Morgunblaðið - 26.10.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.10.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982 5 Lagabreyting- ar og beitarmál — verða helstu viðfangsefni á lands- þingi hestamanna um helgina UM N/ESTU helgi verður haldið 33. landsþing Landssambands hestamannafé- laga. Að þessu sinni verður þingið haldið í Hlégarði í Mosfellssveit og er það Hestamannafélagið Hörður sem sér um framkvæmd þingsins. Þingstörf hefjast klukkan tíu í föstudag og mun formaður LH setja þingið. Milli 120—130 þingfulltrúar frá hestamannafélögum víða um land munu sitja þingið auk gesta og annarra áheyrenda. rrs íslenska hljómsveitin: Fyrstu tónleikarnir Að venju eru mörg mál á dagskrá þingsins og ber þar hæst tillaga milliþinganefndar um endurskoðun á lögum og reglum LH og tillaga stjórnar LH um beitarmál. í laga- breytingatillögunni er lagt til að fjölgað verði í aðalstjórn LH, þann- ig að varaformaður gengur inn í að- alstjórn og bætt verður við einum meðstjórnanda. Einnig er lagt til að þingfulltrúum verði fækkað, en þessi þing hafa þótt of stór og þung í vöfum. Er þetta viðleitni í þá átt að gera þingin léttari í framkvæmd og jafnframt árangursríkari. Stjórn LH leggur fram tillögu þar sem mörkuð er nýstefna í beitarmálum og er þá átt við beitarhólf í áning- Lítið um fisk- sölur erlendis FISKSÖLUM íslenzkra skipa er- lendis fer nú heldur fækkandi og mun aflatregða ráða mestu um það. Aðeins er fyrirhugað að sex skip selji afla sinn erlendis i þessari viku. í gær seldi Otur GK 147 lestir í Cuxhaven. Heildarverð var 1.684.400 krónur, meðalverð 11,46. Þá seldi Siglfirðingur SI 101,5 lestir í Grimsby. Heildarverð var 1.779.200 krónur, meðalverð 17,53. Tvö skip til viðbótar munu selja í Englandi í þessari viku og önnur tvö í Þýzkalandi. arstöðum. Ýmsar aðrar tillögur eru komnar fram um smærri mál og má þar nefna breytingar á ald- ursmörkum knapa á kappreiðum, en eins og kunnugt er urðu miklar deil- ur í sumar vegna laga um ald- ursmörkin. Tvær tillögur hafa kom- ið fram um viljadóma í gæðingak- eppni. Er í annarri tillögunni lagt til að viljaprófun verði aflögð en hin fjallar um starfsreglur viljadómara. Til þingsins er sérstaklega boðið Pálma Jónssyni, landbúnaðarráð- herra, Jónasi Jónssyni, búnaðarmál- astjóra og Sveini Runólfssyni, land- græðslustjóra, en hann mun halda fyrirlestur sem ber heitið „Landið, beit og umgengni". Hestamanna- félagið Hörður mun svo bjóða mök- um þingfulltrúa og öðrum þeim er þess óska, í skoðunarferð um ná- grennið. Kynnt verður sérstaklega ný gerð hliða til notkunar í beitar- hólfum og vörslugirðingum. A laugardag verður kosið í stjórn, en úr stjórn eiga að ganga Gísli B. Björnsson, gjaldkeri og Sigurður Haraldsson, ritari og munu þeir að sögn báðir gefa kost á sér til endur- kjörs. Auk þess verður væntanlega kosið um nýjan meðstjórnanda ef Iagabreytingar um fjölgun í stjórn nær fram að ganga. Áætlað er að þingstörfum Ijúki seinni partinn á laugardag og þingslit fari fram klukkan 17.00. Um kvöldið gengst svo hestamannafélagið Hörður fyrir kvöldfagnaði með borðhaldi, skemmtiatriðum og að síðustu verð- ur svo stiginn dans, eins og venja er til að afloknum landsþingum. VK Næstkomandi laugardagskvöld, kl. 21.00 verða fyrstu tónleikar ís- lensku hljómsveitarinnar. Verða þessir tónleikar í Gamla Bíói. Ein- lcikari verður Gísli Magnússon, en hann (lytur ásamt hljómsveitinni konsert eftir Mozart. Önnur verk á efnisskránni eru eftir Gluck, Beethoven og Pál