Morgunblaðið - 26.10.1982, Side 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
Vlado Stenzel:
„Það sem Horvath gerði fyrir handknatt-
leikinn er ekki hægt að leika eftir honum"
Vestur-þýska íþróttatímaritið
SPORT lllustrierte fékk hand-
knattleiksþjálfarann kunna Vlado
Stenzel nýlega til að velja 12
bestu handknattleiksmenn allra
tíma. Skrifaöi kappinn grein í
tímarítið þar sem hann geröi
grein fyrír vali sínu og fer hún
þýdd hér á eftir.
„Líf mitt hefur að mestu snúist
um handbolta. Það er ekkert til í
þessari íþróttagrein sem ég hef
ekki upplifaö, sem ég þekki ekki
eöa sem getur komiö mér á óvart.
Aö velja 12 bestu handknatt-
leiksmenn allra tíma er ekkert
vandamál fyrir mig.
Aö vtsu datt mér í hug fjöldi
annarra góöra leikmanna, sem
ekki eru á þeim lista sem ég valdi.
Sá mælikvarði sem ég haföi til
hliösjónar þegar ég stillti upp
þessu heimsliði minu var hvort aö
þeir leikmenn, sem til greina
komu, höfðu tekið þátt í Olympíu-
leikum eöa heimsmeistarakeppni
og náö þar árangri. Aö taka þátt í
þessum tveimur keppnum er
mesta upplifun hvers handknatt-
leiksmanns. Leikmenn í þessum
tveimur keppnum, OL og HM, eru
undir meiri pressu frá fjölmiölum
og áhorfendum en á öörum mót-
um. Aö vísu eru Evrópukeppnir fé-
lagsliöa athyglisverðir viöburöir
fyrir hvern handknattleiksmann, en
eins og áöur segir jafnast ekkert á
viö OL og HM.
Ég hef veriö þeirrar heppni að-
njótandi að þjálfa bæöi OL-
meistara og heimsmeistara og því
er ekkert skrítiö aö einmitt 6 þeirra
leikmanna, sem á listanum eru,
hafa æft og leikiö undir minni
stjórn. Um þessa leikmenn ætti ég
einnig aö vera dómbær.
Landa minn, Júgóslavann
Hrovje Horvath, setti ég í fyrsta
sæti. Hann er sá leikmaöur sem
geröi okkur mögulegt aö vinna OL
1972. Yfirsýn hans á vellinum hreif
mig alltaf jafn mikið. Horvath var
miöjuleikmaöur, stjórnandi leiks
og hann gat allt sem einn þjálfari
getur óskaö sér af einum leik-
manni — leikið aöra fria, hann gat
sjálfur skotiö nákvæmt og fast, var
mjög hreyfanlegur og gat sett í
gang flóknustu leikfléttur og alltaf
gekk spilið upp undir hans stjórn á
miðjunni. Mest mat ég þó hæfni
hans í aö leika aöra uppi. Hann
geröi aöra leikmenn að stjörnum.
Það sem Hrovje Horvath geröi fyrir
handknattleikinn er einfaldlega
ekki hægt aö leika eftir honum.
Hann var einstæöur leikmaöur.
Sá sem næst heföi komiö og
komst aö leika eftir snilli Horvaths
væri Joachim Deckarm. Allir
þekkja örlög hans. Því miöur var
ferill hans alltof stuttur. Joachim
Deckarm var á sínum tíma, og þaö
hef ég margítrekaö, besti hand-
knattleiksmaöur veraldar. Enginn
hefur komiö í hans staö. Eins er ég
fullviss um, aö ef hann heföi getaö
leikiö lengur þá heföi hann eflaust
oröið í fyrsta sæti hjá mér. Ef aö
hans hefði notiö viö á HM á þessu
ári heföum viö örugglega ekki lent
í 7unda sæti. Joachim var mikill
persónuleiki á vellinum og var einn
af þeim sem einn gat tekiö af skar-
iö og gert út um leiki. Hann vissi
alltaf hvort hann átti að skjóta
sjálfur á markið eöa senda á meö-
spilara sinn, og þetta er hæfileiki
sem alltof fáir leikmenn hafa. Þeg-
ar hann var inni á gat maður veriö
rólegur á bekknum. Hann fram-
kvæmdi alltaf inni á vellinum, þaö
sem áöur haföi veriö um talaö á
töflufundum. Heimsmeistaratitill-
inn 1978 var ekki hvaö síst honum
aö þakka.
