Morgunblaðið - 26.10.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
l>ær mæðgurnar Danuta Walesa og hin 3 ára gamla Magda, urðu fyrir
óskcmmtilcgri reynslu um helgina.
Kona Walesa
berháttuð af
öryggisvörðum
Varsjá, 25. oklóh«*r. Al\
OANIÍTA Walesa, eiginkona Samstöðuleiðtogans Lech Walesa, varð
fyrir óskemmtilegri reynslu er 5 daga heimsókn hennar til eiginmanns-
ins, sem er i stofufangelsi, lauk í gær. Lögreglan færði hana þá til
yfirhcyrslu og var leitað ýtarlega á henni að einhverju sem Lech Walesa
kynni að hafa beðið hana að koma til skila til umheimsins. Var frú
Walesa gert að fara úr hverri spjör.
Þá átti að berhátta tvö ung-
börn SamstöðuforinKjans að
auki, en þau kunnu því illa,
grétu, öskruðu og létu öllum ill-
um látum. „Þetta er mesta smán
sem ég hef orðið að þola á ævi
minni“, sagði Danuta í samtali
við AP á heimili sínu í Gdansk
og bætti við að hún ætlaði að
kæra atvikið til réttra aðila.
Lech Walesa hefur sem kunn-
ugt er verið í stofufangelsi og
einangrun síðan pólska stjórnin
bannaði starfsemi Samstöðu og
setti herlög í landinu í desember
síðastliðnum. Frú Walesa sagði
að eiginmaður sinn væri eftir at-
vikum vel haldinn, „honum líður
eins vel og við má búast miðað
við að hann er í fangelsi", sagði
hún. Walesa er sagður líkamlega
vel á sig kominn og í andlegu
jafnvægi, en fyrir skömmu
ásótti hann mikill og slæmur
leiði, enda lítið við að vera í ein-
angruðu stofufangelsi. Hann
hefur útvarp og sjónvarp, en á
útvarpinu má hann aðeins nota
eina rás og í sjónvarpinu er lítið
annað á að horfa en sovéskar
myndir. „Hann les mikið, hugsar
mikið og gengur fram og aftur á
svölum hússins. Hann má fara
út úr húsinu, en gerir það sjald-
an eða aldrei, þar sem hann þolir
ekki að sér sé veitt eftirför.
íþróttir stundar hann ekki, en
heldur sér í líkamlega góðu ásig-
komulagi með því að gera æf-
ingar á hverjum morgni," sagði
Danuta Walesa.
Skömmu áður en pólska
stjórnin bannaði Samstöðu með
öllu, 8. október, leit verkalýðs-
málaráðherrann Ciosek við hjá
Walesa og hauð honum að ganga
til liðs við stjórnina. Hét hann
honum frelsi ef hann afneitaði
Samstöðu og lýsti yfir stuðningi
við nýju verkalýðslöggjöfina.
Vildi Walesa ekki heyra á slíkt
minnst. Skömmu síðar fékk
hann aðra heimsókn og var
pólskur herforingi þar á ferð-
inni. Sá gaf í skyn að Lech væri
ekki lengur vinsæll meðal pólsku
þjóðarinnar og það væri í allra
þágu ef hann féllist á að flytjast
úr landi. „Stjórnvöld vilja losna
við hann,“ sagði Danuta við
fréttamenn.
Hún sagði ennfremur að Lech
hefði gefið lítið út á mótmæla-
aðgerðirnar og óeirðirnar sem
fylgdu í kjölfarið á banninu, sem
lagt var á Samstöðu á dögunum,
„ef hann væri frjáls myndi hann
fara öðru vísi að. Hann telur úr
vöndu að ráða eins og staðan er
nú, en er þó engan veginn á móti
hvers kyns andófi. Skoðanir
hans hafa ekkert breyst, hann
trúir því enn að Samstaða muni
hafa betur að lokum."
Aðspurð hvort eiginmaðurinn
myndi íhuga alvarlega að ljá
nýju verkalýðslöggjöfinni fylgi
sitt, svaraði Danuta einfaldlega
með því að hlæja að svo fávís-
legri spurningu.
Einkabréfin og kvik-
myndaspólan gufuðu upp
litindon, 25. oklóbt'r. Al\
EINKABKÉK sem Andrew Breta-
prins sendi vinstúlku sinni Koo
Stark, m.a. frá Kalklandseyjum, þar
sem prinsinn tók þátt í stríði Bret-
lands og Argentínu, hafa gufað upp
og breska kóngafjölskyldan er sögð
afar áhugasöm um að endurheimta
þau, þar sem þau hafa ekki áhuga á
frekari blaðaskrifum um vinskap
Andrews og hinnar 25 ára gömlu
Koo.
Einnig hefur horfið kvikmynda-
spóla sem tekin var eitt sinn er
prinsinn heimsótti vinkonu sína.
