Morgunblaðið - 19.03.1983, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
Norræni
fjárfestingabankinn (NIB)
NIB er lánastofnun sem Norðurlöndin stofnsettu
áriö 1975. markmið bankans er aö styrkja nor-
ræna efnahagssamvinnu með því að veita lán á
bankakjörum til þess að hrinda í framkvæmd
fjárfestingaáætlunum og útflutningi í þágu
Noröurlandanna.
Bankinn er staðsettur í Helsingfors og eru
starfsmenn 42 talsins. Við vinnu tala menn
dönsku, sænsku eða norsku.
Við leitum að:
AÐSTOÐARMANNI
í SKIPULAGSDEILD
(Utredningsavdeling)
Umsækjendur verða að hafa háskólapróf og
reynslu af efnahagslegri skipulagsvinnu og sund-
urgreiningu innan banka, atvinnureksturs, opin-
berrar stjórnsýslu og/ eða alþjóölegrar stofnunar.
Bankinn leitast viö aö hafa starfsfólk frá öllum
Norðurlöndunum og vill nú hafa íslending á meðal
þess.
Skipulagsdeildin vinnur fyrst og fremst að:
— Sundurgreiningu starfsgreina á sviði norrænn-
ar verslunar og iönaðar.
— Sundurgreiningu á verðlagi.
— Skilgreiningu á landssvæðum þróunarríkja og
hins opinbera.
— Tengslum við opinberar norrænar stofnanir,
stéttarfélög og hagsmunasamtök.
Umsækjendur verða að geta tjáð sig í rituðu máli
og hafa hæfileika til sundurgreiningar. Stööunni
fylgja ferðalög innan Noröurlandanna. Umfang
starfsins ræðst að nokkru leyti af hæfni og reynslu
umsækjanda.
Erlent starfsfólk NIB sem flyst til Finnlands er
skattað samkvæmt sórstakri löggjöf og viö bjóö-
um upp á góða félagslega aöstöðu. Bankinn hjálp-
ar til viö aö útvega húsnæöi.
Nánari upplýsingar veitir Knud Ross forstjóri í
síma (358-0) 18001.
Umsóknir ásamt launakröfu, meömælum og vott-
oröum merktar „Utredningsmedarbeider" sendist
fyrir 10. 4. 1983 til:
Den Nordiske
Investeringsbank
Postboks 249
SF-00171 Helsingfors 17, Finland.
Fræðsluþættir frá Geðhjálp
Hvers vegna verða sumir
„vonlaus tilfelliu?
f fræðsluþætti Geðhjálpar 19.
febrúar síðastliðinn svaraði Þór-
unn Pálsdóttir spurningunni:
„Hvenær er geðsjúklingur talinn
vonlaus og hvað er þá gert?“
Þórunn benti réttilega á, að það
er erfitt að setja ein ákveðin
mörk þarna því Íögð er misjöfn
merking í hugtakið vonlaus. Síð-
an rekur Þórunn nokkuð þróun
geðheilbrigðismála og sýnir
fram á, að aðstaðan til að að-
stoða einstaklinga með geðræn
vandamál hafi batnað síðustu
áratugina og um leið hafi líkurn-
ar aukist á því að aðstoða ein-
staklinga sem hafi dvalið lang-
dvölum á geðsjúkrahúsum auk-
ist.
Þetta er allt satt og rétt hjá
Þórunni, en mér finnst hún þó
sleppa aðalatriðinu. Samkvæmt
mínum skilningi er einstakling-
ur með geðræn vandamál sem
talinn er „vonlaus" eða „krónísk-
ur“ dæmi um vanmátt og uppgjöf.
Annars vegar er hægt að tala
um að viðkomandi einstaklingur
hafi af einhverjum ástæðum
ekki haft krafta eða möguleika
til að leysa sinn vanda og fest í
sjúklingshlutverkinu. Þessu
tengist hinn þátturinn, en það
eru viðbrögð og stuðningur um-
hverfisins. Nánasta umhverfi
(oft fjölskylda) hefur ekki haft
tíma, krafta, þekkingu eða vilja
til að veita nægan stuðning. Þá
tekur oft geðheilbrigðiskerfið við
og þau svör sem það veitir þörf-
um þessara manneskja eru oft
mjög ófullkomin. Hér á eftir
mun ég fjalla nánar um hvers
konar svör geðheilbrigðiskerfið
veitir þeim sem leita þangað.
