Morgunblaðið - 26.10.1982, Blaðsíða 40
^j^skriftar-
síminn er 830 33
TUDOR
rafgeymar
„já þessir meó 9 líf ”
SKORRIHP
Laugavegi 180, sími 84160
1>RIÐJUI)AGIJR 26. OKTOBER 1982
Spurning hvort
slíkt „námskeið“
væri gagnlegt
- segir Ásmundur Stefánsson forseti ASI
„KINS og haldið var á því máli í
fyrra þá var þarna um að ræða nokk-
uð einhliða námskeið um spá l'jóð
hagsstofnunar. Nú hefur verið boðað
annað slíkt námskeið á miðviku-
dag“, sagði Ásmundur Stefánsson
forseti Alþýðusambands íslands er
Mbl. ræddi við hann i gær í tilefni af
því að forsætisráðherra hefur boðað
fulltrúa launafólks, bænda og at-
vinnurekenda til samráðsfundar n.k.
miðvikudagsmorgun kl. 9, en í fund-
Þrjár full-
orönar kon-
ur rændar
UNOANFARNA daga hefur ver-
ið ráðist á þrjár fullorðnar konur
og þa-r rændar. í öllum tilvikum
voru piltar eða ungir menn að
verki, en enginn hefur verið
handtekinn. Um klukkan átta á
sunnudagskvöldið réðust tveir
pillar á 73 ára gamla konu á /Kg-
isgötu.
Piltarnir hrintu gömlu kon-
unni harkalega í götuna og
hrifsuðu af henni veskið. I því
voru gleraugu konunnar, skil-
ríki, lyklar og fé. Gamla konan
var flutt í slysadeild og var enn
á sjúkrahúsi síðdegis í gær þar
sem meiðsli á mjöðm tóku sig
upp. Veskið fannst tómt síð-
degis í gær, skammt frá þar
sem gamla konan var rænd.
IJm klukkan 21.30 á fimmtu-
dagskvöldið réðust þrír menn á
konu í Skipholti. Þeir hrifsuðu
af henni veskið og hlupu á
brott. í veskinu voru um 500
krónur, auk lykla og skilríkja.
Laust fyrir klukkan átta á
laugardagskvöldið var ráðist á
66 ára gamla konu á Klapp-
arstíg. Þar voru tveir piltar að
verki. Þeir hrifsuðu veski af
konunni og hlupu með það á
brott. í veskinu voru um 600
krónur, auk gleraugna, hús-
lykla og skilríkja.
arboði stendur að fjalla eigi um
skýrslu forsætisráðherra um þjóð-
hagsáætlun fyrir árið 1983.
Asmundur sagði að fundurinn
væri boðaður sem „samráðsfund-
ur“ og með skírskotun í reglugerð-
ir þar að lútandi. Hann bætti því
við að sér væri enn í fersku minni
fundur sem boðaður var með sama
hætti í fyrra. Hann sagði: „Á
fundinum í fyrra var farið yfir
þjóðhagsáætlun með fyrirlestrum
þar sem innihald hennar var út-
skýrt i löngu máli og af því urðu
menn náttúrulega töluvert fróð-
ari. Það er út af fyrir sig spurning,
hvort slíkt námskeið geti verið
gagnlegt, en það er þá einnig
spurning hvort það væri ekki
gagnlegt fyrir ríkisstjórn og Al-
þingi að sitja slíkt námskeið.“
HHö*1 * % f:"
Vetur konungur er genginn í gard. Myndin er tekin á Akureyri í gærmorgun.
— Ljósm.: Sv.P.
Geir Hallgrímsson í útvarpsumræðunum:
Steftiir í efiiahagsskipu-
lag austantjaldsríkja
Brýnasta verkefnið að draga úr miklum halla utanríkis-
viðskipta, sagði Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra
„HVARVETNA eru menn í vörn gagnvart óstjórn og ofræðisvaldi ríkisstjórn-
ar. Þróunin stefnir óðfluga í þá átt sem undanfari cr efnahagsskipulags
austantjaldsríkja undir forystu sósialista. Atvinnufyrirtæki standa höllum
fati, fólki er fækkað eða uppsagnir liggja við. Línsfjárskommlun og
verðbólguþróun segja til sín með vaxandi þunga ... Það er full þörf að
spyrna við fótum, gerbreyta stjórnarstefnunni og hefja nýja endurreisn,"
sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðu um
stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær.
Geir Hallgrímsson sagði m.a.,
að ekki væri lengur hægt að leyna
alvarlegum staðreyndum og við-
horfum, sem blöstu við eftir tvö
beztu aflaár og mestu verðmæta-
sköpun sem við Islendingar hefð-
um notið. — Ríkisstjórnin hefði
lofað að ná verðbólgu niður í
ASÍ hafiiar nýja
vísitölugrunninum
MINNKANDI líkur eru nú taldar á því, að samstaða náist um nýtt viðmiðun-
arkerfi fyrir laun, scm gæti komið í stað núverandi visitölukcrfis. Fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar hafa hingað til ekki léð máls á þeim hugmyndum,
sem kynntar voru samtökum launafólks og vinnuveitendum í ágústmánuði
sl. og hafa verið til umræðu síðustu vikurnar.
Vinnuveitendur hafa hins vegar
lýst þeirri skoðun sinni, að þeir
teldu eðlilegt að ganga lengra en
gert er. Ef á reynir munu þeir hins
vegar samþykkja tillögurnar eins
og þær liggja nú fyrir samkvæmt
upplýsingum Mbl.
