Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
9
ÖáaigiM Dmífi
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 186. þáttur
Ég stenst ekki þá freistingu að
birta eftirfarandi bréf, með
miklu þakklæti:
„Akureyri, 10. marz 1983.
Heill og sæll,
kæri Gísli.
Ég les reglulega þætti þína
um íslenskt mál í Morgunblað-
inu. Ginnig hlusta ég á þáttinn
„Daglegt mál“ í útvarpi. Alúð
ykkar og þrautseigju við að
leiðbeina okkur um meðferð
tungunnar met ég afar mikils
og þakka.
Því miður getur stundum
sett að manni ugg við lestur
blaða og ekki síður við að hluta
á útvarp og sjónvarp. Þar eru
að gerast furðulegir hlutir.
Þeir sem flytja mál sitt í tækj-
um þessum, og ekki síst at-
vinnumenn í þeirri grein, nota
varla eignarfall orða, m.a. í
samsettum orðum þar sem
fyrri hluti útheimtir það.
Nokkur dæmi frá liðnum vetri:
Sogvirkjun, Steingrímstöð, við
guðþjónustu, allsherjaátak,
vegna eflingu, Suðvesturland
til Breiðafjarðamiða og svo það
allra nýjasta: Vegna komu Jó-
hannes páfa (sjónvarp 6/3), út-
varpdagskráin (sjónvarp 8/3)
og frumvarp Albert Guð-
mundssonar (sjónvarp 9/3).
Hver sem hlustar á tæki þessi
mun geta bætt hér við alltof
mörgum orðum. Menn eru
mjög sparir á stafina -r og -s
þó þeir bruðli mjög með orð.
Mér þykir þetta ákaflega leitt
á að hlýða. Hins vegar brosi ég
þegar sagt er „Vassgasshólar"
og „knass-byrna“.
Svo var það hraðmælsk og
greinargóð kona (sunnud. 6/3)
sem sagði frá ferð til Austur-
landa. Hún notaði aðeins eitt
lýsingarorð: „voðalegt". En til
að auka fjölbreytni sagði hún
„voða“. Ég skil ekki hvaða voða
og voðalegheit t.d. fegurð get-
ur haft í för með sér. En hitt
var alvarlegra: Hún sagði allt-
af „þú“ þegar ég hefði sagt
„maður“. Dæmi: „Þú kemst
ekki...“, „þú spyrð bara“, „þú
færð ekki þetta eða hitt“.
Kannski verður enskan
tungumál barnabarna okkar.
En verk ykkar málvöndunar-
manna og svo þeirra er skrifa
og tala mál okkar af smekkvísi
er samt virðingarvert.
Með kærri kveðju,
Kristján frá Djúpalæk.“
Þrautseigja okkar, sem
semjum þætti eins og þessa,
jafnvel árum saman, er vissu-
lega nokkur. En fyrst er þá að
nefna til skýringar, að áhugi
fjölda fólks er snarlifandi. Við
erum í sambandi við góða
menn um land allt. Það heldur
okkur við efnið, ásamt eigin
áhuga og þrákelkni. Bréf sem
þetta, er hér birtist í upphafi,
eru okkur ekki lítils virði.
Fyrsta atriðið, sem Kristján
frá Djúpalæk minnist á, er
vandasamt. Ekki er þó þannig
að skilja að ég velkist í vafa
um eitt eða tvö s í orðum eins
og þeim sem hann tilfærir:
Sogsvirkjun, Steingrímsstöð,
guðsþjónusta. En ég segi
vandasamt vegna þess, að
stundum búum við til stofn-
samsetningar (af þolfalli) en
ekki eignarfallssamsetningar,
sbr. vogrek, hreppstjóri, akur-
hæna, skipreika.
