Morgunblaðið - 20.07.1982, Qupperneq 34
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982
Bladburdarfólk
óskast!
Austurbær
Laugavegur
101 — 171
Stigahlíð 26—97
35408
Wtotúxm
Klokkur Harðarmanna úr Mosfellssveit i fullri ferð. A fjórða tug manna með t«ept hálft annað hundrað hesta.
Dieselrafstöðvar
Lettbyggðar, stærðir 25 KVA og 50 KVA. Hentugar
fyrir verktaka og sem vararafstöövar. Allur búnaöur
sambyggður á stálramma. Til afgreiöslu strax, hag-
stætt verð og góðir greiösluskilmálar.
Vélasalan hf.,
Ánanaustum,
sími 26122.
Riðið
I.ANDSMOTI helstamanna í Vindh-
eimamelum lauk sunnudaginn II. júlí.
I*á strax um kvöldið var heilmikið að
gera hjá mörgum fararstjórum hestam-
annahópa, sem ætluðu að ríða suður.
lióparnir voru það margir að farar-
stjórarnir höfðu með sér fund, til þess
að skipuleggja heimreiðina, einkum
með tilliti til þess að dreifa sem mest
náttstöðum.
Einn stærsti hópurinn í þessu
ferðalagi var frá hestamannafélag-
inu Herði í Mosfellssveit, á fjórða
tug manna með tæpt hálft annað
hundrað hesta. Þessi hópur lagði af
stað á mánudagsmorgun frá Vindh-
eimamelum. Fyrsta dagleiðin var í
gangamannakofann við Galtá á Ey-
vindarstaðaheiði nálægt Blönduvöð-
um. Riðið var hjá Mælifelli um Kið-
askarð í Stafnsrétt í Svartárdal, þar
sem matast var. Þ á var haldið sem
leið liggur hjá fossi í Svartárdal upp
á Eyvindarstaðaheiði og komið að
Galtará um áttaleitið það kvöld.
Svefnpláss var fyrir flesta í Gang-
amannakofanum en sumir tjölduðu.
og vestan Þjófafells niður hjá Sandf-
elli með Fúkukvísl. Þá austan
Þverbrekkumúla og Baldheiði hjá
Hrefnubúð í sæluhúsið í Hvítanesi.
Næsta dag var farið að Geysi í
Haukadal og var riðin gamla rekstr-
arleiðin austan Bláfells. Þetta var
hlýjasti dagur ferðarinnar, tuttugu
stiga hiti og sólskin. Riðin var gamla
reiðleiðin hjá Hólum og Kjósastöð-
um. Við Geysi í Haukadal er stórk-
ostleg aðstaöa fyrir hestamenn, beit-
arhólf fyrir hestana og hótelaðstaða
eða svefnpokapláss fyrir ferðalag-
ana, allt eins og hver vill. Þá er
greiðasala á staðnum, og alltaf er
gamla laugin jafn vinsæl að baða sig
Staðarráðsmaður þarna er Már
Sigurðsson, kennari, sonur hins
nafntogaða íþróttafrömuðar Sigurð-
ar Greipssonar. Bóndinn á jörðinni
er aftur á móti bróðirhans, Þórir
Sigurðsson, sem auk bústarfa er ráð-
uneytisskipaður umsjónarmaður
hins heimsfræga hvers, Geysis.
Á föstudag var riðið niður bisk-
upstungur um Laugardal og Laug-
ardalsvelli til Þingvalla. Harður bíl-
vegurinn er ekki við hæfi þreyttra
ferðahesta og heltust þeir því margir
á þessari leið. Renndu margir knap-
arnir löngunrauga til hins undurf-
agra Konungsvegar, sem er ofar í
hlíðinni. Sá reiðvegur er sagður eitt
mesta gersemi í reiðvegagerð þjóð-
arinnar í byggð, en mun nú ófær
vegna girðinga. Þvílíkir höfðingjar
sem Tungnamenn eru, sjá ef til vill
einhverntíma aumur á þreyttum fer-
fæltingunum og ogpna veginn, knöp-
unum einnig til stórkostlegs yndis-
auka.
Að tillögu Náttúruverndarráðs voru graakögglar gefnir með beit á hálendinu.
Hér ber Finnur Egilsson einn graskögglapokann í hestana. Tæpt tonn af
graskögglum fór í ferðina. Ljósm.. (;.T.K.
Á laugardaginn var svo riðið frá
Þingvöllum um Stíflisdal og hjá
Tröllafossi niður á Mosfellssveit.
Fararstjórar í þessari frábæru ferð
voru þeir Guðmundur Jónsson, ráð-
unautur frá Reykjúm í Mosfellssveit
og Hreinn Ólafsson, bóndi í Helga-
dal og formaður hestamannafélags-
ins Hrðar í Mosfellssveit. Annar
undirbúningur feðarinnar mæddi
mest á Jóni H. Ásbjörnssyni, bæj-
artæknifræðingi í Mosfellssveit og
mötuneytisstjóri var Finnur Egilss-
on, rafvirkjameistari og stjórnar-
maður í hestamannafélaginu Herði.
G.T.K.
Mikið beizla- og reiðmúlaflóð fylgir I hestaferðalögum fyrstu dagana, þegar
af og til þarf að beizla og teyma aila hestana. Hér er fararstjórinn, Guðmund-
ur Jónsson ráðunautur frá Reykjum i Mosfellssveit, að taka saman beizlin.
Bræður hans, Jón og Bjarni, sveitarstjóri í Mosfellssveit, fylgjast með.
Þrifabað i heitu lauginni á Hveravöllum. Það er Guðrún Lóa, formaður
kvennadeildar Fáks, sem nuddar hársvörð stöllu sinnar. Þeir kátu menn sem
halda utan um hvorn annan til vinstri eni Örn Kjærnested og Aðalsteinn
Aðalsteinsson í Mosfellssveit.
Vaka varð yfir hrossunum um nótt-
ina.
Á þriðjudagsmorgun var lagt af
stað í besta veðri upp með Blöndu og
komið að Ströngukvíslarvaði upp úr
hádegi. Það var lengi áð, hestunum
beitt á kafloðnar Álfgeirstungurnar
og nesti snætt úr hnakktösku. Lítið
var í kvíslinni og síðan lá leiðin um
grasi grónar Guðlaugs- og Svörtut-
ungur yfir Svörtukvísl og sjálfa
Blöndu í hvanngræna Biskupstung-
una, þar sem áð var við gömlu rétt-
ina við Seyðisá.
Þá lá leiðin upp með Seyðisá vest-
an Dúfunesfjalla á Hveravelli, þar
sem hestunum var beitt áður en þeir
voru settir í girðinguna, þar sem
þeim voru gefnir graskögglar. Heit-
ur matur beið ferðalagnganna sem
jafnan í náttstað, því sérstakur mat-
arbíll fylgdi hópnum. Margir fengu
sér bað í lauginni á Hveravöllum og
síðan var sofið í hinum stórgóða
nýja skála Ferðafélagsins um nótt-
ina.
Á miðvikudaginn lá leiðin um hina
yndislegu Þjófadali, yfir ÞRöskuld
SJALDNAR FERISEÐLAVESKIÐ
SÁ ER EKUR OPEL
$ VÉLADEILD
Ármúla 3 S. 38 900
suður Kjöl