I hugmyndum vísitölunefndar,
sem í sitja Þórður Friðjónsson,
Halldór Ásgrímsson og Þröstur
Ólafsson, er gert ráð fyrir umtals-
verðum breytingum á núverandi
visitölukerfi. Samkvæmt þeim
verður tekinn upp nýr grundvöllur
fyrir vísitölu framfærslukostnað-
ar, sem reistur er á neyzlukönnun,
sem gerð var á árunum 1979 og
1980. Tenging launa við vísitölu
yrði miðuð við nýja vísitölu, lífs-
kjaravísitölu, sem tekur til fleiri
þátta í lífskjörum launafólks en
núverandi vísitölukerfi. Ennfrem-
ur er gert ráð fyrir, að breytingar
á orkuverði dragist frá fram-
færsluvísitölu við ákvörðun verð-
bóta og að verðbætur greiðist á
fjögurra eða sex mánaða fresti í
stað þriggja nú. Jafnframt er gert
ráð fyrir að búvöruverð og al-
mennt fiskverð ákvarðist á sömu
dagsetningum.
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá því í ágústmánuði sl. er gert
ráð fyrir því, að lagt verði fram
frumvarp á Alþingi um breytta
skipan þessara mála við næsta út-
reikning verðbóta eftir 1. desem-
ber nk. Samkvæmt upplýsingum
Mbl., er næsta lítil von, að slíkt
verði hægt vegna andstöðu verka-
lýðsforystunnar. Hún hafnar hin-
um nýja vísitölugrunni í núver-
andi formi, auk þess sem forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar
hafi lagzt gegn ýmsum frádrátt-
arliðum, sem eru inni í tillögun-
um, eins og í sambandi við breyt-
ingar á orkuverði. Ennfremur
hafa þeir lagzt gegn fækkun verð-
bótatímabila og telja hana eina
sér hreina kjaraskerðingu.
7—10% 1982 en hún yrði a.m.k.
60%. Hún hefði lofað að tryggja
gengi nýkrónunnar en gengisfell-
ingar hefðu verið fleiri og örari en
nokkru sinni, ásamt stöðugu geng-
issigi, svo Bandaríkjadalur hefði
fjórfaldast í verði á tæpum þrem-
ur árum. — Ríkisstjórnin hefði
lofað að myntbreytingin yrði vopn
gegn verðbólgu en hún hefði
reynzt skálkaskjól fyrir verð-
bólguvexti og hrun krónunnar. —
Tvær síðustu ríkisstjórnir hefðu
og lofað að tryggja kaupmátt
launa og setja samninga í gildi, en
hefðu staðið að meiri verðbóta-
skerðingu launa en dæmi væru um
eða samtals um 40% á síðustu
fjórum árum meðan grunnlaun
hafi hækkað um 25%. Kaupmátt-
ur kauptaxta væri minni nú en
1978, þótt þjóðartekjur séu svipað-
ar, og verðbólgan æðir upp, þrátt
fyrir launaskerðingar.
Geir sagði og, að greiðslubyrði
afborgana og erlendra lána, sem
áður vóru 12—13%, væru 23% á
yfirstandandi ári og spá Seðla-
banka stæði til að 3ja hver króna
af gjaldeyristekjum okkar færi
innan tíðar í þennan erlenda lána-
kostnað.
Við sjálfstæðismenn lýsum and-
stöðu okkar við bráðabirgðalögin,
sagði Geir, vegna þess að við
krefjumst breyttrar stjórnar-
stefnu. í bráðabirgðalögunum
felst kjaraskerðing, án þess að þau
komi að teljandi gagni í báráttu
gegn verðbólgu, og til lengdar get-
ur hún orðið til skaða vegna þess
að launþegar sætta sig ekki við
sífelldar kjaraskerðingar, eins og
vinstri stjórna er vandi sem Al-
þýðubandalagið ber höfuðábyrgð
á.
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sagði m.a: „Það er nú
eitt allra brýnasta verkefnið í ís-
lenzkum efnahagsmálum að draga
svo skjótt sem auðið er úr hinum
mikla halla á utanríkisviðskiptum
þjóðarbúsins og eyða honum alveg
á næstu tveimur árum.“ Ennfrem-
ur: „Sá viðskiptahalli, sem við er
að glíma, mun nema um 10% af
þjóðarframleiðslu þessa árs. Með
þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin
hefur nú ákveðið, er mjög dregið
úr hallanum, og er að því stefnt
með áframhaldandi gát á þessu
mikilvæga atriði að helminga
hallann þegar á næsta ári og eyða
honum alveg á árinu 1984.“
Langferðabif-
reið brann
til kaldra kola
á Jökuldal
Knil.ssloúum, 25. október
LANGFKRÐABIFREIÐ
Björns Andréssonar i Fellabæ
brann á Jökuldal, skammt frá
Skjöldólfsstöðum, að morgni sl.
sunnudags. Björn var að flytja
bændur og búalið af Jökuldal til
síns heima eftir velheppnaða
bændahátíð í Valaskjálf á Kgils-
stöðum, er eldur kom upp í bif-
reiðinni.
Ekkert varð ráðið við eldinn
og brann allt það í bifreiðinni
sem brunnið gat, utan eitt
varadekk. Engin slys urðu á
mönnum. Þetta er mjög baga-
legt tjón fyrir Björn, sem hef-
ur notað bifreiðina til aksturs
skólabarna í Fellahreppi.
— Olafur.