hann. Khomeini stjórnin í
Iran lítur á unga manninn
sem glæpamann eins og föður
hans og hefur heitið verðlaun-
um hverjum þeim sem kemur
honum úr tölu lifenda.
Keisarasonurinn hleypur dag-
lega.
Lokað
vegna sumarleyfa 26. júlí til 9. ágúst.
Ágúst Ármann hf.
Sími 86677.
AÐ ENDURHEIMTA LÍKAMANN
Námskeið í sálfræði Wilhelm Reich
Breski sállæknirinn David Boa-
della heldur:
A. Tvö námskeið í líkamssálfræði
Wilhelm Reich 23.—25. júlí og
30. — 1. ágúst.
Hámarks þátttökufjöldi á sitt
hvort námskeiðið er 15 manns. Á
námskeiðunum verða kenndar
aðferðir sem losa um vöðva-
spennu, leiðrétta röskun á öndun-
inni og auka tjáningarhæfni og lík-
amlega velliðan.
B. Fyrirlestur um kynlífskenningu
Wilhelm Reich í Norræna húsinu,
miðvikudaginn 28. júlí kl. 20.30.
Upplýsingar og skráning á námskeiðin í síma 86917 milli kl. 20—23.
MD3LLBILL
MAGUR Á FÓÐRUM.
SVÉUDEIID
Ármúla3S.38900
SPYRNA OG SPARNEYTNI
í SAMA BÍL.
$ VÉLADEILD
Ármúla3 S.38900