Hin hefðbundna
geðlæknisfræði
Það er auðvitað ekki hægt að
koma allri ábyrgð á geðheil-
brigði íslendinga yfir á meðferð-
arstofnanir. Þær taka mest-
megnis á móti einstaklingum
sem eru meira eða minna komn-
ir í strand með eigið líf. Þess
vegna hlýtur að vera nauðsyn-
legt að athuga hvaða aðstæður
sá einstaklingur, sem leitar
hjálpar, býr við, og hverju megi
breyta þar til batnaðar. Oft er
um að ræða vandamál i sam-
skiptum við aðra; einangrun,
fjárhagsáhyggjur, of mikla
vinnu eða annað. Yfirleitt er um
að ræða flókna víxlverkun marg-
ra þátta þar sem t.d. margir
ósigrar úti í lífinu auka ófram-
færni. Óframfærnin eykur kvíða,
spennu og einangrun. Erfitt get-
ur verið að komast út úr þessum
vítahring án aðstoðar. Svar ein-
staklingsins við þessum erfiðu
kringumstæðum getur t.d. verið
áfengi, andleg eða líkamleg ein-
kenni eða þá sambland þessara
eða annarra svara.
Rannsóknir hafa m.a. sýnt að
það er með nokkurri vissu hægt
að segja fyrir um hvaða hópum
fólks er mest hætt við að lenda i
kringumstæðum sem geta leitt
til geðrænna vandamála. Þetta
eru t.d. einangraðir einstakl-
ingar, þeir sem misst hafa ást-
vini, skilið o.s.frv. Það er því al-
veg ljóst að til eru ýmsar félags-
legar aðstæður sem stuðla að
þróun geðrænna vandamála. Það
er lika jafn Ijóst, að viðbrögðin
við þessum aðstæðum eru ein-
staklingsbundin. Við fáum öll
mismunandi uppeldi og það á
sinn þátt i því að enginn per-
sónuleiki er eins. Um leið skynj-
um við og vinnum á mismunandi
hátt úr upplýsingum og þeim að-
stæðum sem við lifum við. Þol
okkar og viðbúnaður er þannig
misjafn.
Hin hefðbundna geðlæknis-
fræði heldur þvi fram, að geð-
ræn vandamál séu sjúkdómur.
Eins og aðra sjúkdóma, þá þarf
að greina hann, þ.e. gefa þessari
truflun í gangverkinu stimpil
eins og taugaveiklun, geðveiki,
psykopat eða annað sem greinir
þessa einstaklinga frá „okkur
hinum". Þessi greining er for-
senda meðferðar.
Heimurinn breytist og
manneskjan með
Áður en læknar og geðheil-
brigðiskerfi yfirtóku þessa þjón-
ustu á 19. öld, var talið að ein-
staklingar með geðræn vanda-
mál væru haldnir illum anda og
þeir m.a. settir á hjól og því snú-
ið I hring til að reka andann í
burt. Þegar læknisfræðin fór að
spreyta sig á þessu verkefni var
m.a. reynt að fjarlægja þá heila-
hluta sem talið var að yllu þessu
undarlega atferli (þ.e. finna
sjúkdóminn inni i líkamanum)
þannig að viðkomandi varð
oftast eins og viljalaust og til-
finningalaust verkfæri á eftir.
Um miðja þessa öld komu geð-
lyf við alvarlegum geðrænum
vandamálum. Þau gerðu það að
verkum að ekki þurfti lengur að
skera i heilann eða nota spenni-
treyjur, heldur var hægt að
halda niðri einkennunum með
lyfjum. Um leið var hægt að
halda stórum hópi fyrir utan
geðsjúkrahúsin og útskrifa tals-
verðan hóp sem áður var talinn
ólæknandi. Á siðustu áratugum
hefur svo aukist alls konar sam-
talsmeðferð og meðferð á göngu-
deildum og dagdeildum. Um leið
hafa ýmsir aðrir hópar tekið
virkari þátt i meðferð og endur-
hæfingu, eins og t.d. sálfræð-
mPASKAR
. Sýningin hefst í dag,
laugardaginn 19/3, 1983, kl. 15
Sýningartími næstu daga
kl. 14-22.
o t. ^ Y
Verið velkomin.