Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
172. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Árásir ísraela á
Líbanon harðna
í bráð
og vísi því harðlega á bug að hafa
verið þar að verki. Þessari skoðun
til stuðnings er á það bent að það
sé yfirlýst og ófrávíkjanleg stefna
stjórnar Begins að PLO beri
ábyrgð á öllum hryðjuverkum sem
stefnt sé gegn Gyðingum, hvar
sem er í veröldinni.
Vestrænir diplómatar í Beirút
fullyrtu í dag að þrátt fyrir ákafar
tilraunir Habibs, sáttasemjara
Bandaríkjaforseta, til að koma á
samkomulagi um brottflutning
PLO-manna frá Beirút séu engar
líkur á því að honum verði ágengt
í bráð. Virðist nú helzt sem ísrael-
ar leggi megináherzlu á að þvinga
PLO-menn til skilyrðislausrar
uppgjafar með því að beita þá sí-
vaxandi harðneskju með vopna-
valdi.
Bandaríska tímaritið Newsweek
birtir í dag niðurstöðu skoðana-
könnunar sem bendir til þess að
60% Bandaríkjamanna séu mót-
fallnir innrás Israela í Líbanon og
að 43% séu þeirrar skoðunar að
hernaðaraðstoð við ísrael verði
hætt. Nær helmingur virðist því
fylgjandi að Bandaríkjastjórn
ræði við leiðtoga PLO milliliða-
laust, á meðan 42% virðast því
mótfallin.
Ítalía:
KD vilja
Spadolini
aftur í
forsæti
Kom, 9. ágú.st. Al'.
LEIÐTOGAR kristilegra demó-
krata lögðu í dag til að Giovanni
Spadolini, sem baðst lausnar
fyrir stjórn sína á laugardaginn
var, yrði falið að mynda ríkis-
stjórn á Ítalíu. Spadolini er úr
Lýðveldisflokknum, en um leið
og kristilegir demókratar vott-
uðu honum stuðning í viðræðum
við Pertini forseta Ítalíu létu
þeir í Ijós andstöðu við að efnt
yrði til nýrra kosninga á næst-
unni, en tvö ár eru enn eftir af
kjörtimabili þingsins.
Samsteypustjórn Spadolinis féll
þegar sósíalistar hættu stuðningi
við hana er frumvarp um olíuskatt
hlaut ekki brautargengi. í fráfar-
andi stjórn Spadolinis voru kristi-
legir demókratar, sósíalistar, sósí-
aldemókratar, frjálslyndir og lýð-
veldissinnar. Ráðherrar sósíalista
hafa sakað kristilega demókrata
um að styðja olíuskattafrumvarp-
ið í orði en greiða svo atkvæði
gegn því í leynilegri atkvæða-
greiðslu á þingi.
Búizt er við því að Pertini ljúki
könnunarviðræðum sínum við
stjórnmálaleiðtoga á fimmtudag
og tilkynni þá hverjum hann feli
stjórnarmyndun.
— ekki útlit fyrir diplómatíska lausn
Beirúl, 9. águ.st. AP.
ÍSRAELAR gerðu í dag einhverjar hörðustu og langvinnustu loftárásir
sínar á Líbanon síðan þeir gerðu innrás i landið fyrir átta vikum.
Meðan á loftárásunum stóð héldu ísraelsk herskip, skriðdrekar og
stórskotalið uppi linnulítilli skothríð úr öllum áttum á bækistöðvar
skæruliða PLO og Sýrlendinga. Víða gusu upp miklir eldar í Beirút og í
fjöllunum í kring.
Fréttamenn AP á staðnum
segja að viðnám PLO-manna með
eldflaugum hafi verið miklu slak-
ara nú en að undanförnu. Loftár-
ásirnar gerðu ísraelsmenn í
tveimur atrennum. Sú fyrri, á
stöðvar Sýrlendinga í fjalllendi,
stóð í tvær klukkustundir, en hin
síðari, á Beirút, stóð í þrjár
klukkustundir. I Beirút eru ýmsir
þeirrar skoðunar að þessar
óvenjuhörðu árásir séu ætlaðar
sem hefnd fyrir árásina í París í
morgun þar sem sex manns létu
lífið og tugir særðust, enda þótt
PLO hafi fordæmt ofbeldisverkið
Þannig var aðkoman þegar björgun armenn komu i vettvang.
París:
AP-.símamynd.
