Morgunblaðið - 30.10.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1982
19
MITSUBISHI
Gerö: Mitsubishi
Tredia GLS
Framleiðandi: Mitsubishi
Motor Co.
Framleiðsluland: Japan
Innflytjandi: Hekla hf.
Verð 165.000.-
Afgreiðslufrestur:
Til á lager
Þyngd 915 kg
Lengd 4.280 mm
Breidd: 1.650 mm
Hæð: 1.360 mm
Hjólhaf: 2.445 mm
Veghæð: 150 mm
Hámarkshraði:
160 km/klst.
Vél. 4 strokka, 1.597 rúm-
sentimetra, 75 DIN hest-
afla
Skipting: 4ra gíra + sparn-
aðargír, fáanlegur sjálf-
skiptur
Drif: Framdrifinn
Bremsur: Aflhemlar
Stýri: Aflstýri, veltistýri
Benzíntankur: 50 lítrar
Benzíneyðsla: 8—9 lítrar á
100 km í blönduðum akstri
Hjólbarðar: 165SR-13
Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun
á hverju hjóli
lítið niður í hornin í kröppum
beygjum. Hann er því mjög
skemmtilegur í akstri á malbiki,
hvort heldur er innanbæjar eða á
langkeyrslu. Síðan vakti það at-
hygli mína hversu stöðugur bíllinn
var á mölinni. Hann skvetti aftur-
endanum mjög lítið til þótt ekið
væri greitt á ójöfnum vegum og
það er ekkert tiltökumál, að aka
bílnum greitt á malarvegum inn í
krappar beygjur.
NIÐURSTAÐA
Niðurstaða liðlega 400 km
reynsluaksturs Tredia-bílsins er sú,
að um skemmtilegan fjölskyldubíl
sé að ræða. Hann er kraftmikill,
rúmgóður, með sparnaðargír og
góða aksturseiginleika. Mínusinn
eru framsætin, sem mættu vera
betri.
tveimur vélarstærðum, annars
vegar með fjögurra strokka, 1.360
rúmsentimetra, 62 hestafla vél,
og hins vegar með 4 strokka,
I. 580 rúmsentimetra, 72 hestafla
vél. Það tekur bílinn með minni
vélinni um 13,5 sekúndur að kom-
ast í 100 km hraða á klukkustund,
en sá með stærri vélinni er um
II, 5 sekúndur að ná 100 km hraða
á klukkustund. Hámarkshraði er
annars vegar 163 km á klukku-
stund og hins vegar 176 km á
klukkustund.
Citroén-verksmiðjurnar segja,
að billinn eigi ekki að eyða nema
á bilinu 5,5—6,0 lítrum benzíns á
hverja 100 km, ef ekið er á stöð-
ugum 90 km meðalhraða. Sé hins
vegar ekið á 120 km meðalhraða,
eigi bíllinn að eyða 7,5—8,0 lítr-
um á 100 km. í blandaðri innan-
bæjarkeyrslu er bíllinn svo sagð-
ur eyða 8,5—9,0 lítrum benzíns á
hverja 100 km.
BX-bíllinn er 4.230 mm á lengd
og breidd bílsins er 1.660 mm.
Hann er því aðeins 30 mm lengri
heldur en GSA-bíllinn, sem fram-
leiddur hefur verið síðan 1970.
Þyngd bílsins er ýmist 900 kg eða
950 kg, fer eftir vélarstærð. Far-
angursrými bílsins er um 444
lítrar, en ef aftursætið er lagt
niður skapast liðlega 900 lítra
rými.
Ólympíuskákmótið hefst í dag
Skák
Margeir Pétursson
25. Ólympíuskákmótið hefst í
dag í Luzern í Sviss. Þar keppa
skáksveitir frá meira en 100 lönd-
um um það hvaða þjóð hafi beztum
skákmönnum á að skipa og því er
hér I raun um heimsmeistara-
keppni sveita að ræða. Góðar horf-
ur eru á því að þetta mót verði það
glæsilegasta sem nokkru sinni hef-
ur verið haldið, þvl þátttökuþjóðir
eru nú fieiri en nokkru sinni fyrr.
Af öfiugustu stórmeisturum heims
mun fáa eða enga vanta nema
Fischer og siðast en ekki sízt eru
Svisslendingar þekktir fyrir fri-
bæra skipulagningu og það vegur
þungt á metunum því mörgum er
enn í fersku minni óstjórnin og
slæmur aðbúnaður keppenda á síð-
asta móti sem haldið var i Möltu.
