Morgunblaðið - 26.10.1982, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
+
Hjartkær fóstursystir mírt og frænka,
HRAFNKATLA EINARSDÓTTIR,
bankafulltrúi
Tómasarhaga 24,
lést í Landspítalanum laugardaginn 23. október 1982.
Fyrir hönd annarra vandamanna.
Matthildur Jensdóttir.
t
Eiginmaöur minn og kjörfaðir,
ÁGÚST ÓLAFSSON,
rafvirki,
Bergstaöastraati 80,
lést aöfaranótt 24. október.
Bjarnfriöur Sigurjónsdóttir,
Þóröur S. Gunnarsson.
+
Móðir okkar,
SIGURBJORG SIGUROARDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja á Litla Ármóti,
til heimilis aó Ásbraut 7, Kópavogi,
andaöist á Landakotsspítala þann 24. október.
Börnin.
+
Eiginmaöur minn og faöir,
HÖRÐUR ÁSGEIRSSON,
verslunarmaöur
fró Flateyri,
andaöist 23. október.
Guómunda Guömundsdóttir,
Áshildur Haröardóttir.
+
Maðurinn minn,
KRISTÓFER B. KRISTJÁNSSON,
Fífuhvammsvegí 35, Kópavogi,
lést í Landspitalanum, sunnudaginn 24. október.
Stefanía Guómundsdóttir.
+
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma,
HELGA SIGURDARDÓTTIR,
Barmahlíö 6,
lést í Landakotsspitala, laugardaginn 23. október.
Minning:
Kristín Pétursdóttir
frá Stóra-Vatnsskarði
Fædd 12. október 1895
Dáin 11. september 1982
Kristín Pétursdóttir frá Stóra-
Vatnsskarði var fædd að Löngu-
mýri í Skagafirði, dóttir hjónanna
Guðrúnar Þorvaldsdóttur og Pét-
urs Gunnarssonar. Guðrún móðir
Kristínar var gift áður Árna
Jónssyni smið og áttu þau saman
þrjú börn, Ingibjörgu, sem lengst
var búsett á Vatnsskarði, Jón,
fyrrum bankastjóra, og Árna,
bónda á Vatnsskarði. Með Pétri
átti Guðrún einnig þrjú börn,
Þorvald, bónda á Vatnsskarði,
Benedikt, bónda á Vatnsskarði, og
svo Kristínu.
Kristín ólst upp með foreldrum
sínum og árið 1899 fluttust þau að
Stóra-Vatnsskarði. Eftir að for-
eldrar hennar og bróðir létust bjó
hún áfram með systkinum sínum
á Vatnsskarði.
Til Reykjavíkur fluttist Kristín
með Ingibjörgu systur sinni og
Guðrúnu fósturdóttur hennar.
Árið 1942 missti Benedikt bróð-
ir Kristínar konu sína, Margréti
Benediktsdóttur, frá tveimur
kornungum sonum þeirra. Fluttist
Kristín þá norður og tók við hús-
móðurhlutverkinu og ól upp með
bróður sínum eldri soninn, Bene-
dikt, nú bónda á Vatnsskarði, en
yngri sonurinn, Grétar, ólst upp
hjá foreldrum móður sinnar á
Fjalli.
Árið 1958 fluttist móðir mín,
Ingibjörg Halldórsdóttir, að
Vatnsskarði og kvæntist síðar föð-
ur mínum, Þorvaldi Árnasyni. Var
þá búið í gamla bænum en hann
brann 1963, var það mikið áfall og
missti fólkið allar sínar eigur. Þá
var fljótlega hafist handa að
byggja nýtt íbúðarhús. Bjuggu
+
Jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
MAGNÍNU JÓNU SVEINSDÓTTUR,
Bauganesi 3,
fer fram frá Aöventkirkjunni, miövikudaginn 27. október kl. 13.30.
Sveinn Magnússon, Guörún Sigurjónsdóttir,
Hermann Magnússon, Gyöa Arnórsdóttir,
Magnús H. Magnússon, Marta Björnsdóttir,
María Magnúsdóttir Ammendrup, Tage Ammendrup,
Magnína Sveinsdóttir, Siguröur Sigurösson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Fósturmóöir mín, tengdamóöir og amma,
GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hjaröarhaga 28,
verður jarösungin miövikudaginn 27. október kl. 15.00 frá Foss-
vogskirkju.
Arnór Valgeirsson, Elísabet Hauksdóttir.
Valur Arnórsson.
+
Útför mannsins míns,
THEODÓRS B. THEODÓRSSONAR,
Kaplaskjólsvegi 56,
fer fram frá Neskirkju miövikudaginn 27. október kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Guöjón Guömundsson,
Erla Guöjónsdóttir, Egill Egilsson,
Auður Guöjónsdóttir, Rúnar Guöjónsson,
Hrafnkell Guójónsson, Guólaug Jónsdóttír,
Helga Guöjónsdóttir, Tómas Kaaber,
Guórún Sóley Guöjónsdóttir, Þorsteínn Hilmarsson
og barnabörn.
+
Mágur minn,
RICHARD C. NICHOLAS,
lést á heimili sinu í Washington D.C., Bandaríkjunum, sunnudaginn
24. október.
Fyrir hönd Ragnheiöar Árnadóttur Nicholas og annarra vanda-
manna.
Jón Múli Árnason.
