Morgunblaðið - 19.03.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
Heimsóknartími í Nýja Bíói
NÝJA BÍÓ í Revkjavík hefur hafið
sýningar á bandarísku kvikmynd-
inni Heimsóknartími.
Myndin segir frá útvarpsfrétta-
manni, sem berst gegn ofbeldi í
þáttum sínum, en verður svo fyrir
árás á heimili sínu. Fréttamaður-
inn, Debora Ballin, er flutt í
sjúkrahús, en jafnvel þar er hún
ekki óhult fyrir hatursmanni sín-
um.
Hólmadrangur kominn með
35 lestir af frystum flökum
„ÞAÐ ER ekki hægt að neita því að
það hefur gengið á ýmsu hjá okkur,
enda er hér um reynsluferð að ræða.
Skoðanakönnun HP:
Meirihluti
vill bjórinn
MEIRIHLUTI íslendinga er fylgj-
andi því að heimila sölu á bjór hér á
landi, að því er kemur fram í skoð-
anakönnun, sem Helgarpósturinn
lét frarakvæma fyrir skömmu.
Fyrirtækið „Skoðanakannanir á
íslandi" framkvæmdi könnunina
fyrir blaðið. Haft var samband við
1369 einstaklinga, 605 í Reykjavík
og 764 á öðrum stöðum á landinu.
Niðurstaðan varð sú, að 48,6%
aðspurðra voru fylgjandi bjórn-
um, 42,2% voru á móti, 9,4%
óákveðin, og 6,5% vildu ekki
svara. Ef aðeins eru teknir með
þeir sem tóku afstöðu voru 57,8%
með bjórnum en 42,2% á móti.
Yngri aldurshóparnir voru að
meirihluta til fylgjandi bjórnum
en eldri aldurshópar voru frekar á
móti.
Nokkrir örðugleikar hafa komið
fram, sérstaklega í vinnslunni en
annað hefur gengið betur og þetta er
gott sjó- og veiðiskip," sagði Magni
Kristjánsson, skipstjóri á Hólma-
drangi, er Morgunblaðið hafði sam-
band við hann er skipið var statt á
miðunum út af Suðausturlandi.
Magni sagði ennfremur, að
haldið hefði verið til veiða þann 6.
þessa mánaðar og væri aflinn nú
orðinn 30 til 35 lestir af frystum
flökum, aðallega þorski, en fiskirí
væri tregt. Vinnslan um borð réði
nú við 4 til 5 lestir af frystum
flökum á sólarhring, en þegar
nauðsynlegar breytingar hefðu
verið gerðar að lokinni þessari
reynsluferð og mannskapurinn
væri orðinn vanari vinnslurásinni
væri reiknað með því að vinna
mætti 12 til 15 lestir á sólarhring.
Þá gat hann þess, að áhöfnin væri
aðeins 20 manns í stað 24 eins og
tíðkaðist á sambærilegum skipum
eins og örvari frá Skagaströnd.
Taldi hann, að tveggja til þriggja
mánaða reynslutími væri lágmark
áður en vinnsla um borð og veiðar
kæmust í fullan gang. Akveðið
væri nú að halda áfram veiðum
fram í næstu viku og fara síðan til
Hafnarfjarðar, þar sem nauðsyn-
legar breytingar á vinnslurásinni
yrðu gerðar áður en haldið yrði til
veiða að nýju.
Bæjarþing Reykjavíkur:
Málskostnaður
650.000 krónur
í FEBRÚAR síðastliðnum var kveðinn upp dómur í bæjarþingi Reykjavíkur í
máli Jónasar A. Aðalsteinssonar fyrir hönd Christiania Bank og Kreditkasse,
Osló gegn Óla A. Bieltvedt og Sigurjóni Ragnarssyni vegna gjaldþrots fyrir-
tækisins Inter Nesco Norge 1978. Voru stefndu dæmdir til að greiða Christi-
ania Bank og Kreditkasse gjaldfallnar skuldir ásamt vöxtum og málskostn-
aði að upphæð 650.000,00 krónur.
Dómsorðið er svo hljóðandi:
„Stefndu, Óli A. Bieltvedt, jr., og
Sigurjón Ragnarsson greiði stefn-
anda, Jónasi A. Aðalsteinssyni,
hrl., fyrir hönd Christiania Bank
og Kreditkasse, norskar krónur
8.547.237,99 (24.788.122,02 íslenzk-
ar krónur) auk 15% ársvaxta af
norskum krónum 7.725.072,78
(22.333.185,40) frá 10. febrúar 1981
til 12. marz 1981, af norskum
krónum 5.958.922,98
(17.227.246,33) frá þeim degi til 24.
apríl 1981, af norskum krónum
5.778.922,98 (16.706.866,33) frá
þeim degi til 31. desember 1981, af
norskum krónum 5.718.922,98
(16.533.406.33) frá þeim degi til 1.
desember 1982, en af norskum
krónum 5.658.922,98
(16.359.946.33) frá þeim degi til
greiðsludags og krónur 650.000,00
í málskostnað." Morgunblaðið hef-
ur til glöggvunar umreiknað upp-
hæðir í norskum kónum í íslenzk-
ar og eru þær innan sviga.
