Morgunblaðið - 19.03.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
23
Síðasti konungur
ítala látinn í Genf
Kóm, 18. mar8. AP.
SÍÐASTI konungur ítala, Umberto II, lést í dag í Genf í Sviss ad því er
Falcone Lucifero, fyrrum yfirmaður hirðarinnar, tilkynnti í Róm. Umberto II
var 78 ára að aldri þegar hann lést og hafði lengi verið mjög sjúkur.
Umberto II var neyddur í útlegð
árið 1946 eftir að hafa setið á kon-
ungsstóli i aðeins 26 daga og alla
tíð síðan barðist hann fyrir því að
fá að snúa heim. í fyrra, þegar
hann var rúmfastur vegna mein-
semdar í beinum, fór hann fram á
það að fá að sjá í síðasta sinn ít-
ölsku borgirnar Torínó, Napólí og
Róm og tóku landar þeirri bón
hans almennt mjög vel. í febrúar
sl. tók þingið fyrsta skrefið í þá
átt að afnema bannið við dvöl kon-
ungsfjölskyldunnar í landinu og
studdu það allir flokkar nema
kommúnistar, sem sátu hjá.
Faðir Umbertos, Victor Emm-
anuel III, var konungur á Ítalíu á
valdatíma Mussolinis, 1922—43,
en raunveruleg völd hans voru
engin. Hann sagði af sér 9. maí
1946 í þeirri von, að konungsveldið
Leikhúsið í
Epidaurus und-
ir skemmdum
Aþenu, 18. marz. AP.
HIÐ forna hringleikahús í Epidaur-
us í Suður-Grikklandi er við að láta
undan þunga nær 500.000 ferða-
manna, sem taka sér sæti þar á
hverju ári. Skýrði talsmaður grísku
fornleifastofnunarinnar frá þessu f
gær. Sagði hann, að sætin, sem eru
úr steini, hefðu sigið „marga senti-
metra“, frá því að hringleikahúsið
var byggt á fjórðu öld fyrir Krist.
Óttast fornleifafræðingar, að leik-
húsið, sem tekur 20.000 áhorfendur,
þegar það er fullt, kunni á næstunni
að verða fyrir verulegum skemmd-
um, ef ekkert verður að gert. Það er
eitt stærsta hringleikahús Grikk-
lands.
Þá sagði talsmaðurinn ennfrem-
ur, að nútíma leiksviðsútbúnaður,
sem komið er fyrir í þessu forna
leikhúsi til notkunar við árlegar
sumarsýningar á hinum grísku
harmleikjum frá því í fornöld,
hefði valdið skemmdum á leikhús-
inu. í framtíðinni er áformað að
þekja leiksviðið með sérstökum
dúk. Jafnframt á að semja áætlun
um, hvernig leikhúsið verði betur
varðveitt í framtíðinni, en það er
eitt bezt varðveitta hringleikahús
úr steini við allt Miðjarðarhaf.
mætti lifa áfram og tók þá sonur
hans við. ítalska þjóðin var hins
vegar óánægð með tengsl Savoy-
ættarinnar við Mussolini og í
þjóðaratkvæðagreiðslu 2. júní
1946 var ákveðið að afnema kon-
ungsveldið. Umberto fór þá í út-
legð til Portúgals.
Umberto lifði fremur viðburða-
snauðu lífi í útlegðinni. Hann var
mikill áhugamaður um listir og ít-
alska sögu, svaraði samviskusam-
lega öllum bréfum, sem honum
bárust, og beið alltaf eftir því að
fyrrum þegnar hans kveddu hann
heim á ný. Það kall kom hins veg-
ar aldrei.
Noregur:
Dómur kveðinn upp
yfir Arnfinn Nesset
Þrándheimi, 18. marn. AP.
