Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
3
Þota Arnarflugs á Keflavíkurflugvelli í gær. f baksýn ekur Orion-flugvél frá varnarliðinu ( átt til flugbrautar.
Orion flugvélin er nákvæmlega eins og sú sem á þriðjudag fór út fyrir æfingasvæði sitt og var komin hættulega nærri
Arnarflugsvélinni. Morgunblaðið/ Kristján Einarsson.
Við höfum ekki komist í hann
jafn krappan áður. Maður heldur
að svona lagað eigi alls ekki að
geta komið fyrir. Við treystum
flugumferðarstjórum til að sjá um
að fjarlægð milli flugvéla sé það
mikil að hætta skapist ekki, og
höfum ekkert nema gott um þá að
segja. Og það er oft sem við sjáum
ekki flugvélar sem eru í næsta
nágrenni. En það er ljóst að
eitthvað hefur farið úrskeiðis ein-
hvers staðar að þessu sinni,“ sagði
Mekkínó.
Mekkínó er 29 ára gamall, verð-
ur þrítugur á morgun, en Viðar er
36 ára. Mekkínó hefur flogið þot-
um hjá Arnarflugi á sjötta ár og
verið flugstjóri á Boeing 737 (
u.þ.b. ár. Viðar hefur flogið þotum
eitt ár, en flaug áður á innan-
landsleiðum í áratug, og eru því
báðir þrautreyndir flugmenn.
„Við vorum þama í fullkomnum
rétti, vorum að fljúga nákvæm-
lega eftir heimild, en varnarliðs-
mennirnir voru á allt öðrum slóð-
um en þeir áttu að vera. Þeim var
einnig sagt að halda 12 þúsund
feta flughæð, en þegar við erum að
mætast segir hann við flugturninn
að hann sé að yfirgefa 13 þúsund
fet fyrir 12 þúsund, er sem sagt í
öðrum hæðum en honum hafði
verið áður sagt að fljúga í.
Þetta leið allt hjá á örfáum sek-
úndum og farþegarnir sýndu hina
mestu stillingu. Það kom sér vel
þarna hversu þessi flugvélarteg-
und er snögg í hreyfingum og lip-
ur. Hún lætur betur og miklu fyrr
að stjórn en stærri þotur. Ég hef
til dæmis flogið Boeing 707-tals-
vert og er vart hægt að bera það
saman hversu liprari Boeing 737
er.
Þegar ég sá flugvélina, var eina
hugsunin, sem skaust í gegnum
hugann á eldingarhraða, að forð-
ast árekstri, hugsanlegan harm-
leik. Ég þori ekki að hugsa þá
hugsun til enda hvað gerst hefði ef
Viðar hefði ekki komið auga á
Orion-flugvélina. Það eru stór orð
að segja að þá hefði orðið árekst-
ur, en ég tel mjög líklegt að ein-
mitt svo hefði farið. Þarna var
gott skyggni, við vorum milli
skýjalaga, en mér hefði ekki litist
á það hefðum við verið ( skýjum
þegar þetta gerðist," sagði Mekk-
ínó að lokum. — ágás.
„Reynum að láta
hverjum degi nægja
sína þjáningu“
- segir Steinar Berg ísleifsson um velgengni Mezzoforte
„ÉG HELD aö þetta hafi komið
mjög bærilega út hjá strákunum,“
sagði Steinar Berg ísleifsson, for-
stjóri Steina hf., er Morgunblaðið
náði tali af honum í Lundúnum til
þess að inna hann eftir því hvernig
strákunum í Mezzoforte hefði vegn-
að í sjónvarpsþættinum vinsæla Top
of the Pops.
Hljómsveitin fór utan á þriðju-
dag til upptöku, en þátturinn
sjálfur var unninn á miðvikudag
og sýndur á fimmtudagskvöld í
BBC. Talið er, að 12 milljónir
manna um gervallar Bretlands-
eyjar horfi á þáttinn í viku hverri,
enda eitt allra vinsælasta sjón-
varpsefnið þarlendis.
„Eg gat ekki merkt að strákarn-
ir væru taugaóstyrkir, enda höf-
um bæði ég og þeir reynt að halda
þeirri stefnu að gera okkur ekki of
miklar vonir um eitt eða neitt
fyrirfram og látið hverjum degi
nægja sína þjáningu að svo miklu
leyti, sem það hefur verið hægt.
