Morgunblaðið - 26.10.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
238. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Við komuna til Rómar lét
Glemp erkibiskup svo um
mælt, að varðandi ástandið í
Póllandi væri hann „heldur
svartsýnni" nú en hann var
þegar hann kom síðast til Róm-
ar í júlímánuði sl. Upphaflega
var ráðgert að Glemp hitti páfa
fyrir hálfum mánuði, en þá
frestaði hann ferðinni vegna
hins alvarlega ástands í Pól-
landi.
Glemp hefur orðið æ harð-
orðari í garð pólsku herstjórn-
arinnar og eftir að Samstaða
var bönnuð, aflýsti hann fundi
sínum með Jaruzelski hers-
höfðingja og forsætisráðherra,
en um leið og biskupinn fór frá
Varsjá nú lýsti hann því yfir að
hugsanlega mundi sá fundur
eiga sér stað þegar hann kæmi
Jozef Glemp erkibiskup við komuna til Rómar. AP-símamynd.
Valladares eftir 22 ára innilokun á Kúbu:
Vissi ekki fyrir hvað
hann var fangelsaður
París, 25. október. AP.
KÚBANSKA Ijóöskáldið Arm-
ando Valladares, sem fékk frelsi
í síðustu viku úr kúbönsku fang-
elsi fyrir tilmæli Francois Mitter-
ands Frakklandsforseta, sagði
svo frá í fréttaviðtali í dag, að
það hefði aldrei verið útskýrt
greinilega fyrir sér, hvers vegna
hann hefði orðið að dveljast 22 ár
í fangelsi á Kúbu.
í viðtali við frönsku frétta-
stofuna AFP sagði Valladares,
að hann hefði verið dæmdur í
30 ára fangelsisvist 1961, án
þess að hafa nokkru sinni verið
ákærður fyrir neinn ákveðnari
glæp en „skemmdarstarfsemi".
Mörgum árum seinna hafi svo
sá dómur verið styttur í 25 ár
og þá var honum skýrt frá því,
að hann hefði verið fórnarlamb
„öfgaverka af völdum bylt-
ingarinnar".
— Mér var skýrt svo frá,
sagði Vailadares, — að ég hefði
fengið í hæsta lagi fjögurra til
sex ára fangelsisdóm, ef rétt-
arhöldin yfir mér hefðu átt sér
stað þremur eða fjórum árum
síðar. Hann kvaðst hafa verið
fundinn sekur á grundvelli
óljósrar ákæru eftir tvennar
yfirheyrslur, sem stóðu 15 mín-
útur hvor. — Þeir, sem yfir-
heyrðu mig, sögðust ekki hafa
neinar fullnægjandi sannanir
gegn mér, en þeir myndu fá
mig sakfelldan, vegna þess að
þeir væru sannfærðir um, að ég
væri mögulegur óvinur bylt-
ingarinnar.
— Ég er ekki tákn, sagði
Valladares ennfremur. — Ég
er fangi, sem var svo heppinn
að sleppa á sama tíma og
hundruð annarra sitja enn í
fangelsi. Ég hyggst ekki taka
upp neina stjórnmálastarf-
semi. Ég er ekki hægri sinnað-
ur heldur fer ég meðalveginn
og ég er framar öðru kristinn
Lundúnum, 25. oklóber. AP.
JIMMY Carter fyrrum forseti
Randaríkjanna lýsti því yfir á
fréttamannafundi í Lundúnum
í dag að hann hefði ekki í
hyggju að bjóða sig fram til for-
setaembættis að nýju, um leið
og hann kvaðst myndu styðja
útnefningu Walter Mondales
sem forsetaframbjóðanda
demókrata í forkosningunum
1984 fremur en útnefningu
Edward Kennedys. Carter
kvaðst hafa mikla trú á hæfi-
leikum Mondales og almennri
afstöðu hans og lífsskoðun.
Sagðist hann þekkja Mondale
nægilega vel til að taka hann
fram yfir Kennedy að þessu
leyti.
Hann vísaði til kosninga-
baráttunnar 1980 og sagði í
því sambandi að Kennedy
virtist hafa sérstaka hæfi-
leika til að afla sér fylgis í
forkosningum, en jafnvel
dyggustu stuðningsmenn
Armando Valladares AP-símamynd.
maður. Það er í rauninni
ástæðan fyrir því, að ég er and-
vígur kommúnisma.
