Morgunblaðið - 19.03.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
Alkirkjuráðið:
Fordæmir morðið
á Garcia Villas
(ienf, 18. mars. AP.
ALKIRKJURÁÐIÐ hefur lýst vanþóknun sinni á því sem það kallar morðið á
forseta mannréttindanefndar El Salvador. Marianella Garcia Villas.
Garcia Villas var skotin til bana
fyrr í þessari viku á svæði þar sem
mikil átök hafa geisað miili
skæruliða og stjórnarhersins, ná-
lægt eldfjallinu Guazpa. Mann-
réttindanefndin í E1 Salvador seg-
ir, að Villas hafi verið stödd á
þessum slóðum til að kanna hvort
stjórnarherinn notaði efnavopn og
napalm-sprengjur í viðureigninni
við skæruliða. Talsmaður stjórn-
arinnar heldur því hins vegar
fram, að lík hennar hafi fundist
með líkum 22 skæruliða, sem hafi
gert stjórnarhermönnum fyrirsát
en fallið í átökum við þá.
Alkirkjuráðið segir í yfirlýsingu
sinni, að Villas hafi verið „myrt á
grimmilegan hátt“ þegar hún hafi
verið að vinna „aðdáunarvert
starf". Alkirkjuráðið líkti Villas
við píslarvott og lofaði mjög „bar-
áttu hennar fyrir mannréttindum
og friði i E1 Salvador". Lýst var
yfir „djúpri hryggð" vegna dauða
Villas og sagt, að vonandi gæti
hann „opnað dyrnar fyrir friði og
sáttum“ í E1 Salvador.
Páfa boðið til
Júgóslavíu
Vaiikanið, 18. mars. AP.
Korystulið júgóslavnesku kirkj-
unnar voru á ferð í Vatikaninu í
vikunni og notaði þá tækifærið og
bauð Páli páfa 2. í opinbera heim-
sókn til Júgóslavíu. Fyrirliði júgó-
slavnesku guðsmannanna fór Alojz-
ij Kustar erkibiskup og bað hann
Páfa vera svo vænan að koma til
Júgóslavíu og styrkja slavana I
trúnni.
Reiknað er með því að Páfi hafi
mikinn áhuga á heimboðinu. Hann
fer til Póllands í júní og það verð-
ur 18. utanlandsferð hans frá því
hann tók við embætti 1978. Ekki
var nefndur ákveðinn dagur í sam-
bandi við heimboðið til Júgóslavíu
en kirkjan þar í landi hefur mikil
hátíðahöld á prjónunum árin 1984
til 1985.
Jóhannes Páll
Yfirkjörstjórn í
Suðurlandskjördæmi
tilkynnir
Framboðsfrestur vegna Alþingiskosninga 23. apríl
nk. rennur út þriðjudaginn 22. marz nk.
Framboðslistum ásamt samþykki frambjóðenda og
listum með tilskildum fjölda meömælenda ber aö
skila til formanns yfirkjörstjórnar, Kristjáns Torfason-
ar, bæjarfógeta í Vestmannaeyjum, fyrir kl. 24.00
þann dag. Einnig má skila framboöum til Páls Hall-
grímssonar, fyrrverandi sýslumanns í Árnesþingi,
Selfossi, fyrir lok framboösfrests.
Framboöslistar veröa úrskuröaöir á fundi yfirkjör-
stjórnar, sem haldinn veröur á skrifstofu sýslumanns-
ins í Árnesþingi aö Höröuvöllum 1, Selfossi, miöviku-
daginn 23. mars nk. kl. 14.00.
Yfirkjör8tjórn í Suðurlandskjördæmi,
Kristján Torfason,
Páll Hallgrímsson, Jakob Havsteen,
Hjalti Þorvarðarson, Vigfús Jónsson.
Bladburóarfólk
óskast!
Vesturbær Austurbær
Granaskjól Grettisgata 36—98
Seilugrandi Hverfisgata 63—120
Mota Pinto hefur tekið við Sósíal-
demókrataflokknum.
Mario Soares er spáð sigri. Lucas Pires, yngsti flokksleiðtogi í
Evrópu, hefur tekið við forystu
CDS.