Hvarf þessara hluta kom fram er
vinir og vandamenn stúlkunnar
pökkuðu hlutum hennar og eigum
niður og sendu til Bandaríkjanna,
þar sem hún dvelst í felum.
Til prinsins sást í mannlausri
íhúðinni við Chester Square fyrir
skömmu og var talið að hann væri
að leita að umræddum hlutum.
Um þessa hluti er nú rætt talsvert
í ensku blöðunum, en í „The Daily
Express“ var sagt að ekkert benti
til þess að bréf þessi eða filma
væru meira krassandi en góðu hófi
gegndi. Reyndar má sjá Andrew í
einu tilviki faðma Koo að sér
frammi í eldhúsi.
Sharon berst fyrir
pólitísku lífi sínu
Jerúsalem, 25.október. Al\
AKIKL Sharon landvarnaráðherra
skýrði nefndinni, sem rannsakar
fjöldamorðin í Beirút, frá þvi í dag
að ákvörðunin um að láta vopnaðar
sveitir kristinna Líbana ráðast á
búðir palestínskra flóttamanna hefði
átt rætur að rekja til þeirrar stefnu
að fá Líbani til að taka virkari þátt í
stríðinu. Kn Sharon sagði að enginn
ísraelskur embættismaður hefði gert
sér í hugarlund að árásin á búðirnar
Sabra og ('hatilla mundi leiða til
morða á hundruðum saklausra
manna.
Starf nefndarinnar fór fram
fyrir opnum dyrum í dag í fyrsta
skipti síðan vitnaleiðslur hófust í
síðustu viku og blaðamönnum var
leyft að fylgjast með því þegar
Sharon varði sig í tvær og hálfa
klukkustund gegn ásökunum um
að ríkisstjórnin og iandherinn
hefðu átt að sjá fyrir möguleika á
blóðbaði. Nefndin er skipuð
hæstaréttardómurunum Yitzhak
Kahan og Aharon Barak og fyrr-
verandi hershöfðingja, Yona Efr-
at.
Sharon skýrði í fyrsta skipti frá
leynilegri ákvörðun, sem ísraels-
stjórn tók 15. júní, níu dögum eftir
að innrásin í Líbanon hófst, um að
fá líbanskar liðssveitir til að taka
þátt í bardögunum í Líbanon til að
koma í veg fyrir of mikið mannfall
ísraelskra hermanna. Þar sem
Sharon talaði um líbanskar liðs-
sveitir, en ekki líbanska herinn,
virtist hann eiga við vopnaðar
sveitir kristinna borgara.
Pólitísk framtíð Sharons er í
hættu vegna rannsóknarinnar.
Hann var vel undir yfirheyrsluna
búinn og hafði meðferðis bunka af
skjölum og ljósmyndum. Vitna-
leiðslan hófst með því að Kahan
tilkynnti Sharon að hann yrði að
segja satt, því að ella yrði mál
höfðað gegn honum.
Sharon sagði að ísraelsmenn
hefðu ráðizt inn í Vestur-Beirút
15. september til að koma í veg
fyrir að palestínskir skæruliðar
„Þetta eru einungis bráða-
birgðaaðgerðir," sagði at-
vinnumálaráðherrann Anna
Gréta Leijon í dag. „Slík ríkis-
styrksvinna er einungis til að
fleyta okkur yfir versta atvinnu-
leysið meðan við bíðum eftir að
gengisfellingin og iðnaðarráðstaf-
anirnar hafi tilætluð áhrif og bæti
'andsins." Ráðherrann vildi
notuðu ringulreiðina eftir morðið
á Bashir Gemayel til að treysta
stöðu sína í borginni. Hann kvaðst
hafa heimilað kristnum mönnum
að fara inn í búðirnar að höfðu
samráði við forseta herráðsins,
Rafael Eytan hershöfðingja. Hann
sagði að Menachem Begin forsæt-
isráðherra hefði verið skýrt frá
því að kristnir menn ættu að taka
„vissa staði“ í Vestur-Beirút, en
ekki sagt að þeir mundu fara inn í
búðirnar.
ekki skýra nánar frá hvernig
greiða eigi þessa 4 milljarða, en
aftók ekki að skattar myndu
hækka. En aukin atvinna gefur
líka auknar tekjur í ríkissjóð þar
sem fleiri koma til með að greiða
skatta. Útgjöld til atvinnuleysis-
bóta og aðrir styrkir minnka einn-
ig, sagði atvinnumálaráðherra.
Herferð Svía
gegn atvinnuleysi
Krá (iuófinnu Kagnarsdótlur, fréttaritara Mhl. í Stokkhólmi:
SÆNSKA stjórnin hefur nú ákveðið að verja 4 milljörðum sænskra króna til
að minnka atvinnuleysið i landinu. Þar af verður 1,6 milljörðum varið til að
skapa atvinnu fvrir 20.000 manns, en það er atvinna sem ríkið útvegar og
greiðir að hluta. UmI25.000 manns hafa í dag slíka vinnu. Vinnumiðlun-
arskrifstofurnar munu fá 15 milljónir og sveitarfélögin 10 milljónir til þcss
að útvega unglingum vinnu. Auk þess verður framhaldsskólaplássum fjölgað
um 2000.
