Morgunblaðið - 19.03.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
37
Spjallað
um útvarp og sjónvarp
„Og þá misstu sum-
ir matarlystina“
eftir ólaf Ormsson
Fréttir, innlendar og erlendar
eru fyrirferðarmikill liður í út-
varpi og sjónvarpi. Þjóðlífið ber
þess merki að alþingiskosningar
eru fram undan og ríkisfjölmiðl-
arnir birta daglega fréttir af
framboðslistum stjórnmála-
flokka og bandalaga sem kort-
leggja bæi og sýslur, dusta rykið
af kjörskrám og hóa saman liði.
Kratarnir, sem fólk er yfirleitt
hætt að reikna með sem stjórn-
málaafli eru óvenju sprækir
þessa dagana. Þeir eru komnir í
blómrækt, greyin og auglýstu sið-
astliðinn sunnudag í útvarpinu að
rauðar rósir blómstri við Austur-
völl. Þar var átt við stjórnmála-
fund á Hótel Borg á vegum Al-
þýðuflokksins sem fram fór í
mettuðu andrúmslofti tóbaks-
reyks og kaffiilms.
Bandalag Vilmundarmanna
auglýsir í útvarpi að skrifstofa sé
opin í húsi þar sem Alþýðubanda-
lagið hafði lengi aðsetur og var
með leshringi á loftinu um sósíal-
ismann í framkvæmd. I húsinu
var lengi heildverslun þannig að
húsið á sérkennilega fortíð og
munar ekki um að hýsa baráttu-
samtök gegn möppudýrunum.
Kvennaframboðið var mikið í
fréttum útvarps og sjónvarps um
síðustu helgi. Fréttaskýrandi í
kvöldfréttum sjónvarpsins á
sunnudag sagði frá samþykki sem
stúlkurnar gerðu fyrr um daginn
á Hótel Esju þar sem „karl-
rembusvínin" eru skoruð á hólm
og framboð ákveðin í Reykjavík
og Reykjanesi.
Ólafur Jóhannesson og lið
dagskrárgerðarmanna frá út-
varpinu skipa efstu sætin á lista
framsóknar og auglýsingastofur
fá nú nóg að gera við að hanna
tannkremsbrosin. Framboðslisti
Alþýðubandalagsins er einnig
kominn fram í dagsljósið. Á list-
anum er lítið eða ekkert af starfs-
fólki við ríkisfjölmiðlana, þar eru
ráðherrar, þingmenn, prófessor,
leikari, verslunarmenn, formenn
hagsmunasamtaka og einn verka-
maður neðst á listanum, sem rós í
hnappagatið hjá hinni nýju for-
réttindastétt sem kennir sig við
alþýðuna í landinu.
Annað í fréttum ríkisfjölmiðl-
anna síðustu daga sem athygli
hefur vakið eru fréttir af sigrum
hljómsveitarinnar Mezzoforte í
Bretlandi og svo viðtalið við Gísla
Gíslason á Uppsölum í Vestur-
Barðastrandarsýslu. Gamli mað-
urinn var að fá rafmagn í sín hí-
býli og ekki var að sjá eða heyra
að hann teldi það nein tíðindi.
Fimmtudagur 10. mars:
Ég má til með að minnast á
jazzþáttinn sem Jón Múli stjórn-
aði og hófst klukkan fimm
stundvíslega. Jón Múli hefur
mikla menntun í sögu jazzins og
er ákafur Ellingtonisti og byrjaði
þáttinn með nokkrum lögum eftir
meistarann í flutningi sænskra
jazzista sem ekki eru atvinnu-
menn heldur úr ýmsum starfs-
stéttum, koma saman og drekka
kannski nokkur bjórglös og gripa
síðan í hljóðfærin. Hreint engin
viðvaningsbragur var á leik
þeirra og sveiflan í hámarki. Síð-
an tók Dizzy Gillespie við ásamt
hljómsveit og þar var sko snilldin
eins og við var að búast. Norskir
jazzistar frá Þrándheimi heiðr-
uðu Ellington í þættinum og í lok
hans spilaði stórhljómsveit Count
Basie, upptaka frá jazzhátið frá
árinu 1977 lag eftir Ellington sem
hann samdi eftir fyrstu Evrópu-
för sína fyrir rúmri hálfri öld.
