Morgunblaðið - 15.02.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1983
Sendill á vélhjóli
Viö óskum eftir aö ráöa sendil á vélhjóli í hálft starf í
vetur, sem gæti oröiö fullt starf í sumar. Nánari upp-
lýsingar veitir Erna hjá okkur.
Frjálst framtak hf.
Ármúla 18
sími 82300
Bladburöarfólk
óskast!
Úthverfi Hjallavegur
fH*V9unMaMfe
x 5^eifen_
^ Smiðjuvegi 6 - Simi 44544
Meira en þú geturímyndad þér!
Moshe Arens — nýi varnarmálaráðherra Israel:
Talinn róiegri og yfir-
vegaðri en Ariel Sharon
Tel Aviv, 14. rebrúar. Al*.
HINN NÝI varnarmálarádherra ísrael, Moshe Arens, þykir vera af allt öðru
sauðahúsi en fyrirrennari hans, Ariel Sharon. Hann mun bera með sér meiri
yfirvegun og festu í ráðherrastólnum heldur en hinn frakki og áræðni
Sharon. í stöðunni er það mál manna að það geti ekki annað en verið til
bóta.
Arens fæddist í Litháen og
fluttist með fjölskyldu sinni til
Bandaríkjanna þegar hann var 14
ára gamall. Hann ólst síðan upp í
Philadelfíu. Hann nam verkfræði í
tækniháskólum bæði i Massa-
chusetts og Kaliforníu, síðast nam
hann flugtæknifræði og er stolt-
astur af vinnu sinni við hönnun
eldflauga fyrir ísraelska herinn.
Hann var áhangandi hægri sinn-
aðra flokka gyðinga allt frá ungl-
ingsárum og árið 1973 steypti
hann sér út í stjórnmálin, gekk í
Herut-flokkinn, sem er kjarni
Likud-flokksins. Frami hans var
skjótur.
Þegar Ezer Weizman sagði af
sér embætti varnarmálaráðherra
árið 1980, ætlaði Begin í fyrstu að
gera Arens að eftirmanni hans, en
féll frá því þar sem Arens var
andvígur friðarsamkomulagi Eg-
yptalands og ísrael. Arens taldi
fsraela vera að gefa of mikið eftir,
en hefur nýlega lýst yfir að allt
hafi farið vel og hann sé stuðning-
ismaður friðarbanda landanna.
Þess í stað gerðist Arens sendi-
herra fsraels í Washington og
hann lýkur starfi sínu þar innan
skamms. Bandaríkjamenn hafa
látið í ljósi áhyggjur um að Arens
eigi eftir að reynast erfiður við-
fangs, en ísraelsk blöð hafa gefið í
skyn að allur slíkur ótti sé út í
bláinn. Hann sé að vísu harðlínu-
maður og stefna hans komi til með
að vera mjög í anda Sharons. En
hann er ekki jafn ör og mun ólík-
legri en Sharon til að fá næstum
alla upp á móti sér. Reyndar hefur
hann oftar en einu sinni beitt sér
fyrir málamiðlunum sem hafa
verið Bandaríkjamönnum að
skapi. Til dæmis var það ekki sist
fyrir hans áhrif að fsraelar hættu
við að gera innrás í Vestur-Beirút
síðastliðið sumar. Hann stakk
einnig upp á því að landnám ísra-
Eitt hundrað drepnir í
fjöldamorðum í Assam
New York, 14. íebrúar. AP.
BANDARÍSKA tímaritið Newsweek segir að um 500 óbreyttir borgarar hafi verið
myrtir í Matabeland í Zimbabwe síðustu þrjár vikurnar. Blaðið hefur eftir Joshua
Nkomo, leiðtoga Matabele-flokksins, að daglega berist fregnir af frekari morðum,
„hundruð líka liggja rotnandi úti á víðavangi, villidýrum og hræfuglum til mikillar
ánægju,“ sagði Nkomo.
Það eru hersveitir hallar undir
forsætisráðherrann Robert Mugabe,
sem staðið hafa að hryðjuverkunum,
en hann sendi hina alræmdu 5. her-
deild sína inn í Matabeland í kjölfar
margra mannrána og fyrirsáta sem
stuðningsmenn Nkomo stóðu fyrir.
Fréttamaður Newsweek, Holger
Jensen, laumaðist inn í Matabeland
þrátt fyrir bann stjórnvalda og var
þar tjáð að hermennirnir hafi
hreinlega gengið berserksgang og
„Þetta er orðið með öllu óbæri-
legt,“ segir heimilisfaðirinn Tommy
Engström. „Kötturinn hefur haldið
vöku fyrir okkur á hverri einustu
nóttu í 6 vikur og þetta getur ekki
gengið lengur," bætir hann við
armæðulegur. Búið er að þaulkanna
loftræstistokka hússins, en án
árangurs.
