Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
25
Einnig hef ég rekið knattspyrnu-
skóla fyrir krakka og ætla nú að
koma einum slíkum á fót, rétt
fyrir utan London.
Rithöfundurinn Best!
Eitthvað hefurðu verið að skrifa?
— Það er rétt. Ég gaf út bók í
fyrra. „Where Do I Go from
Here?“ hét hún, og það var fyrsta
bókin sem ég skrifaði sjálfur. Áð-
ur höfðu komið út tvær bækur um
mig, en þær voru skrifaðar af öðr-
um. Þessi bók er nú að koma út í
pappírskilju í Englandi og einnig
er möguleiki á því að hún verði
gefin út á íslensku. Við höfum
rætt við aðila í þessari ferð um
það, en samt er allt óráðið ennþá.
Ætlarðu að skrifa meira í framtíð-
inni?
— Ég hef hugsað mér það, já.
En það verða ekki sjálfsævisögur.
Ég hef mikinn áhuga á því að
skrifa skáldsögur og ætla að láta
verða af því.
Hótaö að myrða hann
Einhvern tíma heyrði ég, að fyrir
leik hefði verið hótað að skjóta þig á
vellinum. Er það satt?
— Því var hótað, það er rétt.
Þetta var á útivelli gegn New-
castle og við unnum eitt núll. Ég
skoraði markið.
Hvernig leið þér?
— Mér leið alls ekki illa. Ég
vissi að þetta var bara einhver
hálfviti sem hafði hringt. Ég
meina, ef einhver hefði ætlað að
skjóta mig, hefði hann ekki farið
að segja frá því.
Snúum okkur aftur aö nútíðinni.
Við hvað ertu að fást um þessar
mundir?
— Ég hef nóg að gera. Hef verið
í alls kyns kaupsýslu, og þá hef ég
unnið bæði við sjónvarp og útvarp.
Ég var t.d. þulur hjá breska sjón-
varpinu í London í heimsmeist-
arakeppninni. Horfði á leikina í
sjónvarpinu þar.
„Mjög slök knattspyrna í
heimsmeistarakeppninni“
Hvernig fannst þér fótboltinn sem
liðin sýndu?
— Hann var slakur, hræðilega
slakur. Ég kunni vel að meta
Frakkana, þeir voru góðir, og svo
auðvitað Brasilíumenn. Þeir eru
með besta lið í heimi, þrátt fyrir
að þeir ynnu ekki keppnina. Sko,
þeir léku einn leik illa og það var
nóg til að þeir féllu út. Þannig get-
ur farið eins og keppnin er skipu-
lögð nú.
— ítalirnir gerðu það sem
þurfti til að vinna keppnina. Þeir
fóru rólega af stað, en léku svo vel
í fjórum leikjum. Það er nóg að
spila vel í fjórum leikjum. Og er
upp var staðið áttu þeir sigur skil-
inn, því þeir unnu bestu lið keppn-
innar.
Hvað um bresku liðin?
— Norður-írarnir stóðu sig
lang best. Enska liðið sýndi alls
ekki neitt. í fyrsta leiknum gegn
Frökkum lék það þokkalega vel, en
eftir það var liðið hræðilegt. Það
er ekki nema ein ástæða fyrir lé-
legu gengi Englendinganna, þeir
voru bara ekki nógu góðir. Svo
einfalt er það.
— írarnir komu verulega á
óvart, en þeir áttu fyllilega skilið
að ná svo langt, því þeir börðust
hetjulega og lögðu mikið á sig.
Þeir börðust meira en nokkurt
annað lið í keppninni og þar af
leiðandi náðu þeir svo langt. Ef
önnur lið hefðu verið eins dugleg,
hefðu þau getað náð lengra.
— Skotarnir ollu enn einu sinni
vonbrigðum. Þeir höfðu marga
góða einstaklinga en liðið var ekki
nógu sterkt sem heild.
Heldurðu að Man. Utd.-liðið sé
nógu sterkt nú til að fara að vinna
eitthvað aftur?
— Já, ég held að í ár eigi þeir
góða möguleika á því að vinna til
verðlauna, bæði í Englandi og í
Evrópukeppni. Þeir eru komnir
með mjög sterkan hóp, kannski
þann allra sterkasta í Englandi í
dag. Ég er sannfærður um að liðið
í dag er sterkasta lið Manchester
United siðan ég lék með þeim.
Leikirnir hér á íslandi eru þeir
fyrstu sem þú leikur gegn Manchest-
er United. Hvernig kanntu við að
leika gegn þínu gamla liöi?
— Það er ágætt. Allir leikmenn
liðsins eru góðir vinir mínir, þann-
ig að það er mjög gaman að hitta
þá hér.
Ef þér byðist að leika með Man-
chester United á ný, tækirðu því til-
boði?
— Nei, segir Best og hlær, ég
lék með þeim í tólf ár og það var
fullkomlega nóg.
Er hér var komið sögu, ótöld-
um tebollum eftir að samtalið
nófst, var farið að líða nokkuð
nærri leiknum, og brátt þurfti
hann að drífa sig til að hitta „fé-
laga“ sína í KA-liðinu.
Þrátt fyrir að Best sé ekki eins
góður leikmaður og þegar hann
var á hátindi ferils síns, var engu
að síður gaman að fá hann hingað
til lands og eiga þess kost að fylgj-
ast með honum á velli. Hann hefur
skemmt vallargestum víða um
heim með skemmtilegum brellum
og góðri knattspyrnu í gegnum ár-
in og heimsókn hans til Islands
var engin undantekning. Takk
fyrir komuna George.
- SH
• Best, Law, Herd og Crerand samgleðjast eftir frækinn sigur í Evrópu-
keppninni 1966.
• Dæmigerð mynd af George Best hér fýrr á árum. Hér er hann búinn að
leika varnarmenn Sheffield Wednesday upp úr skónum.
• George Best i dag. Myndin var tekin við komn kappans á Keflavíkurflug-
völl á dögunum.
'I