Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
37
Hressingarhúsið stendur vid höfnina.
Helena Svavarsdóttir við störf.
Ljósm. Siguróur Baldursson
Sauðárkrókur:
Nýr veitingastaöur opnaður
Sauðárkróki, 4. ágúst 1982.
NÝLEGA var opnaður hér nýr veit-
ingastaóur, Hressingarhúsið.
Stendur það á Eyrinni, sem er aðal
athafnasvæði bæjarins, í næsta
nágrenni hafnarinnar.
Á Eyrinni starfar jafnan fjöldi
fólks í frystihúsum, sláturhúsum
og við afgreiðslu skipa. Hress-
ingarhúsinu er ekki síst ætlað að
þjóna þessu fólki, auk þeirra
mörgu bæjarbúa og ferðamanna,
sem eiga þarna leið um. Veit-
ingastaðurinn hefur sæti fyrir 15
manns, en einnig er afgreitt út
um lúgu til þeirra er þess óska og
á góðviðrisdögum er hægt að
njóta veitinga utanhúss á hellu-
lögðu svæði við húsið. Hress-
ingarhúsið er opið alla daga frá
kl. 9—23. Á boðstólum er að
sjálfsögðu kaffi, gosdrykkir,
tóbak o.þ.h. auk þess heitar og
kaldar samlokur að ógleymdum
rjómaís og hamborgurum, sem
hér eru nefndir Króksborgarar,
enda væntanlega ijúffengari en
þeir venjulegu.
Eigandi og framkvæmdastjóri
Hressingarhússins er Helena
Svavarsdóttir.
KÁRI
Stjörnubíó frumsýn-
ir nýja gamanmynd
tfTJÖRNlIBÍÓ frumsýnir í dag
kvikmyndina „Just you and me, kid“,
bandaríska gamanmynd með George
Burns, Brooke Shields og Burl Ives í
aðalhlutverkum.
Hér er um að ræða afar
skemmtilega gamanmynd að sögn
bíóins og efni hennar er kynnt
þannig:
„Gamli Bill Grant, ekkjumaður
og ellilífeyrisþegi, lifir fábrotnu
lífi. Hann lifir á gömlum endur-
minningum frá þeim dögum, er
hann var skemmtikraftur. Eina til-
breytingin í lífi hans er hin daglega
heimsókn hans til Max, vinar síns,
er lifir í þögn á sjúkrahúsi og sam-
verustundin með gömlum félögum
yfir pókerspili.
Dag nokkurn finnur Bill nakta 14
ára gamla stúlku í skottinu á bíl
sínum. Hún er á flótta undan smá-
glæpamanni, Demesta að nafni.
Bill gamli, sem enn kann að slá á
létta strengi, fer með stúlkuna
Kate heim til sín. Hún hefur í
hyggju að strjúka við fyrsta tæki-
færi, en ökklabrýtur sig í fyrstu
tilraun.
Bill tekur tilbreytingunni með
þakklæti og lofar Kate öruggu
hæli, henni til mikils hugarangurs.
Hún er munaðarleysingi og er
sannfærð um að Bill gamli sé
snarbrjálaður og hafi illt eitt í
huga.“
Hópferðabílar
8—50 farþega bílar í
lengri og skemmri ferö-
ir.
Kjartan
Ingimarsson
Símar 37400 og 32716.
Útsala - - Útsala
Stórkostleg verölækkun.
Glugginn, Laugavegi 49.
Spónlagðar innihurðir
fyrir aðeins
2.200.- krónur
Spónlagðar innihurðir úr furu og eik. Karmbreidd 10, 11.8
og 13 cm. Afhentar tilbúnar til ísetningar, járnaðar,með
spónlögðum karmi, þröskuldi og „gerektum."
Stuttur afgreiðslufrestur.
HKalmar
Innréttingar, Skeifunni 8, 108 Reykjavík, sími 82011