í keppninni um efsta sætið í
Luzern eru margir kallaðir en
fáir útvaldir og það eru allar lík-
ur á því að sveitir Sovétríkjanna
og Ungverjalands komi, í þriðja
skiptið i röð, til með að berjast
hatrammri baráttu um efsta
sætið, en það er þó alls ekki
hægt að afskrifa þjóðir eins og
Bandarikjamenn, Englendinga
og Júgóslava sem gætu hæglega
komið á óvart á góðum degi. Það
má ekki gleyma því að á mótinu
er teflt á fjórum borðum, alls
fjórtán umferðir eftir Monrad-
kerfi.
Það er ljóst að íslenzka sveitin
á við ramman reip að draga, en
hún er ung og upprennandi og
sigrarnir yfir Hollendingum og
V-Þjóðverjum, á síðasta móti,
svo og ágætur árangur gegn Sví-
um og Englendingum i lands-
keppnum í 'ár gefa vissulega
ástæðu til bjartsýni. Lið okkar-
nú er skipað þeim Guðmundi
Sigurjónssyni, Jóni L. Árnasyni,
Helga Ólafssyni, Margeiri Pét-
urssyni, Jóhanni Hjartarsyni og
Inga R. Jóhannssyni, sem jafn-
framt er liðsstjóri. Þetta er
sama lið og tefldi á Möltu að
öðru leyti en því að Guðmundur
hefur komið í stað Friðriks
Ólafssonar á fyrsta borði. Fróð-
legt verður því að sjá hverju
sveitin hefur bætt við sig á þeim
tveimur árum sem liðin eru frá
siðasta móti.
Ekki hefur verið gert uppskátt
um lið öflugustu þjóðanna, en
ýmislegt er þó ljóst um það efni:
Sovétríkin: Karpov, Kasparov,
Beljavsky. Um hin þrjú borðin er
óvitað, en þar eystra er auðvitað
af nógum að taka til að fylla töl-
una.
Ungverjaland: Portisch, Ribli,
Adorjan, Sax, Pinter og Csom.
Bandaríkin: Browne, Seirawan,
Kavalek, Alburt og Christiansen
og einn stórmeistari til viðbótar.
Júgóslavía: Ljubojevic, Gligoric,
Kovacevic, Ivanovic, Hulak og
Velimirovic.
England: Miles, Nunn, Speelman,
Stean, Mestel og Chandler.
Tékkóslóvakía: Hort, Smejkal,
Ftacnik, Jansa og tveir alþjóða-
meistarar.
Sviss: Korchnoi, Hug, Partos,
Wirthensohn, Zuger og Franz-
oni.
Úrslit i fyrri
Olympíuskikmótum:
1. London 1927. 16 þátttökuþjóð-
ir. 1. Ungverjaland (Maroczy, Dr.
Nagy, Dr. Vajda. E. Steiner og
Havasi) 40 v. 2. Danmörk 38 % v.
3. England 36 % v.
2. Haag 1928. 17 þjóðir. 1.
Ungverjaland (Nagy, Á. Steiner,
Vajda, Havasi) 44 v. 2. Bandarík-
in 39 % v. 3. Pólland 37 v.
3. Hamborg 1930. 18 þjóðir. 1.
Pólland (Rubinstein, Tartakovcr,
Przepiorka, Makarczyk og Fryd-
man) 48V4 v. 2. Ungverjaland 47
v. 3. Þýzkaland 44% v. íslenzk
sveit var nú í fyrsta sinn á meðal
þátttakenda og hafnaði hún í 15.
sæti.
Browne
4. Prag 1931. 19 þjóðir. 1. Banda-
ríkin (Kashdan, Marshall, Dake,
Horowitz og H. Steiner, 48 v. 2.
Pólland 47 v. 3. Tékkóslóvakía
46% v.
5. Folkestone 1933. 15 þjóðir. 1.
Bandaríkin (Kashdan, Marshall,
Fine, Dake og Simonson) 39 v. 2.
Tékkóslóvakía 37% v. 3.-5. Sví-
þjóð, Pólland og Ungverjaland
34 v., 13. ísland 17 v.
6. Varsjí 1935. 20 þjóðir. 1.
Bandaríkin (Fine, Marshall,
Kupchik, Dake og Horowitz) 54
v. 2. Svíþjóð 52% v. 3. Pólland 52
v.
7. Stokkhólmur 1937.19 þjóðir. 1.
Bandaríkin (Reshevsky, Fine,
Kashdan, Marshall og Horow-
itz.) 54 % v. 2. Ungverjaland 48 v.
3.-4. Pólland og Argentína 48
v., 16. ísland 23 v.
8. Buenos Aires 1939. 27 þjóðir. 1.
Þýzkaland (og Austurríki, (Elisk-
ases, Becker, Engels, Michel og
Reinhardt) 36 v. 2. Pólland 35%
v. 3. Eistland 33% v. Nú voru í
fyrsta skipti tefldar undanrásir
og úrslit vegna aukins fjölda
þátttökuþjóða. íslenzka sveitin
sigraði í B-riðli og hlaut Copa
Argentina-bikarinn. Þetta mót
var háð í skugga heimsstyrjald-
arinnar síðari sem brauzt út á
meðan á mótinu stóð.
9. Dubrovnik 1950. 16 þjóðir. 1.
Júgóslavía (Gligoric, Pirc, Trif-
unovic, Rabar og Vidmar) 45% v.
2. Argentína 43% v. 3. V-Þýzka-
land 40% v. Kommúnistaþjóð-
irnar í A-Evrópu hundsuðu þetta
mót af pólitískum ástæðum og
það var ekki fyrr en á næsta
móti að allar sterkustu skák-
þjóðir heims voru loksins á með-
al þátttakenda, þ.á m. sovézk
sveit í fyrsta skipti.
Hort
10. Helsinki 1952. 25 þjóðir. 1.
Sovétríkin (Keres, Smyslov,
Bronstein, Geller, Boleslavsky og
Kotov) 21. v. 2. Argentína 19% v.
3. Júgóslavía 19 v. Teflt var í
þremur úrslitariðlum og ís-
lenska sveitin varð í þriðja
neðsta sæti í C-riðli.
11. Amsterdam 1954. 26 þjóðir. 1.
Sovétríkin (Botvinnik, Smyslov,
Bronstein, Keres, Geller og
Kotov) 34 v. 2. Argentína 27 v. 3.
Júgóslavía 26% v. íslendingar
komust í A-úrslitariðilinn, en
höfnuðu þar í neðsta sæti með
13% vinning.
12. Moskva 1956. 34 þjóðir. 1.
Sovétríkin (Botvinnik, Smyslov,
Keres, Bronstein, Taimanov og
Geller) 31 v. 2.-3. Júgóslavía og
Ungverjaland 26% v. íslenzka
sveitin lenti í B-riðli og varð þar
í öðru sæti.
13. Miinchen 1958. 36 þjóðir. 1.
Sovétríkin (Botvinnik, Smyslov,
Keres, Bronstein, Tal og Petrosj-
an) 34% v. 2. Júgóslavía 29 v. 3.
Argentína 25% v. íslendingar
urðu þriðju neðstir í B-riðli.
14. Leipzig 1960. 40 þjóðir. 1. Sov-
étrikin (Tal, Botvinnik, Korchnoi,
Smyslov, Keres, Petrosjan) 34 v.
2. Bandaríkin 29 v. 3. Júgóslavía
27 v. Islendingar urðu næst-
neðstir í B-riðli.
15. Varna 1962.37 þjóðir. 1. Sovét-
ríkin (Botvinnik, Petrosjan,
Spassky, Keres, Geller og Tal)
31 % v. 2. Júgóslavía 28 v. 3. Arg-
entína 26 v. Aftur urðu íslend-
ingar næstneðstir í B-riðli, en
það var mikil huggun harmi
gegn að Friðrik Ólafsson náði
hæstu vinningshlutfalli á fyrsta
borði.
16. Tel Aviv 1964. 50 þjóðir. 1.
Sovétríkin (Petrosjan, Botvinnik,
Smyslov, Keres, Stein og
Spassky) 36% v. 2. Júgóslavía 32
v. 3. V-Þýzkaland 30% v. ís-
lenzka sveitin sigraði í C-riðli,
en nú var í fyrsta skipti teflt í
fjórum úrslitariðlum.
17. Havana 1966. 52 þjóðir. 1. Sov-
étríkin (Petrosjan, Spassky, Tal,
Stein, Korchnoi og Polugaj-
evsky) 39% v. 2. Bandaríkin 34%
v. 3.-4. Ungverjaland og Júgó-
slavía 33% v. 11. ísland 19 v.I •
Þetta er hæsta sæti sem íslend-
ingar hafa nokkru sinni náð á
Ólmpíuskákmóti.