Þá komum við að eignar-
fallsendingum. Breiðafjörður
heitir fyrir vestan, einn fjörð-
ur, ekki firðir. Eignarfall af
orðinu fjörður í eintölu er auð-
vitað fjarðar, ekki fjarða, það
er eignarfall fleirtölu. Þess
vegna á að sjálfsögðu að segja
Breiðafjarðarmiða. Hitt er
bæði slappleiki i hugsun og
máli. Fyrir löngu hefur fólk
gert orðið latmæli að nokkurs
konar samheiti fyrir málvillu.
Menn nenna ekki að vanda
framburð sinn, þykir það of
fyrirhafnarmikið. Flestar
svokallaðar hljóðbreytingar
eru reyndar í frumeðli sínu
latmæli.
Kristján tók dæmi af mjög
hvimleiðu eignarfalli, sem nú
veður uppi; kvenkynsorð sem
hafa sterka beygingu að réttu
lagi, eru beygð veikt. Dæmi
Kristjáns: vegna eflingu, í stað
eflingar; önnur dæmi: til
Kristínu í stað Kristínar, mað-
urinn hennar Ingibjörgu, i stað
Ingibjargar.
Hinu hef ég, sem betur fer,
kynnst miklu sjaldnar, að
eignarfallsendingu væri
hreinlega sleppt eins og í
dæmum Kristjáns af Jóhann-
esi og Alberti. Satt að segja
hélt ég að þágufallsendingar
væru í miklu meiri hættu en
endingar eignarfallsins. Væri
slíkt líka trúlegra, ef borið er
saman við önnur tungumál.
Góður starfsbróðir, löngu lát-
inn, lét ekki vanta þágufalls-
endinguna, og það þótt orð
væru úr öðrum málum komin.
Hann kvað á sínum tíma fyrir
norðan:
Bærinn er í uppnámi,
arÍHtókrat á þeytingi.
Axel Schiöth á afmæli,
uppi er flagg á Hoephneri.
Málfátækt er mikið
áhyggjuefni. íslensk tunga er
svo rík af margs konar
áhersluorðum, að engum er af-
sökun í því að nota aðeins
voðalegt eða styttinguna voða.
Ef menn kunna ekki sitt eigið
tungumál með fjölbreytni þess
og blæbrigðum, er enn meiri
hætta á að önnur tungumál
fylli með einhverjum hætti í
skarðið. Þessi sama mann-
eskja og notaði eitt lýsingar-
orð, talaði eins og enskumæl-
andi maður sbr. notkun henn-
ar á persónufornafninu þú.
Það er hins vegar úr
frændmálum okkar annars
staðar á Norðurlöndum komið,
„aula-júið“ svonefnda sem
margir troða hér og hvar inn 1
setningar að óþörfu og til lýta.
„Látið þið hann í friði, þetta er
jú maðurinn minn,“ sagði kon-
an. Jú-inu er ofaukið. Ef okkur
þykir betra að lengja málið,
má setja þarna reyndar, en
það er alveg óþarft og slævir
stílinn fremur en hitt.
P.s. Mér þótti undarlega til
orða tekið í fréttum útvarpsins
6. þ.m. Sagt var að deilur hefðu
orðið á Búnaðarþingi „um út-
flutningsmál hrossa“. Ég hefði
sagt: um útflutning hrossa.
Hrossin eru í þessu sambandi
algerir þolendur. Það er mál-
efni sem menn verða að fjalla
um, og geta auðvitað deilt um,
hvort selja eigi íslenska hesta
úr landi eða ekki.
Hafnarfjöröur
Til sölu m.a.
Reykjavíkurvegur
2ja herb. nyleg íbúö f fjölbýlis-
húsl. Suöur svalir. Verö
850—900 þús.
Öldugata
3—4ra herb. aðalhæð í tvíbýl-
ishúsi. fbúöin er nýstandsett.
Verö kr. 1 mlllj.
Suöurgata
3ja herb. aöalhæö í tvíbýlishúsi.
ibúöin er nýstandsett. Verö kr.
1 millj.
Strandgata
3ja herb. íbúö um 80 fm f eldra
steinhúsi í miöbænum. Verö kr.
800—850 þús.
Sléttahraun
2ja herb. góö endafbúö á 1.
hæö í fjölbýlishúsi. Bílskúr fylg-
Ir. Verö kr. 900—950 þús.
Smárahvammur
Einbýlishús ó tveimur hæöum
alls 230 fm. Fallegt útsýni.
1100 fm byggingarlóö ó góöum
staö ó Alftanesi.
Opiö í dag 1—4
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 - S: 50764
VALGEIR KRISTINSSON, HDL.
Allir þurfa híbýl
★ Sérhæö Kópavogur
Giæsileg efri sérhæö viö Digranesveg. Tvær stofur, 3 svefnherb.
eldhús, þvottur og baö, arinn f stofu. Mikiö útsýni. Bflskúr.
★ Hvassaleiti 4ra herb.
Mjög góö fbúö, stofa, 2—3 svefnherb., eldhús og baö. Snyrtileg
sameign. Bílskúr. Ákv. sala.
★ Eskihlíö
Glæsileg 5 herb. íbúö á 2. hæö. 2 stofur, 3 svefnherb. Eldhús og
baö. Kælir f íbúöinni. Skipti á 3ja herb. fbúö í nógrenninu.
★ Kaplaskjólsvegur —
5 herb.
Endaíbúö. Stofa, 4 svefnherbergi, eldhús og baö. Útsýni. Ákv. sala.
★ Laugaráshverfi
Nýleg glæsileg 5 herb. 135 fm sérhæö. fbúöin er 3 svefnherb., tvær
stofur, eldhús og baö. Allt sér.
★ í smíðum
2 íbúöir f nónd viö Borgarspítalann. Afh. fokheidar eöa lengra
komnar.
★ Engihjalli
Góö 3ja herb. íbúö. Stofa, 2 svefnherb., eldhús og baö. Fallegar
innréttingar. Mikil sameign. Akv. sala.
Sölumaöur svarar í síma 45625 í dag.
HÍBÝU & SKIP
Sölustj.: Hjörlsifur Garóastræti 38. Sími 2S277. Jón Ólafsson
4 } MARKAflSÞJÍNUSTAN A #
♦ Opiö 1—4 V
♦
♦
t
♦
♦
Kópavogur — Vantar
Viö leitum aö sérhæö eöa húsi meö bílskúr eöa bílskúrsrétti fyrir
mjög góöan kaupanda. Glæsileg 3ja herb. meö bílskýli getur oröiö
hluti af greiöslu.
Goöheimar — sérhæð
Mjög rúmgóö 160 fm sérhæö
meö 2 aðgreindum stofum og
3—4 stórum svefnherb. Góöur
Sólheimar — raöhús
Ca. 200 fm alls ó 2 hæðum. Inn-
byggöur bílskúr. Makaskipti
möguleg á góörl 4ra herb. íbúö
á 1. hæð. Verö 2,4—2,5 millj.
♦
♦
t
♦
♦
♦
^ bílskúr. Verð 2,3—2,4 mlllj
• Ml'iiiiUllrf
A
26933 26933
OpiðídagH—16.
Álfheimar — parhús
Eigna
markaðurinn
Hatnarstræti 20. sími 26933 (Nyja husinu við Lækjartorg)
A
A
A
A
150 fm ibúð á tveimur hæöum sem skiptist í 4 svefnherb.,
tvær stofur. Allt sér. Bílskúr. Glæsileg eign.
Tunguvegur — raðhús
140 fm raöhús sem skiptist í 3 svefnherb., ein stofa. Góð
eign.
Hvassaleiti
90 fm jarðhæö í þríbýlishúsi. 2 svefnherb., 2 stofur. Ca. 20 fm
upphitaö geymslupláss.
Kambsvegur
100 fm risíbúö, 2 svefnherbergi, 2 stofur. Svalir. Góð eign.
Kóngsbakki
80 fm góö íbúð á 1. hæö. 2 svefnherb., ein sfofa. Góö eign.
Vantar
A
Raöhús í Árbæ eða Hafnarfirdi. Fjársterkur kaupandi.
3ja til 4ra herb. íbúð í Fossvogi eða Háaleitisbraut og allar
góðar eignir á söluskrá.
Einkaumbod fyrir Aneby-hús á isiandi.
tcS
A
&*£*£*£*£*£*£*£*$»£*£*£*£*£«3
SIMAR 21150-21370
S01USTJ LARUS Þ VALOIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HOL
Til sölu og sýnis auk annarra elgna:
Úrvalsgott raöhús í Neöra-Breiöholti
Við Réttarbakka Samt. um 215 fm. Innréttingar og allur búnaöur húss-
ins er mjög vandaöur. 5 svefnherb., innb. bflskúr. Ræktuö lóö. Glœai-
logt útsýni. Teikning og nánarl upplýsingar é skrifstofunni.
Stór og góö skammt frá Landakoti
5 herb. íb. um 120 fm á 3Ju hæö í þríbýlishúsi. Nokkuö endurbætt.
Rúmg. geymsla í kjallara og 14 Im gott fbúöarherb. Stór eignarlóö,
ræktuö.
6 herb. íbúö viö Asparfell
í háhýsi um 136 fm. 4 rúmg. svefnherb., Sér Inng. af svölum. Bflskúr.
Fullgeró sameign. Frábært útsýni.
5 herb. íbúö viö Nökkvavog
A hæð og í rlsi í tvíbýllshúsi. Sér inng., danfosskerfi, bílskúr, stór
trjágaróur.
2ja herb. íbúöir viö:
Bragagötu í kj. um 60 fm. Sér hlti. Samþykkt. Stór og góó.
Jöklasel 1. hæö, 70 fm f enda. Úrvals fbúö, fullbúin undir tréverk. Sér
þvottahús, fullgerö sameign. Til afh. nú þegar.
3ja herb. íbúöir við:
Barmahlíó í kj. um 85 fm, stór og góó, sér inng. Nokkuó endurbætt.
Sigtún í kj. um 75 fm, nýtt eldhús, nýtt baö. Sér hltl. Laus 1. maí nk.
Hraunbæ 2. hæö 87 fm, stór og góð. Rúmg. herb. í kj. fylglr.
Melgeröi Kóp. efri hæö f tvíbýtl um 95 fm. Stór og góö, stór bflskúr.
Glæsllegt lóð, frábært útsýnl.
4ra herb. íbúöir viö:
Barmahlíó 2. hæö 120 fm, ný eldhúsinnréttlng, nýtt gler. Sér hiti. Bíl-
skúrsréttur.
Skipasund þakhæó, 90 (m, sér hltl, sér þvottahús. Bílskúrsréttur.
Hratnhóla 4. hæó í háhýsl 90 fm. Mjög góö, útsýni.
Skammt fró Landspítalanum
Vel byggt steinhús, tvær hæólr og kjallarl. Grunnflötur um 100 fm. Getur
verðir þrjár íbúöir. Hentar ennfremur sem verslurar- og/eöa skrlfstofu-
húsnæói Teikning á akrifstofunni.
Seljendur athugiö:
Höfum á skrá fjölda fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaakipti, þar
á meöal óskast sérhasöir i skiptum fyrlr einbýllshús, svo og einbýlishús f
skiptum fyrlr sérhæðir eóa raöhús. Allar upplýsingar trúnaöarmál.
Opiö í dag laugardag
kl. 1—5.
Lokað á morgun sunnudag. LAUGAVEGI18SÍMAR21150-2j
AIMENNA
FASTEIGNASAl A"