Morgunblaðið - 26.10.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
35
Marteinn Marteins-
son — Minningarorð
Fæddur 3. apríl 1948
Dáinn 16. október 1982
Þegar morgunkuiið mi. nist við
stráin norður við ysta haf gengur
ungur og hress maður til starfa.
Bjartsýnn og glaður hlakkar hann
til að takast á við verkefnin sem
bíða, enda búinn að vinna að því,
að búa í haginn með vélakaupum,
til að sjá sér og sínum farborða.
Mennirnir þenkja, en Guð ræð-
ur er stundum sagt. Að kvöldi er
hann allur.
Helfregn er sár. Það er erfitt að
skilja hvers vegna svo ungur mað-
ur er kallaður burt, aðeins 34 ára,
frá þrem börnum og elskulegri
eiginkonu, en það er eitt af ráðgát-
um lífsins, sem engin svör fást við.
I dag eru þung spor stigin er við
fylgjum ástkærum bróður síðasta
spölinn, en þyngst eru þau þó hjá
eiginkonu, börnum og móður.
Okkar elskulega Matta bróðir,
sem alltaf var svo hress og kátur,
viljum við með þessum fátæklegu
kveðjuorðum þakka af hjarta
bróðurlega hlýju og samfylgd og
biðjum þann sem öllu ræður að
láta sína skammdegissól skína
gegnum sortann og veita yl og
styrk þeim sem mest hafa misst.
Og nú er hugurinn bundinn hjá
þér elsku Bubba mín og börnum
ykkar. Orð geta ei túlkað tilfinn-
ingar á slíkum stundum, hvað þá
hægt sé að tjá hugsanir, svo mikið
hafið þið misst. Eitt er aðeins
mögulegt, að snúa huga til Guðs
og biðja hann um að blessa ykkur
og vernda, eins og við biðjum hann
um að blessa ástkæran bróður.
Því er þakklæti okkar tjáð í
fyrirbæninni þá góður bróðir Guði
falinn.
Blessuð sé minning hans.
Systkini
Að kvöldi 16. október barst mér
sú harmfregn, að æskuvinur minn
Matti væri dáinn. Hann var flutt-
ur með sjúkraflugvél frá Siglufirði
fyrr um daginn, þar sem hann
veiktist snögglega. Hann var flutt-
ur í hendur sérfræðinga sem eftir
rannsókn gáfu góðar vonir. Eig-
inkona hans sem flaug með honum
suður var send heim af því útlitið
var mjög gott og hún hringdi
norður og tilkynnti þær fréttir að
þetta liti allt mjög vel út. Hún var
varla búin að sleppa símanum,
þegar læknir á Borgarspítalanum
hringdi í hana og sagði að hann
væri dáinn. Það var eins og hendi
hefði verið veifað, svo snökkt bar
þetta að, og læknar fengu ekkert
við ráðið.
Það er erfitt að sætta sig við og
trúa því að Matti sé horfinn
okkur, ungur lífsglaður maður
sem framtíðin blasti við kallaður
á brott frá eiginkonu og ungum
börnum. Eins og svo oft er sagt
eru vegir Guðs órannsakanlegir,
en við sem eftir lifum trúum því
að honum sé ætlað æðra starf þar
sem við munum öll hittast að lok-
um. Þegar ég nú sest niður með
penna í hönd hlaðast upp minn-
ingarnar um góðan dreng. Mart-
einn Marteinsson var fæddur í
Hafnarfirði 4. apríl 1948, sonur
hjónanna Marteins Marteinssonar
og Katrínar Gísladóttur. Matti
eins og Marteinn var ávallt kallað-
ur, var næstelstur af fjórum börn-
um þeirra hjóna, einnig átti Matti
eldri. Matti missti föður sinn mjög
snögglega aðeins átta ára gamall,
og var það mikið áfall fyrir svo
ungan dreng. Og mikil þolraun var
fyrir móður hans að standa ein
eftir með fjögur börn, öll á unga-
aldri. Börnin voru henni mikill
styrkur á erfiðum tímum, og verða
henni þungbær spor í dag, þegar
hún fylgir nú syni sínum til hinstu
hvíldar. Ég bið góðan Guð að gefa
henni styrk.
Það voru ekki ófáar stundirnar
sem ég eyddi á heimili þeirra að
Selvogsgötu 12, en það var á Sel-
vogsgötu sem kynni okkar Mart-
eins hófust þegar við vorum litlir
drengir, og hafa þau kynni haldist
ævinlega síðan. Það er svo margs
að minnast frá bernskudögum,
sérstaklega eru mér minnisstæðir
göngutúrarnir sem við fórum til
að heimsækja ömmu hans, Krist-
ínu á Reykjavíkurveginum, þar
sem við mættum ávallt ást og um-
hyggju. Matti var sannkallaður
augasteinn ömmur sinnar og þótti
Matta sérlega vænt um hana, og
verður hann nú lagður til hinstu
hvíldar við hlið hennar og föður
síns. Matti og Sigurgeir bróðir
hans voru mjög samhentir og eru
ótaldar stundirnar sem við eydd-
um saman sem unglingar í
Hafnarfirði. Sér Sigurgeir nú eftir
góðum vini sem bróður.
