Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
„ÞETTA er mjög áhugavert tilboö frá Gunzburg, en á þessu stigi
get ég að sjálfsögðu ekkert sagt um máliö. Ég mun hugsa mig vel
um og flana ekki aö neinu,“ sagði Kristján Arason FH, þegar honum
var sagt frá því að forráöamenn V-Þýska handknattleiksliðsins
Gunzburg vildi allt gera til þess að fá hann til liðs við sig.
Forráöamenn félagsins fylgd-
ust vel meö Krlstjáni í B-keppn-
inni í Hollandi og eftir aö hafa
ihugaö máliö mjög vel var ákveð-
iö aö gera Kristjáni freistandi tll-
boö, sem felst meöal annars í því
aö hann fær verulega fjárupp-
hæö viö undirskrift samningsins,
frían bíi og frítt húsnæöi. Kristján
stundar nú nám í viöskiptafræöi
viö Háskóla íslands og fari svo
aö hann sýni tilboðinu áhuga
munu forráðamenn félagsins út-
vega Kristjáni skólavist.
Kristján Arason lék mjög vel
meö landsliöinu í B-keppninni og
var markahæsti leikmaður liösins
í keppninni, skoraði 34 mörk.
Kristján hefur veriö einn besti
maður landsliösins á undanförn-
um árum og jafnframt mesti
markaskorarinn í íslenskum
handknattleik.
— ÞR.
• Kristján Arason,
handknattleiksmaður
í fremstu röð.
Janus vill
koma til
Islands og
þjálfa hér
PÓLVERJINN Januz Cherwinzky,
sem þjálfaöi íslenska landsliöið (
handknattleik fyrir nokkrum ár-
um, hefur lýst því yfir við stjórn
HSI, aö hann hafi áhuga á að
koma hingaö til lands í maí 1984
og taka að sér þjálfun landsliðs-
ins eða íslensks félagsliðs, sagöi
Júlíus Havstein, formaður HSI, f
samtali við Mbl. í gær.
Janus þjálfaöi landsliöiö er þaö
náöi 4. sæti í B-keppninni í Austur-
ríki 1977, og var einnig meö liöiö í
hálfgeröum „brófaskóla“ fyrir A-
keppnina í Danmörku áriö eftir er
allt gekk á afturfótunum. Hann er
nú yfirmaöur allra handknatt-
leiksmála í Póllandi og engum
blandast hugur um aö hann er
snjall handknattleiksþjálfari, en
tíminn veröur að skera úr um hvort
hann á eftir aö þjálfa hér á landi á
ný.
Nettelstedt lýst
gjaldþrota og
Sigurður kemur heim
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni
f V-Þýskalandi.
— V-ÞÝSKA handknattleiksliðið
Nettelsted hefur verið lýst gjald-
þrota. Og liggur nokkuð Ijóst fyrir
að liöið tekur ekki þátt ( deildar-
keppninni í handknattleik á
næsta ári. Liðið mun hinsvegar
klára þá leiki sem það á eftir á
keppnistímabilinu. Tveir (slend-
ingar leika með Nettelsted, þeir
Bjarni Guðmundsson og Sigurður
Sveinsson. Sigurður Sveinsson
er nú hættur hjá liðinu og mun
halda til íslands strax í næstu
viku og ganga þá til liðs við sitt
gamla félag, Þrótt.
Siguröur hefur átt í erfiðleikum
meö aö fá greiöslur sínar frá félag-
inu og setti fram kröfur sem ekki
var gengiö aö og því ákvaö hann
aö hætta. Bjarni Guömundsson
mun hinsvegar leika út keppnis-
tímabiiiö og þá mun hann taka
ákvöröun um hvort hann kemur
heim eöa veröur áfram úti. Bjarni
hefur staöiö sig mjög vel með
Nettelsted og getur valiö úr nokkr-
um tilboöum frá 1. deildarliðum
hér í landi.