Eftir að hafa hlustað á slíka
tónlist þá er bjartsýni ríkjandi
þrátt fyrir volæði og barlóm víða
í þjóðfélaginu.
Jóhann Pétur Malmquist
Um kvöldið bauð útvarpið uppá
leikrit eftir þann kunna svissn-
eska höfund, Friedrich Dúrren-
matt. „Vélarbilun" heitir það.
Þýðandi og leikstjóri Erlingur E.
Halldórsson. Leikritið gerist uppi
í sveit. Miðaldra maður Alfredó
Trops bankar uppá í gistihúsi og
biður um gistingu. Þar eru fyrir
nokkrir furðufuglar meðal gesta
sem bjóða í leiki. Alfredó starfar
sem umboðssali og efnt er til
réttarhalda yfir honum í gisti-
húsinu. Hann er ásakaður um
ýmsa glæpi. I gistihúsinu dvelja
nokkrir aldraðir eftirlaunamenn
sem stytta sér stundir við að efna
til réttarhalda yfir gestum og
kveða síðan upp þunga dóma og
oftast lífstíðarfangelsi. Ríkis-
saksóknari, verjandi, böðull, og
aðrir embættismenn lifa í ein-
hverskonar ævintýraheimi og Al-
fredó er þátttakandi í leiknum.
Dramatísk spenna er í verkinu
framan af síðan þróast verkið í
ærslafullan farsa og er grát-
broslegt á köflum. Ég hafði gam-
an af og skemmti mér vel.
Föstudagur 11. mars:
„Örlagabrautin". Ný þýsk
bíómynd var sýnd í sjónvarpinu
seint um kvöldið og þar er um að
ræða mjög athyglisverða mynd
um örlög ungrar stúlku sem
fimmtán ára gömul í stríðslok
flýr ásamt móður sinni og bróður
undan sókn Rauða hersins til
Þýskalands. Þau setjast að í
hreysi á yfirráðasvæði Banda-
ríska hersins í Vestur-Þýskalandi
og stúlkan byrjar að vinna fyrir
sér hjá bandaríska hernum sem
vélritunarstúlka á skrifstofu hjá
Henry Stones ofursta. Anna Al-
many heitir stúlkan, hún gerist
ástmey ofurstans. Hann býður
henn með sér á dýra veitinga-
staði, hleður á hana gjöfum og
reynist henni vel og móður henn-
ar og bróður. Stúlkan er samt
sárþjáð og fær ekki afborið sál-
arkvalir út af manndrápi sem
hún átti sök á í æsku og hún bind-
ur að lokum enda á líf sitt. Leikur
Polu Kinski í hlutverki stúlkunn-
ar er minnisstæður. Þýsk kvik-
myndalist er greinilega í framför
eftir áratuga stöðnun. Fassbinder
Arnþrúður Karlsdóttir
gerði margar góðar myndir á
meðan hans naut við og nú hafa
komið ýmsir nýir kraftar fram á
sviðið hin siðari ár sem mikils má
vænta af.
Laugardagur 12. mars:
Það er að lifna yfir „Helgar-
vaktinni" í útvarpinu frá því fyrr
í vetur. Þátturinn sem var á
dagskrá eftir hádegið var með
líflegra móti. Stjórnendur,
Hróbjartur og Arnþrúður vita
sem er að vorið er ekki langt und-
an. Fyrstu gestir þáttarins voru
Egill Eðvaldsson, kvikmyndaleik-
stjóri og Lilja Þórisdóttir leik-
kona sem sögðu frá nýrri ís-
lenskri kvikmynd „Húsið“. Egill
er leikstjóri myndarinnar og
Lilja leikur eitt helsta hlutverkið
í myndinni. Þau sögðu frá undir-
búningi við gerð kvikmyndarinn-
ar, og Egill rakti efni handritsins.