Það er ákaflega erfitt að segja
til um hvað þátttaka Mezzoforte í
þessum þætti á eftir að gera fyrir
okkur í plötusölu. Það er ekki við
neina ákveðna reglu að styðjast í
þessum efnum, en hljómsveit get-
ur hins vegar ekki fengið betrí
kynningu en með því að koma
fram í Top of the Pops.“
Að sögn Steinars hefur plötu-
salan tekið geysilegan kipp á und-
anförnum dögum. Hún er þó enn-
þá langsamlega mest í suðurhluta
Englands. Litla platan mun hafa
selst í vel á sjötta tug þúsunda
eintaka og ekki er úr vegi að ætla,
að stóra platan hafi náð tuttugu
þúsund eintökum í vikulokin. Erf-
itt er þó að gera sér grein fyrir
sölunni þvi hún tekur mjög örum
breytingum þar sem þúsundir ein-
taka seljast nú á degi hverjum.
X
Askorunarlistar
afhentir í gær
f GÆR gengu 6 stuðningsmenn
Gunnars Thoroddsen á hans fund
og afhentu forsætisráðherra lista
með áskorunum um að hann fari í
sérframboð í komandi kosningum.
Að sögn eins af sexmenningunum,
höfðu eitthvað innan við tvö þús-
und manns ritað nöfn sin á list-
ana. Hann sagði ennfremur að
forsætisráðherra hefði tjáð þeim,
að hann hefði ekki enn gert upp
hug sinn en myndi tilkynna þeim
ákvörðun sina um helgina.
Samdráttur í sólar-
ferðum fyrirsjáanlegur
NOKKUR samdráttur virðist vera fyrirsjáanlegur á hinum hefðbundnu sól-
arlandaferðum íslendinga og um miðjan þennan mánuð voru bókanir í þær
um 20% minni en á sama tíma í fyrra. En að sögn Steins Lárussonar,
formanns Félags íslenzkra ferðaskrifstofa, hefur lifnað verulega yfir pöntun-
um í þessari viku.
Steinn sagði ennfremur, að
ferðaskrifstofumenn hefðu reikn-
að með samdrætti og væru nú
færri sólarferðir á markaðnum en
verið hefði, eða um 10 til 15%
minna framboð en í fyrra. Sagði
Steinn líklega ástæðu þessa, að
menn hefðu minni getu til ferða-
laga í ár og einnig venjur fólks
hvað varðaði ferðalög. Menn færu
nú í auknum mæli til Mið-Evrópu
í stað þess að fara í sólarlanda-
ferðirnar, sem ríkjandi hefðu ver-
ið á markaðnum undanfarin ár.
Steinn sagði, að í fyrra hefði
verið nokkur aukning í Mið-
Evrópuferðunum og það væri í
raun miklu þægilegra viðfangsefni
fyrir ferðaskrifstofurnar því þar
væru sætin keypt í áætlunarflugi
og væri hægt að hagræða fjölda
ferðalanga í hverri ferð. Þessi
ferðamáti minnkaði áhættu ferða-
skrifstofanna.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar:
Ekki byggt á svæði neðan
Sogavegar að ósk íbúanna
LANDSVÆÐIÐ á milli Sogavegar
og Miklubrautar, sem afmarkast
af Vonarlandi og Réttarholtsvegi,
verður ekki byggingarland heldur
útivistarsvæði, að því er fram kom
hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, formanni skipulagsnefndar, á
borgarstjórnarfundi á fimmtu-
dagskvöld.
Forsaga málsins er sú að
hugmynd um að gera þarna
byggingarreit var kynnt í skipu-
lagsnefnd í síðasta mánuði og
jafnframt var sýnt deiliskipulag
að byggingarreitnum, sem gerði
ráð fyrir því að hægt væri að
byggja þar þjónustubyggingar.
Síðan var ákveðið að kynna
deiliskipulagið íbúum í nágrenn-
inu og sagði Vilhjálmur að á
fundi með þeim hefðu komið
fram skoðanir þeirra á hug-
myndunum. Ibúarnir hefðu sagt
að svæðið væri töluvert nýtt sem
útivistarsvæði og teldu þeir
æskilegt að svo gæti orðið
áfram. Jafnframt lýstu þeir sig
reiðubúna til veita liðsinni sitt
til þess að gera svæðið að
skemmtilegra útivistarsvæði en
það nú væri.
„Það er nauðsynlegt að hafa
fullt samráð við íbúana um
framkvæmdir sem þessar og að
fengnu áliti þeirra, tel ég rétt að
taka tillit til óska íbúanna, enda
voru þær vel rökstuddar," sagði
Vilhjálmur. „Ég mun því leggja
til í skipulagsnefnd á fundi
næstkomandi mánudag, að þessi
reitur verði ekki byggingarreit-
ur, heldur útivistarsvæði, enda
tel ég það almennt i samræmi
við vilja fólksins í nágrenninu,"
sagði Vilhjálmur Þ.- Vilhjálms-
son.
Qpið í dag til kl 4
SAAB- eigendur athugiö,
tökum þann gamla upp í nýjan
-eða seljum hann fyrir þig
ef þú vilt heldur. Mikil
eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHH
SAAB
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA16, SIMAR 81530-83104