Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 41
Vigeo
Sigurðsson er alkominn heim til ís-
lands eftir þriggja ára dvöl á Spáni
og í Þýzkalandi og er byrjaður að
æfa á fullu hjá Víkingi undir stjórn
Bogdans Kowalczyk.
Viggó getur ekki byrjað að leika
með Víkingi fyrr en nokkuð er lið-
ið á Reykjavíkurmótið, sem hefst í
byrjun september. Hann á nefni-
lega eftir að taka út þriggja leikja
bann, sem hann fékk fyrir að
hlaupa niður Hannes Þ. Sigurðs-
son dómara eftir úrslitaleik Vík-
ings og Vals í Reykjavíkurmótinu
haustið 1978. Hannes kærði Viggó
og taldi hann hafa brotið viljandi
af sér, en Viggó sagði að um
óviljaverk hefði verið að ræða.
Dómstólar dæmdu í málinu 1979
og töldu refsingu hæfilega
ákveðna þriggja leikja bann.
Víkingarnir verða ekki á flæði-
skeri staddir með útspilara næsta
vetur því eftirtaldir leikmenn æfa;
Þorbergur Aðalsteinsson, Óskar
Þorsteinsson, Steinar Birgisson,
w r
Viggó Sigurðsson
Viggo i 3 leikja
Viggó Sigurðsson, Sigurður Gunn-
arsson, Gunnar Gunnarsson,
Hörður Harðarson og Páll Björg-
vinsson, sem ákveðið hefur að vera
með í slagnum einn veturinn enn.
Er það mat Bogdans þjálfara að
ekki muni veita af svo mörgum
spilurum vegna þess hve leikjum
íslandsmótsins hefur verið fjölgað
mikið.
Pironi ur leik eftir að
hafa slasast alvarlega
FRANSKI ökuþórinn Didier Pironi,
sem hefur forystu í keppninni um
heimsmeistaratitilinn í Grand-Prix-
kappakstri slasaðist mjög alvarlega í
æfingaakstri fyrir þýska Grand-Prix
á Tóstudaginn, er hann ók á hjól-
barða á bíl Alain Prost, sem hann sá
ekki vegna bleytu. Er talið að Pironi
muni aldrei aka kappakstursbil
framar.
Pironi náðist ekki úr bílflakinu
fyrr en eftir 30 mínútur. Piquet
frá Brasilíu hafði stöðvað bíl sinn
og ákveðið að hætta vegna erfiðra
skilyrða, og var hann fyrstur að
bíl Pironis. Sá slasaði missti
aldrei meðvitund, og bað hann
Piquet að hjálpa sér út úr bílnum.
Brassinn tók af honum hjálminn
og kom síðan auga á „allt blóðið og
beinin sem stóðu ut úr samfestingi
Pironis." Piquet sagðist hafa
gubbað og síðan látið læknana á
staðnum um björgunarstarfið.
Greinilega ekki glæsileg aðkoma
að bílnum.
Strax og Frakkinn náðist út úr
bílnum var flogið með hann í
sjúkrahús og þar gekkst hann
undir tæpra sex klukkustunda að-
gerð. Hann slasaðist mjög á fótum
og minnstu munaði að taka þyrfti
hægri fótinn af honum fyrir neðan
hné.
Á þessu keppnistímabili hafa
tveir kappakstursmenn látið lífið í
keppni, þeir Giles Villeneuve, sem
lést í Belgíu, og Riccardo Paletti,
sem lést í kanadíska Grand-Prix,
er hann ók aftan á bíl Pironis. 12
áhorfendur slösuðust síðan í
franska kappakstrinum fyrir
tveimur vikum er bíll Þjóðverjans
Jochen Mass lenti á hlífðargirð-
ingu.
Eins og áður sagði hefur Pironi
forystu í keppninni um heims-
meistaratitilinn, er með 39 stig.
Annar, og sá sem mesta mögu-
leika hefur nú á sigri, er John
Watson, Bretlandi með 30 stig.
Pironi, sem er þrítugur að aldri,
er forseti félags atvinnumanna í
kappakstri. Hann hefur barist
mjög fyrir auknu öryggi keppenda
í kappakstri, og lýsti því yfir fyrir
stuttu að hann myndi jafnvel
hætta keppni ef hann yrði fyrsti
Frakkinn til að verða heimsmeist-
ari í greininni. Nú eru auðvitað
litlar líkur á því að hann nái þeim
titli.
Þýski Grand-Prix:
Frakkinn Tambay
sigraði óvænt
PATRICK Tambay frá Frakklandi
sigraði í þýska Grand Prix-kapp-
akstrinum á sunnudaginn. Er það í
fyrsta skipti sem hann sigrar i slikri
keppni, og óhætt er að segja að skin
og skúrir hafi skipst á hjá honum á
árinu. Það byrjaði með því að besti
vinur hans, Gilles Villeneuve frá
Kanada, lést í keppni, og síðan var
Tambay tekinn í hóp Ferrariöku-
manna, vegna þess að annar góður
vinur hans, Didier Pironi, mælti með
Golfúrslit
LANDSMÓTIÐ í golfi hófst í GrafarhoUinu í
g*r og léku þá m.a. keppendur I 1. og 2. flokki.
Kfstu menn eftir IN holur eru þessir.