Síminn hefur bókstaflega verið
rauðglóandi á heimili Engström frá
því af þessu fréttist. Allir eru reiðu-
búnir að ráðleggja fjölskyldunni
hvernig finna eiga kattarkvölina, en
myrt alla 20—45 ára gamla karl-
menn sem þeir náðu til, auk þess
sem þeir nauðguðu og myrtu fjölda
kvenna. Frásagnirnar voru hræði-
legar, fórnarlömbin valin gersam-
lega af handahófi og ýmist skotin til
bana eða stungin með byssustingj-
um, yfirleitt að ættingjum ásjáandi.
Þess voru jafnvel dæmi að ættingjar
væru píndir til að dansa á gröfum
ættingja sinna. Að sögn sjónarvotta
sögðu hermennirnir: „Svona förum
við með uppreisnarseggi."
ekkert gengur.
Talið er, að kisi hafi lokast inni
undir hlaða af vinnupallatimbri við
húsið er hann leitaði þar skjóls í
snjókomu. Útgönguleiðin hafi síðan
lokast.
Líklegast er talið, að kötturinn
hafi haldið lífi með því að sleikja
klakahelluna undir staflanum, en
dýrafræðingar eru ekki ginkeyptir
fyrir þeirri skýringu. Telja þeir að
útilokað sé að kötturinn lifi í sex
vikur án nokkurs matar, nema hann
eigi nú aðeins átta líf eftir.
Veður
víða um
heim
Akureyri 2 skýjað
Amsterdam +1 heiöskirt
Aþena 17 heiðskírt
Barcelona 7 léttskýjað
Berlín +2 skýjað
Brussel 0 skýjað
Chicago 5 skýjað
Dublin 8 rigning
Feneyjar 6 heiðskírt
Frankfurt 1 heiðskírt
Faereyjar 7 súld
Genf 1 skýjað
Helsinkí +4 heiðskírt
Hong Kong 15 skýjað
Jerúsalem 15 skýjað
Johannesarborg 28 skýjað
Kaupmannahöfn +1 heiöskírt
Kairó 22 heiðskírt
Las Palmas 18 léttskýjað
Lissabon 9 skýjað
London 2 skýjað
Los Angeles 18 heiðskírf
Madrid 3 heiðskfrt
Mallorca 9 skýjað
Malaga 8 rígning
Mexikóborg 18 heiöskírt
Miami 24 akýjað
Moskva -4 skýjaö
Nýja Delhí 21 heiðekírt
New York 4 heiðskfrt
Ósló 0 skýjað
París 0 skýjað
Peking 2 heiðskirt
Reykjavík 2 úrk. f grend
Rio de Janeiro 33 skýjað
Rómaborg 13 rigning
San Francisco 15 heiðskírt
Stokkhólmur -2 heiðskfrt
Tel Aviv 18 skýjað
Tókýó 8 heiöskírt
Vancouver 11 rigning
Vínarborg 2 heiöskirt
*
„()sýnilegur“ köttur veldur heilabrotum:
Hefur haldið vöku fyr-
ir íbúunum í sex vikur
Slokkhólmi, 14. fcbrúar. Al*.
AI> ÞVÍ er virðist ósýnilegur köttur hefur í sex vikur gert fjölskyldu í bænum
Faggeby f Dalarna í Mið-Svíþjóó lífið leitt með sífelldu mjálmi jafnt dag sem nótt.
Hefur kattarins verið leitað dyrum og dyngjum, en ekki fundist.
Tíu skíðamenn
farast á Ítalíu
Kóm, 14. febrúar. Al’.
TÍll manns fórust, er þrír kláfar með
skíðafólk um borð fóru út af sporinu
í fjalllendi Norður-Ítalíu á sunnudag
og hröpuðu 50 metra niður bratta
fjallshlíðina fyrir neðan. Er talið, að
hvassir sviptivindar hafi valdið slys-
inu, sem gerðist á mjög vinsælu
skíðasva-ði á landama-rum Ítalíu,
Krakklands og Sviss.
Þetta er versta slys af þessu tagi
á Ítalíu frá því að 42 manns fórust
í svipuðu slysi í Alpe di Cermis í
marz 1976.
Mynd þessi sýnir björgunarmenn á
slysstað við einn kláfanna.