Morgunblaðið - 15.02.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1983
47
Ördeyða hjá trillukorlum á Akureyri:
Tveir fiskar hafa
komið á land frá
20. desember sl.
„I>AÐ ER heilagur sannleikur, aö síðan 20. desember
síðastliðinn hafa komið 2 fiskar á land af þessum 5
bátum. Það er búið að ofdrepa fiskinn. Ekki nokkur vafi
á því,“ sagði einn af þeim fimm mönnum, sem stunda
trilluútgerð frá Akureyri við tíðindamann Mbl., þegar
hann heimsótti þá fimmmenninga í verbúðir þeirra í
Sandgerðisbót í dag.
Frá Akureyri eru gerðir út 5
bátar á línu og net eingöngu og
hafa eigendur bátanna ekki
aðra vinnu, útgerðin er þeirra
lifibrauð. Algert aflaleysi hef-
ur verið nú um nær tveggja
mánaða skeið og má segja í
tvennum skilningi, að afkoman
sé ekki upp á marga fiska um
þessar mundir. Bátar þessir
eru af stærðinni tveggja og
hálfs tonns til fimm tonna.
Meðalbátsverð í dag mun vera
um 500 þúsund krónur — með
veiðarfærum — og verbúðir og
rekstrarkostnaður í viðbót við
það. Segja má að þessir fjár-
munir, sem í útgerðinni liggja
verið veiddur, hefði hann verið
í átu hér inni á firðinum og þá
hefði kannski eitthvað verið að
hafa nú. Þá er því ekki að
leyna, að við teljum selinn hér
líka sökudólg. Mjög mikið er af
sel í firðinum — óvenjulega
mikið — og þarf ekki að efa að
eitthvað þarf hann til matar,“
sagði einn fimmenninganna.
Frá árinu 1979 til ársins 1982
hefur afli bátanna minnkað um
helming. Aldrei áður hefur þó
komið slík ördeyða sem nú og
verði ekki breyting á má telja
víst að þessi atvinnuvegur
leggist niður á Akureyri. I
Flotinn liggur allur inni í Sandgerðisbótinni.
„Vonandi fáum við undanþágu frá fiskveiðibanni um páska.“ Trillu-
karlar á Akureyri, talið frá vinstri: Valtýr Pálmason, Snorri Guðjónsson,
Ægir Sæmundsson, Bergsteinn Garðarsson, Ingvi Árnason og Stefán
Baldvinsson. Ljóxm. (MUrg
gefi ekki mikið af sér, þegar
árar eins og nú.
Allir leggja þessir bátar afla
sinn upp hjá fiskimóttöku
KEA, og fer síðan meirihlutinn
á matardiska Akureyringa. Nú
undanfarið hefur KEA þurft
að sækja fisk í búðirnar m.a. til
Ólafsvíkur og Húsavíkur.
Fiskimið bátanna liggja nær
eingöngu innan Hjalteyrar á
þessum árstíma og þar hefur
engan fisk verið að fá, eins og
áður segir.
„Það er ekki vafi á því, að
netaveiðar stóru bátanna frá
stöðum út með firðinum á
haustin hafa veruleg áhrif á
fiskgengd í firðinum. I haust
veiddu þeir þarna um 200 tonn
af þorski og mjög mikið af
ufsa. Ef þessi fiskur hefði ekki
samtaii við bátaeigendur kom
fram, að þeir telja að bæta
mætti ástandið með því að
undanskilja þessa smábáta
fiskveiðibanninu í kringum
páska, á því tímabili hefði
a.m.k. fram að þessu verið góð-
ur afli á þessum slóðum. En þá
eru þessir bátar, líkt og stóru
bátarnir og togararnir, reknir í
land og fá ekki að veiða.
Þess má að lokum geta, að
allir þessir fimm útgerðar-
menn hafa fram til þessa þurft
að greiða af afla til atvinnu-
leysistryggingasjóðs, en þegar
grundvellinum er kippt undan
afkomu þeirra, líkt og nú er, þá
fá þeir engar bætur frá sjóðn-
um, þar sem þeir eru ekki á
laganna máli launþegar.
— G.Berg.
srno
’UH
Opiö
daglega
frá 1—B e.h.
Nóg bílastæöi.
Tíöar
strætisvagnaferöir.
SAIMNI
STQR-
UTSÖLU
MARKAÐUR
ER í
HUSGAGNAHÖLLINNI
BÍLDSHÖFÐA
VORUURVAL
ALGJÖRUM SÉRFLOKKI
□ Herra-, dömu-, unglinga- og barnafatnaöur.
□ Hljómplötur, áteknar og óáteknar kassettur,
videóspólur í glæsilegu úrvali.
□ Efni, t.d. alullarefni, ullarblönduö efni, fataefni,
popplínefni, rifflaö flauel, kápuefni, jakkaefni, bút-
ar o.m.fl.
□ Hljómtæki, bíltæki, vasatölvur, úr og alls konar
heimilistæki.
□ Herra-, dömu- og barnakuldaskór.
□ íþrótta- og sportfatnaöur.
□ Gjafavara, handklæöi o.m.fl.þ.h.
□ Undirfatnaöur, náttfatnaöur o.fl. þess háttar.
□ Postulínsvörur.
□ Ungbarnafatnaöur.
□ Á 2. hæö er svo mesta húsgagna úrval landsins.
STEINAR — KARNABÆR — BELGJAGERÐIN —
HLJÓMBÆR — HUMMEL — SKÓHÖLLIN — VERSL.
FELL — VERSL. H0RNIÐ — 0LYMPÍA 0.FL.