Steingrímur Gautur Kristjáns-
son, borgardómari, kvað upp dóm-
inn.
Lýsa yfir stuðningi við
framboðslista Göngumanna
Framsóknarfélögin í Húnavatnssýslum:
Ekki deilt um stefnu heldur menn, segir Steingrímur
Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
ÖLL framsóknarfélögin í Húna-
vatnssýslum hafa nú lýst yfír
stuðningi við framboð svokallaðra
Göngumanna í Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Þau hafa einnig skor-
að á kjördæmisstjórn Framsóknar-
flokksins að listinn hljóti merking-
una BB og viðurkenningu sem
framboðslisti fíokksins. A fundi
framsóknarfélaganna í austursýsl-
unni síðastliðinn þriðjudag voru
þessar stuðningsyfírlýsingar sam-
þykktar með miklum meirihluta
fundarmanna og lögð á það
áherzla, að tvö framboð framsókn-
armanna séu eina leiðin til þess að
fylgi flokksins skili sér, og nauð-
synleg ráðstöfun til þess að síðar
geti tekizt sættir um eitt sterkt
framboð í kjördæminu. Áður hafði
framsóknarfélag vestursýslunnar
gert hliðstæða samþykkt. Listi
Göngumanna var samþykktur á
fundinum og skipar Ingólfur
Guðnason, alþingismaður, efsta
sæti hans.
Samkvæmt lögum framsókn-
arflokksins geta Göngumenn
tekið sér merkinguna BB en síð-
an er það kjördæmisráðs að
samþykkja það og síðar fram-
kvæmdastjórnar komi til þess að
niðurstöðu kjördæmisráðs verði
áfrýjað. Þá segir í lögum flokks-
ins, að fari flokksmaður í fram-
boð eða starfi fyrir annan flokk í
alþingiskosningum sé litið á það
sem úrsögn úr flokknum. Morg-
unblaðið innti Steingrím Her-
mannsson, formann Framsókn-
arflokksins, eftir því hvort
ákvörðun hefði verið tekin um
það hvort Göngumenn fengju
merkinguna BB. Sagði Stein-
grímur, að skiptar skoðanir
væru um það innan kjördæmis-
ráðs, en engin ákvörðun hefði
enn verið tekin. Hann sagði enn-
fremur, að í þessum hópi væru
margir hinir mætustu fram-
sóknarmenn og hefðu verið
lengi. Ekki væri þarna deilt um
stefnu, heldur menn og stundum
væru það hatrömmustu deilurn-
ar. Hann gæti því ekki sagt, að
þetta væru ekki framsóknar-
menn.
Hér fara á eftir samþykktir
fundarins: „Sameiginlegur fund-
ur stjórna framsóknarfélaganna
í A-Húnavatnssýslu, Framsókn-
arfélags A-Húnavatnsýslu,
Framsóknarfélags Blönduóss og
Félags ungra framsóknarmanna
í A-Hún. ásamt trúnaðarmanna-
ráði FUF í sýslunni, sem haldinn
var þann 15. þessa mánaðar,
samþykkir og lýsir yfir stuðn-
ingi við framboðslista þann til
alþingiskosninga í Norður-
landskjördæmi vestra, sem
sendur hefur verið félögunum til
umsagnar og skipaður er fram-
sóknarmönnum með Ingólfi
Guðnasyni, alþingismanni, í
fyrsta sæti. Fundurinn leggur
mikla áherzlu á, að tvö framboð
nú eins og á stendur sé eina leið-
in til þess að fylgi Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra komi til skila við
komandi kosningar og því nauð-
synleg ráðstöfun til þess, að full-
ar sættir geti síðar tekizt um eitt
sterkt framboð flokksins í kjör-
dæminu, en að því hljóta allir
flokksmenn að keppa.“
Þessi hluti ályktunarinnar var
samþykktur að viðhöfðu nafna-
kalli með 22 atkvæðum gegn 3,
einn sat hjá.
Síðari hluti ályktunarinnar er
svo hljóðandi: „í samræmi við
fyrri samþykkt félaganna vegna
undirbúnings framboðsmálanna
skorar fundurinn á kjördæmis-
stjórn að samþykkja að fram-
boðslistinn fái merkinguna BB
og þar með viðurkenningu sem
listi framsóknarmanna auk þess
framboðslista, sem kjördæmis-
stjórn hefur þegar samþykkt."