Óvíst hverjir stóðu að baki
árásinni þar sem sex létust
París, 9. ájfútrt. AP.
FRÉTTASTOFUR í Parísarborg hafa tekið við símaboðum frá „Direct act-
ion“, sem lögreglan telur fámennan hóp vinstri sinnaðra franskra öfgasinna,
þar sem ýmist er sagt að hópurinn sé valdur að skotárásinni miklu í morgun,
þar sem sex manns létu lífið og 22 særðust, eða að hann eigi þar engan hlut
að máli. Parísarlögreglan telur sig ekki hafa í höndum neinar sannanir sem
bent geti til þess, hverjir hafi verið hér að verki. Eftir því sem næst verður
komizt, voru árásarmennirnir, sem ruddust inn í þekktasta veitingahús
Gyðinga i fjórða hverfi Parísarborgar, tveir að tölu, en rétt hjá staðnum biðu
þeirra tveir eða þrir vitorðsmenn í hvítum bíl, sem ók á brott með miklum
hraða þegar ódæðið var um garð gengið.
í þessum borgarhluta eru íbúar
langflestir af Gyðingaættum. Þetta
er í fjórða sinn á viku sem ofbeldis-
verk eru unnin í þessu hverfi, en af
Bandaríkja-
dalur slær met
Lundúnum, 9. ágúst. AP.
Bandaríkjadalur hefur aldrei
staðið betur gagnvart mörgum
helztu gjaldmiðlum, svo sem
franska frankanum og itölsku lír-
unni, og gagnvart sterlingspundi
hefur dalurinn ekki staðið betur í
nærri sex ár. Vaxtahækkun í
Kandaríkjunum, ásamt 900 millj-
óna dala óvæntri aukningu i vara-
sjóði Bandaríkjanna sem tilkynnt
var um á föstudaginn, veldur
þessari hækkun, en i Evrópu er
því spáð að afleiðingin verði m.a.
hækkun á oliu og benzini.
Bandarískir ferðamenn í Evr-
ópu hafa skyndilega yfir mun
vænni sjóðum að ráða en áður
og verður víða vart aukinnar
kaupgleði þeirra. Samtímis
gengishækkun dalsins hefur
gullverð snarlækkað og þegar
markaði var lokað í Lundúnum
í dag stóð gullúnsan í 336,50 en
við lokun á föstudaginn var
verð á únsunni 346,25. Þegar
lokað var í Lundúnum var
bandaríkjadalur skráður á 7,02
franska franka, 2,15 svissneska
franka, 2,52 v-þýsk mörk, 262,90
yen og sterlingspund skráðist á
1,69.
þeim hefur ekki hlotizt manntjón
fyrr en í dag. í fyrstu þrjú skiptin
lýsti „Direct action" ábyrgð á hend-
ur sér, en lögreglan segir þennan
hóp hafa fyrst látið á sér kræla fyrir
þremur árum.
Um leið og ljóst var hvað gerzt
hafði í fjórða hverfi í dag, gaf tals-
maður PLO-samtakanna í París út
yfirlýsingu, þar sem árásin er harð-
lega fordæmd og hörmuð örlög
hinna saklausu fórnarlamba. Af
hálfu ísraelska sendiráðsins í borg-
inni sagði, að enda þótt ekki liggi
fyrir hverjir standi á bak við glæp-
inn, sé þó víst að þeir séu þátttak-
endur í hinni alþjóðlegu hryðju-
verkastarfsemi sem PLO-samtökin
hafi ævinlega verið kveikjan að.
Þau sem létu lífið i skotárásinni
voru þrjár konur og þrír karlar, þar
af einn óeinkennisklæddur lögreglu-
maður. Þegar lögreglulið kom á
vettvang og hryðjuverkamennirnir
voru á bak og burt, létu íbúar hverf-
isins í ljós mikla reiði í garð lögregl-
unnar fyrir að hafa ekki tryggt ör-
yggi í hverfinu, og þegar Mitterand
forseti kom ásamt Deferre innan-
ríkisráðherra, til að vera við minn-
ingarathöfn í samkomuhúsi, gerði
mannfjöldi hróp að þeim og brigzl-
aði Mitterand m.a. um svik.
Sjúkrabílar og lögreglubílar fyrir utan veitingastaðinn þar sem kúlnaregn úr vélbyssum hinna óþekktu árásarmanna
lagði að velli sex manns og særði 22 í gærmorgun. AP-símunynd.