1. flokkur:
Ólafur Skúlason CR . 79
Ingólfur Báróarson (>S 80
(■ísli Sigurdsson («K 81
KrLstinn Ólafsson (>K 81
2. fiokkur:
(■uólaugur (Tislason (>K 86
Tómas Baldvinsson (>R 88
Stefán llalldórsson (>R 89
Meistarafiokkur hefur keppni á morgun. Nán-
ar um mótiA í blaóinu á morgun.
- SH.
honum við Enzo Ferrari. Er það
draumur flestra ökuþóra að fá að
aka Ferrari.
Pironi sla-saðist mjög illa í æfinga-
akstri fyrir þessa keppni eins og
kemur fram hér að ofan og keyrir
væntanlcga ekki kappakstursbíl
framar.
„Mér líður nokkuð einkennilega,
ég er yfir mig glaður, en einnig
mjög sorgmæddur," sagði Tambay
eftir keppnina. „Ég get sagt ykkur
að þetta var hræðilega erfitt,"
sagði hann við fréttamenn, „ég
hugsaði um Gilles og ég hugsaði
um Pironi," sagði hann klökkri
röddu.
Tambay er nú í 9. sæti í keppn-
inni um heimsmeistaratitilinn
með 16 stig. Keppnin um helgina
var sú 12. af 16 og röð efstu manna
er nú þessi:
stig:
1. Didier Pironi, Frakkl. 39
2. John Watson, Bretl. 30
3. Keke Rosberg, Finnl. 27
4. Alain Prost, Frakkl. 25
5. Niki LaudarAusturr. 24
Met og metjöfnun
Bryndísar og Hrannar
EITT íslandsmet féll, annað var
jafnað og það þriðja var hárs-
breidd frá þvi að falla, er íslensk
frjálsíþróttaungmenni kepptu á
Norðurlandamóti unglinga í Ber-
um í Noregi um helgina. Bryndís
Hólm varð þar í 2. sæti í lang-
stökki kvenna á nýju íslandsmeti,
5,98 metrum, en greinin vannst á 6
metrum sléttum. Þetta er í annað
skiptið á stuttum tíma að Bryndís
slær metið.
Hugsanlega var þó enn merki-
legri árangur Hrannar Guð-
mundsdóttur, sem jafnaði ís-
landsmet Ragnheiðar Ólafsdótt-
ur í 800 metra hlaupi kvenna.
Tími hennar var 2:06,22 mínútur.
Þá stökk Kristján Harðarson
7,50 metra í langstökki karla, í
annað skiptið á fáum dögum sem
hann svífur vel yfir gamla Ís-
landsmetið hans Vilhjálms Ein-
arssonar. En því miður, í báðum
tilvikum var meðvindur ívið of
mikili og því var met ekki stað-
fest. Ljóst er þó, að hinn 18 ára
gamli Ármenningur er til allra
hluta líklegur á næstunni og
sjálfsagt aðeins tímaspursmál
hvenær metið fellur.
íslendingar tefldu fram að
venju sameiginlegu liði með
Dönum í karlaflokki og rak
dansk/íslenska liðið lestina í
stigakeppninni, hlaut 129 stig.
Finnar sigruðu örugglega, fengu
217 stig, Svíar urðu í 2. sæti með
175 stig og Norðmenn höfnuðu í
þriðja sætinu með 139 stig. Að
þessu sinni var í fyrsta skiptið
keppt í kvennaflokki og kepptu
' íslenskar stúlkur með þeim
dönsku eins og í karlaflokkinum.
Svíar og Finnar voru ekki með í
Bryndís Hólm hefur verið dugleg að eiga við metin að undanförnu.
kvennafiokki, en norsku stúlk- gegn 61 stigi Islands og Dan-
urnar sigruðu með 97 stigum merkur.
^f***^^ ......
• Sigursveitin, sveit GS, f.v. Hörður liðsstjóri, Gylfi, Magnús, Hallur og Hilmar.
Ljósm. Óskar Sæm.
Sveit GS varð hlutskörpust
SVEIT Golfklúbbs Suðurnesja bar
sigur úr býtum í sveitakeppni GSÍ,
sem fram fór á Hólmsvelli við Leiru
um helgina. Var sigur sveitarinnar
afar öruggur og glæsilegur, en 21
höggi munaði á sveitinni og þeirri
næstu sem var sveit GR. Sveit GS
lék á samtals 927 höggum, en næst
var sem fyrr segir sveit GR á 948
höggum. í þriðja sæti var sveit GK á
957 höggum, sveit GA þar næst á
977 höggum og loks sveit NK á 978
höggum.
Sigursveitina skipuðu þeir Gylfi
Kristinsson, Hilmar Björnsson,
Magnús Jónsson og Hallur Þór-
mundsson. Gylfi náði besta skor-
jnu, en hann lék 72 holur á 309
höggum. Hilmar, félagi hans, var
með næstbesta árangurinn, 311
högg. Magnús lék á 312 höggum og
Hallur á 325 höggum.
Tvær kvennasveitir mættu til
leiks, GR og GK. Sveit GR sigraði
á 344 höggum, en sveitina skipuðu
þær Sólveig Þorsteinsdóttir, Jó-
hanna Ingólfsdóttir og Ásgerður
Sverrisdóttir. Sveit GK lék á 374
höggum og veitti því GR litla
keppni.
— gg-