Lilja kvað hlutverk Bjargar bjóða
uppá mikið tilfinningahlutverk.
„Björg lendir í ýmsum erfiðleik-
um, hún er samviskusöm, ein-
mana og á ekki marga vini,“ sagði
Lilja. Ég sé ástæðu til að hvetja
fólk til að sjá þessa nýju íslensku
kvikmynd. Hún hefur þegar hlot-
ið mjög góða dóma gagnrýnenda í
dagblöðum.
A eftir viðtalinu við Lilju og
Egil kom lagagetraun fyrir íbúa á
svæði landsímans númer 92 og
ungur maður úr Njarðvík sigraði.
Jóhann Pétur Malmquist, tölvu-
fræðingur kom í heimsókn til
Helgarvaktarinnar og spjallaði
við útvarpshlustendur og Hró-
bjart og Arnþrúði um tölvubylt-
inguna. Hann ræddi um þróun
tölvunnar á næstu árum og sagði
að erlendis væri tölvan notuð til
óliklegustu hluta, hún spáði í veð-
urfar meðal annars. Þróunin gæti
orðið svo ör að beinlínis er óhugn-
anlegt til að hugsa. Öll mannleg
samskipti fara ef til vill fram í
gegnum tölvu eftir aldamót og þá
mun sálfræðingum og geðlækn-
um fjölga mjög ört og geta þó
engan veginn sinnt þeim fjöl-
mörgu sem til þeirra munu leita.
Magnús Ólafsson og Þorgeir
Ástvaldsson skemmtu í lok þátt-
arins með söng og harmonikku-
leik og voru ágætir.
Sunnudagur 13. mars:
f tilefni af 100. ártíð Karl Marx
var Pétur Gunnarsson, rithöf-
undur með útvarpsþátt klukkan
tvö eftir hádegi. The Rolling
Stones fluttu í upphafi þáttar lag
Jaggers og Richards um Kölska
og síðan tók við langur lestur til-
vitnana í ummæli ýmsra manna
um Marx. Fjallað var um æsku
Pétur Gunnarsson
hans, skólagöngu, fyrstu ástir og
lesið úr bréfum Marx til vina og
kunningja. Einnig voru rakin
skrif hans í blöð og tímarit, gagn-
rýni hans á þáverandi valdastétt-
ir. Víst var Karl Marx ritsnilling-
ur og afburðavel gefinn á sinni
tíð um það deila menn ekki. Það
skiptir þó mestu máli að betur
væri þessi veröld á vegi stödd ef
hugmyndafræði þessa gráskeggj-
aða og hárprúða „hippa“ hefði
ekki skotið rótum víða um heim
og sáð hatri í huga fólks. Ryk-
fallnar skræður Marx og Engels
leysa engin vandamál á ofan-
verðri tuttugustu öld. Þar sem
hugmyndafræðin hefur verið
höfð að leiðarljósi í kommúnista-
ríkjunum þar blasa afleiðingarn-
ar við mannkyni. Þáttur Péturs
endaði þannig að Olga Guðrún
söng lag Ólafs Hauks Símonar-
sonar um Karl Marx, óðinn um
heimspekinginn sem því miður er
átrúnaðargoð margra ágætra
manna.
Mánudagur 14. mars:
Mikil breyting varð á dagskrá
sjónvarpsins um kvöldið frá því
sem gert hafði verið ráð fyrir.
Sjónvarpað var frá stjórnmála-
umræðum, eldhúsdagsumræður á
alþingi í þinglok. Alþingiskosn-
ingar fara fram 23. apríl og nú
tekur við hatröm kosningabar-
átta, þingmenn fara um sýslur og
kaupstaði og vilja endurnýja um-
boð til þingsetu. Ég tel líklegt að
margir hafi fylgst með umræðun-
um frá alþingi að þessu sinni, það
er mikið um að vera i pólitíkinni
og núverandi rikisstjórn er að
skilja við eftir að hafa komið á
efnahagslegu öngþveiti. Sjálf-
stæðismenn í stjórnarandstöðu
hófu umræðurnar. Matthías A.
