Morgunblaðið - 19.03.1983, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
Minningarorð:
Aðalsteinn Árna
son, Akranesi
Fæddur 2. ágúst 1907
Dáinn 12. marz 1983
Aðalsteinn Árnason, fyrrum
byggingameistari á Akranesi, er
látinn. Hann andaðist í Sjúkra-
húsi Akraness laugardaginn 12.
marz sl. eftir skamma legu. Útför
hans fer fram frá Akraneskirkju í
dag.
Aðalsteinn Árnason var fæddur
að Fiskilæk í Melasveit, 2. ágúst
1907, en það sumar vann faðir
hans að byggingu íbúðarhúss á
jörðinni Fiskiiæk. Hann var sonur
hjónanna Margrétar Finnsdóttur
frá Sýruparti á Akranesi og Árna
Árnasonar trésmíðameistara, sem
alinn var upp á Efra-Skarði í Leir-
ársveit. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Akranesi og lifðu bæði
til hárrar elli. Synir þeirra Árna
og Margrétar voru fjórir. Auk Að-
alsteins, sem var næst elztur, voru
Finnur, byggingameistari á Akra-
nesi og seinast búsettur í Hafnar-
firði, Jón, útgerðarmaður og al-
þingismaður á Akranesi og eru
þeir báðir látnir. Yngstur er Lárus
málarameistari, nú búsettur í
Reykjavík og lifir hann nú einn
þeirra bræðra.
Snemma á búskaparárum Árna
og Margrétar byggði Árni þeim
íbúðarhús við Vesturgötu á Akra-
nesi. Nefndi hann það Lindar-
brekku. Þar ólust synir þeirra upp
og voru lengi kenndir við húsið og
nefndir Lindarbrekkubræður. A
heimilinu var einnig móðir Mar-
grétar, Sesselja Bjarnadóttir. Hún
var þá löngu orðin ekkja eftir
mann sinn, Finn Gíslason frá
Sýruparti, en hann drukknaði í
sjóróðri frá 6 ungum börnum
þeirra. Þau Árni og Margrét ólu
ennfremur upp systurdóttur
Margrétar, Gíslínu Kristjánsdótt-
ur, og er hún búsett á Ákranesi.
Litu þeir bræður ávallt á hana
sem væri hún þeirra systir.
Þeir Aðalsteinn og Finnur
læl-ðu báðir trésmíðar hjá Árna
föður sínum. Unnu þeir hjá hon-
um í mörg ár, meðal annars við
vitabyggingar víðsvegar um land-
ið. Síðar unnu þeir bræður í nokk-
ur ár saman að húsbyggingum á
Akranesi. Aðalsteinn var einnig
lærður múrari og hvarf hann að
þeirri iðngrein og starfaði við
hana um áratugaskeið. Síðustu tvo
áratugina rak hann verzlun, fyrst
í samvinnu við Lárus bróður sinn,
en síðar með Aðalsteini syni sín-
um.
Aðalsteinn var eins og þeir
bræður allir, hamhleypa til verka,
kappsamur og vandvirkur. Á þeim
árum, sem hann starfaði sem
byggingameistari, hvort sem það
var við trésmíðar eða múrverk,
hafði hann oft marga menn í
vinnu og ýmsir eru þeir, sem num-
ið hafa iðn sína hjá honum og þó
sérstaklega í múrverki. Það eru
líka mörg húsin, sem hann átti
þátt í að byggja á Akranesi á þess-
um árum og bera þau handbragði
hans órækt vitni.
Lengi framan af starfsævi Aðal-
steins var öll byggingavinna hinn
mesti þrældómur. Byggingarefni
var handmokað á bíla í fjörunni,
öll steypa hrærð á höndum og síð-
an hífð í fötum með handafli.
Vinnudagurinn var langur, sér-
staklega á kreppuárunum, því
samkeppnin um verkefnin var
hörð og atvinnuleysisvofan stöð-
ugt á sveimi. Þá var vinna oft
byrjuð klukkan 6 á morgnana og
unnið til miðnættis á meðan nótt
var björt. Aðalsteinn var á þeirri
tíð á sínum beztu árum og aldrei
lét hann neinn bilbug á sér finna.