18. Lugano 1968. 53 sveitir. 1. Sov-
étríkin (Petrosjan, Spassky,
Korchnoi, Geller, Polugajevsky
og Smyslov) 39% v. 2. Júgóslavía
31 v. 3. Búlgaría 30 v. Islenzka
sveitin lenti í miðjum hópi í
B-riðli.
19. Siegen 1970. 60 þjóðir. 1. Sov-
étríkin (Spassky, Petrosjan,
Korchnoi, Polugajevsky, Smys-
lov og Geller) 27% v. 2.
Ungverjaland 26% v. 3. Júgósla-
vía 26 v. Nú var teflt í fimm
úrslitariðlum i fyrsta sinn og ís-
lenzka sveitin varð í þriðja sæti i
C-riðli.
20. Skopje 1972. 63 þjóðir. 1. Sov-
étríkin (Petrosjan, Korchnoi,
Smyslov, Tal, Karpov og Savon)
42 v. 2. Ungverjaland 40% v. 3.
Júgóslavía 38 v. íslenzka sveitin
hafnaði í miðjum hópi i B-riðli,
en nú voru úrslitariðlarnir að-
eins fjórir.
21. Nice 1974. 73 þjóðir. 1. Sovét-
ríkin (Karpov, Korhcnoi,
Spassky, Petrosjan, Tal og
Kuzmin) 46 v. 2. Júgóslavía 37%
v. 3. Bandaríkin 36% v. íslenzka
sveitin náði nú 5.-7. sæti í
B-riðli.
22. Haifa 1976. 48 þjóðir. 1.
Bandaríkin (Byrne, Kavalek, Ev-
ans, Tarjan, Lombardy og
Commons) 37 v. 2. Holland 36%
v. 3. England 35% v. íslenzka
sveitin varð í 20.—22. sæti með
27 v.
Nú var gerð bylting í fyrir-
komulagi mótanna og teflt eftir
Monrad-kerfi í fyrsta sinn, allar
þjóðir í sama flokki. Vegna þess
að mótið var háð í ísrael, sátu
A-Evrópu- og Arabaþjóðirnar
heima.
23. Buenos Aires 1978. 65 þjóðir.
1. Ungverjaland (Portisch, Ribli,
Sax, Adorjan, Csom og Vadasz)
37 v. 2. Sovétríkin 36 v. 3. Banda-
ríkin 35 v. íslenzka sveitin varð í
28.—31. sæti, eftir að hafa verið
mun ofar obbann af mótinu.
24. Valetta 1980. 82 þjóðir. 1. Sov-
étríkin (Karpov, Polugajevsky,
Tal, Geller, Balashov og Kasp-
arov) 39 v. 2. Ungverjaland 39 v.
3. Júgóslavía 35 v. Sovétmenn
voru úrskurðaðir sigurvegarar á
stigum, þannig að jafnari gat
keppnin ekki verið. íslenzka
sveitin varð í 23.—30. sæti þegar
upp var staðið, en var á tímabili
í innan við tíunda sæti og komst
hæst í 4.-6. sæti. Sveitin var
hins vegar svo óheppin að mæta
Ungverjum í síðustu umferðinni
og hrapaði við það langt niður,
því í svo stórum Monrad-flokki
má ekkert út af bregða í síðustu
umferðunum, keppnin er svo
jöfn og hörð.
Ólympíuskákmót kvenna
Þar hafa sovézku konurnar
jafnan borið höfuð og herðar yf-
ir andstæðinga sína og eru allar
líkur á því að eins fari nú. Við
sendum nú í þriðja skipti
kvennasveit á Ólympíumót og er
sem fyrr hætt við að hún eigi við
ramman reip að draga vegna
reynsluleysis fulltrúa okkar. En
enginn er smiður við fyrsta högg
og þær Guðlaug Þorsteinsdóttir,
Ólöf Þráinsdóttirj Sigurlaug
Friðþjófsdóttir og Aslaug Krist-
insdóttir koma vafalaust til með
að standa fyrir sínu. Þeim til
halds og trausts á mótinu verður
Trausti Björnsson, gamalreynd-
ur meistari, sem ætti að verða
þeim betri en enginn við
biðstöðurannsóknir.