Mathiesen og Birgir ísleifur
Gunnarsson deildu hart á ríkis-
stjórnina. Birgir ísleifur varaði
einnig við ýmsum stefnumálum
Vilmundarmanna t.d. hugmynd-
inni um aðskilnað framkvæmda-
valds og löggjafarvalds sem gæti
fært mikil völd á hendur eins
manns. Forsætisráðherra tvísteig
í ræðupúlti. Hann var næstur á
mælendaskrá og sýndist tauga-
óstyrkur. Hann fiktaði við bind-
isnæluna og skyrtuhnappana.
Ekki tel ég að ráðið verði af þeirri
ræðu hvað hann hyggst fyrir á
næstu vikum það kemur síðar í
ljós og ég vil engu spá, þeir sem
eru mjög spenntir ættu að leita
til spákvenna sem spá í bolla eða
spil. Formaður Alþýðubanda-
lagsins steig í ræðupúlt og mér
sýndist hann vera í nýjum
klæðskerasaumuðum kórónaföt-
um. Ókunnugur hefði getað álykt-
að áður en formaðurinn hóf mál
sitt að hann tilheyrði Alþýðu-
flokknum, í þingflokknum eru
menn oftast þannig til fara að
engu er likara en að þeir séu mód-
el á tískusýningu. Ég heyrði ekki
nema brot af ræðu formanns Al-
þýðubandalagsins þar sem ég var
kallaður í síma. Lok ræðunnar
heyrði ég og þá voru andstæð-
ingar flokksins búnir að svíkja
þjóðina í álmálinu, í herstöðvar-
málinu og kjarabaráttunni. Gam-
alkunnur tónn sem á upptök sín
frá fjórða áratugnum í Kommún-
istaflokki íslands. Ekki er hægt
að rekja umræðurnar á Alþingi
lið fyrir lið þar sem ræðumenn
voru rúmlega tuttugu. Er líða tók
á umræðurnar komu nokkrir
Framsóknarmenn í eldhúsið og
þá misstu sumir matarlystina.
Svona eftir á þá er hreint ekkert
minnisstætt úr málflutningi
þeirra eða t.d. Alþýðuflokks-
manna sem virkuðu áhugalausir
og vonsviknir um eigin hag og
annarra. Albert Guðmundsson
hvatti til samstöðu Sjálfstæð-
ismanna um land allt og sagði
flokkinn stefna að hreinum
meirihluta á alþingi. Ólafur
Ragnar Grímsson kvaddi svo al-
þingi líkt og prestur sem flytur
útfararræðu yfir nánum vini.
Engar líkur eru á að ólafur
Ragnar nái kjöri í alþing-
iskosningunum. Persónulega
finnst mér hann ávallt málefna-
legur og hann flytur yfirleitt góð-
ar ræður, hann á skilið meira
hrós en ýmsir samflokksþing-
menn hans sem aldrei heyrist frá
og maður er jafnvel löngu búinn
að gleyma.
Þriðjudagur 15. mars:
Mikil umskipti hafa orðið á
Grænlandi síðastliðin þrjátíu ár.
I sjónvarpsmyndinni sem sýnd
var um kvöldið og gerð var af ís-
lenska sjónvarpinu var brugðið
upp þjóðlífsmyndum, rætt við
menningar- og fræðslufulltrúa
Grænlands og fleiri embættis-
menn og alþýðu manna. Sjón-
varpsmyndin er góð heimildar-
mynd um land og fólk og ágæt-
lega unnin af starfsmönnum ís-
lenska sjónvarpsins.
íslandsmeistaramót í fimleikum
veröur haldiö í Laugardalshöll, 19. mars og hefst kl. 14.30 og sunnudag frá kl. 14.00.
Toppfólkið í fimleikum spreytir sig af lífi og sál.
SANDVIK
Rammagerðin
HITACHI
Sjáið fimina í hámarki.
FSÍ
Hótel Sögu
Hótel Esju
Hafnarstræti 19
Hótel Loftleiðum