ARNFINN Nesset, fyrrum forstöðumaður fyrir hjúkrunarheimili í Orkdal í
Noregi, var í dag dæmdur í 21 árs fangelsi og tíu ára öryggisgæslu að
fangavistinni lokinni fyrir morð á 22 sjúklingum.
Umberto II þegar hann tók við kon-
ungdómi á Ítalíu.
Réttarhöldin yfir Nesset hafa
staðið í fimm mánuði og hafa alls
130 manns borið vitni. Nesset hef-
ur fylgst vel með málarekstrinum
og fyllt 18 bækur með ýmsum at-
hugasemdum, en hann var þó ekki
viðstaddur í dag þegar dómurinn
var kveðinn upp. Það tók dómar-
ann hálfa klukkustund að lesa upp
dómsorðið og kom þar fram, að
lögreglan hefði rannsakað dauða
61 sjúklings, sem henni hefði þótt
vera með grunsamlegum hætti.
Þegar Nesset var handtekinn ját-
aði hann strax að vera valdur að
Vinnufriður tryggður
í Svíþjóð á elleftu stundu
Stokkhólmi. 18. mars. Frá frétU ritara Mbl., (íuðfinnu Ragnarsdóttur.
SVÍAR varpa nú öndinni léttar eftir að samningar náðust í nótt við ríkis-
starfsmenn. Lengi vel var útlit fyrir, að til verkfalls myndi koma en þá hefði
allt innan- og utanlandsflug stöðvast og einnig ferjusamgöngur milli Svþjóð-
ar, Danmerkur og Þýskalands.
Ekki eru allir ásáttir um hver
það er, sem er sigurvegari i þessu
langa og brösótta launastríði.
Kannski er það sjálf sænska þjóð-
in, sem slapp við meiriháttar
verkföll þótt oft munaði mjóu.
Það var í síðustu viku, sem LO,
verkalýðssamtökin, sömdu við at-
vinnurekendur. Upphaflega höfðu
atvinnurekendur boðið 0% og LO
krafist þess að fá 2,2%. Eftir mik-
ið þref og tæplega tólf klukku-
stunda verkfall náðust samningar
um 1,9% launahækkun og það,
sem stríðið stóð kannski helst um,
launauppbætur til jafns við þá,
sem vinna í iðnaði, hjá fyrirtækj-
um, sem skila hagnaði. Hér er um
að ræða launauppbætur fyrir utan
hina venjulegu samninga. At-
vinnurekendur hafa hins vegar
lengi viljað losna við launaupp-
bæturnar og telja þær spilla fyrir
eðlilegum samningum. Undanfar-
in fjögur ár hafa launaupp-
bæturnar verið hærri en kaup-
hækkanirnar svo launþegar hafa
af skiljanlegum ástæðum ekki
viljað sleppa þeim.
Það var líka um launauppbæt-
urnar, sem aðalstríðið stóð hjá
opinberum starfsmönnum, og alla
síðustu viku bönnuðu þeir eftir-
vinnu til að ýta undir kröfur sínar.
Á fimmtudagskvöldið samþykktu
svo allir opinberir starfsmenn
1,7% kauphækkun nema þeir, sem
vinna beint hjá ríkinu. Þeir gerðu
sér að vísu að góðu að fá þessa
kauphækkun en þeir kröfðust þess
ERLENT
Óskemmtilegur farþegi
Orlando, Florida, 18. mars. AP.
MAÐUR að nafni Brad
Gwinn lenti í óskemmti-
legri reynslu með bifreið
sína í vikunni. Hann fór
með bifreiðina í allsherj-
ar skoðun og er bifvéla-
virkjarnir opnuðu vélar-
lokið hrukku þeir illa
við. Við þeim blasti 1,3
metra löng slanga sem
sat á blöndungnum og
bauð þeim byrginn.
