Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
31
ingar, félagsráðgjafar og iðju-
þjálfar.
Já, hinir ólæknanlegu eða
vonlausu voru sem sagt hvorki
haldnir illum öndum eða von-
lausir. Að vísu þurfti í mörgum
tilvikum að gefa viðkomandi lyf
í langan tíma eða allt lífið. Lyfin
læknuðu ekki sjúkdóminn, held-
ur héldu þeim upplifunum og til-
finningum sem voru sagðar
sjúkdómur niðri.
Sumum sem voru útskrifaðir
tókst að rífa sig út úr sjúklings-
hlutverkinu. Stundum með aðstoð
starfsfólks á geðsjúkrahúsinu,
en þó ekki síst með aðstoð úti í
samfélaginu. Þeim tókst að
finna nýjan tilgang með lifinu,
komast í annað umhverfi og
verða virkt til að breyta eigin lífi.
Sjúklingshlutverkið er nefnilega
óvirkt. Þér er veitt lækning,
hjúkrun og pössun. Þér er
stjórnað. Það eru aðrir sem gera
eitthvað við þig, þú ert oftast
óvirk/ur. Þú ert sjúk/ur. Virk
meðferð í formi samtala og
endurhæfingar hverfur því mið-
ur oftast í skuggann fyrir hinni
óvirku meðferð. Kannski veistu
að það sem bíður þín fyrir utan
er ekki eins þægilegt og hið
verndaða sjúkrahúslíf. Þú ert
kannski kominn úr tengslum við
lífið fyrir utan og þú ert jú sjúkl-
ingur. Þú verður þarna bara
áfram.
Svona verða mörg af „von-
lausu" tilfellunum til. Mér er um
leið ljóst að vandamálin eru
mjög misjafnlega alvarleg. Full-
nægjandi aðstoð getur kostað
mikið erfiði og mikla vinnu fyrir
alla aðila. Það breytir þó ekki
því að geðheilbrigðiskerfið á oft
heiðurinn af því að festa það sem
kallast „óeðlilega hegðun" þann-
ig að erfitt er að snúa við aftur.
Sökudólgurinn sem
ekki fannst
Kjarni málsins finnst mér sá
að ekki hefur enn tekist að sanna
að geðræn vandamál séu sjúk-
dómur, þrátt fyrir mikla leit og
rannsóknir. Það er endalaust
hægt að rífast um orsakir geð-
rænna vandamála. Við vitum
alltjent að einstaklingurinn
mótast af sálfræðilegum og
(sam)félagslegum þáttum; af því
að vera til og umgangast aðra.
Við vitum líka að til eru aðstæð-
ur og kringumstæður í lífi okkar
allra sem hægt er að breyta. Þeg-
ar þessum aðstæðum er breytt,
einstaklingum gefin ábyrgð og
þeim hjálpað til að finna tilgang
með lífinu, þá hætta margir
þeirra að vera sjúklingar eða
lenda aldrei í hinu stórhættu-
lega sjúklingshlutverki.
Geðheilbrigðiskerfi, sem bygg-
ir á stórum stofnunum, sem eru
einangraðar frá því umhverfi
sem við lifum og hrærumst i, er
illa fallið til að hjálpa okkur,
þegar við eigum við erfiðleika að
stríða. Kerfi sem byggir mikið á
valdbeitingu og stimplun gengur
augljóslega illa að leysa þau
vandamál sem það á að taka þátt
í að leysa, m.a. vegna þess að
skilningi og stuðningi þess eru
mörg takmörk sett. Það er
valdbeiting að stimpla einstakl-
inga og loka þá í burtu frá sam-
félaginu (þótt venjuleg innlögn
og jafnvel nauðungarinnlögn
geti verið óumflýjanleg). Þetta
er ekki síst valdbeiting þar sem
þessi stimplun hefur sýnt sig að
vera mjög óáreiðanlegt tæki til
að greina hinn raunverulega
vanda. Það er líka valdbeiting að
fylla fólk með lyfjum, þrátt fyrir
að vandamálin krefjist oftlega
annars konar aðgerða (þótt lyf
geti líka verið nauðsynlegur
stuðningur).
Það er þó ekki síst valdbeiting
að „sjúklingurinn" er oftast
neðst í þessu valdakerfi, áhrifa-
laus eða -lítill á þá umgjörð sem
geðheilbrigðiskerfið setur lífi
viðkomandi.
Spurningin stendur ekki um
hverjir aðrir en iæknarnir fái
völd til að greina „sjúkdóminn".
Það er miklu fremur spurning að
byggja upp geðheilbrigðiskerfi
sem byrjar á því að reyna að
komast að raunverulegum þörf-
um þess sem á við geðræn
vandamál að stríða, og einbeitir
kröftum sínum að því að fyrir-
byggja vandamálin og breyta því
sem hægt er að breyta úti í um-
hverfinu. Þá væru miklu færri
„vonlaus" tilfelli en nú eru.
Jónas Gústafsson,
sálfræðingur.
JWiargMJiMteMli
» Gódan daginn!
Þú þarft á henni að halda
Bókin
ISLENSK FYRIRTÆK11983
Hringið og pantið eintak
sími82300
FRJÁLST FRAMTAKhf.
Útgáfa tímarita og bóka, auglýsingagerð og ráðgjöf.
Ármúla 18-105 Reykjavik - fsland - Sími 82300
Notaðir
í sérf lokki
Fiat 132 árg. 74
Ágætur bíll í góöu standi og á
góóu verði.
MtUDIk
Einstakt tækifæri, Skoda 120 L árg. ’80
Subaru 1800 GL árg. '82 Sérlega fallegur bíll, rauöur, ný-
Drif á öllum, (hátt og lágt) ekinn skoöaöur og selst meö 6 mán.
aöeins 16.000 km. Hefur fengiö ábyrgö.
mjög góöa meöferð og reglulegt
viðhald.
SK®DA Cfyíi&cr.cv Opiö f dag 1
Citroén GS station árg. 78 Plymouth Volare station árg.
Ekinn 67.000 km og í toppstandi, '80 6 cyl. sjálfsk. meö vökvastýri
Citroén CX Pallas 78 ekinn aflhemlum og góöum (SBBHÍ
55.000 km og þessi er með öllu. sterotækjum, hvítur og
viöarlitur. — Draumabíll B--1
fjölskyldunnar.
_5 JÖFUR HF ILaJI
■ Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600