Morgunblaðið - 19.03.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
7
Kaffihlaðborð
Glæsilegt kaffihlaðborð veröur í félagsheimili Fáks á
morgun sunnudag. Húsið opnað kl. 14.30.
Fákskonur.
SÆKIÐ
NORRÆNAN LYÐHASKOLA
í Danmörku
Norræn mál, hljómlist, sund. Bjóöum einnig handíöir s.s. vefnað,
málun, þrykk, spuna, 6 mán. 1/11—30/4, 4. mán 3/1 —1/5.
Lágmarksaldur 18 ár. Skrifið eftir stundatöflu og nánari upplýsing-
um. Góöir námsstyrksmöguleikar. Norrænn ungdómur heldur saman.
Myrna og Carl vilbæk.
UGE FOLKEH0JSKOLE
DK-6360 Tinglev, tlf. 04 64 30 00
Hafa-baöskáparnir úr furu
eru komnir aftur. Fást í 3
litum.
VALD. POULSEN f
Suðurlandsbraut 10. Sími 86499.
Innréttingadeild 2. hæð.
Daihatsu bflamarkaður
Opiö í dag kl. 1- -5
árg. km litur verð
Daihatsu Charade XTE-Runabout 1982 17.000 vínr. met 165.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout 1982 20.000 silfurblár 160.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout Autom 1982 5.000 beige 175.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout Autom 1982 11.000 vínrauður 170.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout 1981 17.000 vínrauður 170.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout 1981 28.000 silfurgrár 140.000
Daihatsu Charade XTE-Runabout 1980 41.000 vínrauður 115.000
Daihatsu Charade XTE 5 dyra 1981 15.000 vínrauður 145.000
Daihatsu Charade XG 5 dyra 1981 15.000 vínrauður 140.000
Daihatsu Charade XTE 5 dyra 1980 23.000 kremgulur 125.000
Daihatsu Charade XTE 5 dyra 1980 30.000 kremgulur 115.000
Daihatsu Charade XTE 5 dyra 1980 43.000 vínrauður 110.000
Daihatsu Charade XTE 5 dyra 1980 45.000 blár met 110.000
Daihatsu Charmant 1600 LE 1982 15.000 beige 215.000
Daihatsu Charmant 1300 LE 1982 7.000 beige 185.000
Daihatsu Charmant 1400 1979 23.000 blár 100.000
Daihatsu Charmant 1400 1979 28.000 blár 85.000
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23. S. 85870 — 81733
ögbirtingablaó
Gefið út samkvænit lögum nr. 64 I6. des. 1943
Miflvikudaginn 16. mars 1983.
Óvenjuleg lausn
Því hefur lengi verið haldiö fram af forystusveit Alþýöubandalagsins
að flokkur hennar sé laus úr öllum tengslum við heimskommún-
ismann, miða flokksbroddarnir gjarnan við innrás herja heims-
kommúnismans í Tékkóslóvakíu í águst 1968 og segja að hún hafi
verið dropinn sem fyllti mælinn. Aðrir hafa dregið réttmæti þessara
staðhæfinga í efa og um þetta atriði hefur löngum verið deilt innan
Alþýðubandalagsins og utan. Nú hefur þessari deilu verið vísað til
skiptaráðandans í Reykjavík meö næsta óvenjulegum hætti.
Forvitnileg
erfðaskrá
Frá því hefur verið
greint, fyrst í Lögbirtingar-
blaðinu og síðan í Morgun-
blaðinu í gær, að Sigurjón
heitinn Jónsson hafi í arf-
leiðsluskrá mælt fyrir með
þessum hætti: „Eignarhluti
minn í húseigninni Bolla-
götu 12, Reykjavík, skal
verða fræðslu- og menning-
arstofnun á vegum Sam-
einingarflokks alþýðu,
Sósíalistaflokksins, og
starfi jafnan í anda sósíal-
ismans, eins og hann er
túlkaður af aðalhöfundum
hans, Marx, Engels og
Lenin.“ Erfðaskráin er
gerð 19. apríl 1%1 og þar
er mælt svo fyrir, að verði
Samciningarflokkur al-
þýðu, Sósíalistaflokkurinn,
lagður niöur, eða klofni
hann í fleiri flokka, .„starfl
stofnunin jafnan undir
stjórn þess flokks, sem
skipar sér í hina alþjóðlegu
fylkingu marxísk-lenín-
ískra flokka og er viður-
kenndur af henni."
Erfðaskráin er birt í
Lögbirtingarblaöinu til að
hver sá, sem telur til arfs
samkvæmt henni eða
ákvæðum laga um lög-
erfðarétt geti gefið sig fram
við skiptaráðandann í
Reykjavík. Verður fróðlegt
að hafa fregnir af því,
hvaða aðilar telja sig falla
innan þessarar erföaskrár
og njóta nægilegrar viður-
kcnningar hjá handhöfum
viðurkenningarvalds í
nafni heimskommúnism-
ans, húsbændunum í
Kreml.
