Morgunblaðið - 19.03.1983, Síða 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
65. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verðstríð á olíu
enn fyrir hendi
- segir Al-Saud, bróðir Fahds konungs í Saudi-Arabíu
New York, 18. marz. AP.
„HÆTTAN á verðstrídi á olíu, sem næði til alls heimsins, er fyrír hendi“,
sagði Abdul Al-Saud, bróðir Fahds konungs í Saudi-Arabíu í dag. Bætti hann
því við, að þessi hætta myndi magnast til mikilla muna, ef Bretar lækkuðu
olíu sína niður fyrir það verð, sem OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja settu
fyrr í þessari viku.
Al-Saud sagði ekkert um, hve-
nær slíkt verðstríð gæti skollið á,
en taldi líklegt, að það myndi ná
jafnt til þeirra ríkja, sem aðild
ættu að OPEC sem hinna, er
stæðu utan samtakanna. „Það
land, sem veldur mestum áhyggj-
um, er England", sagði Al-Saud.
„Ef Englendingar lækka verð á
olíu sinni, kemst Nígería ekki hjá
því að lækka sína olíu,“ sagði hann
ennfremur. Ástæðan fyrir þessu
Hvarvetna í Finnlandi má sjá kosningaskilti þessa dagana, jafnvel við húsgrunn úti í skógi. Áhugi á kosningunum er
mikill og yfir 300.000 manns hafa þegar greitt atkvæði utan kjörstaða, sem er meira en nokkru sinni áður.
Atvinnuleysið aðalmál
fínnsku kosninganna
Helsingfors, 18. marz. Frá Harry Granberg, fréttaritara Morgunbladsins.
SKOÐANAKANNANIR í Finnlandi benda til þess, að jafnaðarmenn og
Einingarflokkur hægrimanna muni auka fylgi sitt í finnsku þingkosningun-
um, sem fram eiga að fara á sunnudag og mánudag. Er gert ráð fyrir, að þeir
muni fá um 25% atkvæða hvor. Þar sem ýmis pólitísk hneykslismál að
undanförnu hafa dregið úr áliti finnskra stjórnmálamanna yfirleitt, er talið,
að margir kjósendur eigi eftir að snúa baki við flokki sínum og kjósa á
annan veg nú en áður, enda eru finnsku þingkosningarnar mjög persónu-
bundnar. Ahugi á kosningunum virðist mikill og fleiri hafa greitt atkvæði nú
utan kjörstaða en áður.
Allir stjórnmálaflokkarnir hafa
lýst sig andvíga því, að dregið
verði úr almannatryggingum í
landinu. Þar sem þeir hafa ekki
viljað auka á skuldir ríkisins, þá
hafa þeir að þessu sinni ekki lofað
því að lækka skatta. Þvert á móti
má búast við því, að skattar hækki
og þá fyrst og fremst óbeinir
skattar. Þannig hefur þegar verið
tekin ákvörðun um að hækka sölu-
skatt úr 14% upp í 16% 1. júní nk.
og sennilega verður nauðsynlegt
að hækka þann skatt enn í haust
eða um næstu áramót.
Atvinnuleysið hefur verið mjög
á dagskrá í kosningabaráttunni,
en um 7% af vinnufæru fólki í
landinu er nú atvinnulaust. Allir
stjórnmálaflokkarnir þykjast
hafa sína lausn á því, hvernig
væri sú, að þessi tvö lönd fram-
leiddu sams konar olíu og kepptu
um sömu viðskiptavini.
Fréttastofa Nígeríu skýrði frá
því S dag, að Bretar og Nígeríu-
menn hefðu orðið sammála um
nauðsyn þess að tryggja stöðug-
leika á olíuverði á heimsmarkað-
inum og að framleiðsluríkin hvert
um sig fengju sanngjarna hlut-
deild í markaðinum.
leysa skuli þetta vandamál og
leikur ekki vafi á því, að það verð-
ur ofarlega á baugi í stjórnar-
myndunarviðræðum þeim, sem
fylgja í kjölfar kosninganna.
Utanríkismál hafa hins vegar
ekki verið mikið rædd í kosn-
ingabaráttunni. Undanskilin er þó
afstaðan til PLO, þar sem skoðan-
ir eru mjög skiptar. Vilja leiðtogar
sumra flokkanna bjóða Yasser
Arafat, leiðtoga PLO, til Finn-
lands en aðrir ekki.
Hitaveita í
Southampton?
Lundúnum, 18. mars.
London Press Service.
ÞESS KANN e.t.v. ekki aö vera
langt aö bíða, aö íbúar í gamalgró-
inni enskri borg fái inn um bréfa-
lúguna reikninga fyrir notkun
heitavatns í stað reikninga fyrir
olíu eöa gas.
Rannsóknir á jarðlögum undir
borginni Southampton á suður-
strönd Englands hafa leitt í ljós,
að þar er að finna mikið af heitu
vatni. Hafa sýni, sem tekin hafa
verið úr borholum, veitt ástæðu
til bjartsýni.
Alls hefur tekist að ná 13.000
lítrum á mínútu upp úr þeirri
holunni, sem gefið hefur besta
raun, en ekki er enn vitað með
vissu hvort nægilegt vatnsmagn
er fyrir hendi að réttlætanlegt sé
að leggja út í framkvæmdir upp
á þrjár milljónir sterlingspunda.
Núll-lausn
næst ekki
- segir Luns, aðalfram-
kvæmdastjóri NATO
Bnuwel, 18. marz. AP.
JOSEPH Luns, aöalframkvæmda-
stjóri NATO, sagöi í dag, aö svonefnd
núll-lausn Bandaríkjamanna varö-
andi meðaldrægar kjarnorkueld-
(laugar myndi ekki nást. Sagði Luns
ennfremur, að þörf kynni aö vera á
tillögum í þessu efni gagnvart Rúss-
um, sem gengju skemmra. Eftir sem
áöur væri núll-lausnin bezta lausnin,
en menn gerðu sér nú grein fyrir þvf,
að Rússar myndu aldrei ganga að
henni.
Markmið núll-lausnarinnar er
fólgið í því að hætta við að koma
fyrir 572 meðaldrægum eldflaugum
í Vestur-Evrópu gegn því að Sov-
étríkin eyðileggi birgðir sínar af
sams konar eldflaugum. Luns
sagði, að núll-lausnin væri óska-
takmarkið, en menn yrðu að sætta
sig við aðra lausn. NÁTO hefur áð-
ur samþykkt núll-lausnina og jafn-
framt þau áform, að byrjað verði á
því að koma hinum nýju eldflaug-
um fyrir snemma á næsta ári, ef
ekkert samkomulag næst I þeim
viðræðum, sem nú fara fram 1 Genf
milli Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna um takmörkun á þessum
vopnum.