Morgunblaðið - 19.03.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
45
* \ k - H i \ .<*, ■
n 11! i v
n mj>
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Nú heyrist ekkert
einasta bofs
Ellilífeyrisþegi hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Ég er hérna með eina spurn-
ingu. Mig langaði að vita, hvort
það væri ekki til neins að hafa
verðlagseftirlit í landinu. Svo-
leiðis var, að ég fór í búð í gær,
til þess að ná mér í eitthvað til
þess að lifa á, og ég varð svo
undrandi á verðhækkunum á
ýmsum vörum, þegar ég gekk
um og skoðaði í versluninni, að
ég tapaði gjörsamlega áttum.
Mér finnst þetta gilda jafnt um
vörur, sem maður veit að hafa
verið leyfðar hækkanir á og hin-
ar, sem aldrei hafa verið nefnd-
ar í því sambandi, svo að ég hafi
heyrt. Og þessar hækkanir
nema ekki tugum prósenta nú á
nokkrum mánuðum, heldur
hundruðum prósenta. Þar get ég
talið hreinlætisvörur og súpur
til dæmis. í haust keypti ég
súpupakkann á 4—6 krónur, en
nú eru þær á milli 15 og 20 krón-
ur pakkinn og sumar jafnvel
enn dýrari. Sápustykki sem
kostaði 3—5 í haust kostar nú
13,50. Þetta er sérstaklega
slæmt með súpurnar sem manni
þykir gott að hafa til ígripa. En
þó er það eitt sem undrar mig
enn nú meira, skal ég segja þér,
af því að ég er af eldri kynslóð-
inni, og því kynntist ég aldrei í
mínu ungdæmi: Það þurfti
minni hækkun á vörum i versl-
unum heldur en þetta til þess að
þær létu hvína í sér húsmæð-
urnar. En nú heyrist ekkert ein-
asta bofs í neinni þeirra. Þær
hljóta að vera fjáðar þessar
manneskjur.
Billy Graham
í sjónvarpið
Kona hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Við höfum
nokkrar vinkonur verið að velta
því fyrir okkur, hvort ekki væri
mögulegt að fá þætti með Billy
Graham í sjónvarpið. Ég veit
reyndar að þetta er hægt,
þ.e.a.s. ef vilji er fyrir hendi, því
að prédikari þessi rekur sjálfur
útvarps- og sjónvarpsstöð í
Bandaríkjunum eftir því sem ég
best veit. Þar ættu því að vera
fáanlegir þættir með honum. Ég
held að við öll þurfum á ein-
hverju slíku að halda í sjónvarp-
inu. Þar er t.d. ekki merkjanlegt
á nokkurn hátt að nú er langa-
fasta og aldrei fáum við bæna-
stund á kvöldin í gegnum þenn-
an fjölmiðil. Hins vegar er yfrið
nóg af ljótum þáttum, þar sem
glæpir eru í fyrirrúmi, kryddað-
ir með ofbeldi og klámi. Þetta er
það sem stendur til boða, þegar
maður kveikir á sjónvarpinu.
Eða þetta hroðalega afsprengi
af tónlist, ef tónlist skyldi kalla.
Eins og Hallveigar-
staðir hafi gleymst
Bjartur skrifar:
„Kvennaathvarfið hefur nýlega
verið til umræðu í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi. Talað hefur verið um
að þörfin fyrir það hafi sýnt sig í
mikilli aðsókn og nú þurfi að leggja
út í byggingarframkvæmdir, ef unnt
eigi að vera að sinna þessu verkefni
sómasamlega.
Um helgina heyrði ég á tal manna
um þetta mál. Fannst þeim byrjað á
öfugum enda að ráðast fyrst í bygg-
ingu SÁÁ-stöðvarinnar; þeim fynd-
ist eðlilegra að kvennaathvarf hefði
forgang, þar eð skjólstæðingar þess
væru flestir hjálpar þurfi vegna
ofdrykkjuvandamála eiginmanna
sinna.
En það er eins og mönnum hagi
gleymst Hallveigarstaðir, sem á sín-
um tíma var ætlað að gegna mikil-
vægu félagslegu hlutverki í þágu
kvenna. Hér sýnist mér komið verð-
ugt verkefni fyrir þetta mikla hús.
Og nú þarf að láta hendur standa
fram úr ermum, hreinsa út allt
skrifstofufarganið, þ.m.t. skrifstof-
ur borgardómaraembættisins, og
taka Hallveigarstaði og nýta sem
kvennaathvarf auk þess sem þar
gæti einnig verið til húsa alhliða fé-
lagsmiðstöð fyrir íslenskar konur."
