Morgunblaðið - 26.10.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
17
Fundur Hjartavernd-
ar um hjartasjúkdóma
í FRAMHALDI af aöalfundi Hjartaverndar, landssamtaka hjarta-
og æðaverndarfélaga, verður haldinn fræðslufundur um hjartasjúk-
dóma og hjartaverndarmál í Domus Medica, fimmtudaginn 28.
október kl. 16.00.
Dagskrá fundarins verður: 1.
Guðmundur Þorgeirsson, læknir:
Nýjungar í lækningum kransæða-
sjúkdóms; 2. Inga Guðmunds-
dóttir, landfræðingur, B.Sc.:
Skráning á tíðni kransæðastíflu
1980—1990; 3. Magnús B. Einars-
son, læknir: Endurhæfing hjarta-
sjúklinga; 4. Nikulás Sigfússon,
yfirlæknir: Starfsemi Rannsókn-
arstöðvar Hjartaverndar, og 5.
Spurningar og svör.
Guðmundur Þorgeirsson, lækn-
ir, er nýkominn frá sérfræðinámi í
Bandaríkjunum og mun hann í er-
indi sínu fjalla um nýjungar í
lækningum kransæðasjúkdóms,
m.a. víkkun kransæða sem nú er
farið að beita sem læknisaðgerð
við kransæðastíflu.
Inga Guðmundsdóttir, B.Sc.,
hefur það verkefni með höndum
að skrá kransæðasjúkdóma, tíðni
sjúkdómsins og breytingar á hon-
um á yfirstandandi áratug. A síð-
astliðnu ári var Hjartavernd falið
á vegum Landlæknisembættisins
að taka þátt i könnun Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar í nokkr-
um löndum á kransæðastíflu og
hugsanlegum breytingum á henni.
Fyrirlesari mun skýra frá störfum
sínum að þessu verkefni.
Magnús B. Einarsson er læknir
á Reykjalundi en þar var hafin
endurhæfing hjartasjúkra á síð-
astliðnu sumri fyrir tilstilli
Hjarta- og æðaverndarfélags
Reykjavíkur. Fyrirlesari mun
rekja hvernig þessi starfsemi hef-
ur farið af stað, tilhögun hennar
og hvers vænta má af henni í
framtíðinni.
Nikulás Sigfússon, yfirlæknir
Hjartaverndar, mun í erindi sínu
aðallega ræða um þau gögn og
könnunarniðurstöður sem fyrir
liggja í rannsóknarstöðinni og
greina frá úrvinnslu úr þeim,
hvernig að könnun er staðið, gagn-
semi hennar og hverjir hafi þar
rannsóknarverkefni með höndum.
Verðlaunasófasett frá Italíu
FULLKOMIN - NÚTÍM A VAKTÞJÓNUSTA:
ÖRYCCISMIDSTÖD
r f
„ÖRYGGI YDAR ER SÉRGREIN OKKAR"
-HIN EINA A ISLANDI -
* ÖRYCCISMIÐSTÖÐIN tekur viö boðum frá sjálfvirkum,
tölvustýrðum tækjum um hvaðeina sem skiptir máli:
t.d. innbrot, eld, rafmagnstruflanir og vélabilanir. Boð
frá næturvörðum og heimaliggjandi sjúklingum sem
þarfnast aðstoðar berast einnig til ön/ggismiðstöðvar-
innar á fáum sekúndum.
* ÖRYCGISMIÐSTÖÐIN bregst strax við: gerir lögreglu eða
slökkviliði aðvart, kallar út viðgerðarmenn eða sendir
sérstaka ör/ggisverði á staðinn til aðstoöar - allt eftir
þörfum hverju sinni.
* ÖRYCCISMIÐSTÖÐIN þjónar stofnunum, fyrirtækjum
og einstaklingum um land allt. Ekkert verkefni er of
stórt eða of lítið. Boðin berast um símakerfið, þannig
að ekki er þörf á sérleigðum línum.
* ÖRYCCISMIÐSTÖÐIN byggir á meira en áratugs reynslu
VARA í öryggismálum og raféindatækni ásamt ráðgjöf
erlendra sérfræðinga.
Lágur tilkostnaður gerir það jafnframt að verkum að
tenging við miðstöðina er sjálfsagður valkostur í
ön/ggismálum stofnana og fyrirtækja.
* ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN er opin allan sólahringinn, allt árið
og veitir bví raunhæfa vörn.
Hafðu samband ; síma 91-29399,
við erum alltaf á vakt — alltaf.