Portúgal:
Tveir flokkar hafa
sett upp ný andlit
- en Soares spád sigri í væntanlegum kosningum
Kosnmgabarattan i Portúgal er að hefjast þessa dagana, en þar verða
þingkosningar tveimur dögum síðar en hér, þ.e. 25. aprfl. Flokkarnir hafa
birt stefnuskrár sínar og sýnt er að þar sem víða annars staðar verður
fyrst og fremst kosið um efnahagsmálin, enda hafa þau reynzt Portúgöl-
um erfið, verðbólga er þar um þrjátíu prósent, og atvinnuástand með
bágara móti. Þó svo að kosningar hafi verið tfðar f Portúgal þessi níu ár,
sem eru liðin síðan byltingin var gerð í landinu, búast fréttaskýrendur við
að kosningaþátttaka nú verði góð, enda hafi sjaldan verið jafn kreppt að
almenningi og síðustu tvö árin, eða
við.
Töluvert nýr svipur er kominn
á forystu tveggja þeirra flokka
sem mynduðu Alianca Democrat-
ica, en það hefur nú verið endan-
lega leyst upp, þ.e. Miðdemó-
krataflokkinn, CDS, og Sósíal-
demókrataflokkinn, PSD. Báðir
hafa nýlega haldið flokksþing og
var þá skipt um forystumenn til
að leiða kosningarnar og þau
skipti munu áreiðanlega hafa sitt
að segja í komandi baráttu.
Diego Freitas do Amaral, sem
var varaforsætisráðherra í stjórn
Pinto Balsemaos og einnig for-
maður CDS, sagði af sér for-
mannsembættinu á flokksþinginu
og hefur snúið sér að kennslu, en
hann er prófessor í lögum. Do
Amaral, Victor Sa Machado,
fyrrv. utanríkisráðherra og einn
af varaformönnum flokksins, og
ýmsir þeir, sem stóðu að stofnun
CDS á sínum tíma, stefnu að því
að fá Luis Barbosa, núv. heil-
brigðismálaráðherra, sem for-
mann. Eftir nokkrar sviptingar
varð þó önnur stefna ofan á og
kjörinn formaður var Lucas Pir-
es. Hann gerði á fundinum
bandalag við Adraianou Moreira,
sem var á árum áður ráðherra í
stjórn Salazaars svo og Basilio
Horta, fyrrv. viðskiptaráðherra.
Kjör Pires mun óhjákvæmilega
leiða til þess, að flokkurinn sem
hefur verið hófsamur miðflokkur,
færist nú lengra til hægri og
hlýtur að teljast hreinn hægri
flokkur samkvæmt stefnumiðum
frá því stjórn Pinto Balsemaos tók
þeim, sem urðu ofan á á flokks-
þinginu. Aftur á móti er svo með
öllu óljóst hvernig hið nýja andlit
flokksins mun verka á háttvirta
kjósendur. Pires býður fram
„frjálslynda þjóðernisstefnu"
sem hefur út af fyrir sig ekki ver-
ið skilgreind að neinu ráði, en
mun kannski skýrast í kosn-
ingabaráttunni. Það er engum
blöðum um það að fletta að það er
mikið áfall fyrir flokkinn að Do
Amaral skuli með öllu hafa dreg-
ið sig út úr starfi fyrir hann, enda
blandast engum hugur um að
persónulegar vinsældir og vax-
andi virðing, sem Do Amaral
naut, átti sinn drjúga þátt í vel-
gengni flokksins. Raddir eru á
kreiki um að Do Amaral hyggist
bjóða sig fram til forseta 1985,
þegar kjörtímabil Antonio Ram-
alho Eanes er á enda.
Lucas Pires er aðeins þrítugur
að aldri og líklega með allra
yngstu flokksforingjum í Evrópu
og þótt víðar væri leitað. Hann
gekk í flokkinn eftir hvatningu
Do Amaral og starfaði með hon-
um um skeið, þykir vel gefinn
maður sem nýtur álits, en það
veit náttúrulega enginn um for-
ystuhæfileika hans.
