Morgunblaðið - 10.08.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.08.1982, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982 Baskar segja eit- urlyfjasmyglurum stríð á hendur San Sebatrtun, 9. ágúsi. AF. AðskilnaAarsinnar Baska til- kynntu í dag, að þeir hefðu ákveðið að heina spjótum sínum í aðra átt en til þcssa. Nú ætla þeir að einbeita sér að eiturlyfjasmyglurum og dreif- ingaraðilum eiturlyfja. I yfirlýsingu, sem barst frá samtökunum í dag, lýsa þau ábyrgð á sprengingu í veitinga- húsi í San Sebastian í síðustu viku á hendur sér, en segja jafnframt að sprengingin hafi verið gerð vegna þess að þar hafi verið dreifimiðstöð eiturlyfja. Lögreglan hefur ekki viljað segja eitt né neitt um þessa yfir- lýsingu Baskanna, en eigandi veit- ingahússins sem varð fyrir sprengingunni hefur þvertekið fyrir að þar hafi verið um nokkra eiturlyfjadreifingu að ræða. Hins vegar hefur hann staðfest, að yngra fólk, sem sótti veitingahús- ið, hafi stundum haft marijuhana um hönd. Puttaferðalangur myrtur í Frakklandi ii ■ • » r , . .. ntiTmmníTO 'i mnirnotnAiiiiTVi it<'sanr«n, Krakklandi, 9. ágúst. AF. TVÍTIIG V-ÞÝSK stúlka, sem var á puttaferðalagi í Frakklandi, fannst á sunnudagsmorgun látin í skógi skammt frá Besancon, er borgarbúi fór út til að viðra hund- inn sinn. Lík stúlkunnar var hroðalega leikið er það fannst og voru á því meira en 20 hnífsstungur. Svo virðist, sem hún hafi barist kröftuglega gegn banamanni sín- um því greina mátti ummerki stympinga á morðstaðnum. Fleiri lík hafa fundist á svipuí um slóðum eftir viðlíka meðferi síðast í maí er 25 ára gömul finns stúlka, sem einnig var puttaferðalagi, fannst hroðaleg útleikin. Það morð hefur enn ekl verið upplýst. Kosið á Korsiku Mynd þessir sýnir hvar gyðingar fallast óttaslegnir í faðma eftir skotárásina sem gerð var á matsölustað þeirra í miðborg Parísar í dag, en í henni létust sex manns og a.m.k. 15 særðust. ísraclskir hermenn í návígi við PLO-menn í Beirút. Ekk- ert lát er á bardögum í borginni. V-Þýskaland: Indónesía: 24 létust í bílslysi Jakarla, Indónesíu, 9.ágúst. AF. TITTIKiIJ og fjórir létu lífið og 41 slosuðust er langferðabifreið steyptist niður í dal nála'gt bænum l'onorogo í Austur-Java, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Slysið átti sér stað í gær, en það voru einungis níu farþegar sem sluppu ómeiddir. Nokkrir hinna slös- uðu eru enn í lífshættu. Talsmaður lögreglunnar sagði að bílstjórinn, sem einnig lét lífið i slys- inu, hefði misst stjórn á bifreiðinni vegna of hraðs aksturs. Dauðadómur Kichmont, \ irginíu, 9. ágúst. AF. KKKKKT benti til þess í dag að dauðadómi yfir Krank ('oppola, sem da-mdur var fyrir morð, yrði í ein- hverju breytt. Dauðadómi þessum verður framfylgt á morgun í Virginia- ríki, en lögmenn hafa gert margar til- raunir til að (il þessa þurfi ekki að koma. Coppola, sem verður fimmti mað- urinn sem Tekinn verður af lífi í Bandaríkjunum frá árinu 1976 og sá fyrsti í Virginía-ríki frá árinu 1962, hlaut þennan dóm eftir að hafa ver- ið fundinn sekur um að hafa barið til dauða Muriel Hatchell er hann rændi íbúð hennar á árinu 1978. Fimmburafæðing í Buenos Kucnos Aires, 9. ágúst. AF. KIMMBURAR litu dagsins Ijós er Mirtha Aliria Bazan, 28 ára gömul húsfreyja í Buenos Aires, varð létt- ari. Blóðrásarsjúkdómur varð einu Aires barnanna, stúlku, að aldurtila inn- an fárra klukkustunda, en þau fjögur, sem eftir lifa, allt drengir, eru við góða heilsu. Fimmburarnir voru aðeins um 6 merkur hver við fæðingu. Skartgriparán í Frankfurt I rankfurt. Vestur-I’ýskalandi, 9.ágúst. AF. VOBNADl'R maður hrifsaði með sér skartgripi að upphæð 800.000 mörkum, er hann, greinilega að vendilega alhuguðu máli, lét greipar sópa um góssið sem var í vörslu eig- enda sinna i bílageymslu undir al- þjóðlega flugvellinum í Krankfurt, samkva'mt upplýsingum frá lögregl- unni í ga*r. Ránið átti sér stað sl. laugar- dagskvöld eftir að gullsmiður frá Suður-Þýskalandi og vinur hans komu í bílageymslu til að eiga Mannæta svipt- ir sig lífinu N arsjá, 9. ágúst. AF. MADI'R, sem leitað var af lög- reglu og grunaður um að hafa drepið konu og lagt hluta líkama hennar sér til munns, fannst i dag og hafði þá framið sjálfs- morð. Þetta er í fyrsta sinn svo vit- að sé frá stríðslokum, að mað- ur er grunaður um mannát. Kiginkona hins látna hefur verið sett í gæsluvarðhald, grunuð um þátttöku í ódæðinu. viðskipti við skartgripasala frá Mílanó. Hann lét hins vegar ekki sjá sig, þannig að bið félaganna tveggja í þrjá tíma skilaði ekki óðrum árangri en þessu vopnaða ráni. Þjóðverjinn var á leið upp í bif- reið sína þar sem kunninginn sat með gersemarnar í aftursætinu þegar vopnaður maður stökk fram, en lögreglan segir að hér hafi verið um útlending að ræða á aldrinum .35 til 40 ára. Hann mið- aði byssu sinni á höfuð þess sem á gersemunum hélt og hrópaði á lé- legri þýsku að hann léti skot ríða af á hverri stundu ef hann fengi ekki skartgripina umyrðalaust. Hann hrifsaði þá síðan til sín og hljóp á braut. Talið er að skartgripasalinn frá Mílanó sem ekki lét sjá sig á stefnumótinu hafi hins vegar staðið álengdar og tekið til fót- anna með byssumanninum. Lög- reglan telur því auðsætt að hér hafi verið um þrautskipulagt rán að ræða, þar eð stefnumót þetta var löngu ákveðið og því nægur tími til allrar skipulagningar. Bavlovlenkov hættur föstunni: Ósannindi eiginkonu hans var vendipunkturinn Moskvu, 9. ágúsl. AF. MEÐ ÞVÍ að segja eiginmanni sín- um ósatt og hann fengi brottfarar- leyfi úr landinu ef hann neytti mat- ar á ný, tókst eiginkonu Yuri Balovlenkov í örvæntingu sinni að fá hann til að nærast á ný eftir 36 daga föstu. „Hvað átti ég til bragðs að taka,“ sagði eiginkonan, Elena. „Ég hef aldrei sagt eiginmanni mínum ósannindi fyrr, en að þessu sinni var það óhjákvæmi- legt. Það var betra en að horfa á hann veslast upp“. Elena hitti fulltrúa útflytj- endaeftirlitsins að máli í morg- un. Það eina, sem þeir vildu gefa upp var, að þeir myndu ekki endurskoða mál hans á meðan hann fastaði. Hins vegar bætti hún því við að einn fulltrúanna hefði sagt sér, að eiginmaður hennar fengi fyrr eða síðar að fara úr landi. Eiginkonan kom vel búin lyfj- um og öðrum næringarefnum, sem nauðsynleg eru þeim, sem fastað hafa lengi, frá Bandaríkj- unum á föstudag, en tókst ekki að fá Yuri til að nærast fyrr en nú. Hafði hún í huga að neyða næringu ofan í mann sinn, en féll frá þeirri hugmynd þegar hann sagði henni, að hann fremdi sjálfsmorð ef hún færi úr landi. Elena sagði ennfremur að hún myndi segja honum allan sannleikann áður en hún fer frá Moskvu eftir 10 daga. Heilsufar Balovlenkov er enn bágbornara fyrir þá sök, að hann fór í 43 daga hungurverkfall, sem iauk 21. júní sl. Hætti hann föstunni þá á þeim forsendum, að hann hefði fengið brottfarar- leyfi. Sovésk yfirvöld segjast hins vegar aldrei hafa veitt neitt slíkt leyfi. Ajarcio, Korsíku. 9. ájjúst. AF. IIKRADSKOSNINGAR fóru fram á Korsiku í gær, en þetta er fyrsta skref eyjaskeggja, sem hafa verið undir stjórn Frakka undanfarnar tvær aldir, í átt til sjálfstæðis. Kftir að kjörstöðum hafði verið lokað í gærkvöldi kom í Ijós að um 65 til 70 prósent íbúa eyjanna, sem eru rúmlega 200.000 talsins, höfðu greitt atkvæði. Niðurstöður kosninganna voru þær að flokkur óháðra fékk átta sæti í hinni nýju héraðsstjórn, en hvorki hægri- né vinstrisinnum tókst að ná hreinum meirihluta. Endanlegar tölur iiggja þó ekki fyrir. Óttast hafði verið að til óláta myndi koma á kosningadaginn, en ekki eru neinar fregnir af slíku, en það voru 17 stjórnmálaflokkar sem buðu fram til kosninganna og voru flestir þeirra á vinstri lín- unni. Frambjóðendur voru alls 1037, en sætin sem kosið var um 61.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.