Morgunblaðið - 30.10.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.10.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1982 Um það bil 94% allra landsmanna hafa einhvern tíma fengið skemmd í tönn. Þess vegna finnst öllum sjálfsagt að fara við og við í skoðun hjá tannlækni. í rauninni ætti þér að finnast jafn eðlilegt og auðvelt að fara í reglulega krabbameinsskoðun. Þú veist að fjórði hver íslendingur deyr af völdum krabbameins. Framlag þitt til baráttunn- ar gegn krabbameini verður því að vera tvíþætt. Þú leggur henni vissulega lið með því að fara í skoðun þegar þú færð tilkynningu. En þú leggur henni ekki síður lið með rausnarlegu fjár- framlagi til þess að gera leitar- stöð Krabbameinsfélagsins kleift að sinna megin hlutverki sínu að hefta útbreiðslu krabba- meins í mannslíkamanum. í dag verður tekið við fram- lögum landsmanna til þjóðar- átaks gegn krabbameini. Ætlunin er að knúið verði dyra á hverju heimili landsins. Alls munu 4000 sjálfboða- hðar starfa að söfnuninni. í kvöld verður talningar- sjónvarp. Þar verður fylgst með söfnunartölum úr öllum lands- hlutum. Þjóðarátak—þín vegna! Hönnun þessarar auglýsingar var gefin af fyrirtækinu Ólafur Stephensen, Auglýsingar- Almenningstengsl, félaga í SÍA, Sambandi íslenskra auglýsingastofa. Kristján Magnússon, ljósmyndari gaf myndatöku. Birting þessi er gefin af IBM á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.