24 af 26 fundarmönnum greiddu
þessum hluta atkvæði sitt en
tveir voru á móti. Áður hefur
fundur í Framsóknarfélagi
V-Húnavatnssýslu lýst yfir
stuðningi við það, að þessi listi
fái bókstafina BB. Þar með hafa
öll framsóknarfélögin í Húna-
vatnssýslum lýst yfir stuðningi
við þá merkingu listans.
Listann skipa eftirtaldir
menn: Ingólfur Guðnason, al-
þingismaður Hvammstanga,
Hilmar Kristjánsson, oddviti
Blönduósi, Kristófer Kristjáns-
son, bóndi Köldukinn, Björn
Einarsson, bóndi Bessastöðum,
Jón Ingi Ingvarsson, rafvirkja-
meistari Skagaströnd, Helgi
Ólafsson, rafvirkjameistari
Hvammstanga, Sigrún Björns-
dóttir, hjúkrunarfræðingur
Ytra-Hóli, Indriði Karlsson,
bóndi Grafarkoti, Eggert
Karlsson, sjómaður Hvamms-
tanga, og Grímur Gíslason, full-
trúi Blönduósi.
Bolungarvík:
Prestskosning
á sunnudaginn
Bolungarvík, 18. mars.
NÆSTKOMANDI sunnudag munu
Bolvíkingar ganga aö kjörborðinu til
að kjósa sér sóknarprest. Umsækj-
andi er einn, séra Jón Ragnarsson
farprestur, sem þjónað hefur Bol-
ungarvíkurprestakalli undanfarna
þrjá mánuði.
Jón Ragnarsson er fæddur í Vík
í Mýrdal 26. febrúar 1953. Foreldr-
ar hans eru Kristín Einarsdóttir
húsmóðir og Ragnar Jónsson,
skrifstofustjóri, Reykjavík. Jón
varð stúdent frá Menntaskólanum
við Tjörnina árið 1973 og lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla Islands ár-
ið 1981. Á árunum 1977 og 1978
stundaði hann guðfræðinám við
háskólann í Kiel í Vestur-Þýska-
Kaffidagur
Dýrfirðinga-
félagsins
í FRÉTT frá Dýrfírðingafélaginu í
Reykjavík segir, að árlegur kaffídag-
ur félagsins verði haldinn sunnudag-
inn 20. mars nk. í samkomusal Bú-
staðakirkju og hefst hann að lokinni
messu kl. 2.
Allir velunnarar félagsins og
Dýrafjarðar eru sérstaklega vel-
komnir.
Allur ágóði af kaffisölu rennur
til fyrirhugaðrar byggingar fyrir
aldraða í Dýrafirði.
landi. Jón var vígður farprestur
þjóðkirkjunnar 31. maí 1982.
Kosningin fer fram í Ráðhúsinu,
frá klukkan 10.00—19.00. Kosn-
ingarétt hafa allir þeir sem náð
hafa 18 ára aldri á kjördag. Stuðn-
ingsmenn séra Jóns verða með
opna skrifstofu á kjördag í Verka-
lýðshúsinu og þar verður boðið
upp á kaffi og veitingar. Á kjör-
skrá við þessar prestkosningar í
Bolungarvík eru 785 manns.
Stuðningsmenn séra Jóns vænta
Séra Jón Ragnarsson
þess, að Bolvíkingar mæti vel á
kjörstað og veiti séra Jóni Ragn-
arssyni glæsilega kosningu.
— Gunnar
Héraðsvaka Rangæinga
hefst á laugardaginn
HÉRAÐSVAKA Rangæinga verður sett laugardaginn 19. mars ki. 16
í Héraðsbókasafninu á Hvolsvelli. Þar mun verða opnuð sýning á
verkum Árnýjar Filippusdóttur. Stendur sú sýning vökudagana og er
opin frá 15—18.
Á sunnudag er svo vökunni
fram haldið og er þá hátíðarsam-
koma í félagsheimili Vestur-Ey-
fellinga. Mun forseti íslands sitja
samkomuna. Hefst hún ki. 15 og er
opin öllum Rangæingum.
Miðvikudaginn 23. mars kl.
21.30 er hátiðarguðsþjónusta í Há-
bæjarkirkju, sem allir prestar og
kirkjukórar prófastsdæmisins
taka þátt í. Skemmtidagskrá verð-
ur flutt í Hvoli fimmtudaginn 24.
mars þar sem ýmis félög annast
atriðin.
Lokasamkoman verður í Njáls-
búð laugardaginn 26. mars og
hefst hún kl. 21.30. Þar mun m.a.
verða á dagskránni söngur Rang-
æingakórsins í Reykjavík ásamt
ýmsum atriðum frá félögum i
sýslunni. Að lokum verður stiginn
dans við leik hljómsveitarinnar
Glitbrár.
í tengslum við Héraðsvöku
verða svo haldin Rangæingamót í
skák og frjálsum íþróttum inn-
anhúss.
Formaður Héraðsvökunefndar
er Sigríður Theódóra Sæmunds-
dóttir á Skarði í Landsveit.