Innan PSD hefur Mota Pinto,
fyrrverandi forsætisráðherra,
verið kjörinn til að leiða kosn-
ingabaráttu sósíaldemókrata og
með honum þeir Eurico de Melo,
sem nýtur mikils fylgis í
N-Portúgal og hefur stuðning
kaupsýslumanna og athafna-
manna, og Nascimento Rode-
riques, sem hefur aftur á móti
töluvert fylgi verkalýðssamtaka.
Mönnum sem fylgja PSD, þykir
vel hafa til tekizt með val á for-
ystumönnum og enginn velkist í
vafa um greind og sköruleika
Mota Pinto og þykir það fagnað-
arefni, að samstaða skuli hafa
náðst innan flokksins, þar sem
hann var allur meira og minna
rústaður eftir stjórnartíma
Balsemaos.
Fréttaskýrendum og heimild-
um Mbl. ber ásamt um, að hvað
sem andlitslyftingu PSD og CDS
líður, muni það þó verða Sósíal-
istaflokkur Mario Soares sem
verði sigurvegari kosninganna.
Soares hóf að reka kosningabar-
áttu löngu áður en Eanes forseti
ákvað að leysa upp þingið og
hann fer ekki f neina launkofa
með það að PSD-flokkur hans sé
sá eini sem fólkið í landinu muni
nú halla sér að, þegar svo mikið
öryggisleysi er innan hinna
flokkanna. Honum til hægri
handar situr Jaime Gama, þing-
maður frá Azor-eyjum og innan-
ríkisráðherra í stjórn Soares
1976. Mario Soares hefur komið
fram sem hinn trausti landsfaðir
í aðdraganda baráttunnar og
þeirri kreppu sem Portúgal hefur
verið í um langa hríð. Nú er sem
sagt margt sem bendir til þess að
Soares og flokkur hans muni fá
meirihluta eða alltjent nærri því
og þó svo að Soares hafi unnið að
því að hreinsa flokkinn undan
marxískum kröftum og alls konar
smávinstribrotum, sem hafa ver-
ið innan vébanda hans, er að mati
sérfróðra fátt eitt sem bendir til
þess að kommúnistar muni auka
við 15 prósent fylgi sitt, að
minnsta kosti ekki svo neinu
nemi.
Ástralía:
Hawke andsnúinn konungdæminu
Lundúnir, 18. mars. AP.
KARL Bretaprins, Díana prinsessa af Wales og sonur þeirra, hinn 9 mánaóa
gamli William, lögðu í gærkvöldi upp í 6 vikna opinbera heimsókn til Ástralíu
og Nýja Sjálands. Verða þau fjórar vikur í Ástralíu og tvær í Nýja Sjálandi.
Heimsóknin gæti haft áhrif á þá spurningu sem upp er komin í Ástralíu um
hvort landið ætti að slíta hinum konunglegu tengslum við Bretland.
máli,“ bætti Hawke við og vildi
Hinn nýi forsætisráðherra
Ástralíu, Bob Hawke, var spurður
í viðtali við BBC, hvort hann áliti
að Karl yrði boðiegur konungur
Ástralíu er hann tekur við af móð-
ur sinni, Elísabetu II. Hawke
svaraði að hann teldi ekki að Ástr-
alía ætti að vera konungsríki, það
færi betur að í landinu væri lýð-
ræði. „En það skiptir ekki höfuð-
ekki ræða málið nánar.
Þrátt fyrir þetta er búist við að
móttökurnar verði eins og best
verður á kosið, enda eru fjölmarg-
ir Ástralíumenn hlynntir kon-
ungsfjölskyldunni og líta á hana
sem þjóðhöfðingja sína.
Þetta verður bæði lengsta og
erfiðasta ferðin sem Díana hefur
farið með Karli eiginmanni sínum
síðan þau gengu í það heilaga.
Munu þau heimsækja öll horn
Ástralíu. William litii fer með til
Ástralíu, en fær ekki að ferðast
með þeim, hann mun dvelja í góðu
yfirlæti í Woomargama í New
South Wales, en þar hefur ekki
rignt í fjögur ár. Yfirleitt hafa
ríkisarfar ekki ferðast með for-
eldrum sínum, en Díana hefur
hingað til lagt á það þunga
áherslu að William fylgi henni
eins oft og komið verður við.