Sjá: „Var sveltur er hann
hafnaði pólitiskri „endur-
hæfingu““ bls. 19.
Lokaúrslit
byggðakosn-
inganna sigur
Papandreous
Aþenu, 25. október. AP.
GRÍSKIR sósíalistar unnu mikinn
sigur í seinni lotu byggðakosn-
inganna og eru úrslitin túlkuð sem
afdráttarlaus stuðningsyfirlýsing við
stefnu Papandreous forsætis-
ráðherra. Hafa sósíalistar, sem nú
höfðu kommúnista að bakhjarli, tögl
og hagldir í 173 af 286 byggða-
kjörnum og í 3.500 af hinum 5.700
smáþorpum í landinu. „Þetta er
tímamótasigur fyrir hreyfíngu sósíal-
ista og „breytingaöflin,“ sagði Pap-
andreou þegar honum voru tilkynnt
úrslitin.
í síðustu byggðakosningum sem
fram fóru fyrir fjórum árum
fengu sósíalistar kjörna bæjar-
stjóra í 72 bæjum og borgum, en
kommúnistar í 33, á meðan hægri
menn fengu kjörna 128 bæjar-
stjóra og höfðu meirihluta í flest-
um byggðastjórnum. Að þessu
sinni fengu hægri menn bæjar-
stjóra kjörna á aðeins 43 stöðum í
dreifbýlinu.
í fyrri lotu kosninganna töpuðu
sósíalistar nokkru fylgi þegar á
heildina var litið en það hefur sem
sé ekki haft áhrif á endanleg úr-
slit. í Aþenu hlaut borgarstjóra-
frambjóðandi sósíalista, Dimitris
Beis, 55,9% atkvæða og í Salóníki
var Theochares Manavis sósíalisti
kjörinn borgarstjóri með 55,5%.
Pólland:
Ný herferð gegn verkalýðnum
meðan Glemp ræðir við páfa
Yatíkaninu, Varsjá, 25. otkóber. AP.
JOZEF Glemp erkibiskup í Pól-
landi kom til viðræðna við landa
sinn, Jóhannes Pál páfa II., í
Vatíkaninu í dag, en þetta er í
fyrsta sinn sem fundum þeirra
ber saman síðan pólska her-
stjórnin bannaði starfsemi Sam-
stöðu, sem hefur eins og kunnugt
er verið nátengd rómversk kaþ-
ólsku kirkjunni í landinu. Sátu
þeir páfí og erkibiskup saman á
tali lengi dags en ekkert hefur
verið látið uppi um hvað þeim fór
á milli.
til baka.
Herstjórnin er enn að sækja
í sig veðrið og í dag boðaði
Jaruzelski herferð á hendur
„iðjuleysingjum, drykkjusjúkl-
ingum og slóðum". I forsíðu-
grein í stjórnarmálgagni út-
listaði hann hvernig réttindi og
skyldur varðandi örugga vinnu
yrðu að haldast í hendur, um
leið og hann fordæmdi spá-
kaupmenn, letingja og þá sem
hefðu hag af vinnudeilum.
„Sósíalisminn getur aldrei orð-
ið paradís letingja" sagði hann
í greininni, en fundur pólsku
löggjafarsamkundunnar, sem
hefur ekki komið saman síðan
Samstaða var bönnuð, er á
næsta leiti og fyrsta mál á
dagskrá er hert vinnulöggjöf.
Carter ekki í
framboð aftur
Tekur Mondale fram yfir Kennedy
Jimmy ('arter sem tapaði fyrir Ron-
ald Reagan í síðustu forsetakosning-
um. Hann var forseti Bandaríkjanna
í fjögur ár.
hans hefðu margir hverjir
sterka tilhneigingu til að
kippa að sér hendinni þegar
forsetastóllinn kæmi í sjón-
mál. „Ég held,“ sagði Carter,
„að ferill hans sé að hluta til
skýringin á þessu.“ Forsetinn
fyrrverandi vildi ekki út-
skýra hvað hann ætti við með
þessum orðum.
Þeirri spurningu var til
hans beint hví hann vildi ekki
vera forseti öðru sinni og
svaraði hann þá: „Ég sagði
ekki að ég vildi ekki verða
forseti aftur, ég segist ekki
hafa í hyggju að bjóða mig
aftur fram í embætti for-
seta.“