+
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
GÍSLÍNA GUDNÝ SIGURDARDÓTTIR,
Hraunbæ 188,
áóur Tungu, Gaulverjabæjarhreppi,
andaöist í Landspitalanum 25. október. Jaröarförin auglýst síöar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
SESSELJA SVEINSDÓTTIR,
Eskihlíö D, Reykjavík,
lést 23. október í Landakotsspítala.
Fyrir hönd vandamanna.
Bjarki Magnússon.
Aóalheiöur Una Sigurbjörnsdóttir.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÞORLÁKUR GUÐLAUGSSON
frá Fellskoti, Efstalundi 8, Garöabæ,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi, fimmtudaginn 28.
október kl. 2.00.
Sigríöur Þorláksdóttir, Kjartan Steinólfsson
Eyþór Þorláksson,
Katrín Þorláksdóttir,
og barnabörn.
+
Útför eiginkonu minnar og móöur okkar,
FANNEYJAR ANNASDÓTTUR,
Hafnarstræti 13, Flateyri,
fer fram frá Flateyrarkirkju, miövikudaginn 27. október kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Rauöa kross fslands
eöa aörar líknarstofnanir.
Sölvi Ásgeirsson og börn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hluttekningu viö fráfall
og jaröarför,
GUOMUNDAR JÓHANNESAR GUÐMUNDSSONAR,
Bólstað, Garöabæ.
Sérstakar þakkir færum viö hjúkrunarliöi á deild A6 í Borgarspítal-
anum.
Helga Guömundsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson,
Bragi Guómundsson, Katrín H. Karlsdóttir,
Árnheiöur G. Guömundsdóttir, Ágúst Hafberg.
Barnabörn og barnabarnabörn.
Benedikt og fjölskylda ásamt
Benedikt Péturssyni á efri hæð-
inni, en á neðri hæðinni foreldrar
mínir og fjölskylda ásamt Árna
afa og Kristínu.
Þar sem við þekktum aldrei
föðurömmu okkar, kom Kristín í
hennar stað og kölluðum við
systkinin hana aldrei annað en
ömmur á Vatnsskarði, gerðu það
einnig frændsystkini okkar sem
voru henni óskyld og þótti henni
mjög vænt um það.
Það er með því fyrsta sem ég
man vel eftir í samskiptum okkar
ömmu, þegar hún var að kenna
okkur systrunum að lesa. Þar sem
hún hafði svo einstakt lag á a gera
alla hluti skemmtilega var oft
vaknað snemma til að verða fyrst-
ur inn til ömmu að lesa.
Oft varð amma að gæta allra
krakkanna á bænum ef fullorðna
fólkið var ekki heima. Það var
aldrei vandamál að eyða tímanum
því æði oft sat amma og spilaði við
okkur eða las fyrir okkur. Hún
sagði okkur líka oft sögur af ýmsu
sem skeði í gamla daga, til dæmis
þegar farið var til kirkju, var hún
þá ætíð á sínum reiðhesti sem var
svo viljugur að það réði helst eng-
inn við hann nema hún. Alltaf reið
hún í söðli og haggaðist ekki þó
allt færi í loftköstum.
Eftir að við fluttumst frá
Vatnsskarði 1969 til Varmahlíðar
bjó amma áfram á neðri hæðinni.
Þó að lengdist bilið á milli okkar
höfðum við alltaf mikið samband.
Það var ætíð mikil tilhlökkun ef
amma ætlaði að koma og gista en
þeir dagar voru alltof fljótir að
líða.
Eftir að Ingibjörg systir ömmu
var orðin lasburða fór amma að
vera meira fyrir sunnan hjá Guð-
rúnu Þorvaldsdóttur og Ingi-
björgu.
Hún kom lengi vel heim í
Vatnsskarð um jólin en í fyrsta
skipti sem hún kom ekki fannst
mér mikið vanta þegar amma kom
ekki með fjölskyldunni á Vatns-
skarði í jólaboð hjá foreldrum
mínum.
Amma hélt mikilli tryggð við þá
unglinga sem höfðu verið í sveit á
Vatnsskarði og margir þeirra
komu að heimsækja hana og mat
hún það mikils.
Eftir að Ingibjörg lést var
amma að miklu leyti fyrir sunnan
hjá Guðrúnu Þorvaldsdóttur. Þær
komu norður á sumrin og bjuggu
þá á neðri hæðinni á Vatnsskarði.
Ömmu þótti ákaflega vænt um
allt sitt skyldfólk og miklu fleiri
sem hún hafði kynnst og fest
trygRÖ við, þá ekki síst nöfnur sín-
ar, sem eru Kristín systir mín og
Kristín Ebba, dóttir Mörtu
Björnsdóttur og Stefáns Jó-
hannssonar, Marta er dóttir
Björns bróðursonar ömmu.
Þó að amma kynni mjög vel við
sig fyrir sunnan og væri ánægð
þar eins og alls staðar, þá var hug-
urinn oft norðan heiða og hafði
hún mjög gaman af að fá fréttir af
frændfólkinu í Skagafirðinum.
Henni þótti ákaflega vænt um
sína sveit og sveitunga. Hún talaði
aldrei illa um neinn og vildi ætíð
láta alla lifa í sátt og samlyndi.
Amma hafði mjög gaman af að
gefa öðrum og margan hlutinn lét
hún af hendi sem hún hafði unnið
sjálf. Eftir að heilsan fór að bila
minnkaði getan til hannyrða, en
hún var ætíð þakklát fyrir hverja
þá stund er gafst.