Matti kvæntist Guðbjörgu Sig-
þórsdóttur frá Siglufirði árið 1970,
fyrsta heimilið stofnuðu þau í
Hafnarfirði, en fluttu síðan til
Siglufjarðar. Þau eignuðust þrjú
mannvænleg börn, Kristínu Jó-
hönnu, fædda 22. október 1969,
Sigþór, fæddan 18. febrúar 1974,
og Elvu Dögg, fædda 6. apríl 1975.
Guðbjörg er heilsteypt og dugmik-
il kona og hafði búið eiginmanni
sínum og börnum ástúðlegt heim-
ili sem ávallt var opið vinum og
kunningjum, og eru ekki ófá skipti
sem ég dváldi á heimili þeirra
hjóna og mætti mér þar ávallt
hlýja. Það er stundum svo óskilj-
anlega stutt á milli gleði og sorg-
ar, lífs og dauða að menn standa
orðvana frammi fyrir þessari tor-
ráðnu lífsgátu. Ekki hefði mig
órað fyrir því að ég sæi Matta ekki
aftur, þegar ég kvaddi hann hress-
an og kátan eftir stutta dvöl á
heimili mínu fyrir um það bil
t
Bróöir minn,
KRISTJÓN MÁR JÓNSSON,
lést á Borgarspítalanum þann 23. þ.m.
Magnús Jónmaon.
t
Ástkær móöir okkar,
ÓSK JENNÝ JÓHANNESDÓTTIR,
Háteigsvegí 6, Reykjavík,
lést af slysförum föstudaginn 22. október. Jaröarförin, sem fer
fram frá Hvammstangakirkju. verönr auglýst siöar.
Fyrir hönd ættingja.
Guömundur Snævar Ólafsson,
Ingibjörg Hólm Vigfúsdóttir.
mánuði, þegar hann og Guðbjörg
voru að koma úr þriggja vikna fríi
frá Benidorm — geislaði frá þeim
hamingjan og lífsgleðin og til-
hlökkun að komast norður til
barnanna sem biðu spennt eftir
þeim heima. Þetta var í fyrsta
skiptið sem þau hjón fóru í frí
saman án barna sinna. Og Matta
biðu verkefni á ýtunni sinni, sem
hann festi kaup á fyrr á árinu, og
var hann búin að vinna ýmis störf
á henni á Siglufirði, og nú síðast
fékk hann verkefni hjá vegagerð-
inni og leit hann björtum augum á
áframhaldandi verkefni í fram-
tíðinni. Áður en Matti festi kaup á
jarðýtunni, var hann lengst af á
sjónum, síðast á Stálvíkinni frá
Siglufirði. Eins og áður kemur
fram var Matti mjög ungur þegar
hann missti föður sinn mjög
snögglega, og nú eru börnin hans
orðin föðurlaus á unga aldri.
Manni finnast örlögin stundum
vera grimm. Missir barnanna og
eiginkonu er mikill, ekki síst
vegna þess hve góður heimilisfaðir
Matti var og hændur að börnum
sínum og þau að honum. Hann var
heimakær og hjálpsamur eigin-
maður og ævinlega ríkti jöfnuður
með þeim hjónum. Fallegar minn-
ingar um góðan eiginmann og föð-
ur hjálpa þeim yfir erfiðasta
hjallann.
Ég vil nú að leiðarlokum þakka
Matta vináttu hans og tryggð, ég
þakka allar gleðistundirnar í
æsku, sem og ævinlega. Ég bið
góðan Guð að blessa hann og varð-
veita um alla tíð. Við sem eftir
sitjum eigum fallegar minningar
um góðan dreng. Eiginkonu, börn-
um, móður, tengdaforeldrum og
systkinum votta ég mína dýpstu
samúð og bið góðan Guð að
styrkja þau og halda hönd sinni
yfir þeim í þessari miklu sorg.
„Far þú í friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
ísleifur Valtýsson
TÖLVUSKÓLINN
__Skipholli 1, »imi 2S4Q(M*i————
Tölvunámskeið
fyrir börn
9—16 ára
Kennd eru grundvallaratriöin í meöferö og
forritun tölva. Aö loknu námskeiöi geta
nemendur skrifaö einföld forrit. Kynnt er
einnig bygging og eiginleikar tölva meö
aðstoö litskyggna.
Nemendur hafa frjálsan aögang aö tölv-
unum mestan hluta dagsins utan venju-
legs kennslutíma til æfinga. Leiktímar eru
aö kvöldinu.
Viö kennsluna eru notaöar vandaöar
einkatölvur frá ATARI meö lit og hljóöi.
Framsýnir foreldrar láta börn sín læra á
tölvur. Tölvunámskeiö eru bæöi þrosk-
andi og skemmtileg og opna börnunum
nýja möguleika í lífinu.
Innritun í síma 25400
LUMILUX COMBI
Laglegir lampar sem lítið fer fyrir.
Breidd 25 mm, hæð 45 mm.
Einfaldir í uppsetningu hvar sem er
á heimilinu.
Orkusparnaður, aukin birta.
OSRAM jafnt utan sem innan dyra.
OSRAM alls staðar.
OSRAM
HEILDSALA: JÓH. ÓLAFSSON & CO. H/F 43 SUNDABORG 13—104 REYKJAVÍK — SÍMI 82644