Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Þetta atvik vakti á sínum tíma all
mikla kátínu. Það er ekki sem sýn-
ist, að QPR-leikmaðurinn hafl ráðist
dólgslega á lögregluþjóninn og hent
honum í áhorfendastæðin. Hið
sanna i málinu var, að Kimon Stain-
rod, markaskorari QPR, var á fleyg-
iferð eftir knettinum, en missti
stjórn á sér og skall þá á hinn grun-
lausa vörð laganna. Hvorugur varð
fyrir meiðslum og því gátu menn
skemmt sér yfir athurðinum án þess
að fá slæma samvisku.
• Rolla þessi heitir Pico Schutz og
er lukkudýr þýska knattspyrnufé-
lagsins Werder Bremen með meiru.
Að öllu jöfnu er Pico tjóðruð fyrir
aftan annað mark Weser-leikvangs-
ins, þar sem hún fylgist með gangi
leiksins milli þess sem hún jórtrar
grængresi sem henni er gefið. En er
Werder og Bayern Miinchen mætt-
ust í bikarleik á síðasta keppnistima-
bili líkaði Pico ekki frammistaða
liðsins, reif sig lausa og arkaði inn á
leikvöllinn. Frumhlaup hennar var
þó ekki vel séð og fyrir vikið verður
hún framvegis tjóðruð enn rækilegar
en áður.
• Er það nokkur furða þó þessi
kappi sé ögn rangeygður á myndinni.
Þetta er annars hinn sænski Stellan
Bengtson, sem hefur um árabil verið
í hópi bestu borðtennisleikara ver-
aldar. Hann er nú 29 ára gamall, en
segist aldrei hafa verið betri en ein-
mitt nú hvað svo sem er til í því.
Annars birtum við þessa mynd ein-
ungis vegna þess að hún er afar
skemmtileg, tekin á skemmtilegu
augnabliki, er Bengtson virðist
halda kúlunni á nefi sínu.
• Bandaríski knattspyrnumarkvörðurinn Alan Mayers grípur hér inn í leik-
inn. Mayers þessi leikur með Tampa Bay Rowdies og á þessari mynd á félag
hans í höggi við San Diego Soccers. Mayers hefur vakið athygli fyrir höfuð-
búnað þann er hann ber jafnan í leikjum sínum, en eins og sjá má á
myndinni líkist búnaður þessi að mörgu leyti þeim sem ísknattleiksmark-
verðir bera af illri nauðsyn. ísknattleiksmennirnir bera grímur vígalegar til
þess að stórslasast ekki er leikmenn berja þá í andlitið með kylfum sínum,
eða slá hinar litlu grjóthörðu kúlur í þá. Það mun vera ólíkt hættuminna að
fá fótknött í andlitið jafnvel þó fast sé spyrnt, heldur en ísknattleikskúlu. En
kannski er það ekki það sem Mayers er smeykur við. Það skyldu þó ekki
vera takkaskórnir sem hann er að verja sig fyrir?
• Svo sérð þú um að skora Jói...