P. Pálsson og tengjast þau öll yfir- í samviskufangaviku þessa árs vekja mannréttindasamtökin, Amn- esty International, athygli á samvisku- longum í sveitum. Sveitafólk sem hvorki hefur beitt ofbeldi né hvatt til þess er handtekið, pyndað og tekið af lífi í mörgum ríkjum með ólíkt þjóð- skipulag. Fórnarlömbin eru bændur, land- búnaðarverkamenn og minnihluta- hópar. Oft vita þau sáralítið um réttindi sín og eiga sjaldan aðgang að fjölmiðlum og samtökum sem gætu veitt þeim hjálp ef vitneskja bærist um mannréttindabrotin. Sveitafangar eru að mörgu leyti hinir „gleymdu” fangar nútímans. Amnesty International telur brýnt að auka eftirlit með mannréttinda- skrift tonleikanna, „Austurríki — höfuðból tónlistarinnar". Hafa æfingar gengið að vonum og sýnir myndin hljómsveitina á æfingu ásamt stjórnandanum, Guðmundi Emilssyni. Aðeins er um 100 áskriftarskír- teinum óráðstafað og er upplýs- inga að leita á skrifstofu hljóm- sveitarinnar. brotum í sveitum með bættum upp- lýsingum. Stjórn íslandsdeildar Amnesty International hefur í tilefni sam- viskufangavikunnar sett upp sýn- ingu í anddyri Háskólabiós til þess að vekja athygli á sveitaföngum. Islandsdeildin heldur fund á Kjarvalsstöðum í kvöld, þriðjudag 26. október, klukkan 20.30. Hrafn Bragason, borgardómari, formaður íslandsdeildar, skýrir frá fyrirhug- uðu vetrarstarfi, sagt verður frá þingi alþjóðasamtakanna á Ítalíu í sumar og Bergþóra Árnadóttir og Hjördís Bergsdóttir skemmta með vísnasöng. Öllum er heimill aðgang- ur. (FrétU(ilkynnine.> “JÆJfl, ÓSl. BRÓ9UM GETUM ViÐ HEIDUR BETUR BYRJflE) RD HÓT- M/CLfl B^ÐflBlRóDHlÖéUNUM" Fundur í kvöld — sýn- ing 1 Háskólabíói Feröaskrifstofan Útsýn, Portúgalska flugfélagiö og feröamálaráöuneyti Portúgals bjóöa á PORTÚGALSKA HÁTÍÐ meö brasilísku ívafi Feguröarsamkeppni - Ungfrú Útsýn Herra Útsýn — forkeppni, enda fullt af glæsilegu fólki á Utsýnarkvöldum. föstudaginn 29. október. Skemmtiskrá: Kl. 19.00 húsið opnað og gesti boðnir velkomnir með portú- gölskum veigum. Gjafahappdrætti frá Portúgal með veglegum vinningum. Falleg kynningarkvikmynd frá hinni rómuðu baðströnd Al- garve. Kl. 20.00 hefsl portúgalskur hátíðarkvöldverður undir umsjón portúgalska matreiöslumeistarans Antonio Cerqueira, sem kemur sérstaklega frá Portúgal. Verð aðeins 230,- (2 réttir). Galdrakarlar leika Ijúfa dinnermúsík. Heiöursgestir: Mr. R. Eastaugh — Air Portugal Mr. Enrique Moser — Portugal tourist board Ms. Russel — Air Portugal. Mr. Albano — Air Portugal Model samtökin sýna föt frá Blondie, Bikarnum og Herragarðinum, einnig pelsa frá Eggerti Jóhanns- syni, feldskera. Snyrtifræöingur frá Revlon kynnir snyrtivörur. Gestir fá aö bragöa á úrvalssælgæti frá Marebou. GLÆSILEG DANSSYNING: Broadway Ballet hefur göngu sýna undir stjórn Steve Fant. Lauflétt getraun um Portúgal fyrir alla gesti — veglegur feröavinningur. Bingó: r Glæsilegir feröavinningar, m.a. 19. daga jóla- og áramótaferö til Ríó. Ath. Dansinn dunar til kl. 03 eftir miðnætti — Galdrakarlar og Gísli Sveinn í diskótekinu. Þetta veröur skemmtun helgarinnar opin öllu skemmtilegu fólki, sem kemur í sparifötunum og góöa skapinu — en nú er vissara að tryggja sér borð í tíma. Kynningin verður endurfekin i SJALLANUM AKUREYRI, laugardag 30. október í tilefni af opnun nýrrar skrifstofu Útsýnar að Hafnarstræti 98, Akureyri. Feróaskrlfstofan ✓_____ ✓ UTSYN Miðar afhentir í Broadway frá kl. 1—6 e.h. í dag og næstu daga meöan pláss leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.