Njósnari Rússa í
njósnastöð Breta
l<ondon ojj New York, 25. október. AP.
NÝTT ágreiningsmál er í uppsigl-
ingu milli bandarísku leyniþjón-
ustunnar og þeirrar brezku vegna
Breta nokkurs, sem sakaður er um
langvarandi njósnir fyrir Sovétrík-
in í fjarskiptastöð brczku leyni-
þjónustunnar í Cheltenham.
Bandaríska stórblaðið The
New York Times skýrði frá þess-
um ágreiningi á sunnudag, og
tóku brezku blöðin málið upp í
dag. Er liklegt talið að Margaret
Thatcher forsætisráðherra skýri
brezka þinginu frá gangi máls-
ins einhvern næstu daga.
Það var í júlí á nýliðnu sumri
að Geoffrey Arthur Prime, 44
ára fyrrum rússneskuþýðandi og
túlkur við fjarskiptastöðina í
Cheltenham var handtekinn og
sakaður um að hafa stundað
njósnir fyrir Sovétríkin í 13 ár,
eða á tímabilinu frá 1969—81.
Prime hafði á þessum árum
starfað við að þýða upplýsingar
sem bárust stöðinni víða að
varðandi fjarskipti Rússa, en
upplýsingar þessar berast til
Cheltenham frá gervihnöttum
og hlustunarstöðvum Bandaríkj-
anna, Bretlands, Ástralíu og
Kanada.
Með því að gefa sovézkum yf-
irboðurum sínum upplýsingar
um hvaða fregnir bárust til
Cheltenham, gat sovézka leyni-
þjónustan komizt að því hvaða
dulmálslykla vestrænu leyni-
þjónusturnar höfðu ráðið, og
ýmist breytt þeim, eða notað þá
til að koma röngum upplýsing-
um á framfæri.
Bretar höfðu ekki hugmynd
um njósnastarfsemi Primes fyrr
en eftir að hann hætti störfum í
Cheltenham í fyrra. í sumar var
Geoffrey Arthur Prime
AP-símamynd
hann grunaður um aðild að
nauðgunarmáli. Eftir að hann
hafði verið handtekinn vegna
þess máls í júlí, var eiginkona
hans yfirheyrð. Kvaðst hún ekk-
ert um meinta nauðgun vita, en
hinsvegar gruna mann sinn um
njósnir. Nokkrum dögum síðar
var Prime opinberlega sakaður
um njósnir.
Mikil leynd á að hvíla yfir
fjarskiptastöðinni í Cheltenham,
sem er miðstöð fyrir leynilegar
upplýsingar frá njósnastöðvum,
skipum, flugvélum, gervihnött-
um og hlustunarstöðvum um all-
an heim. Þegar þessar upplýs-
ingar berast stöðinni, er þar um
10 þúsund manna starfslið til að
vinna úr þeim, og dreifa niður-
stöðunum til leyniþjónustu
Bandaríkjanna, Bretlands, Ástr-
alíu og Kanada.
Oft hafa heyrzt raddir um að
talsvert skorti á að leyndar sé
gætt í Cheltenham. Má þar til
dæmis nefna að þekktur blaða-
maður í London skýrði frá því
fyrr á þessu ári að starfsmenn í
Cheltenham ræddu óspart verk-
efni sín í bjórkrám bæjarins.
Annar blaðamaður skýrði frá
manni, sem komizt hafði inn í
stöðina með því að nota að-
gangspassa konu sinnar.
Starfsmenn bandarísku leyni-
þjónustunnar, sem eiga náið
samstarf við þá brezku, hafa oft
kvartað yfir því hve öryggis-
gæzla sé léleg hjá Bretunum, og
benda í því sambandi á þá mörgu
fyrrum starfsmenn brezku leyni-
þjónustunnar, sem i raun voru
sovézkir njósnarar. Nægir þar að
nefna Guy Burgess, Kim Philby,
Donald Maclean og Anthony
Blunt. í fyrra fyrirskipaði Mar-
garet Thatcher forsætisráðherra
ítarlega rannsókn á starfsemi
brezku leyniþjónustunnar eftir
að fram höfðu komið ásakanir
um að sir Roger Hollis, fyrrum
forstöðumaður gagnnjósnadeild-
ar leyniþjónustunnar MI 5, hafi
verið einn fremsti njósnari Sov-
étríkjanna á fimmta áratugnum.
Sir Roger var þá látinn fyrir
nokkru, og hafa engar sakir
sannast á hann.