Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
l’M MKLGI.NA var haldið svokall-
að „Ágústmót Mána“ og er aðal-
tilgangur með þessu móti að gera
atlögu að gildandi Islandsmetum.
Mótið hófst á laugardag með und-
anrásum og fyrri sprettum í skeiði
og brokki. Á sunnudag voru siðan
úrslil og seinni sprettir í skeiði og
hrokki. Veður var mjög óhagstætt,
á laugardag hæði rok og rigning og
tímar eftir því slakir. Meldur lag-
aðist þetta á sunnudag, hæði veður
og tímar.
Kitt íslandsmet var sett í 300
metra stökki og var þar að verki
hin unga og efnilega Hylling frá
Nýja-Bæ. Átti þetta sér stað í
aukaspretti eftir kappreiðar.
Var hlaupinn 4(X) metra sprettur
og teknir tímar á hæði 300 og 400
metra markinu. Aðeins var tek-
inn tími á fyrsta hesti við þrjú
hundruð metrana en á öllum við
fjogur hundruð metra línuna.
Kkki náðist að slá metið í fjögur
hundruð metrunum og vantaði
„Agústmót Mána“:
llylling hin unga setur hér nýtt íslandsmet í 300 metra stökki. Fjær á myndinni er Spóla sem náði hestum tíma
í 400 metra stökki. Knapi á Hyllingu er Jón Ólafur Jóhannesson en knapinn á Spólu er María Dóra
Þórarinsdóttir.
Hylling á nýju íslandsmeti
nokkur sekúndubrot upp á. Er
þessi árangur Hyllingar vægast
sagt frábær því hún er aðeins
fimm vetra gömul og jafnframt
fyrsta árið hjá henni í keppni.
Kr hér á ferðinni eitt efnilegasta
hlaupahross sem komið hefur
fram á síðustu árum.
Frekar var þátttaka lítil í
kappreiðunum og er ekki ólíklegt
að komin sé þreyta í eigendur og
aðstandendur kappreiðahrossa.
Kigi að síður voru mætt til leiks
flest af fljótustu hlaupahrossun-
um hér sunnanlands. Kkki náð-
ist umtalsverður árangur að
frátöldu áðurnefndu Islands-
meti. Veitt voru tvenn aukaverð-
laun sem ekki tíðkast að veita í
kappreiðum en það var annars-
I þrjú hundruð og fimmtíu metra
stökki var hörð keppni en þar sigr-
aði Tvistur sem er lengst til hægri
á myndinni og hljóp hann á sama
tíma og Sindri sem var dæmdur
sjónarmun á eftir. Lengst til
vinstri er svo Mannsi sem varð í
þriðja sæti.
I.jósm. V.K.
vegar veitt fállegasta hestinum
og hinsvegar prúðasta knapan-
um. Fallegasti hesturinn var
valinn Þristur frá Uxahrygg en
hann hefur keppt í 250 metra
stökki í sumar en var nú reyndur
í fyrsta skipti í átta hundruð
metra stökki og sigraði hann þar
öllum á óvart. Prúðasti knapinn
var valinn María Dóra Þórar-
insdóttir en hún sat Þrist.
En úrslit urðu annars sem hér
segir:
150 metra skeið:
1. Torfi, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi Sigurbjörn
Bárðarson, tími 16,1 sek.
2. Frigg, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi Trausti Þór Guð-
mundsson, tími 16,4 sek.
3. Elgur, eigendur Hörður G. Al-
bertsson og Sigurbjörn Bárðar-
son, knapi Erling Sigurðsson,
tími 17,2 sek.
250 metra skeið:
1. Börkur, eigandi Ragnar Tóm-
asson, knapi Tómas Ragnarsson,
tími 23,5 sek.
2. Villingur, eigandi Hörður G.
Albertsson, knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson, tími 23,8 sek.
3. Hjörtur, eigandi Margrét
Helgadóttir, knapi Þórður
Jónsson, tími 25,1 sek.
250 metra stökk:
1. Hylling, eigandi Jóhannes Þ.
Jónsson, knapi Jón Ó. Jóhann-
esson, tími 18,0 sek.
María Dóra Þórarinsdóttir var af
kappreiðardómnefnd valin prúð-
asti knapi mótsins og var hún vel
að því komin. Eins og sjá má sóp-
aði hún að sér verðlaunum og í
annarri hendi heldur hún á verð-
launum fyrir fallegasta hest móts-
ins sem var valinn Þristur frá Uxa-
hrygg en María sat hann einmitt
til sigurs í átta hundruð metra
stökki.
2. Örn, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi María Dóra Þór-
arinsdóttir, tími 18,4 sek.
3. Léttir, eigandi Guðbjörg Þor-
valdsdóttir, knapi Sigurlaug
Anna Auðunsdóttir, tími 18,6
sek.
