Morgunblaðið - 07.09.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.09.1982, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982 25 Eyjamenn „stálu“ sigrinum í þriggja marka hasar í lokin — Akurnesingar réðu lögum og lofum lengst af en máttu þola 1—2 tap ÓHÆTT er að fullyrða, að Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, dómari, hafi ekki verið í hópi vinsælustu manna eftir leik Akurnesinga og Vestmanneyinga í 1. deildinni á Akranesi á laugardag. Margir áhorfenda, sem vildu fá vítaspyrnu Skagamönnum til handa i upphafi leiksins, ætluðu bókstaflega að ganga af göflunum þegar dæmd var vítaspyrna á heimamenn þegar aðeins fjórar mínútur voru til leiksloka. Óskaplega vafasamur dómur svo ekki sé meira sagt, enda gerðu Eyjamenn ekki neitt tilkall til vítaspyrnu, hvað þá að línuvörður sæi eitthvað athugavert. Úr vítaspyrnunni skoraði Sigurlás Þor- leifsson örugglega sigurmark Eyjamanna, 2—1. Sigur, sem var á engann hátt sanngjarn þegar tekið er mið af gangi leiksins. Akurnesingar mega aftur á móti naga sig rækilega í handarbökin fyrir að bafa ekki innsiglað sigur sinn fyrir leikhlé. Strax í upphafi leiks var það greinilegt að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt, enda áttu báðir aðil- ar enn möguleika á að krækja í Islandsbikarinn eftirsótta. A fyrstu 5 mínútunum gekk knöttur- inn marka á milli með Ijóshraða, liggur manni við að segja, slíkur var ákafinn. Ekki voru liðnar nema rúmlega 90 sekúndur þegar Páll Pálmason, besti maðurinn í liði IBV, varði naumlega skot Sigþórs Ómarsson- ar af markteig. Þetta var atvikið, sem heimamenn vildu fá víta- spyrnu út á. Töldu greinilegt að Sigþóri hefði verið haldið. Undir- ritaður sá ekkert slíkt, en var e.t.v. ekki í sem bestri aðstöðu með haustsólina beint framan í sig. Eyjamenn voru snöggir að svara fyrir sig og hinu megin varði Davíð vel skot frá Agústi Einars- syni, og við hinn enda vallarins mokaði Sigþór Ómarsson knettin- um yfir í upplögðu færi. Áfram sóttu Skagamenn af krafti og Júlíus gekk í þaö heilaga JÚLÍUS Pétur Ingólfsson mátti aldeilis hafa sig allan við á laugar- daginn. Hann lék með Skaga- mönnum gegn ÍBV í 1. deildinni á laugardag. Leiknum lauk um kl. 16.15 og þá varð hann aö skunda í bað eins og aðrir leikmenn. Júlíusi lá öllu meira á en venju- lega því þessi laugardagur var með þeim merkilegri í lífi hans. Hann ætlaði nefnilega að ganga í það heilaga kl. 17. Vitum við ekki annað en hann hafi komist áfalla- laust upp að altarinu og óskum honum til hamingju. næst var komið að Guðbirni, sem fór að dæmi Sigþórs. Að því loknu tóku við t.vær til- raunir Jóns Askelssonar, en bæði skot hans fóru rétt framhjá. Guð- björn tók því næst við á ný, en að þessu sinni varð Páll Pálmason að draga fram sparihanskana til að verja glæsilega. Þegar hér var komið sögu voru aðeins 23 mínútur liðnar en þá var líka gamanið búið. Akurnesingar fóru að gefa eftir, án þess að Eyja- menn kæmu nokkru sinni veru- lega inn í myndina, og ekkert markvert gerðist fyrr en á loka- mínútu fyrri hálfleiksins er Páll greip laglega inn í eftir fallega sókn Akurnesinga. Framan af síðari hálfleiknum sóttu Eyjamenn aðeins í sig veðr- ið. Viðar Elíasson átti fast skot, en framhjá á 57. mín. og rétt á eftir skaut Lási beint á Davíð í góðu færi eftir aukaspyrnu Ómars. Síð- an var komið að Skagamönnum á ný. Sigurður Jónsson, besti maður vallarins ásamt Árna Sveinssyni, tók þá laglega rispu og lék á þrjá Eyjamenn áður en Páll varði laust skot hans. Sóknarþunginn jókst stöðugt hjá Skagamönnum, en markið lét bíða eftir sér. Sveinbjörn meiddist og Kristján Olgeirsson kom inn á og rétt á eftir átti hann þátt í fyrsta marki leiksins. Sigurður Jónsson tók horn- spyrnu frá vinstri á 76. mínútu. Gaf langa og fallega sendingu yfir á markteigshornið fjær. Þar skall- aði Kristján knöttinn niður í markteiginn og Jón Gunnlaugsson kom aðvífandi og skoraði örugg- lega án þess að Páll Pálmason fengi rönd við reist. Hvað það var sem gerðist er | ekki gott að segja, en Akurnes- ingar ætluðu sér greinilega að halda fengnum hlut eftir þetta. Það varð þeim dýrkeypt því aðeins þremur mínútum eftir markið náðu Eyjamenn að svara fyrir sig og var það einkar fallegt mark. Bræðurnir, Kári og Sigurlás, léku í gegnum sofandi Skagavörnina eins og hún væri ekki til og Lási rak endahnútinn á sóknina með hnitmiðuðu skoti af vítateig, 1—1. Skagamenn hófu leikinn á miðju. Boltinn barst upp í vinstra hornið þar sem Árni Sveinsson sneri á þrjá Eyjamenn áður en hann lagði knöttinn fyrir fætur Guðbjörns í eins opnu færi og þau hafa gerst á Akranesi frá því knattspyrna var þar fyrst leikin. Á óskiljanlegan hátt sendi Guð- björn boltann yfir með gapandi markið fyrir framan sig. Siðan kom vítaspyrnan um- deilda, sem tryggði Eyjamönnum sigurinn, eins og greint er frá hér í upphafi. Það verður að segjast eins og er að tæpast hafa Eyjamenn unnið sætari sigur í sumar, ekki hvað síst í ljósi þess að þeir áttu miklu minna í leiknum og voru reyndar ekkert með í myndinni fyrr en undir lokin. Þá sýndu þeir líka fram á sínar sterku hliðar og um- fram allt ódrepandi baráttu. Hjá Akurnesingum voru þeir langbestir Sigurður Jónsson og Árni Sveinsson. Sigurður mesta efni, sem undirritaður hefur séð á knattspyrnuvelli hérlendis. Vant- ar kannski örlítið meiri hraða. Árni var mjög sterkur og sérstak- lega er á leikinn leið. Sveinbjörn Hákonarson og Sigurður Lárusson voru einnig góðir. Af Vestmanneyingum er rétt að taka Pál fyrst fram í markinu. Varði af stöku öryggi allan leik- inn. Sigurlás var stórhættulegur frammi strax og litið var af hon- um og á miðjunni bar mest á Sveini Sveinssyni. — SSv. Sigurlás Þorleifsson skoraði bæði mörk ÍBV i Skaganum. Elnkunnagjðfin LIÐ KA: LIÐ FRAM: LIÐ AKRANESS: LIÐ ÍBK: Þorvaldur Jónsson 5 Guðmundur Baldursson 5 Davíð Kristjánsson 5 Þorsteinn Bjarnason Eyjólfur Ágústsson 6 Þorsteinn Þorsteinsson 4 Guðjón Þórðarson 5 Kristinn Jóhannsson Guðjón Guðjónsson 7 Trausti Haraldsson 5 Sveinbjörn Hákonarson 7 Rúnar Georgsson llaraldur Haraldsson 6 Marteinn Geirsson 4 Sigurður Lárusson 7 Ingiber Óskarsson Erlingur Kristjánsson 8 Kristinn Jónsson 4 Jón Gunnlaugsson 6 Gísli M. Eyjólfsson Gunnar Gíslason 7 Halldór Arason 5 Jón Áskelsson 6 Ingvar Guðmundsson Ormar Örlygsson 6 Valdemar Stefánsson 4 Guðbjörn Tryggvason 6 Einar Á. Olafsson Elmar Geirsson 6 Viðar Þorkelsson 6 Július Pétur Ingólfsson 5 Skúli Rósantsson Ilinrik Þórhallsson 7 Árni Arnþórsson 4 Sigþór Omarsson 6 Ragnar Margeirsson Ásbjörn Björnsson 6 Guðmundur Torfason 4 Sigurður Jónsson 8 Óli Þór Magnússon Steingrímur Birgisson 5 Hafþór Sveinjónsson 5 Árni Sveinsson 8 Kári Gunnlaugsson Einar Björnsson vm. 4 Daniel Einarsson LIÐ VÍKINGS: Lárus Grétarsson vm. 4 LIÐ VESTMANNAEYJA: Ögmundur Kristinsson 7 Páll Pálmason 7 LIÐ KR: Ragnar Gislason 7 LIÐ ÍBÍ: Viðar Elíasson 6 Halldór Pálsson Magnús Þorvaldsson 6 Hreiðar Sigtryggsson 6 Ágúst Einarsson 6 Sigurður Indriðason Jóhannes Bárðarson 7 Einar Jónsson 7 Þórður Ilallgrímsson 5 Magnús Jónsson Stefán Halldórsson 8 Jón Björnsson 6 Valþór Sigþórsson 6 Ottó Guðmundsson Aðalsteinn Aðalsteinsson 6 Amundi Sigmundsson 7 Snorri Rútsson 5 Jakob Pétursson Gunnar Gunnarsson 7 Örnólfur Oddsson 8 Sveinn Sveinsson 6 Jósteinn Einarsson Omar Torfason 7 Gunnar Guðmundsson 6 Jóhann Georgsson 5 Agúst M. Jónsson Jóhann Þorvarðarson 6 Gústaf Baldvinsson 7 Sigurlás Þorleifsson 7 Halfdán Örlygsson Heimir Karlsson 7 Rúnar Guðmundsson 6 Kári Þorleifsson 5 Elías Guðmundsson Sverrir Herbertsson 7 Gunnar Pétursson 7 Omar Jóhannsson 5 Sæbjörn Guðmundsson Þórður Marelsson vm. 5 Jóhann Torfason 7 Birgir Guðjónsson Jón Oddsson 7 Magnús Guðmundsson Atli Einarsson vm. Lék of stutt. 7 5 5 6 6 5 6 5 6 5 5 5 7 5 5 6 5 5 5 6 6 6 5 5 !• Ómar Torfason, fyrirliði Víkings, sækir að marki KA en Þorvaldur Jónsson sló knöttinn í þverslá. Þar skall hurð nærri hælum. Staða Víkings vænleg eftir sigur á Akureyri VÍKINGAR STIGU stórt skref í átt að íslandsmeistaratign þegar þeir sigruðu KA 2—0 í 1. deild Islandsmótsins í knattspyrnu á laugardag. Víkingar þurfa eitt stig til þess að verja íslandsbikarinn, sem þeir unnu í fyrra í fyrsta sinn í 57 ár. Sigur Víkings á Akureyri var sanngjarn. Víkingar léku betur, sköpuðu sér fleiri marktækifæri, voru fljótari á knöttinn og útfærðu leik sinn betur en KA. Staða KA á botni 1. deildar er slæm. Liðið verður að sigra í síðasta leik sínum til þess að eiga von um að halda sæti sínu í 1. deild. Það var greinilegt að Víkingar voru staðráðnir í að sigra á Akureyri á laugardag. Þeir hófu stórsókn um leið og Arnþór Oskarsson, dómari flautaði til ieiks og sóttu línnulítið í fyrri hálfleik. Þegar á 3. mínútu skall hurð nærri hælum við mark KA. Aðalsteinn Áðalsteinsson skallaði knöttinn fyrir fætur Sverrís Herbertssonar og skot hans frá mark- teig skall í þverslánni. Leikurinn fór að mestu fram á vallarhelmingi KA og á 9. mínútu gaf Jóhann Þorvarðarson góða sendingu fyrir mark KA á Heimi Karlsson, sem skallaði í þröngri stöðu að markinu. Knötturinn fór fyrir þvert markið og Sverrir Herbertsson var hársbreidd frá knettinum áður en hann rúllaði hjá stönginni utanverðri. En sókn Víkings bar árangur á 22. mínútu og var laglega að markinu staðið. Ragnar Gíslason bakvörður lék upp að endamörk- um, lék stórskemmtilega á Elmar Geirsson og gaf góða sendingu fyrir mark KA. Sverrir Herberts- son var eldfljótur að átta sig, — skoraði með góðu skoti frá mark- teig, 0—1 og Víkingar fögnuðu mjög. Á 41. mínútu skall knötturinn enn í þverslá marks KA. Stefán Halldórsson tók aukaspyrnu, sendi háa sendingu fyrir mark KA. Þorvaldur Jónsson markvörð- ur KA virtist misreikna knöttinn, missti hann hálfpartinn yfir sig en náði að slá knöttinn í þverslá og þaðan út á völlinn. Á 45. mínútu átti KA sitt fyrsta skot að marki Víkings að heitið gæti. Ásbjörn Björnsson skaut hörkuskoti frá vítateig, en knött- urinn fór naumlega yfir. Staðan í leikhléi því 0—1. KA lék að suðurmarkinu í síðari hálfleik og þegar í upphafi hálf- leiksins var ljóst, að gerbreytt lið KA var inni á vellinum. Leikmenn náðu upp mun meiri baráttu, og Gunnar Gíslason varð atkvæða- meiri á miðjunni. Víkingar drógu sig aftar og treystu vörnina og beittu skyndisóknum. Á 58. mín- útu tók Eyjólfur Ágústsson auka- spyrnu að marki KA, gaf góða sendingu fyrir markið og þar stökk Gunnar Gíslason hærra en aðrir, en fallegur skalli hans fór naumlega framhjá. Á 62. mínútu náðu Víkingar hættulegri skyndisókn. Heimir Karlsson braust upp vinstri kant- inn, upp að endamörkum og gaf góða sendingu á Sverri Herberts- son sem var aleinn í dauðafæri fyrir framan mark KA. En skot hans var misheppnað — knöttur- inn barst til Jóhanns Þorvarðar- sonar, sem skaut en Þorvaldur varði vel. Á 75. mínútu komu ieikmenn KA knettinum í net Víkings, en Arnþór hafði áður dæmt, að brotið hefði verið á Ögmundi Kristins- syni, markverði Víkings. Sóknar- lotur KA urðu sífellt þyngri — á 31. mínútu átti Gunnar Gíslason gott skot af um 20 metra færi en Ogmundur Kristinsson var örygg- ið uppmálað í marki Víkings og varði örugglega. Hamingjudísirn- ar brostu við Víkingum á 78. mín- útu. Þá átti KA snarpa sóknarlotu — Gunnar Gíslason gaf snjalla sendingu inn á Elmar Geirsson í vítateig Víkings. Elmar gaf lag- lega aftur fyrir sig með hælnum á Hinrik Þórhallsson við vítapunkt. Hinrik skaut þrumuskoti að marki Víkings, en knötturinn small í þverslánni og þaðan út að víta- teigslínu. Víkingar sluppu þarna fyrir horn og segja má, að þetta hafi verið síðasta sóknarlota KA sem því nafni gat heitið. Á 81. mínútu átti Ómar Torfa- son hörkuskot að marki KA en Þorvaldur varði vel, hélt þó ekki knettinum en náði að góma hann áður en sóknarmenn Víkings komu aðvífandi. Á 85. mínútu gerðu Víkingar svo út um leikinn. En var það Heimir Karlsson, sem braust upp að enda- mörkum — lék laglega á varnar- menn og sendi fasta sendingu fyrir mark KA. Þorvaldur kastaði sér niður og hugðist góma knött- inn en missti hann frá sér og Jó- hann Þorvarðarson skoraði örugg- lega af stuttu færi. Úrslitin ráðin — sigur Víkings í höfn og Víkingar fögnuðu mjög. Þegar á heildina er litið var sigur Víkinga sanngjarn. Þeir höfðu yf- irburði í fyrri hálfleik og sköpuðu sér góð tækifæri. I síðari halfleik beittu Víkingar hættulegum skyndisóknum, en vissulega sluppu þeir fyrir horn þegar skot Hinriks skall í þverslánni. Stefán Halldórsson átti stórgóðan leik í vörn Víkings, — eldfljótur, útsjón- arsamur og stöðvaði ófáar sókn- arlotur KA og byggði jafnharðan upp. Hann hefur vaxið mjög í mið- varðarstöðunni hjá Víkingi í sumar — lék áður sem miðherji, en er nú einn besti miðvörður 1. deildar. Þá var Jóhannes Bárðar- son sterkur við hlið hans og Ragn- ar Gíslason, sem varð að fara útaf í leikhléi vegna meiðsla, átti og góðan leik. Á miðjunni voru þeir Omar Torfason og Gunnar Gunn- arsson sterkir og eftir nokkra lægð, vex Ómar með hverjum leik. I sókninni voru þeir Heimir Karlsson og Sverrir Herbertsson hættulegir — Heimir skapaði nokkur tækifæri með krafti sínum og hraða en var ekki mikið i marktækifærum. Sverrir hins vegar hafði vakandi auga fyrir tækifærum og hefði allt eins getað skorað fleiri mörk en eitt. Staða KA er nú ákaflega erfið í 1. deild. í liðinu eru sterkir ein- staklingar en liðsheildin hins veg- ar veik. Erlingur Kristjánssson er mjög sterkur miðvörður og á miðj- unni kvað mikið að Gunnari Gísla- syni. Hinrik Þórhallsson var í strangri gæslu Jóhannesar Bárð- arsonar og með honum hvarf mesti broddurinn í sókn KA. Elmar Geirsson lék með að nýju eftir fjarveru, en er greinilega í lítilli æfingu og mátti sín ekki mikils gegn velþjálfuðum varnar- mönnum Víkings. Þó munaði litlu að Elmar legði upp jöfnunarmark þegar hann gaf snjalla sendingu á Hinrik, sem skaut í þverslá. H.Halls. Tvö mörk Inga Bjarnar og Valsmenn á lygnum sjó VALUR bjargadi sér endanlega úr fallhættunni í gærkvöldi, er liðið sigraði UBK léttilega 2—0. UBK sit- ur eftir í suðupottinum og verður að standa sig gegn KA í síðustu umferð- inni ef 1. deildar sætið á að haldast. Þetta var furðu fjörugur leikur mið- að við aðstæður, Valsmenn léku oft og tíðum bráöskemmtilega og fengu i rauninni næg tækifæri til að skora mörgum sinnum. Blikarnir börðust vel, en allur leikur þeirra var skipu- lagslaus og villtur. Tónninn var gefin strax á 2. mínútu leiksins, er Hilmar Sig- hvatsson átti þrumuskot frá víta- teigslínunni. Guðmundur Ás- geirsson markvörður UBK varði snilldarlega og hann átti oft eftir að halda liði sínu á floti. Grímur Sæmundsen átti annað gott skot að marki UBK áður en Valsmenn náðu forystunni á 25. mínútu. Hilmar Sighvatsson lék fram með knöttinn, sendi til Magna Péturs- sonar og Magni renndi knettinum inn fyrir vörnina þar sem Ingi Björn kom á sannkallaðri fleygi- ferð. Þrátt fyrir asann náði Ingi að renna knettinum örugglega fram hjá úthlaupandi markverð- inum og skora fyrra mark Vals. Valsmenn áttu aðeins eitt tæki- færi enn í fyrri hálfleik, ieikurinn heldur daufur framan af og bar keim af aðstæðum sem voru fyrir neðan allar hellur. Umrætt færi var dauðafæri sem Valur Valsson fékk á 32. mínútu, en hann brenndi af. Síðari hálfleikur var aðeins tólf mínútna gamall er Ingi Björn skoraði aftur og var þetta mark mun glæsilegra en það fyrra. Val- ur Valsson átti gullfallega send- ingu til Inga og hann tók sprett að markinu og skoraði með þrumu- skoti sem Guðmundur réði ekkert við. Tveimur mínútum síðar kom- ust þrír Blikar fram gegn 2 Vals- mönnum og fengu úr því dauða- færi. Sævar Geir Gunnleifsson, efnilegur 2. flokks strákur fékk að vinna úr því, en skot hans fór naumlega fram hjá. Ingi Björn fékk stórgott tæki- færi til að ljúka við þrennu á 68. mínútu, fékk þá boltann frá Þorgrími Þráinssyni og var á auð- um sjó. Gott skot hans varði Guð- Staðan í 2. deild STAÐAN í 2. deild er nú þessi: Þróttur R. 17 12 4 1 27— 8 28 Þór Ak. 17 7 7 3 33—17 21 Reynir 17 8 3 6 24—16 19 FH 17 6 6 5 19—23 18 Völsungur 17 5 6 6 20—19 16 Einherji 17 6 2 9 23—29 14 Njarðvík 17 5 4 8 22—30 14 Skallagrimur 17 5 4 8 20—28 14 Fylkir 17 1 11 5 12—18 13 Þróttur N. 17 5 3 9 10—24 13 Ellefu jafn- tefli Fylkis FYLKIR og Völsungur gerðu marka- laust jafntefli í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu um helgina, er liðin mættust á Húsavík. Var það ellefta jafntefli Fylkis í 2. deildar keppninni og má með sanni segja að liðið sé KR 2. deildar, eða kannski að orða það frekar þannig að KR sé Fylkir 1. deildar, en KR hefur nú 11 jafntefli að baki í 1. deildinni. Jafnteflið var nokkuð sanngjörn endalok á fremur daufum leik, heimamenn voru ívið sterkari framan af, en Fylkismenn sóttu sig er á leið. Hvorugu liði tókst þó að skora þrátt fyrir fáein færi. Fylkir er enn í mikilli fallhættu, hreint voðalegri ef út í það er far- ið. Valur: O-fl UBK ^-u mundur þó snilldarlega. Vignir Baldursson klúðraði ágætu færi fyrir UBK á sömu mínútunni, en síðan náðu Valsmenn algerum tökum á vellinum. Höfðu þeir allt til leiksloka mikla yfirburði og fengu mýmörg færi til þess að bæta mörkum við. Tvívegis hefðu Valsmenn átt að fá vítaspyrnur, einkum þó á .71. mínútu, er Inga Birni var greinilega haldið inni í teignum er hann var að komast í dauðafæri. Rafn Hjaltalín dómari gerði enga athugasemd við háttar- lag Blikans. Hver sóknin af ann- arri buldi nú á marki UBK og á 83. mínútu nötruðu næstum öll mannvirki í Laugardalnum, er mikið bombuskot Guðmundar Þorbjörnssonar af 25 metra færi small neðan á þverslánni, hrökk niður á marklínuna og út til Vals Valssonar sem var með markið hreinlega geispandi fyrir framan sig. I stað þess að renna knettin- um rólega í tómt markið, var engu líkara en Valur ætlaði að spyrna út í sundlaug og hann var næstum nær því. Síðustu mínúturnar óðu Valsmenn svo í færum, Hilmar, Njáll og Hilmar aftur, auk þess sem Hilmar „skoraði" sannkallað gullmark. Hann var hins vegar ögn rangstæður, en engu mátti muna. Lokatölur því 2-0. Valsmenn áttu hrós skilið fyrir leik sinn, aðstæður voru slæmar, rok og kuldi, en Valsmenn reiddu fram skemmtilega sóknarknatt- spyrnu og var oft gaman að sjá til samvinnu þeirra Inga Björns, Hilmars og Vals. Miðjumennirnir unnu vel og vörnin hleypti litlu í gegn. Blikarnir voru eins og venju- lega, suðandi eins og mýflugur um allt, en skipulag var lítið, kapp oft meira en forsjá. Taka ber fram þó, að liðið lék án lykilmannsins Sig- urðar Grétarssonar, sem var í leikbanni. Vörnin var oft grátt leikin, en Guðmundur markvörður var besti hluti hennar. Aðrir leikmenn liðsins sýndu aðeins sprett og sprett. I stuttu máli: Laugardalsvöllur, 1. deild: Valur — UBK 2-0 (1—0) Mörk Vals: Ingi Björn Albertsson á 25. og 57. mínútu. Spjöld: Lítið um slíkt. Dómari: Rafn Hjaltalín. • Ingi Björn skoraði bæði mörk Vals. IÞROTTASKOR STENZEL UNIVERSAL kr. 625.- HANDBALL SPURT kr. 723.- ARGENTINA kr. 417.- PELE JUNIOR kr. 296.- HEYNCKES STAR kr. 495,- Þetta er bara smásýnishorn af því sem viö eigum til. Ip@rls vttruvQrxRmni llnqóHf/ ©/Heqrr/owqirl Klapparstíg 44, sími 11783

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.