Rök Alþýðu-
bandalagsins
Hér skulu tíunduð nokk-
ur rök sem valdamennirnir
í Alþýðubandalaginu gætu
fært fram því til stuðnings,
að þeir og flokkur þeirra sé
réttur eigandi eignarhluta
Sigurjóns Jónssonar í
Bollagötu 12.
1. A sögulegum stundum
og landsfundum er þess
jafnan minnst að þráður-
inn sé „óslitinn" frá
Kommúnistaflokki íslands
um Sameiningarflokk al-
þýðu, Sósíalistaflokkinn, til
Alþýðubandalagsins.
Stofnendur Kommúnista-
flokksins 1930, þeir Brynj-
ólfur Bjamason og Einar
Olgeirsson, eru enn í dag
lærimeistarar alþýðu-
bandalagsins í fræðum
þeirra Marx, Engels og
Lenins.
2. í stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins stendur:
„Markmið sósíalismans er
að breyta umhverfi og til-
veruskilyrðum mannsins í
það horf aö þau leyfl al-
hliða þroska mannlegra
hæfileika, eða eins og það
er orðað í sígildri skilgrein-
ingu þeirra Marx og Eng-
els: Sósíalisminn er þjóð-
félag þar sem frjáls þróun
einstaklingsins er skilyrði
fyrir frjálsri þróun heildar-
innar." I>etta markmið
sósíalismans er markmið
Alþýðubandalagsins.
3. Sumarið 1980 þegar
verkamcnn í Gdansk hófu
mótmæli gegn ofrfki
kommúnista og pólska
stjórnkerflnu, ritaði Kjart-
an Ólafsson varaformaður
Alþýðubandalagsins, for-
ystugrein í bjóðviljann, þar
sem hann hvatti þá til að
vera trúir hugsjónum Len-
ins.
4. í ræðu sem Ólafur R.
Grímsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalags-
ins, flutti á landsfundi
flokksins í nóvember 1980,
þegar Svavar Gestsson var
kjörinn formaður, sagði
hann meöal annars: „Sú
staðreynd að sterkasta
hugsjónaákall verkalýðs-
stéttarinnar (Kommúnista-
ávarpið innsk. Mbl.) og
grundvallarritgerð is-
lenskrar sjálfstæöishreyf-
ingar (hugvekja Jóns Sig-
urðssonar innsk. Mbl.)
voru samin fyrir röskum
130 árum, sýnir okkur hve
lengi tveir höfuðþræðir
okkar stefnu hafa legið
saman í tímans rás... Þótt
verkalýösstéttin hafi brotið
margan hlekkinn, sem
Marx og Engels vísuðu til
við lok kommúnLstaávarps-
ins, og yflr 100 þjóðríki
hafi verið stofnuð í öllum
heimsálfum á undanforn-
um áratugum, þá er alþjóö-
legt drottnunarvald auðs-
ins enn svo magnað, að
verkefnin á okkar tímum
eru bæði brýn og efniviður
mikilla örlaga."
5. í ágúst 1981 var Svav-
ari Gestssyni boðið til
Moskvu og var staðið
þannig að þvi boði, aö
hvorki íslcnska utanríkis-
ráðuneytið né sendiráð ís-
lands í Moskvu komu þar
nærri, þótt Svavar léti eins
og um opinbera ráðherra-
heimsókn hafl verið að
ræða. Aldrei hefur verið
skýrt frá því svo fullnægj-
andi sé, hverjir voru hinir
raunvcrulegu gestgjafar
Svavars. I>egar hann var
viðskiptaráðherra (vetur-
inn 1978—79) og umræð-
urnar um olíuviðskiptin við
Sovétríkin urðu sem mest-
ar, neitaði Svavar staðfast-
lega að fara til Moskvu og
ræða um olíuverðið, jafnvel
lét hann ekki undan hvatn-
ingu meöráðherra sinna
sem buðust þó til aö fara
með honum.
Skiptaráðandi
úrskuröar
Samkvæmt frestinum í
innköllun skiptaráðanda
hefur Alþýðubandalagið 4
mánuði til að gera upp við
sig hvort það gerir tilkall til
hluta af umræddri húseign
í samræmi við hin lögmætu
skilyrði hins látna. Þaö
kemur á hinn bóginn í hlut
skiptaráðanda að úrskurða,
hvort Alþýöubandalagið
„skipar sér í hina alþjóð-
legu fylkingu marxísk-len-
ínskra flokka “ og er viður-
kennt af húsbændunum í
Kreml.
Aukin þjónusta — nýtt útibú
Höfum opnað nýtt útibú að Engihjalla 8
Til aö geta þjónaö betur hagsmunum Kópavogsbúa höfum viö opnaö útibú í rúmgóöu
húsnæöi meö næg bílastæði í austurhluta Kópavogs.
Þetta ætti aö tryggja viðskiptavinum Sparisjóösins aukna og betri þjónustu.
® SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS
Digranesvegi 10. Sími 41900. Engihjalia 8.