Nokkur lið í 1. deild hafa átt viö
mikla fjárhagsöröugleika aö etja
og varö eitt þeirra, Hannover, aö
hætta keppni. Og nú er svo komið
• Sigurður Svsinsson ksmur
heim og leikur með Þrótti.
aö nokkur liö í 1. deild hafa gert
fjárkröfu á hendur Hannover
vegna þess að liöin missa heima-
leiki sína. Sum félögin hafa gert
fjárkröfu aö upphæö 50 þúsund
mörk.
JG/ÞR
• Eins og við sögðum (gær færði Eimskip Knattspyrnusambandinu veglegan styrk í fyrradag — 500.000
krónur. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélagsins, færir hér Ellert B. Schram, formanni KSÍ,
ávísunina meö fyrrgreindi upphæð.
Waterschei mætir Aberdeen:
„Ekki útilokað að við
komumst í úrslitin"
- segir Lárus Guðmundsson hjá Waterschei
Juventus mætir Lodz:
„Ánægóur með dráttinn"
- segir Trapattoni, þjálfari Juventus
„ÉG HAFOI vonað að mótherjar
okkar yrðu Lodz þannig aö ég
verð aö segja aö ég er mjög
ánægöur,“ sagði Giovanni Trap-
attoni, þjálfari ítölsku meistar-
anna Juventus, eftir að dregið var
í undanúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða í ZUrich í gær. Juv-
entus mætir sem sagt pólska liö-
inu Widzew Lodz, sem sló Liv-
erpool út í síðustu umferð, en
Real Sociedad leikur viö Ham-
burger SV.
„Öll liö sem komast í undanúrslit
Evrópukeppni eru aö sjálfsögöu
hættuleg, en ég held samt sem áö-
ur aö þaö henti okkur best aö
mæta Lodz nú.“ Hann sagöist
heldur hafa kosiö aö leika fyrri
leikinn í Póllandi, „en þaö er ekki
hægt aö fara fram á allt“. Leikirnir
fara fram 6. og 20. apríl. Eins og
fram kom leika Juventus og Lodz
fyrri leik sinn í Juventus, en Real
Sociedad og Hamburger fyrri leik
sinn á Spáni.
Þess má geta aö Zbigniew Boni-
ek, leikmaöur Juventus, lék áöur
meö Lodz.
„MÉR LÍST nú eiginlega ekksrt
allt of vel á þetta. Þetta veröur
mjög erfitt,“ sagði Lárus Guð-
mundsson, knattspyrnumaður
hjá Waterschei í Belgíu, í spjalli
við Mbl. í gær, er hann var spurð-
ur um dráttinn ( Evrópukeppn-
inni, en Waterschei mætir skoska
liðinu Aberdeen í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa.
Fyrri leikurinn veröur í Skotlandi
og sagöi Lárus þaö kost fyrir Wat-
erschei. „Þá vitum viö í hvaöa
stööu viö verðum þegar viö leikum
á heimavelli.” Lárus sagöi aö fyrst
liðið væri komiö svona langt í
keppninni, heföi hann alveg eins
trú á aö þeir kæmust alla leiö í
úrslitin, þaö væri ekkert útilokaö.
í síöustu umferö sló Waterschei
franska liöið Paris S.G. út úr
keppninni, og „var þaö vægast
sagt frábær leikur hjá okkur, þó ég
• Lárusi Guðmundssyni l(st ekk-
ert of vel á mótherjana ( næstu
umferð.
segi sjálfur frá,“ sagöi Lárus. „Ég
fann mig ágætlega. Nokkur
heppnisstimpill var á marklnu sem
ég skoraöi en samt var þaö nokk-
uö gott mark,“ sagöi Lárus.
Hinn leikurinn í undanúrslitum
keppni bikarhafa er vlöureign
Austria Vin og Real Madrid og er
fyrri leikurinn í Austurríki.
Um helgina leika Lárus og félag-
ar gegn Club Brugge á útivelli í
deildinni, en liöin tvö eru jöfn í 4.
sæti meö 31 stig. „Þaö veröur ör-
ugglega hörkuleikur og ræöur
sennilega úrslitum um þaö hvort
liöiö nær fjóröa sætinu, en fjóröa
liöiö kemst í UEFA-keppnina á
næsta tímabili," sagöi Lárus.
— SH
(Knattspypna)