Á vetrum, þegar verkefni iðnað-
armanna á Akranesi voru af
skornum skammti og stundum
engin, þá brá hann sér á vertíð og
var í mörg ár landmaður við beit-
ingu og aðgerð á vélbátnum Höfr-
ungi. Vinnusemi var honum í blóð
borin. Daginn, sem hann veiktist,
hjólaði hann til vinnu sinnar og
ætlaði vart að fást til þess að taka
sér frí til að leita læknis, er sá
sjúkleiki gerði vart við sig, sem
varð honum að aldurtila tæpum
tveim vikum síðar. Þannig var Að-
alsteinn Árnason.
Á unga aldri var Aðalsteinn
virkur þátttakandi í íþróttum.
Hann var, ásamt bræðrum sínum,
einn af stofnendum Knattspyrnu-
félags Akraness og lék í liði þess í
mörg ár. Hann starfaði líka mikið
í skátahreyfingunni sem ungur
maður. Hestamaður var hann góð-
ur og átti á sínum tíma rómaðan
gæðing, sem hann nefndi Tígul.
Með árunum varð þó laxveiði það
tómstundagaman, sem Aðalsteinn
unni mest. Þar var hann einstakur
snillingur. Ljúfar minningar á ég
frá samverustundum með Aðal-
steini frænda mínum við silfur-
tærar ár. Fyrsta laxinn minn fékk
ég með honum og undir hans leið-
sögn. Síðast vorum við saman við
veiðar fyrir nokkrum árum í Laxá
í Leirársveit. Hann kom að ánni
eftir hádegi, Við skildum við Mið-
fellsfljót og hann ákvað að veiða
ána niðrúr. Það var komið nokkuð
fram í september og áin ekki sér-
lega veiðileg. Þegar ég hitti hann
að kveldi, hafði hann landað 12
löxum, fleiri en allir aðrir til sam-
ans þennan dag. Uppáhalds veiði-
áin hans held ég hafi verið Hauka-
dalsá í Dölum. Þangað fór hann til
veiða á hverju sumri um árabil og
hafði ávallt góðan feng. Hann leit
á laxveiðar sem íþrótt, en ekki
fiskirí. Þar sem annars staðar var
stillingin og prúðmennskan i
fyrirrúmi.
Aðalsteinn kvæntist þann 20.
ágúst 1932 Ingibjörgu Bjarnadótt-
ur frá Akranesi og lifir hún mann
sinn. Ingibjörg er dóttir hjónanna
Helgu Bjarnadóttur og Bjarna
Gíslasonar, sem bæði voru komin
af kunnum borgfirskum ættum.
Þeim Aðalsteini og Ingibjörgu
varð þriggja barna auðið og eru
börn þeirra öll uppkomin og bú-
sett á Akranesi. Þau eru: Bjarni
málarameistari, kvæntur Frið-
nýju Ármann, Helga Margrét, gift
Huldari Ágústssyni, og Aðal-
steinn Ingi, kvæntur Elísabetu
Proppé.
Heimili þeirra Ingibjargar og
Aðalsteins hefur lengi staðið að
Sunnubraut 15 á Akranesi, en þar
reisti Aðalsteinn íbúðarhús í lok
stríðsáranna. Aðalsteinn var mik-
ill heimilisfaðir og lét sér afar
annt um sína fjölskyldu. Sem barn
og unglingur var ég tíður gestur á
heimili Imbu og Alla, bæði á með-
an þau bjuggu á Austurvöllum og
síðar á Sunnubrautinni, enda vor-
um við Bjarni frændi minn og son-
ur þeirra leikfélagar. Þar var
ávallt gott að koma, hlýja og
gestrisni einkenndi þau bæði. Þau
voru líka mjög samrýnd hjón, bár-
ust lítt á, en þeim mun tryggari
vinum sínum og fjölskyldu.
Aðalsteinn Árnason var vel
meðalmaður á hæð, fríður sýnum
og beinvaxinn. Hann var einstak-
lega prúður í allri framgöngu.
Skap hans var engu að síður mik-
ið, en sjálfsstjórnin þeim mun
meiri. Lipurð og ljúfmennska ein-
kenndu hann. Að lífsskoðun var
hann alla tíð einlægur sjálfstæðis-
maður, enda sjálfsbjargarviðleitn-
in og vinnusemi hans veganesti úr
foreldrahúsum. Aðalsteinn og
bræður hans voru alla tíð mjög
samrýndir. Þeir stóðu ávallt sam-
an sem einn maður. Enda þótt Að-
alsteinn hefði sig lítt í frammi út
á við, þá var hann engu að síður
hinn trausti hlekkur, sem aldrei
brást. Með honum er góður dreng-
ur genginn.
Við Sigríður sendum Ingibjörgu,
börnum hennar og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé minning Aðalsteins
Árnasonar.
Árni Grétar Finnsson
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
oröasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Barnaskemmtun
JC-BreiðhoIts
JC BREIÐHOLT heldur sína árlegu
barnaskemmtun sunnudaginn 20.
mars næstkomandi að Seljabraut 54,
í húsi Kjöts og fisks og hefst hún kl.
15.00.
Fjöldi góðra skemmtiatriða,
m.a. Bergþóra Árnadóttir með
söng, nemendur úr Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar með
danssýningu, Símon ívarsson gít-
areinleik, Ingólfur Ragnarsson og
Þorgeir Ástvaldsson með grín og
glens. Farið verður í leiki og
margt fleira gert börnum til
skemmtunar.
Einnig gengst JC Breiðholt fyrir
spilavist á sama stað fimmtudag-
inn 24. mars kl. 21.00.
+
Móðir min, tengdamóðir og amma
GUDRÚN GUDMUNDSDÓTTIR
frá isafirði,
Víkurbraut 11, Grindavík,
lést i Borgarspítalanum 17. mars.
Kolbrún Sveinbjörnsdóttir,
Sveinbjórg V. Lúðvíksdóttir,
Guðrún Lúövíksdóttir.
Lúövík P. Jóelsson,
Jóel Brynjar Lúðvíksson,
t
Móðir okkar,
VILHELMÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
Hraunhólum 4, Garöabæ,
lést að heimili sínu 18. mars.
Börnin.
+
Fóstursystir mín,
GUONÝ SIGUROARDÓTTIR,
Bárugötu 12,
andaöist 17. marz í Borgarspítalanum.
Fyrir hönd systkina og fóstursystur.
Ólöf Sigurbjarnardóttir.
+
Eiginkona mín, móðir, dóttir 09 systir,
GUORÚN KOLBRUN SIGURDARDÓTTIR,
Oddagötu 8,
er látin. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 24.
mars kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á liknarstofn-
anir.
Þorsteinn Geirsson,
Siguröur Þorsteinsson,
Þóra Björg Þorsteinsdóttir,
Vala Rebekka Þorsteinsdóttir,
Þorbjörg Gísladóttir,
Siguröur M. Helgason,
Guöný Siguröardóttír,
Gísli H. Sigurösson,
Helgi M. Sigurösson.
+
Jarðarför
VALGERDAR PÁLSDÓTTUR,
Bræöratungu,
fer fram þriðjudaginn 22. mars kl. 2 frá Bræðratungukirkju.
Ferð verður úr Reykjavík kl. 11.00 frá Umferöarmiöstööinni.
Sveinn Skúlason,
Gunnlaugur Skúlason,
Páll Skúlason.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför
GUÐRÚNAR PÁLSDÓTTUR,
Rauöholti 11, Selfossi.
Egill Guöjónsson,
börn, tengdabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HERBERTS JÓSEFSSONAR-PIETSCH,
gleraugnafræöings.
Fríöur Guömundsdóttir,
Hilmar Herbertsson, Bára Björgvinsdóttir,
Hans Herbertsson, Aldís Danielsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
MARÍUSAR ÓLAFSSONAR.
Karólína Andrésdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúð vegna andláts og útfarar
BJÖRNS SVEINSSONAR
frá Langholti í Meöallandi.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á B-1, Landakotsspítala.
Vandamenn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR JÓNÍNU ÁSGEIRSDÓTTUR,
Kirkjubæjarklaustri.
Jón Björnsson,
Björn V. Jónsson, Þóra Sen,
Ásgeir Jónsson, Drífa Ingímundardóttir,
Birgir Jónsson, Bryndís Guðgeirsdóttir,
Gunnar Jónsson, Sveinbjörg Pálsdóttír
og barnabörn.