j þriöja og fjóröa sæti set ég
markveröina Manfred Hoffmann
og Abas Arslanagic og i níunda
sæti enn einn markvöröinn.
Austur-Þjóöverjann Wieland
Schmidt frá Magdeburg. Án frá-
bærra markvaröa nær ekkert lið
langt og meö því aö hafa jafn
marga markveröi eins ofarlega á
listanum og raun ber vitni undir-
strika ég þessa staöreynd. Ég lék
sjálfur sem markvörður á sínum
tíma og veit því manna best aö
þeir eru einu leikmennirnir í hand-
boltaliöi sem verða aö treysta al-
gjörlega á sjálfa sig, einangraöir
frá öörum leikmönnum.
Eflaust spyrja margir handbolta-
áhugamenn, af hverju nafn eins og
Hansi Schmidt, Gummersbach, sé
ekki á þessum lista. Mér þykir þaö
leitt, en i mínum augum er Hansi
ekki einn af 12 bestu leikmönnum
heimsins. Það er alþekkt aö okkur
gekk ekkert of vel að lynda saman,
en persónulegum erjum vil ég þó
halda fyrir utan þetta val. Hansi var
sennilega sá leikmaöur, sem átti
flesta þá eiginleika sem prýöa góö-
an handknattleiksmann; kraft,
tækni og gáfur, eins og þaö pass-
aöi honum. Aftur á móti komust
þau lið sem hann lék meö, rúm-
enska landsliöið og þaö vestur-
þýska, ekki langt í þeim keppnum
sem máli skipta, þ.e.a.s. OL og
HM.
Aö vísu var ferill Hansa glæsi-
legur með Gummersbach, en með
liöinu vann hann fjölmarga Evr-
Telja veröur Vlado Stenzel
meöal þeirra þjélfara sem bast-
um árangri hafa náö í handknatt-
' leik. Hann geröi Vestur-Þjóöverja
aö heimsmeisturum 1978 í Kaup-
mannahöfn og 1972 geröi hann
Júgóslava að Olympíumeisturum.
ópumeistaratitla, en þaö er
einfaldlega ekki nægjanlegt fyrir
mig. Hann telst því ekki til þeirra
allra bestu. Margir aörir leikmenn
komu auövitaö til greina, en þeir
voru þá kannski annaö hvort góöir
sóknarmenn eöa varnarmenn. T.d.
er Heiner Brand sennilega einn
besti varnarmaöur heimsins. Einn-
ig mætti nefna Vestur-Þjóöverjann
Horst Spengler, sem náöi aö vera
á toppi bæöi á OL 1976, þegar viö
lentum í fjóröa sæti, og aftur þegar
viö uröum heimsmeistarar 1978 í
Kaupmannahöfn.
Handknaltlelkur
v ^
• Stenzel aö stjórna V-Þýskalandi I leik gegn íslandi. En
Stenzel kom meö landsliðinu til fslands 1976 og varö að sætta sig
viö aö tapa í tvígang fyrir sterku (slensku liöi.
Stenzel velur 12 bestu handknattleiksmenn sögunnar
Eftirtaldír leikmenn eru í liöinu sem Stenzel valdi fyrir SPORT lllustrierte, og stutt umsögn um hvern leikmann fylgir með.
NR. 1
Nr. 1. Hrovje Horvath, (fæddur
1946). Hann lék í Júgoslavíu fyrir
Partizan Bjelovar. Lék 231 lands-
leik og skoraöi 621 mark í þessum
leikjum. Hann var einn af Olympíu-
meisturum Júgóslava 1972.