Þeim var ljóst að þeir
myndu ekki hefja störf
á bifreiðinni í bráð, en
er fólk streymdi að til
að virða ófögnuðinn
fyrir sér, styggðist
slangan og smaug niður
með hægri framlukt-
inni og hreiðraði um sig
við framhjólið. Gwynn
leið ekki alls kostar vel
er hann ók heim, „ég
horfði meira á fæturna
á mér heldur en götuna,
vissi ekki hvort hún
gæti skriðið inn í bílinn
eftir miðstöðvarhos-
unurn," sagði hann.
Samstarfsmaður
Gwinns, Henry Lanier,
bjargaði málunum,
hann eyddi heilum
morgni í að skrúfa
framhluta bílsins í
sundur og tókst loks að
hafa hendur í „hári“
slöngunnar. Hann tjáði
mönnum að ef enginn
auglýsti eftir kvikind-
inu, myndi hann sleppa
því í bílskúr sinn til að
halda músastofninum
þar í skefjum.
dauða 30 þessara manna en dró
játninguna síðar til baka. Hann
var ákærður fyrir 25 morð en
sakfelldur fyrir 22 og eina morð-
tilraun.
Dagblöðin í Noregi skýra frá
því, að kostnaðurinn við réttar-
höldin nemi um 15 milljónum ísl.
kr. Gjaldkeri réttarins segir þó, að
reynt hafi verið að halda útgjöld-
unum í lágmarki, jafnvel kaupun-
um á 30 rottum, sem kostuðu 110
kr. hver. Þær voru notaðar til að
kanna áhrif eitursins curacit, sem
Nesset notaði við morðin.
að auki að ríkið héldi áfram samn-
ingum við þá um ráðningaröryggi
þeirra án þess þó að vilja lofa
vinnufriði á meðan. Ríkisstarfs-
mönnum er mikið í mun að trygg-
ingu fyrir því, að þeim verði ekki
sagt upp þótt harðni á dalnum, og
þeir hafa lengi reynt að semja um
það við ríkið en án árangurs.
Vegna samdráttarins er gert ráð
fyrir, að á næstu árum verði ríkis-
starfsmönnum fækkað um 30.000.
Eftir næturlanga setu með
verkfallshótunina yfir sér tókust
loksins samningar um 1,7% kaup-
hækkun ásamt ákvæðum um
launauppbætur eftir að ríkis-
starfsmönnum hafði verið lofað,
að kröfum þeirra um ráðningarör-
yggi yrði sinnt.
Á elleftu stundu tókst að
tryggja vinnufriðinn í Svíþjóð á
því herrans ári 1983, eftir erfiðari
samninga en nokkurn hafði órað
fyrir.
Veður
víða um heim
+3 léttskýjaö
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Brllssel
Chicago
Dublin
Frankfurt
Færeyjar
Gent
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahöfn
Kairó
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mallorca
Malaga
Mexicoborg
Miami
Moskva
Nýja Delhí
New York
Osló
París
Peking
Perth
Reykjavík
Rio de Janeiro
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vinarborg
10 rígning
15 skýjaó
17 heiðskýrt
10 skýjaó
12 skýjaó
10 rigning
15 skýjaó
14 skýjaó
4 skýjaó
10 skýjaó
2 skýjað
17 heióskirt
14 heióskírt
27 heióskirt
6 skýjað
25 heióskirt
20 skýjað
23 heióskirt
15 skýjað
19 rígning
20 heióskirt
19 léttskýjaó
17 heióskirt
26 heióskírt
25 skýjaó
3 skýjaó
32 skýjaó
7 rigning
3 skýjaó
13 skýjaó
14 heióskírt
30 heióskirt
4-2 snjóél
34 heióskirt
14 heióskirt
15 rigning
6 skýjaó
19 heióskirt
11 heióskírt
12 skýjaó
13 skýjað
Þaó er
húsgag hjá okku kl. 10—5 í dc inasýning
ir ig KM Langholtsvotri 111, Ri símar .'17010 — .'17144 -húsgögn, ykjavík.
KÍKTU VIÐ, ÞÚ FÆRÐ ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI