Morgunblaðið - 19.03.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
35
Gjaldeyrisviðskipti
neikvæð um 184 millj.
GJALDEYRISKAUP bankanna nettó voru neikvæð um 184 milljónir króna í
janúarmánuði, en keyptur gjaldeyrir var upp á 1.349 milljónir króna og
seldur gjaldeyrir upp á 1.533 milljónir króna.
Til samanburðar voru gjaldeyr-
iskaupin nettó í janúar 1982 já-
kvæð um 202 milljónir króna, en
þá var keyptur gjaldeyrir upp á
1.527 milljónir króna, en seldur
gjaldeyrir upp á 1.325 milljónir
króna.
Á síðasta ári voru gjaldeyris-
kaup bankanna nettó neikvæð um
1.172 milljónir króna, en þá var
keyptur gjaldeyrir upp á 14.036
milljónir króna og seldur gjald-
eyrir upp á 15.208 milljónir króna.
Gjaldeyriskaup bankanna nettó
voru hins vegar jákvæð um 401
milljón króna á árinu 1981, þegar
keyptur gjaldeyrir var upp á 9.244
milljónir króna og seldur gjald-
eyrir upp á 8.843 milljónir króna.
Erum að komast upp
úr efnahagslægðinni
— sagði Marshall Brement, sendiherra Banda-
ríkjanna, á stjórnarfundi í Verzlunarráði íslands
„ÞEGAR Bandaríkin hnerra fær alþjóða peningakerfið lungnabólgu.“ Þessa
samlíkingu um gildi efnahags í Bandaríkjunum fyrir umheiminn notaði
Marshall Brement sendiherra Bandaríkjanna hér á landi í erindi, sem hann
flutti á fundi stjórar Verzlunarráðs íslands í síðasta mánuði. Brement fjallaði
þar um ástand og horfur í efnahagsmslum í heimalandi sínu og efnahags-
stefnu Reagans forseta.
Hann minntist á þá miklu efna-
hagserfiðleika, sem Reagan-
stjórnin hefði tekið í arf og sagði
að aðkoma nýs forseta í embætti
hefði aldrei verið verri frá dögum
Roosevelts. Stjórn Reagans setti
sér meðal annars að stöðva vöxt
ríkisumsvifa, draga úr skatt-
heimtu og draga úr peningamagni
í umferð.
Bandaríkjunum hefði verið 13,5%
á árinu 1981, þegar stjórn Reagans
tók við, en í árslok 1982 hefði hún
verið komin niður í 3,9%. Vextir í
Bandaríkjunum hefðu einnig
lækkað. Forvextir voru 21,5% á
árinu 1980, en eru nú komnir niður
í 10,5% og fara lækkandi.
f framhaldi af þessu hefur lifn-
að yfir fasteignaviðskiptum. Byrj-
að hefur verið á um 45% fleiri nýj-
um íbúðum en áður, byggingar-
leyfum hefur fjölgað um 60% og
sala nýrra húsa hefur aukizt um
55%. Eldri hús á söluskrá hafa
ekki verið færri í áratug.
Þá hafa óseldar birgðir minnk-'
að allverulega, en í kjölfar þess
fylgir venjulega aukin fram-
leiðsla. Á sama tíma hefur fram-
leiðni aukizt um 3% árið 1982, en
aukningin var engin árið 1980.
„Við búum við, að þjóðarfram-
leiðslan á árinu 1983 vaxi að
minnsta kosti um 3%. Reynist
þær vísbendingar, sem við höfum
nú, vera réttar, erum við að kom-
ast út úr efnahagslægðinni," sagði
Brement.
Heildarsala Komatsu
jókst um 15% 1982
KOMATSU-fyrirtækið japanska, sem er annað stærsta vinnuvélaframleiðslu-
fyrirtæki heimsins, tilkynnti nýverið, að nettótekjur fyrirtækisins hefðu auk-
izt um 19% á síðasta ári, þegar þær voru í námunda við 32,44 milljarða
japanskra yena, borið saman við 27,24 milljarða japanskra yena á árinu 1981.