350 metra stökk:
1. Tvistur, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi María Dóra Þór-
arinsd., tími 24,9 sek.
2. Sindri, eigandi Jóhannes Þ.
Jónsson, knapi Jón Ó. Jóhann-
esson, tími 24,9 sek. (Sindri var
sjónarmun á eftir).
3. Mannsi, eigandi Sigurjón Ú.
Guðmundsson, knapi Sigurlaug
Anna Auðunsdóttir, tími 25,0
sek.
800 metra stökk:
1. Þristur, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi María Dóra Þór-
arinsd., tími 60,0 sek.
2. Leó, eigandi Baldur Baldurs-
son, knapi Kolbrún Jónsdóttir,
tími 60,0 sek. (Leo var sjónar-
mun á eftir).
3. Don, eigandi Guðríður Hall-
grímsdóttir, knapi Sigurlaug
Anna Auðunsdóttir, tími 61,b
sek.
300 metra brokk:
1. Fengur, eigandi Hörður G. Al-
bertsson, knapi Sigurbjörn
Bárðarson, tími 35,4 sek.
2. Trítill, eigandi og knapi Jó-
hannes Þ. Jónsson, tími 38,6 sek.
Eimskipafélag íslands:
Búast má við allverulegum sam-
drætti í farskipaútgerð íslendinga
„KKKITUHLJÓÐ er í Oeslum erlend-
um farskipaútgerðum," segir meðal
annars í nýútkomnu fréttahréfi, er
Kimskipafélag fslands hefur sent
starfsfólki sínu. Segir þar að horfur á
alþjóðaskipamarkaði séu taldar léleg-
ar, og ekki útlit fyrir hata í bráð. Klutn-
ingar Kimskips hafi þó verið óvenju
miklir það sem af er árinu. Aukning á
innflutningi fyrstu sex mánuði þessa
árs nemi 10% miðað við sama tímahil
1981. Klutningar milli erlendra hafna
hafi þó dregist saman og á síðari hluta
ársins megi búast við áframhaldandi
samdrætti.
Síðar í fréttabréfinu segir svo, þar
sem fjallað er um horfur í alþjóð-
legri farskipaútgerð:
„Sama er, hvert litið er; verð á
nýjum skipum og notuðum, stórum
og smáum, til leigu eða sölu, alls
staðar er verðfall. Sérstaklega setur
offramboð á skipum til leigu-
flutninga svip sinn á markaðinn,
einkum er mikið framboð á smærri
skipum. Þeim er nú óðum lagt, og
voru verkefnalaus skip með 10—20
þúsund tonna burðargetu 137 talsins
með samtals 1,89 milljónir tonna
burðargetu í júnílok miðað við 49
skip, samtals með 657 þúsund tonn í
byrjun ársins. Eftirspurn eftir al-
mennum vöruflutningaskipum á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs jókst
um samtals 176.244 brúttótonn, en á
sama tíma jókst framboð um 573.901
brúttótonn. Má af þessu ráða, hversu
alvarlegt ástandið er. Eru skip jafn-
vel leigð undir rekstrarkostnaði, og
hafa margir eigendur alfarið neitað
að gefa upp umsamið leiguverð, og á
það sérstaklega við olíuflutninga-
skip.
Breskir skipaeigendur, sem talað
hafa fyrir daufum eyrum stjórn-
valda í nokkur ár vegna ástandsins
þar, gera sér nú vonir um, að þeim
verði sýndur aukinn skilningur, eftir
að mikilvægi skipastóisins kom í ljós
í Falklandseyjadeilunni. Við venju-
legar aðstæður hefði það haft veru-
leg áhrif á markaðinn, að nokkrir
tugir farskipa voru teknir í þjónustu
breska sjóhersins, en slíkt er ástand-
ið, að það breytti sáralitlu. Floti
breskra skipaeigenda eldist óðum, og
á síðasta ári varð ein sú mesta lægð
í sögu flotans, þegar breskum flutn-
ingaskipum fækkaði um 147 skip
með samtals um 6,5 milljóna tonna
burðargetu.
Hér innanlands er fyrirsjáanlegur
töluverður verkefnaskortur á næstu
vikum og mánuðum. Útflutningur
hefur dregist saman á öllum sviðum
og ætla má að verulegur samdráttur
verði í innflutningi. Útgerðir hafa í
auknum mæli fundið fyrir greiðslu-
erfiðleikum viðskiptamanna, enda
hefur bankafyrirgreiðsla minnkað.
Á næstunni má búast við allveru-
legum samdrætti í farskipaútgerð
Islendinga, bæði vegna ástandsins á
alþjóðamarkaði og efnahagsörðug-
leikum hérlendis."