Berjist fyrir
jafnrétti í raun
Katrín skrifar:
„Velvakandi.
Ég vil byrja á því að þakka
Margréti Matthíasdóttur fyrir
greinar hennar. Einnig vil ég
þakka Albert Guðmundssyni, Frið-
rik Sophussyni og Birgi ísleifi
Gunnarssyni fyrir tillögur þeirra
um skattajöfnun.
Svokallaðar kvenréttindakonur
berjast einungis fyrir hagsmuna-
málum útivinnandi kvenna, t.d.
með kröfum um fleiri leikskóla og
dagvistarheimili. Hvað oft hefur
ekki heyrst talað um jafnrétti
fyrir allar konur til að velja sér
störf, þ.e. úti víð eða heima? En
hvað er það í raun?
Ef kona óskar að vera heima og
ala upp börn sín sjálf, er hún
hlunnfarin bæði í sköttum, fæð-
ingarorlofsgreiðslum, sjúkradag-
peningum og e.t.v. fleira. Síðast en
ekki síst er heimavinnandi hús-
móðir ekki metin að verðleikum
þrátt fyrir samfélagslegan sparn-
að hennar, t.d. vegna barnagæslu.
Hví skyldu húsmæður kjósa
konu á þing, ef hún sinnir í engu að
berjast fyrir hagsmunamálum
þeirra og lætur óátalið að þeim sé
refsað fyrir að vera heima? Hvaða
réttlæti er í því, að tvö heimili með
sömu laun eru skattlögð svo mis-
jafnlega, eftir því hvort fyrirvinn-
an er annað hjóna eða bæði?
Þið sem kallið ykkur jafnréttis-
konur og baráttukonur. Berjist
fyrir jafnrétti í raun. Þá munum
við kjósa ykkur."
„Hvers vegna hættið þið ekki þessum barnalega málflutningi, rallarar:
„Að þið hljótið að mega, úr því að aðrir geri það?““
Hvers vegna hættið þið ekki
þessum barnalega málflutningi,
rallarar: „Að þið hljótið að
mega, úr því að aðrir gera það?“
Skopmyndir með fréttinni í
DV af Náttúruverndarráði í
tjaldi á Auðkúluheiði og tor-
færutröll á syndandi kafi í
drullu við hliðina á því er að
mörgu leyti táknræn, sé heim-
skulegum texta, sem fylgir
myndinni, sleppt. Hún sýnir, svo
ekki verður um villst, fjárvana
Náttúruverndarráð, sem vill
gera meira og betur, en stendur
máttvana frammi fyrir ósköp-
unum, sem kjörnir fulltrúar
þjóðarinnar og embættismenn
styðja og leyfa með aðgerðaleysi
sínu og sofandahætti.“
Mundi meÖ
gleði taka
stjórn þessa
félags að sér
A.E. skrifar:
„Velvakandi.
Ég er bara gömul einmana
kona, en er í byggingarfélagi Sam-
taka aldraðra í Reykjavík, hef ver-
ið í því félagi frá upphafi og greitt
mitt árlega félagsgjald. Eg hef
beðið eftir íbúð, sem mér hentar, (
fjölmennu öldrunarhúsi, með fé-
lagslegri aðstöðu, svo að mér leið-
ist ekki síðustu elliárin.
En nú er liðið hátt í áratug og
ennþá bíð ég og sé ekki bóla á því,
að félagsstjórnin standi við það,
sem hún hefur lofað okkur. Ég
veit, að í mörg hundruð manna fé-
lagi eru synir og dætur gamla
fólksins vel menntað fólk, sem
myndi með glöðu geði taka stjórn
þessa félags að sér.
Þess vegna, öldnu vinir, látið í
ykkur heyra og hættið að trúa á
loforð, sem vitað er að verða svik-
ALLTAF A SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Ekki ölmusa heldur hjálp
— Blaöamaður Morgunblaðsins
í Póllandi
Ég skyldi þó ekki hafa
oröiö smeyk?
— Blaöamaöur Morgunblaösins
í Líbanon
Magnast togstreitan milli
Kohls og Strauss?
— Blaöamaöur Morgunblaösins
í Vestur-Þýzkalandi
Fólkiö hans Smileys
Heimilistölvur
Burt Reynolds svaf hér
Gjóstur af landnoröri
Atvinnumenn í íþróttum
Skúrkarnir frá
kreppuárunum
Þaö sem pils og kjólar
hylja
Moshe Ahrens —
svipmynd á sunnudegi
Veröld — Gárur —
Reykjavíkurbréf —
A förnum vegi
Pottarím — Á drottins-
degi — Velvakandi —
Popp
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans