Morgunblaðið - 07.09.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.09.1982, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982 26 Fólk og fréttir í máli og myndum Tim Dwyer: „Vonast til þess að keppnistímabilið verði spennandi og skemmtilegt“ — Eg er mjög ánægður yfir því að vera kominn aftur til íslands í mitt gamla félag, Val. Og ég er sannfærð- ur um að við í sameiningu hér í körfuknattleiksdeildinni eigum eftir að gera góða hluti í vetur. Þá tvo vetur sem ég lék með Val náðum við góðum árangri. Fyrra tímabilið sigr- aði Valur i 14 leikjum af tuttugu, og síðara timabilið sigruðum við í 16 leikjum af tuttugu í íslandsmótinu. Og ég stefni að því að bæta þetta met í vetur i íslandsmótinu, sagði Tim Dwyer er Mbl. spjallaði litillega við hann á dögunum. Tim hefur undanfarin tvö ár dvalið í Frakklandi og leikið þar og þjálfað með 2. deildar liði. — Eg var ekkert sérlega ánægður í Frakklandi. Mér finnst Frakkar vera hrokafullir í fram- komu. Ég var ekki tekinn sem einn af þeim. Hér á landi er þetta allt öðru vísi. Hér eignast maður vini, og allir sýna manni elskulegheit. Þá eru leikmennirnir mjög eig- ingjarnir í leik sínum í Frakk- landi. Þegar ég varð að velja á milli þess að fara aftur til Frakk- lands eða koma til Islands var ég ekki í neinum vandræðum að gera það upp við mig að koma hingað til lands. — Þetta verður síðasta árið sem ég ieik körfubolta. Ég er bú- inn að fá loforð fyrir góðri vinnu í heimabæ mínum í Kaliforníu og þá hætti ég að þjálfa og leika körfubolta. Mér er því mikið í mun að standa mig vel í vetur með Val. — Ég vonast bara til að keppn- istímabilið hér verði spennandi og skemmtilegt. Mér hefur skilist að það hafi verið lægð í körfunni hér í fyrravetur. Ég hef mikla trú á því að mótið verði jafnt og það verði hart barist í vetur. Hér hef- ur leikmönnum farið fram. Hér eru í það minnsta kosti tuttugu íslenskir leikmenn sem gætu leik- ið í 1. deildinni í Frakklandi með sóma. Það er vel æft hjá mér í Val þessa dagana, og mikill fjöldi leikmanna á æfingum. Við munum koma með ýmisiegt nýtt í vetur. Og við munum leika hvern leik eins og að hann væri sá síðasti. Við ætlum okkur að verða meist- arar. En ég geri mér alveg grein fyrir því að róðurinn verður þung- ur. Lið eins og Fram, UMFN og KR eru öll líkleg til þess að vera sterk. Nú, nýliðar Keflavíkur geta líka komið á óvart. Ég er persónu- lega hræddastur við KR með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar. Hann er frábær leikmaður. Og að lokum vildi Tim koma því að, að á Islandi væri að finna einu sönnu áhugamennina í íþróttum. — Jafnvel í 2. deildar liðinu í Frakklandi þar sem ég lék körfu- bolta voru sex menn á launum. Já, þið getið verið stoltir yfir því hversu sterkir þið eruð þegar þess er gætt að hér eru eingöngu áhugamenn í íþróttum, sagði Tim. - ÞR. Athyglisverðustu afrekin í kvennagreinum eru langstökksafrek rúmensku langstökkvaranna Valeria Ionescu og Anisoara Cusmir. A rúmenska meistaramótinu setti sú fyrrnefnda hcimsmet, stökk 7,15 í fyrstu umferðum lang- stökksins, en það dugði ekki til, því í siðustu umferð náði Ionescu að bæta um betur og stökkva 7,20 metra. Myndin er af Ionescu í metstökkinu. Gamla heimsmetið átti sovézka stúlkan Vilma Bardauskine, 7,09 metrar, en hún varð fyrst kvenna til að stökkva yfir sjö metra. • Tim Dwyer og félagar hans í Val æfa af miklum krafti og ætla sér stóran hlut út úr mótum vetrarins. Búast má við að frjálsíþróttakonur blómstri GÍFURLEGAR framfarir hafa orðið í frjálsíþróttum kvenna, ekki einvörðungu hér á landi, heldur ekki hvað sízt víðs vegar úti í heimi. Þetta kemur hvað bezt í ljós þegar gluggað er í skrá yfir tíu beztu afrek í kvennagreinum. Skráin er yfir afrek unnin fram til 22. ágúst, en í millitíðinni hafa verið haldin mörg alþjóðleg mót og smávægilegar breytingar orðið. Hins vegar er við því að búast, að skráin riðlist verulega á Evrópu- meistaramótinu í Aþenu 6,—12. september, því þar munu evrópsku frjálsíþróttakonurnar verða í beztri æfingu. Jafnvel kunna þær í Aþenu að skyggja á karlmennina. Þannig er við því að búast að tímarnir í millivegalengdunum, verði stórum bættir. Einna athyglisverðastur er árangur rúmensku kvennanna Ionescu og Cusmir i langstökki, þótt af gífurlega miklu sé að taka. Eins og sjá má, eru bandarískar stúlkur sterkar í spretthlaupum, hástökki og ýmsum öðrum grein- um, en þær verða að sjálfsögðu ekki með í Aþenu. Þar hefði Mary Decker-Tabb þó getað storkað veldi austur-evrópsku stúlknanna í lengri hlaupunum. En lítum þó nánar á skrána. Heimsafrekaskrá kvenna 100 m: 12,73 Ginka ZaRortsjeva, Búlg. 10,88 Marlies (iiihr, A l»ýsk. 12,77 Tatjana Anisimova, Sovét. 10.93 Kvelyn Ashford, IJSA 12,79 Stepbanie llightower, USA lfl,S5 Barbel Wöckel, A-I>ý»k. 12,81 Marija Mertsjuk, Sovét. 11,01 MariU Koch. A l>j»k. 400 m grindahlaup: 11,06 Merlene Oltey, Jamaica 54,96 Kllen Fiedler, A-I»ýsk. 11,10 J. KratrM-hvikiva, Tékk. 55,00 Jcl. Filipiajina, SovcL 11,12 FlorcBr.'tíriffith, IÍSA 55,04 Ann-L Skoglund, Svíþj. 11,14 Oianr Williams, l/SA 55,12 Anna Kastetskaja, Sovét. 11,14 Anelija Nuneva, Búlg. 5531 1. van Kensburg. S-Afr. 200 m : 55,83 Birfiit llibd, A-Þýsk. 21,76 Marita Koeh, A-I»ýsk. .65,94 Nad. Asenova, Búlg. 22,10 Kvelyn Ashford, USA .66,14 (’harmaine Fick, S-Afr. 22,17 Merlene Ottey, Jamaica Ifástttkk 22,18 Barhcl W«rkd, A-I»ýak. 2,00 (’oleen Sommer, tJSA 22,24 <ÍCHÍnc Walther, A l'ýnk. 2,00 IJIrikc Mcyfarth. V-Þý»k. 22,36 J. Kratochvilova, Tékk. 1,99 Debbie Brill, Kanada 22J7 Sahinc Kicgcr, A-Þýak. 1,99 Andrea Bienias, A-l»ýsk. 22,39 Florencc (.riffith, IJSA 1,99 Katalin Sterk, Ungverjal. 400 m: 1,98 Tamara Bykova, SovéL 48,77 Marita Koch, A-I»ýsk. 1,97 Xhanna Nekrasova, Sovét. 4H.8S J. Kratnrhvilova, Tckk. 1,97 Jutta Kirst, A-I»ýsk. 48,66 Barbel Wttekel, A l»ýsk. .60,41 T. KocemlMiva, Tékk. 1,97 Jelena l'opkova, Sovét. 50,62 Dagmar Kúbsam, A-I*ýsk. Langstökk: 50,54 Irina Bankakova, Hovct. 7,20 Valeria lonescu, Kúmen. 50,6:1 Mirhcllc Scutt, Brcll. 7,15 Anisoara ('usmir, Kúmen. .60,75 J. Iloyte Smith, Bretl. 6,98 Hcikc Pautc, A-I*ý»k. 800 m: 6,93 Jodi Anderson, USA 1.55,02 Doina Melinte, Kúmen. 6,90 Sabine Möbiu.s, A-I*ýsk. 1.57,22 Olga Mincjcva, Sovét. 6J<8 Kamon Neubert, A-l>ýsk. 1.57,68 R. Agletdinova, Sovét. 6,86 Svetlana Xorina, Sovét. 1.57,85 L Veselkova, Sovét. 6.86 Brigittc Wujak, A-I"ý»k. 1.58,08 T. Providokhina, Sovét. Kúluvarp 1.58,09 Ljubov (iurina, Sovét. 21,80 llona Slupianek, A-I*ýsk. 158,33 Mary Derkcr Tabb, IWA 21,50 Vcrzh. Vcsclinova, Búle. 1.58,71 Totka f*etrova, Búl#. 21,27 Liane Schmuhl, A-I*ýsk. 1500 m: 21,20 Nunu Ahasjidze, A*l*ýsk. 3.54,23 Olga Dvirna, Sovét. 21,14 11. Fibingerova, Tékk. 3.56,14 Xamira XaiLseva, SovéL 20.77 Margitta Pufe, A-I»ýsk. 3.56,50 T. Kozdnjakova, Sovét. 20,72 lnc» MUIIcr, A-I>ý»k. 3.57,05 Svetlana (iuskova, Sovét. 20,61 Maria Sarria, Kúba 3.57,48 Maricica Puica, Rúmen. Kringlukast: 3.58,17 Nad. Kaldugina, Sovét. 71,40 Irina Meszynski, A*l*ýsk. 4.00,53 Svetlana l'opova, Sovét. 69,90 Calina Savinkova, Sovét. 4.(81,96 Irina Nikitina, Sovét. 69,76 liiitda Ikyer, A-I*ý»k. 3000 m: 69,40 Tsvetlana Khristova, Búlg. 8.36,78 Svetl. (Jlmasova. SovéL 68,% Maria Vergova, Búlgaría 8.29,36 Svetlana Ouskova, Sovét. 68,24 Fl. (’raciuneseu, Kúmen. 8.29,71 Mary Pcckcr Tabb, PSA 67,90 Pctra Hziegaud, A-I>ý«k. 8.31,67 Maricira Puica, Kúmen. 67,24 Galina Murasjova, Sovét. 8.33,40 Oalina Xakharova, Sovét. Spjótkaal: 8.35,20 Jelena Sipatova, Sovét. 72,40 Tiina Liilak, Fitinl. 8.,'15,31 T. IWjaknva, SovéL 69,28 Petrea Kivers, Ástralía 8.35,74 Alla Libutina, Sovét. 68,86 Sofia Sakorafa, GrtkkL 100 m grindahlaup: 68,10 Ingrid Thywicn, V-Þýnk. 12,44 Jordanka Donkova, Búlg. 68,04 Antje Kempe, A-I*ýsk. 12,55 Luryna Kalck-Langrr, l’éll. 67,68 Anna Verouli, (irikkl. 12,57 Bettina (.artz, A-Pýsk. 67,00 (orina Girbea, Rúmen. 12,62 Keratin Knabc, A-Þýnk. 66,98 Fatima Whitbread, Bretl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.