Morgunblaðið - 15.02.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
37. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1983
Prentsmidja Morgunblaðsins
Leitin að fórnarlömbum fjöldamorðingjans:
Fundu mannabein
í bakgarði húss
Lundunum, 14. febrúar. Al*.
NOKKUR brot úr beinagrindum fundust í morgun er sveit sjö lögreglu-
manna hélt áfram greftri í bakgaröi húss vid Melrose Avenue í Crickle-
wood í leit að allt að 14 fórnarlömbum fjöldamorðingjans í Norður-
Lundúnum. Garðurinn hefur verið vettvangur leitar og rannsókna frá
því á föstudag.
Sérfróðir vísindamenn reyna
nú að koma brotunum heim og
saman ef það mætti verða til
þess, að unnt yrði að bera kennsl
á einhver fórnarlambanna. Tal-
ið er að þau hafi verið myrt á
undanförnum 8 árum. Beinin,
sem fundust í morgun eru talin
hafa legið í jörð i a.m.k. þrjú ár.
Að sögn lögreglunnar beinist
rannsókn málsins nú aðallega
að því að reyna að bera kennsl á
fórnarlömbin ef þess er nokkur
kostur. Hugsanlegt er að ein-
hver svör fáist strax á morgun,
en biðin eftir niðurstöðum gæti
allt eins tekið hálft ár. Þegar
hefur verið afskrifað, að hægt
verði að bera kennsl á nokkur
fórnarlambanna.
Maðurinn, sem grunaður er
um að standa að baki morðun-
um, er Dennis Nilsen, 37 ára
starfsmaður við atvinnumiðlun.
Hann var handtekinn á fimmtu-
dag. Lögð hefur verið fram
ákæra á hendur honum fyrir
morð á eina fórnarlambinu, sem
unnt hefur verið að bera kennsl
á til þessa.
Sovéskur
njósnari
gripinn
Róm, 14. febrúar. Al*.
FJÖRUTÍU og sex ára starfs-
niaður sovéska flugfélagsins
Aeroflot, Victor Pronine, var í
kvöld handtekinn í Róm vegna
gruns um njósnir, að því er tals-
maður lögreglu sagði.
í fréttatilkynningu vegna
handtökunnar var frá því
skýrt, að í eigandi míkrófilmu-
fyrirtækis í Genóva hefði verið
handtekinn í tengslum við
þetta mál. Pronine, sem starf-
að hefur í Róm í hálft ár, var
handtekinn, en engin formleg
ákæra lögð fram að svo stöddu.
Engar upplýsingar hafa enn
fengist um hvers konar njósnir
Pronine er grunaður um, en í
tilkynningu lögreglunnar sagði
að mikilvæg hernaðarleyni-
skjöl hefðu fundist í fórum
Rússans.
Kyprianou endur-
kjörinn á Kýpur
Nikósíu, Kypur, 14. febrúar. Al*.
SPYROS Kyprianou vann öruggan
sigur í forsetakosningunum gríska
meirihlutans á Kýpur, sem haldn-
ar voru um helgina. lllaut hann
rúm 56% þeirra tæplega 308.000
atkvæða, sem greidd voru. Hinir
frambjóðendurnir tveir hlutu mun
færri atkvæði. Kyprianou tók við
embætti forseta 1977 í kjölfar
dauða Makariosar erkibiskups.
Úrslit kosninganna þýða, að
Kyprianou verður forseti næstu
fimm ár. Um leið fékk hann um-
boð til að halda áfram að leita
lausnar á vanda eyjarskeggja,
sem skipst hafa í tvö aðskilin
samfélög Grikkja og Tyrkja á
eynni.
Ariel Sharon leggur hér hönd á öxl eins samstarfsmanns síns ( ísraelska varnarmálaráðuneytinu, er hann kom
þangað í gær til að kveðja. Slmamynd AP
Begin þvertekur fyrir
friðarviðræður við PLO
— Arens tekur við embætti varnarmálaráðherra
Jerúsalom, 14. febrúar. AP.
MENACHEM Begin, forsætisráðherra ísraels, sagði í dag á fundi með
sendinefnd frá Evrópuþinginu, að ekki kæmi til greina af hálfu ísraela að
eiga viðræður við PLO, eða einhverja stuðningsmanna þeirra, um frið fyrir
botni Miðjarðarhafs. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, hótaði því í opnunarræðu
sinni á fundi þjóðarráðs Palestímumanna í Algeirsborg seint í kvöld, að
halda baráttunni gegn ísraelum áfram þar til réttlætinu hefði verið fullnægt
og friði náð. Sagði Arafat baráttunni ekki lokið fyrr en fáni Palestínumanna
yrði dreginn að húni í Jerúsalem.
Begin fór þess á leit við þingið í
ísrael í dag, að það staðfesti af-
sögn Ariel Sharon úr embætti
varnarmálaráðherra. Moshe Ar-
ens, sendiherra ísraela í Wash-
ington, staðfesti í dag að hann
tæki að sér embætti varnarmála-
ráðherra. Tekur hann við embætti
á næstu dögum. Þingið samþykkti
þessar breytingar á stjórninni
með 61 atkvæði gegn 56 í atkvæða-
greiðslu í kvöld.
Sharon kvaddi samstarfsmenn
sína í varnarmálaráðuneytinu
með virktum í dag og var ekki
laust við að tár hrytu af hvörmum
sumra við atburðinn. Við brottför
sína lýsti Sharon því yfir, að menn
I.ÍTT miðaöi í samningaviðræðum um
brottflutning erlends herliðs frá Líb-
anon á fundi samningsaðila í Khalde í
dag. Hefur annar fundur verið boðaö-
yrðu ekki dæmdir eftir þeim emb-
ættum, sem þeir gegndu. „Ég hef
ekki beðið ósigur," sagði Sharon.
Eins og áður hefur komið fram
verður Sharon áfram í ríkisstjórn
Begins, en sú ákvörðun hefur kom-
ið illa við nokkra meðlimi frjáls-
lynda armsins í Likud-bandalag-
inu. Þeir hyggjast þó ekki standa í
vegi fyrir eðlilegu stjórnarstarfi á
neinn hátt.
ur á fimmtudag og verður hann hald-
inn ísrael.
Skömmu áður en fundinum lauk
Enginn árangur af
samningaviðræðum
Khaldo, Boirút og Alj'cirsborjí,
Fyrrum forsætisráðherra Afgana á fréttamannafundi:
Segir Sovétmenn hafa komið fjölda
SS-20 eldflauga fyrir í landinu
Islamabad, Pakistan, 14. febrúar. AP.
FRELSISSVEITIR Afgana segjast
í þriðja sinn á aðeins tveimur mán-
uöum hafa gert eldflaugaárás á
flugvöllinn í Jalalabad og valdið
umtalsverðu mann- og eignatjóni.
Samkvæmt heimildum á Pesh-
awar í Pakistan, skammt frá
afgönsku landamærunum, var
síðasta árásin gerð á föstudag.
Segjast frelsissveitirnar hafa
orðið 38 mönnum að bana og
eyðilagt fjórar vopnum búnar
þyrlur. Á meðal þeirra, sem létu
lífið, voru að sögn þrír sovéskir
ráðgjafar.
Flugvöllurinn í Jalalabad er
innrásarliði Sovétmanna mjög
mikilvægur vegna vopna- og
birgðaflutninga um hann. Er
hann talinn annar mikilvægasti
flugvöllurinn í landinu og eru
mjög öflugar varnir við hann.
Alls munu um 80 manns úr
frelsissveitunum hafa tekið þátt
í árásinni. Ekki var getið um
manntjón í herbúðum þeirra.
Mohammed Yussof, fyrrum
forsætisráðherra Afganistan,
sem nú heldur til í Munchen,
sagði á fréttamannafundi um
helgina, að Sovétmenn hefðu
komið fjölda SS-20-eldflauga
fyrir í landinu, auk þess sem þeir
hefðu víða grafið neðanjarðar-
byrgi og stækkað flugvelli.
Sagði Yussof þessar aðgerðir
ekki beinast gegn frelsissveitum
Afgana heldur fyrst og fremst
vera til þess að styrkja stöðu
þeirra í landinu með frekari að-
gerðir í huga. Sagði hann ljóst,
að Sovétmenn stefndu að því að
ná yfirráðum yfir Persaflóa og
þar með ná olíulífæðum til Vest-
urlanda á sitt vald.
hélt Philip Habib, sérlegur sendi-
maður Bandaríkjastjórnar í Mið-
austurlöndum, áleiðis til ísrael eftir
fjögurra daga fundahöld með líb-
önskum ráðamönnum.
Haddad majór lýsti því yfir í dag,
að hann hefði fært út mörk yfir-
ráðasvæðis síns í suðurhluta Líban-
on. Næði yfirráðasvæði hans nú allt
norður fyrir hafnarborgina Sídon,
þriðju stærstu borg Líbanon, og er
nú um fjórðungur alls landsvæðis í
Líbanon.
„Það er engin ástæða til að lýsa
yfir stofnun ríkis nú, það hefur
löngu verið gert,“ sagði Haddad í
dag. Ríki Haddads nýtur stuðnings
ísraela og 1500 manna her hans fær
hergögn frá þeim.
Þjóðarráð Palestínumanna, eins
konar útlagaþing þeirra, kom sam-
an til vikufundar í Algeirsborg í
dag. Hlutverk fundarins er að
reyna að samræma viðhorf full-
trúanna 360 til Fez-áætlunarinnar,
sem samþykkt var í Marokkó í
haust.