Horvath var lykilleikmaöur og
stjórnandi liösins á leikvelli og án
hans heföu þeir sennilega ekki
orðiö Olympíumeistarar. Hann
geröi miklar kröfur til sjálfs sín,
enda afburöa vel gefinn. Hann er
hæstaréttarlögmaöur að mennt og
hjá honum gilti þaö aö ef hann
geröi mistök i sókn bætti hann þaö
upp í varnarleiknum. Hann leikur
enn í dag meö vestur-þýska liöinu
Schwabing frá Miinchen í Bundes-
ligunni.
NR. 2
Nr. 2. Joachim Deckarm,
(fæddur 1954). Hann lék samtals
104 landsleiki fyrir Vestur-Þjóö-
verja. Hann varö heimsmeistari
1978 en 30. mars 1979 átti hiö
hörmulega slys sér staö í Tatab-
anya í Ungverjalandi þar sem höf-
uö hans skall í gólfiö eftir samstuö
viö markvörö ungverska liösins.
Eftir 131 dag komst Joachim loks
til meðvitundar og nú er hann ör-
yrki og dvelst á endurhæfingar-
stöö í Langensteinbach. Stofnaöur
hefur veriö sjóöur um Joachim
Deckarm sem hefur safnaö V4 millj-
ón marka og happadrætti veröur
einnig stofnaö til styrktar honum.
NR. 3
Nr. 3. Manfred Hofmann (árgerö
1948) lék í kringum 1100 leiki fyrir
liö sitt, Grosswallstadt. Hann lék
110 landsleiki fyrir Vestur-Þýska-
land og enginn markvöröur í
V-Þýskalandi hefur til þessa leikiö
jafn marga leiki. Hann var einn af
heimsmeisturunum 1978. Enginn
gleymir frammistööu hans þann 6.
mars 1976 klukkan 18.43 í Karl-
Marx Stadt, þegar hann varöi víta-
kast aö loknum leiktíma með fæt-
inum og tryggöi þar meö Vestur-
Þjóöverjum farseöilinn á Olympíu-
leikana 1976 á kostnaö erkióvin-
anna, Austur-Þjóöverja.
Nr. 4. Abas Arslaganic (fæddur
1954) var einn af Olympíumeistur-
um Júgóslava í Múnchen 1972.
íþróttakennarinn og blaðamaöur-
inn Arslaganic lék alls 125 lands-
leiki. Hann lék og meö Banja Luca
og auk þess eitt tímabil meö „is-
lendingaliðinu" Nettelstedt. Hann
hefur einnig náö feikigóöum
árangri sem þjálfari, en hann þjálf-
aöi júgóslavneska unglingalands-
liðið sem varö heimsmeistari í
Portúgal á síöasta ári. Hann sló
fyrst verulega í gegn i heims-
meistarakeppninni 1970 í Frakk-
landi þegar hann geröi sér lítiö
fyrir og varöi 7 vítaköst þegar
Júgóslavar tryggöu sér bronsverö-
launin — síðasta vítakastiö varöi
hann aö vísu meö höfðinu!
NR. 5
Nr. 5. Miljan Lazarevic (árgang-
ur 1944) var stjarna júgoslavneska
landsliösins sem varö Olympíu-
meistari 1972. Lék lengst af meö
Rauðu stjörnunni í Belgrad og lék
alls 88 landsleiki. Eftir Olympíu-
leikana fór hann síöan til Nettel-
stedt, sem þá lék í 5. deild, vann
sig meö þeim upp í Bundesliguna,
og varö síðan Evrópumeistari meö
liöinu og þjálfar þá í dag. Einnig
notaði hann tímann vel i Vestur-
Þýskalandi og læröi til verkfræö-
ings. Lazarevic var alltaf iöinn á
æfingum og skildi þaö aö hann
yröi aö gera eitthvaö aukalega ef
hann vildi veröa betri en aörir.
Hann bætti tækni sína stórlega
meö aukaæfingum og stökkkraftur
hans var meö ólíkindum.