það að koma niður á sölu Kom-
Talsmaður fyrirtækisins sagði
aðalástæðuna fyrir þessu góða
gengi fyrirtækisins vera síaukna
sölu erlendis. Útflutningur fyrir-
tækisins færi vaxandi með hverj-
um mánuðinum.
Heildarsala Komatsu jókst um
15% á síðasta ári, þegar hún var
samtals um 652,65 milljarðar jap-
anskra yena, borið saman við
567,43 milljarða japanskra yena á
árinu 1981.
Talsmaður fyrirtækisins sagðist
ekki vera mjög bjartsýnn á árið
1983. Efnahagsþrengingar þjóða
væru ekki yfirstaðnar og því hlyti
atsu, sem hefur verið með stöðuga
söluaukningu síðustu fimm árin.
Talsmaðurinn sagði að eftirspurn
eftir nýjum vinnuvélum af ýmsu
tagi myndi væntanlega vera um
30% minni á þessu ári, en hún var
1978, þegar eftirspurnin náði há-
marki.
Sala Komatsu á erlendum
mörkuðum jókst um liðlega 35,6%
á síðasta ári, en sala á innan-
landsmarkaði minnkaði hins veg-
ar um 9,2%, að sögn talsmanns
fyrirtækisins.
Financial Times gefur út
sérstakt íslandsblað í júní
HIÐ ÞEKKTA dagblað Financial
Times, sem aðallega fjallar um efna-
hagsmál og stjórnmák hefur ákveðið
að gefa út sérstakt íslandsblað 14.
júní nk., þar sem verður víða komið
við.
Fjallað verður almennt um ís-
land og þá pólitísku stöðu, sem
verður í landinu. Þá verður ítar-
lega fjallað um efnahagsástandið í
landinu, út- og innflutning, og
bankastarfsemi, auk þess sem sér-
staklega verður fjallað um sjávar-
útveg á Islandi, orkunýtingu og
ferðamannaiðnað.
í sérstöku kynningarblaði segir,
að auglýsingar, sem birtast eiga í
þessu Islandsblaði þurfi að hafa
borizt fyrir 16. maí nk., en eins og
áður sagði kemur blaðið út 14. júní
nk.
FINANCIALTIMESSURVEYS
EDITORIAL SYNOPSIS
ICELAND
Pt Bl.K ATION DATE TuMday Ulh Junr 1M3
ADVntTISING COPY DATF. Monéay IBth M«y 19S3
LAGERINN
Smiöjuveg 54, Kópavogi
Fullt af nýjum, ódýrum fatnaöi
Þaö borgar sig aö koma viö á Smiðjuvegi 54 >|
OPIÐ TIL KL. 6 í DAG.
Formósa tölvan er bæði ódýrt og fjöliiæft tæki. Með
benni getur þú nýtt þér heilan hafsjó af hugbúnaði, sem
fýrir er á markaðnum. Alls eru nú til hátt í 20 þúsund
forrit, sem nota má í Formósa tölvunni , þar á meðal
allar helstu gerðir viðskipta- og áætlanaforrita.
Formósa tölvan er með 48 K (RAM) notendaminni,
vönduðu 53ja lykla borðl með aðgangi að ýmsum
sértáknum og hefur bæði há- og lágstafl.
Super 8 dlskdrifið er með 143 K geymslurými og er
af stærðinni 5Ú4 tommu. Það er fyrirferðarlítið, hefur
heint drif með rafeindastýringu á hraða
og er einstaklega hljóðlátt.
12 tommu HTTKA tölvnskjórinn er grænn með mattri
fosfórhúð, sem verndar augun. Skjárinn sýnir bæði texta
og grafík mjög vel. Auðvelt er að stilla Ijósstyrk:, skýrleika o.fl.
Við hjóðum þér að líta við í verslun okkar og kíkja á gripina.
Formósa tölvan er á tölvusýningunni
í Tónahæ nú um helgina.
I. Pálmason hf.
ÁRMÚLA 36 124 REYKJAVÍK SÍMI 91-82466
Pyrir kr. 34.650
færð þú heila Formosa tölvu
MEÐ DISKDRIFI OG SKJÁ
- EKKIBARA HLUTA
Hafsjór af hugbúnaði
Við kaup á tölvu er einkum tvennt sem skiptir meginmáli,
verð og notkunarmöguleikar.