Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982
Baskar segja eit-
urlyfjasmyglurum
stríð á hendur
San Sebatrtun, 9. ágúsi. AF.
AðskilnaAarsinnar Baska til-
kynntu í dag, að þeir hefðu ákveðið
að heina spjótum sínum í aðra átt en
til þcssa. Nú ætla þeir að einbeita
sér að eiturlyfjasmyglurum og dreif-
ingaraðilum eiturlyfja.
I yfirlýsingu, sem barst frá
samtökunum í dag, lýsa þau
ábyrgð á sprengingu í veitinga-
húsi í San Sebastian í síðustu viku
á hendur sér, en segja jafnframt
að sprengingin hafi verið gerð
vegna þess að þar hafi verið
dreifimiðstöð eiturlyfja.
Lögreglan hefur ekki viljað
segja eitt né neitt um þessa yfir-
lýsingu Baskanna, en eigandi veit-
ingahússins sem varð fyrir
sprengingunni hefur þvertekið
fyrir að þar hafi verið um nokkra
eiturlyfjadreifingu að ræða. Hins
vegar hefur hann staðfest, að
yngra fólk, sem sótti veitingahús-
ið, hafi stundum haft marijuhana
um hönd.
Puttaferðalangur
myrtur í Frakklandi
ii ■ • » r , . .. ntiTmmníTO 'i mnirnotnAiiiiTVi
it<'sanr«n, Krakklandi, 9. ágúst. AF.
TVÍTIIG V-ÞÝSK stúlka, sem var
á puttaferðalagi í Frakklandi,
fannst á sunnudagsmorgun látin í
skógi skammt frá Besancon, er
borgarbúi fór út til að viðra hund-
inn sinn.
Lík stúlkunnar var hroðalega
leikið er það fannst og voru á því
meira en 20 hnífsstungur. Svo
virðist, sem hún hafi barist
kröftuglega gegn banamanni sín-
um því greina mátti ummerki
stympinga á morðstaðnum.
Fleiri lík hafa fundist á svipuí
um slóðum eftir viðlíka meðferi
síðast í maí er 25 ára gömul finns
stúlka, sem einnig var
puttaferðalagi, fannst hroðaleg
útleikin. Það morð hefur enn ekl
verið upplýst.
Kosið á
Korsiku
Mynd þessir sýnir hvar gyðingar fallast óttaslegnir í faðma eftir skotárásina sem gerð var
á matsölustað þeirra í miðborg Parísar í dag, en í henni létust sex manns og a.m.k. 15
særðust.
ísraclskir hermenn í návígi við PLO-menn í Beirút. Ekk-
ert lát er á bardögum í borginni.
V-Þýskaland:
Indónesía:
24 létust
í bílslysi
Jakarla, Indónesíu, 9.ágúst. AF.
TITTIKiIJ og fjórir létu lífið og 41
slosuðust er langferðabifreið steyptist
niður í dal nála'gt bænum l'onorogo í
Austur-Java, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni.
Slysið átti sér stað í gær, en það
voru einungis níu farþegar sem
sluppu ómeiddir. Nokkrir hinna slös-
uðu eru enn í lífshættu.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
bílstjórinn, sem einnig lét lífið i slys-
inu, hefði misst stjórn á bifreiðinni
vegna of hraðs aksturs.
Dauðadómur
Kichmont, \ irginíu, 9. ágúst. AF.
KKKKKT benti til þess í dag að
dauðadómi yfir Krank ('oppola, sem
da-mdur var fyrir morð, yrði í ein-
hverju breytt. Dauðadómi þessum
verður framfylgt á morgun í Virginia-
ríki, en lögmenn hafa gert margar til-
raunir til að (il þessa þurfi ekki að
koma.
Coppola, sem verður fimmti mað-
urinn sem Tekinn verður af lífi í
Bandaríkjunum frá árinu 1976 og sá
fyrsti í Virginía-ríki frá árinu 1962,
hlaut þennan dóm eftir að hafa ver-
ið fundinn sekur um að hafa barið
til dauða Muriel Hatchell er hann
rændi íbúð hennar á árinu 1978.
Fimmburafæðing
í Buenos
Kucnos Aires, 9. ágúst. AF.
KIMMBURAR litu dagsins Ijós er
Mirtha Aliria Bazan, 28 ára gömul
húsfreyja í Buenos Aires, varð létt-
ari.
Blóðrásarsjúkdómur varð einu
Aires
barnanna, stúlku, að aldurtila inn-
an fárra klukkustunda, en þau
fjögur, sem eftir lifa, allt drengir,
eru við góða heilsu. Fimmburarnir
voru aðeins um 6 merkur hver við
fæðingu.
Skartgriparán
í Frankfurt
I rankfurt. Vestur-I’ýskalandi, 9.ágúst. AF.
VOBNADl'R maður hrifsaði með
sér skartgripi að upphæð 800.000
mörkum, er hann, greinilega að
vendilega alhuguðu máli, lét greipar
sópa um góssið sem var í vörslu eig-
enda sinna i bílageymslu undir al-
þjóðlega flugvellinum í Krankfurt,
samkva'mt upplýsingum frá lögregl-
unni í ga*r.
Ránið átti sér stað sl. laugar-
dagskvöld eftir að gullsmiður frá
Suður-Þýskalandi og vinur hans
komu í bílageymslu til að eiga
Mannæta svipt-
ir sig lífinu
N arsjá, 9. ágúst. AF.
MADI'R, sem leitað var af lög-
reglu og grunaður um að hafa
drepið konu og lagt hluta líkama
hennar sér til munns, fannst i
dag og hafði þá framið sjálfs-
morð.
Þetta er í fyrsta sinn svo vit-
að sé frá stríðslokum, að mað-
ur er grunaður um mannát.
Kiginkona hins látna hefur
verið sett í gæsluvarðhald,
grunuð um þátttöku í ódæðinu.
viðskipti við skartgripasala frá
Mílanó. Hann lét hins vegar ekki
sjá sig, þannig að bið félaganna
tveggja í þrjá tíma skilaði ekki
óðrum árangri en þessu vopnaða
ráni.
Þjóðverjinn var á leið upp í bif-
reið sína þar sem kunninginn sat
með gersemarnar í aftursætinu
þegar vopnaður maður stökk
fram, en lögreglan segir að hér
hafi verið um útlending að ræða á
aldrinum .35 til 40 ára. Hann mið-
aði byssu sinni á höfuð þess sem á
gersemunum hélt og hrópaði á lé-
legri þýsku að hann léti skot ríða
af á hverri stundu ef hann fengi
ekki skartgripina umyrðalaust.
Hann hrifsaði þá síðan til sín og
hljóp á braut.
Talið er að skartgripasalinn frá
Mílanó sem ekki lét sjá sig á
stefnumótinu hafi hins vegar
staðið álengdar og tekið til fót-
anna með byssumanninum. Lög-
reglan telur því auðsætt að hér
hafi verið um þrautskipulagt rán
að ræða, þar eð stefnumót þetta
var löngu ákveðið og því nægur
tími til allrar skipulagningar.
Bavlovlenkov hættur föstunni:
Ósannindi eiginkonu
hans var vendipunkturinn
Moskvu, 9. ágúsl. AF.
MEÐ ÞVÍ að segja eiginmanni sín-
um ósatt og hann fengi brottfarar-
leyfi úr landinu ef hann neytti mat-
ar á ný, tókst eiginkonu Yuri
Balovlenkov í örvæntingu sinni að
fá hann til að nærast á ný eftir 36
daga föstu.
„Hvað átti ég til bragðs að
taka,“ sagði eiginkonan, Elena.
„Ég hef aldrei sagt eiginmanni
mínum ósannindi fyrr, en að
þessu sinni var það óhjákvæmi-
legt. Það var betra en að horfa á
hann veslast upp“.
Elena hitti fulltrúa útflytj-
endaeftirlitsins að máli í morg-
un. Það eina, sem þeir vildu gefa
upp var, að þeir myndu ekki
endurskoða mál hans á meðan
hann fastaði. Hins vegar bætti
hún því við að einn fulltrúanna
hefði sagt sér, að eiginmaður
hennar fengi fyrr eða síðar að
fara úr landi.
Eiginkonan kom vel búin lyfj-
um og öðrum næringarefnum,
sem nauðsynleg eru þeim, sem
fastað hafa lengi, frá Bandaríkj-
unum á föstudag, en tókst ekki
að fá Yuri til að nærast fyrr en
nú.
Hafði hún í huga að neyða
næringu ofan í mann sinn, en
féll frá þeirri hugmynd þegar
hann sagði henni, að hann
fremdi sjálfsmorð ef hún færi úr
landi. Elena sagði ennfremur að
hún myndi segja honum allan
sannleikann áður en hún fer frá
Moskvu eftir 10 daga.
Heilsufar Balovlenkov er enn
bágbornara fyrir þá sök, að hann
fór í 43 daga hungurverkfall,
sem iauk 21. júní sl. Hætti hann
föstunni þá á þeim forsendum,
að hann hefði fengið brottfarar-
leyfi. Sovésk yfirvöld segjast
hins vegar aldrei hafa veitt neitt
slíkt leyfi.
Ajarcio, Korsíku. 9. ájjúst. AF.
IIKRADSKOSNINGAR fóru fram á
Korsiku í gær, en þetta er fyrsta
skref eyjaskeggja, sem hafa verið
undir stjórn Frakka undanfarnar
tvær aldir, í átt til sjálfstæðis.
Kftir að kjörstöðum hafði verið
lokað í gærkvöldi kom í Ijós að um
65 til 70 prósent íbúa eyjanna, sem
eru rúmlega 200.000 talsins, höfðu
greitt atkvæði.
Niðurstöður kosninganna voru
þær að flokkur óháðra fékk átta
sæti í hinni nýju héraðsstjórn, en
hvorki hægri- né vinstrisinnum
tókst að ná hreinum meirihluta.
Endanlegar tölur iiggja þó ekki
fyrir.
Óttast hafði verið að til óláta
myndi koma á kosningadaginn, en
ekki eru neinar fregnir af slíku, en
það voru 17 stjórnmálaflokkar
sem buðu fram til kosninganna og
voru flestir þeirra á vinstri lín-
unni. Frambjóðendur voru alls
1037, en sætin sem kosið var um
61.